Morgunblaðið - 24.01.1988, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. JANÚAR 1988
37
IÐNAÐARMENN
_________Bækur_____________
Jón Gíslason
Iðnskólaútgáfan — IÐNÚ
Reykjavík 1987.
Eitt aðaleinkenni nútíma þjóð-
félags á íslandi er aukin áhrif og
vídd iðnlærðra stétta. Að vísu voru
í sumum héruðum landsins starf-
andi iðnlærðir menn að fyrirmynd
nágranna þjóðanna. En þeir voru
fámennir og fáir, en höfðu þó varan-
leg og haldgóð áhrif. En* eftir að
þjóðinni óx fiskur um hrygg og hér
hófst stórskipaútgerð, hlutu að
koma hér upp lærðir iðnaðarmenn
í fjölda greina. Unga menn fór að
fysa að læra ný störf, spreyta sig
við verkefni varðandi breytt og
margþætt störf varðandi atvinnu-
vegina. Margir lögðu þar undirstöðu
arðmikilla starfa og fjölbreytilegra
verkefna. Hinn óbreytti vanalegi
liðsmaður var allt í einu orðinn
áhrifamikill í kunnáttu sinni, verk-
lægni og af hugviti til úrlausna
þýðingarmiklum atriðum í sam-
bandi við vaxandi þjóðarfram-
leiðslu.
íslensk verkmenning var allt í
einu orðin í vorþey nýrrar árbrúnar
í sókn til bætts þjóðfélags. Margar
breyttar aðstæður og algerlega ný
störf urðu til í borg, byggð og
sveit. Ný verkfæri komu til landsins
til að létta og bæta störfin. Athafn-
ir landsmanna urðu fjölbreyttari
með nýjum tækjum, vélum og kunn-
áttumiklum starfsmönnum er lifðu
og skildu breytta tíma og dreifðu
vorþey breytinganna um landið allt.
Vélar í báta, skip og margskonar
samgöngutæki, urðu mikilsvirði.
Framleiðslutækin urðu afkasta-
meiri, stórtækari og nýttust af
raunhæfum notum aflmeiri afl-
gjafa. En mest var virði, að verk-
þekking dafnaði og jókst,
kunnáttumenn urðu til á marg-
breytilegum sviðum.
Hér í þessari bók eru birtir sex
þættir, jafnmargra iðnaðarmanna,
er risu úr öskustó liðins athafna-
leysis og urðu aflvakar til framfara
og sóknar f iðnmenningu lands og
þjóðar. Líf þeirra og starf var tendr-
að vonum um betra líf, arðmeira
starf og fjölþættari þekkingu í verk-
um hinna flölmörgu handa, er lögðu
sig fram af öllum hug og kunnáttu
til að geta leyst störf sín sem allra
best af hendi.'
Völundurinn frægi er lagði frá
steðja sínum að verki loknu betri
grip en áður var þekktur, varð
frægur að loknu verki. Hann var
dverga líki í vitund þeirra sem nutu.
En hann var líka fyrirmynd stéttar-
bræðra sinna og aðdáenda á
komandi tímum. Hann varð öllum
öðrum fyrirmynd. í raun réttri er
hann fyrirmynd iðnaðarmannsins,
hinn sanni meistari.
Frá fyrstu sögu hafa hagleiks-
menn verið dáðir, verið frægir og
velgerðarmenn bóndans, sjómanns-
ins og hvers starfssams manns í
þjóðfélaginu. Allir þurftu að sækja
til þeirra aðstoð og styrk. Þetta var
Nyrmetsölubíll
ara
tveggja er byggt fyrir erfiðar að-
stæður. Auk þess er hann á heilsársh j ólbörð
um. Excel er gerður til að endast, viðhaldið
er í lágmarki og þú getur verið áhyggju-
laus í 5 ár.
Excel er búinn kraftmikillr 1,5 lítra vél
með yfirliggjandi knastás. Val er um 4 eða 5
gíra beinskiptingu, eða þriggja stiga sjálf-
skiptingu. Eldsneytiseyðslan er því með
minnsta móti. en krafturinn nægur.
Glæsileiki Hyundai Excel felst ekki ein-
göngu í útlitinu (sem reyndar er ítölsk
hönnun), því það er staðreynd að
staðalbúnaður Hyundai er í mörgum tilvikum
aukabúnaður hjá öðrum.
Settu þig strax í samband við söiuaðila
Hyundai Excel á íslandi Svein Egilsson hf., í
Framtíð við Skeifuna.
Síminn er (91) 685100.
ATH. Það verður opið í Framtíð laugar-
dag og sunnudag.
HYunoni j
Bíll fyrir skynsamt fólk.
breytilegt á mismunandi tímum, en
aldrei jafnnauðsynlegt og í þjóð-
félagi nútímans, eftir að verkaskipt-
ing varð almenn milli starfsgreina.
