Morgunblaðið - 24.01.1988, Blaðsíða 57
57
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. JANÚAR 1988
ár. Án Sigurðar hefði þessi fífldirfska
getað farið illa, en allt gekk það vel
og bjargaði fjárhag fjölskyldumanns
í háskóla, fyrir daga námslána og
annarrar opinberrar forsjár. Er
skemmst frá því að segja að á þessu
tímabili sótti ég öll ráð til Sigurðar,
sem reyndust hvert öðru betra.
Að loknu lagaprófi átti ég það
Sigurði að þakka og vini okkar Þor-
valdi Lúðvíkssyni, sem rak með
honum stofu á þ'eim árum, að ég
fékk fljótt prófmál til flutnings og
öðlaðist ungur réttindi til málflutn-
ings fyrir undirrétti og Hæstarétti.
Af öllu þessu og mörgu öðru, sem
ég sótti til Sigurðar, nefndi ég hann,
og hafði til þess sérstakt leyfi, fóstra
minn í lögfræði. Og nú, þegar hann
er allur, er mér þakkarskuld efst í
huga.
En það er lítil saga sögð af Sig-
urði Ólasyni, þótt þess sé getið, að
hann hafí haldið vel undir hom með
ungum starfsbróður. Ég veit ekki
hvort til nokkurs er að lýsa honum
fyrir öðrum en þeim, sem þekktu
hann vel. Hann var engum öðrum
líkur. í lögfræðistörfum, einkum
málflutningi, efast ég um að hann
hafi átt jafningja í frumleika og hug-
myndaflugi með fætur fasta í
fráeðimennsku og mannlegum skiln-
ingi.
Reynandi væri að lýsa annarri hlið
Sigurðar með því að vísa til fjöl-
margra ritgerða og fræðigreina, er
hann skrifaði um söguieg efni, ævin-
lega frá nýjum og oft óvæntum
sjónarhóli. Minni hans og fróðleikur
um liðna tíð, ásamt frásagnarlist og
hermigáfu, ef í það fór, væri eitt sér
efni í ógleymanlegan mann. En samt
er flest ótalið. Hann var húmoristi
og gleðigjafi, hvar sem hann kom.
Eitt sinn stakk hann höfðinu inn á
fund, sem ég sat í fjármálaráðuneyt-
inu og kvaðst endilega þurfa að sýna
okkur bók, sem honum hafði rétt í
þessu áskotnast. Dró síðan fram
„Stærðfræðileg formúluljóð" eftir
prest nokkum og söng eitt stærð-
fræðiljóðið undir dapurlegu sálmala-
gi, sem presturinn hafði notað við
kveðskapinn. Baðst svo afsökunar á
ónæðinu og var farinn.
Á gleðifundum færðist fóstri minn
allur í aukana og varð fyrir alvöru
óútreiknanlegur. Var þá aldrei að
vita nema hann léki á fíðlu, harmon-
iku eða saxófón, eða farið væri í
siglingu á Hafravatni eða í Slipp að
kaupa togara á uppboði, eins og
hann gerði eitt sinn, til skelfíngar
ungum stúlkum í samkvæminu, sem
áttuðu sig ekki á því, að hann vann
þar óaðfínnanlegt embættisverk í
þágu fjármálaráðuneytisins, en var
ekki að kaupa skip fyrir eigin reikn-
ing.
Hér skal staðar numið. Úti er
ævintýrið Sigurður Ólason. Hann
náði háum aldri og lífsveislunni var
lokið. Er þá gott að kveðja. Fari
hann vel, fóstri og vinur.
Magnús Óskarsson
Sigurður var enn ungur í anda
þrátt fyrir háan aldur. Maður varð
alltaf var við einfaldleika hans og
heiðarleika jafnt í orði sem á borði,
og hann hafði sérstakt lag á að láta
þér líða vel í nærveru sinni.
Sigurður var eins og hinn sanni
höfðingi sem veitir ríkulega af and-
legum fjársjóðum sínum, menningu,
mannúð og visku. Mér auðnaðist
ekki að þekkja Sigurð í mörg ár, né
heldur töluðum við sömu tunguna
nema að takmörkuðu leyti en það
kom þó ekki í veg fyrir að ég gerði
mér grein fyrir því hversu einstæð
manneskja hann var. Orð voru ekki
nauðsynleg til að skilja manngæsku
hans.
Sigurður lifði í einskonar töfra-
heimi, þar sem með mannfólkinu
þrifust álfar, draugar og fleiri kynja-
verur. Fegurð íslenskrar náttúru
fékk á sig enn ævintýralegri blæ í
frásögnum Sigurðar á ferðum mínum
með honum um landið, þar sem hann
þekkti hvem hól og íbúa hans hvort
sem var af fyrri öldum eða öðmm
heimi. Millistigið milli hugarflugs og
veruleika var íronía Sigurðar og hann
hafði þennan sjaldgæfa hæfileika að
gera sífellt grín að sjálfum sér og
koma öðrum til að hlæja um leið.
Nú þegar Sigurður hefur kvatt
jarðneskt líf, þar sem við bindumst
flest föstum böndum við veraldleg
gæði, leitar hann frjáls á hin ókunnu
Qöll til að öðlast nýjan skilning á
tilgangi lífsins með óþijótandi rann-
sóknaráhuga og hugarflug t nesti til
að færast nær sannleikanum og
Guði.
Sigurður lifir áfram í okkur sem
þekkjum hann vel ef við berum gæfu
til að viðhalda og rækta hans góðu
kosti til að verða betri manneskjur.
Pietro Luigi Manna
Okkur systkinin frá Kollafírði
langar til að minnast Sigurðar Óla-
sonar með örfáum orðum.
Hugurinn leitar til baka til ár-
anna, þegar við systrabömin vomm
mikið samvistum í Kollafirði, en þar
bjuggu foreldrar okkar, Guðmundur
og Helga, en Sigurður og Unna
móðursystir okkar áttu þar sumar-
bústað.
Það sem kemur fyrst upp í huga
okkar er það hvað Sigurður hafði
sterkt ímyndunarafl. Hann leiddi
okkur krakkana inn í heim álfa og
dularvera með líflegum sögum um
hina ýmsu atburði, sem hann taldi
að hefðu átt sér stað. Á þeim tíma
datt okkur ekki í hug að vefengja
frásagnir hans.
Sigurður hafði það sér til dund-
urs, oft á tíðum, að smíða lítil
krakkahús. Einu slíku tyllti hann
upp á háan hól og hallaði „Hænsna-
kirkju". í heimi endurminninganna
stendur þessi litla Hænsnakirkja
okkar ljóslifandi fyrir hugskotssjón-
um. Annað lítið hús stóð við
sumarbústað þeirra Unnu, var það
kallað Tótu-hús í höfuðið á Tótu
dóttur þeirra. Þar lékum við okkur
mikið.
Sigurður var mjög iðinn við að
taka ljósmyndir og gerði það við
ýmis tækifæri eins og í afmælis-
veislum, fermingum o.fl. Þessar
ljósmyndir geyma margar skemmti-
legar endurminningar, sem annars
væru trúlega glataðar. Hann tók
einnig þó nokkuð af kvikmyndum
sem ekki var algengt á þeim árum
og sýndi þær oft við mikinn fögnuð
allra. ’
Bátsferðimar með Sigurði og
krökkum þeirra Unnu eru ógleym-
anlegar, bæði á Koliafírði og
Hafravatni. Enginn fékk að fara í
bátinn án björgunarvesta. Sigurður
hafði einstakt lag á þvi að skapa
spennandi og ævintýralegt and-
rúmsloft í kringum þessar ferðir.