Skipasmiðurinn varð meistari far-
kostsins, vélsmiðurinn meistari
orkugjafans jafnt á sjó og landi,
bakarinn meistari brauðsins. Bók-
bindarinn skreytti og batt bækum-
ar, og var skapandi fagurra kila
og skreyttra hliða, húsgagnasmið-
urinn smíðaði húsgögn og hægindi
heimilanna og bifvélavirkinn gerði
við bifreiðamar og vélar. Allar þess-
ar greinar vom nauðsynlegar, en
fremst af öllu krefjandi og algerlega
óaðskiljanlegar í nútíma þjóðfélagi.
Allar hlutu þær að þróast af þörf
samfélagsins. En þessu er lýst af
löngu og reynsluríku starfi hvers
og eins í bókinni, Iðnaðarmenn, sem
iðnskólinn gefur út.
Með tilkomu iðnaðarmanna og
rejmslu í raun starfa og þekkingar
af námi á verkstæðum og bóklegum
greinum, varð til fyllri og fremri
verkleg þekking en áður var í
landinu. Menn voru misjafnlega
fljótir að tileinka sér reynslu og
kunnáttu, útsjónarsemi og hagleik.
Jafnvel voru sumir búnir þeim hæfi-
leikum og dugnaði, að þeir sáu leið
út úr hvetjum vanda. Slíkir vom
völundar úr hendi náttúmnnar.
Þeir urðu boðendur starfa hinna
ungu iðnaðarstétta í þjóðfélagi nú-
tímans.
Ég hef þegar getið um sex iðn-
greinar, allar merkar og þýðingar-
miklar. Þær eiga allar fulltrúa á
síðum bókarinnar. En saga allra
annarra iðnaðarmanna á síðar eftir
birtast í sögu iðnaðarmanna og iðn-
aðar í ritinu er hér hefur göngu
sína á vegum IÐNÚ. Líf og-starf
hinna vinnandi þegna nútímans er
ekki bundið takmörkunum, heldur
háð hinu margiðandi breytni þjóð-
félagsins, sískapandi og lifandi af
margbreytilegum störfum og §öl-
breytni. Með vaxandi tækni og
hugviti, verður alltaf nýtt og til
úrlausnar. Þar er ekkert þrot hins
ókomna og ómælda.
Þættimir í bókinni, Iðnaðar-
menn, em vel ritaðir og lýsa vel
viðkomandi iðngrein, er þeir meist-
aramir fjalla um hver í sinni
starfsgrein. Lífsreynsla og þekking
meistaranna lofar störf þeirra.
Þekking þeirra og reynsla ber end-
urskin á leiðina er þeir vísuðu
nemendum sínum og félögum
fyrstu sporin og létu þá ekki fjar-
lægjast sig án leiðbeininga fram á
ókomnar slóðir langs iðnaðarstarfs
að loknu námi. Starfið er hlekkur
í margbrotnu samfélagi. Það skilja
hinir sex iðnmeistarar er rita hér
um iðngrein sína.
Meðan ég las bókina, Iðnaðarmenn, -
datt mér oft í hug, hve mikil þrek-
raun það hefur verið fyrir hina
ungu brautryðjendur iðngreinanna
sex, að halda út og sælrja til sigurs
langa brekku og erfiðleikum
bundna upp í sæti þekkingarinnar
til leiðarenda iðnnámsins. En þar
var ekki takmarkinu náð að fullu.
Það var áfangi. Þeir urðu líka að
sækja til fótfestu í rekstri greinar-
innar. Vinna sér veg og frama með
því að reisa sér athvarf til að geta
stundað iðn sína í friði, starfað við
hana sem starfsgrein trausta og
trygga á eigin vegum. Það tókst
þeim öllum af miklum dugnaði og
sannri fyrirhyggju.
Ég rek þetta hér af því ég vil
vekja athygli á, að ég álít tilgang
þessa rits vera tvíþætt. Annarsveg-
ar að greina frá erfiðleikum unga
mannsins er leggur út á iðnaðar-
mannsbrautina og sækir þangað
feng og þekkingu, verður fengsæll
þegn þjóðfélagsins. En hins vegar
að sýna þýðingu iðnnámsins, jafnt
fyrir einstaklinginn og heildina.
Tilgangurinn er athyglisverður
og gagn fyrir samfélagið í víðtæk-
ari orðum en ég get lýst í stuttri
blaðagrein.
Bókin Iðnaðarmenn er vel gerð
og skreytt mörgum myndum, er
gefa henni mikið gildi. Hún er vel
rituð og allur frágangur hinn prýði-
legasti. Hann er iðnaðarstéttinni
íslensku til mikils sóma. Ég vona,
að við fáum mörg rit af sama stofni
á komandi árum.
Höfundur er fræðimaður.