Við þökkum honum fyrir þetta
allt og biðjum honum allrar blessun-
ar. 7
Systkinin frá Kollafirði.
hugur hans með þessari íþrótta-
grein og vann henni vel. Ég man
þegar hann var að glettast við okk-
ur í Sólheimatungu og gekk um
húsið á höndunum. Hann fór upp
og niður stigann og fór svo að kola-
vélinni og hlýjaði sér á fótunum
með því að láta þá lafa yfír eldinn
okkur til mikillar skelfíngar. Jón
eignaðist mjög góða vini á þessum
árum og þeir sáust yfírleitt saman
í hóp. Þeir sem ég man best eftir
em Deddi, Dóri, Hilmar og Guðjón.
Ég veit að þeir voru honum mjög
mikils virði.
■ Um 1950 hefst svo lffskafli Jóns
sem eftir það varð þungamiðja lífs
hans. Hann velur sér lífsfömnaut,
Guðnýju Valgeirsdóttur. 1. septem-
ber 1951 eignast þau sólargeislann
sinn sem var skírð Kristfn Asa. Hún
var alla tfð kölluð Diddf. Diddf litla
var dásamlegt bam. Hún var ákaf-
lega fallegt og ljúft bam. Spékopp-
amir sem oft komu í ljós í fallegu
brosi hennar. Hnyttin tilsvör hennar
og kátína em mér ennþá í fersku
minni. Hún var fyrst og fremst for-
eldrum sínum sannkölluð guðsgjöf
og einnig báðum flölskyldum þeirra.
Óskar, eiginmaður minn, og ég vor-
um svo lánsöm að njóta daglegra
samvista við hana stóran part af
hennar stutta lffshlaupi ásamt móð-
ur minni, Magneu, þar sem við
bjuggum með Jóni og Guðnýju í
Sólheimatungu. Vinátta ömmunnar
og bamsins var innileg og fögur
en fyrst og fremst var Diddí einka-
bam foreldra sinna og þungamiðja
lffs þeirra.
í september 1967 kom það heljar-
högg sem veitti þau sár sem aldrei
hafa gróið. Diddí litla lést í bílslysi.
Enn þann dag í dag hvílir ofur-
þungi þessa atburðar á fjölskyldu
Jóns og Guðnýjar og þau sjálf hafa
sfðan gengið veginn saman $ skugga
þessa missis. Svo samhent hafa þau
gengið þann veg að ef talað eða
hugsað var um annað hvort þeirra
kom alltaf nafn hins með. Það var
ekki sagt Jón eða Guðný heldur Jón
og Guðný. í Sólheimatungu á heim-
ilum fjölskyldna þeirra grúfði sorgin
yfir og ofurþungi hennar var varla
borinn. Amman, Magnea, sagði þá
eitt sinn við mig. „Það er ekkert
að líða sjálfur, en að horfa upp á
bömin sín líða svona er hræðilegt."
1960 í byijun nóvember reið ann-
að heljarhöggið. Móðir okkar,
Magnea, varð einnig fyrir bíl nokkr-
um metrum frá þeim stað er fyrra
slysið var. Hún beið einnig bana.
Jón var sá sem fyrstur var af okk-
ur á slysstað og fylgdi henni í
sjúkrabílnum. Einkabam og móðir
á þremur árum. Það þarf mikið
þrek tíl að standa með beint bak
eftir það. Með hjálp Guðnýjar stóð
hann eins og alltaf sem klettur. Við
öll systkinin stóðum þétt saman í
sorg okkar. Ég var yngst og ekki
eins sterk og dugleg. Jón og Guðný
stóðu þá við hlið okkar þjónanna f
4
Sólheimatungu og gátu gefíð mér
mikinn styrk og hjálp þrátt fyrir
þann ofurþunga sem þau sjálf báru.
Fjórum árum seinna bankaði
sorgin enn upp á. 1964 varð Júlfus
faðir okkar bráðkvaddur.
Síðan hafa árin liðið og ekki er
hægt annað að segja en þau hafi
verið góð. Systkinin elstu, Jón og
Vallý, ásamt mökum sínum,
Guðnýju og Hauki, hafa nú reist
mjög glæsilegt hús á Sólheima-
tungulóðinni. Heimili Jóns og
Guðnýjar ber vott um sameiningu
þeirra en einnig um frábær hand-
verk og listhneigð. Það hefur verið
yndislegt að fylgjast með upp-
byggingu systkinanna sameigin-
lega og maka þeirra á þessum stað.
Oft hafa fjölskyldur okkar systkin-
anna mæst á uppeldisstaðnum og
einnig Qölskyldur systkina Guðnýj-
ar.
Nú hefur ofurþungi sorgarinnar
lagst á þennan hóp. Jón undirbjó
jólin eins og við hin og framundan
fór tími hátíðar, hvíldar og Qöl-
skylduheimsókna. Jón veiktist
alvarlega á annan í jólum og var
fluttur á hjartadeild Landspítalans.
Þar háði Jón sitt sfðasta jarð-
arstríð. 17. janúar kvaddi hann
okkur. í huga mér er innilegt þakk-
læti til alls hjúkrunarfólks á hjarta-
deildinni og ég bið Guð að blessa
starf þeirra og þau sjálf.
Guðný sér nú á eftir lífsförunaut
sínum. Ég bið Guð um að gefa
henni styrk til að standast þessa
raun. Ég bið Guð einnig um að
systkini hennar og við systkinin
ásamt fjölskyldum okkar beri þá
gæfu að geta myndað órofa hring
til að létta henni þessa byrði um
ókomin ár.
Við systkinin þrjú frá Sólheima-
tungu sem eftir stöndum eigum
margs að minnast og mikið að
þakka. Við drúpum höfði í hryggð
okkar og biðjum guð að blessa ást-
kæran bróður.
Þetta ljóð sendi afí okkar, Guðjón
Pálsson sálmaskáld, Jóni er hann
fermdist, og er það að finna í Ljóða-
safni Guðjóns.:
Göfugt hjarta, glatt í þraut
gulli hærra mettu.
Láttu haga hönd þér braut
höggva að marki settu.
Víðsýnis og visku dís
vegsemd auki þina
langt sem hjartans löngun kýs
ljóst þitt nái að skfna.
Selma Júlfusdóttir
f dag kveðjum við ljúfan og góð-
an dreng, Jón Júlfusson. Dauði hans
kom okkur í opna skjöldu, því síðast
þegar við hittumst, skömmu fyrir
jól, var hann hress og glaður, eins
og hann var jafnan. Margs er að
minnast á kveðjustund. Við vorum
í Gagnfræðaskóla Reykjavíkur,
„Ingimarsskólanum", þegar við
hittumst fyrsta sinni. Vignir Andr-
ésson, einn af kennurum skólans,
var þá að físka eftir efnilegum
strákum f fimleikadeildir KR. Jón
varð frábær fimleikamaður og árin
sem við störfuðum saman í flokkn-
um bundumst við ævilöngum
vináttuböndum. Við vorum nokkrir
sem héldum hópinn lengi vel og það
var ekki fyrr en menn fóru að stofna
heimili sem fylkingin riðlaðist lítið
eitt, þó aldrei svo að menn hittust
ekki af og til. Margt var brallað á
þessum árum og ferðalög og útileg-
ur stunduð af kappi. Jón fæddist í
Reykjavík þann 18. september 1928
og hefði því orðið sextugur á árinu.
Foreldrar hans voru hjónin Júlíus
Jónsson og Magnea Guðjónsdóttir,
og er Jón var tveggja ára fluttu
þau í Sólheimatungu við Laugarás-
veg, átti Jón eftir að búa í Laugar-
ásnum megnið af sinni ævi. Olst
hann þar upp ásamt systkinum
sfnum og í hópi félaga sem kunnu
að meta umhverfíð til starfs og
leikja. Þann 1. september 1953
kvæntist hann eftirlifandi konu
sinni, Guðnýju Valgeirsdóttur, og
eignuðust þau eina dóttur, Ásu, sem
þau misstu af slysförum aðeins sex
ára gamla. Syrgðu þau hana mjög,
slík sár gróa aldrei. Þau byggðu
sér hús við Laugarásveginn, þar
sem gamla Sólheimatungan stóð
áður, ásamt systur Jóns og mági.
Kom þá í Ijós samheldni þeirra hjóna
og hve laghentur og listrænn maður
Jón var. Innréttaði hann húsið að
mestu sjálfur á glæsilegan hátt.
Áttum við hjónin margar notalegar
kvöldstundir með þeim á þessu fal-
lega heimili, og þökkum við heils-
hugar fyrir þær allar.
Ungur lærði Jón prentiðn í ísa-
foldarprentsmiðju og starfaði þar
alla tíð síðam mörg síðustu árin sem
verkstjóri. Ég átti af og til við-
skipti við Jón og prentsmiðjuna f.h.
stéttarfélags míns. Alltaf var sami
krafturinn við vinnuna og síðast
þegar ég átti erindi við hann
skömmu fyrir jól hafði ég orð á því
hvort hann léti ekki full mikið og
hvort hann sem verkstjóri ætti ekki
að eiga náðugri daga. Hann bara
brosti sínu ljúfa brosi og sagði að
svona yrði þetta að vera. Hann var
mjög góður teiknari og listrænn í
sér og kom það skýrt fram í vinn-
unni. Hin síðari ár hittumst við
reglulega og tókum að ferðast sam-
an að nýju. Alltaf var Jón sami
glaði og góði félaginn og forðum
og nú söknum við vinar í stað. En
Guð ræður og ég trúi að allt i þess-
um heimi hafí sinn tilgang.
Ég kveð minn góða vin og við
hittumst í fyllingu tímans. Við Sirrý
biðjum góðan Guð að styrkja þig,
Guðný mín, og sendum allri §öl-
skyldunni samúðarkveðjur,
Stefán Vilhelmsson
+
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
HERTHA EINARSSON - GRÍMSSON,
Hátúnl 10b,
andaðist í Landspítalanum 21. janúar.
Elsa Guösteinsdóttir, Margelr Ingólfsson,
Anný Guðsteinsdóttir, Wendel Baker,
Bent GuAsteinsson, Marfa Hauksdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
INGVARÁRNASON,
Deildartúni 5,
Akranesl,
veröur jarðsunginn frá Akranesskirkju miðvikudaginn 27. janúar
kl. 11.30.
Steinunn Jósefsdóttir,
Adda Ingvarsdóttir, Viðar Karlsson,
Eisa Ingvarsdóttir, Böðvar Jóhannesson,
Ellert Ingvarsson, Svanhildur Kristjánsdóttir
og barnabörn.
+
Faðir okkar og tengdafaöir,
FRÍMANN A. JÓNASSON
fyrrverandi skólastjóri,
sem lést hinn 16. þ.m., verður jarösunginn frá Kópavogskirkju
mánudaginn 25. janúar kl. 13.30.
RagnheiAur Frímannsdóttir, Ove Krebs,
Birna Frfmannsdóttir, Trúmann Kristiansen,
Jónas Frfmannsson, Margrét Loftsdóttir.
+
Faðir okkar og tengdafaðir,
BRYNJÓLFUR GUÐMUNDSSON
Sólheimum, Hrunamannahreppi,
sem andaðist 20. janúar veröur jarösettur frá Hrunakirkju 27.
janúar kl. 14.00. ■
Erla Brynjólfsdóttir,
Kormákur Ingvarsson,
Guðrún Brynjólfsdóttir.
+
Eiginkona mín,
SVANFRÍÐUR G. VIGFÚSDÓTTIR,
veröur jarðsett frá Fossvogskapellu þriðjudaginn 26. janúar. kl.
13.30.
Asbjörn Magnússon.
Lokað
Vegna jarðarfarar JÓNS JÚLÍUSSONAR, verkstjóra,
verður lokað eftir hádegi mánudaginn 25. janúar 1988.
ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJA HF.
'MjTn 'twyj ■ i" *■ ‘f.n 'i -im* 'j'P-.t imn