Morgunblaðið - 24.01.1988, Qupperneq 60
SRwguiiMjifetfr
Pykkvakœjwi
Þar vex sem vel er sáð!
SUNNUDAGUR 24. JANÚAR 1988
VERÐ í LAUSASÖLU 55 KR.
Barnabætur:
Um 700 milljónir
vegna 60.000 bama
Greiðslur til 40-50.000 viðtakenda
GERA má ráð fyrir að ríkið
greiði um 600 til 700 milijónir
króna í bamabætur og bama-
bótaauka fyrir tímabilið janúar
til mars, að sðgn Indriða H. Þor-
lákssonar skrifstofustjóra í
fjármálaráðuneytinu. Greitt er
vegna um 60.000 bama og er _
reiknað með að greiðslur fari til
um 40 til 60 þúsund viðtakenda.
Indriði sagði að S þeim útreikn-
ingum sem gerðir voru vegna
frumvarpsins hafi verið gert ráð
fyrir að heildarupphæð bamabóta
og bamabótaauka yrði nær 2,4 til
2^6 milljörðum króna á árinu 1988.
„I tengslum við aðrar skattabreyt-
ingar voru bamabætur og bama-
bótaaukinn hækkaðir um nær
10%,“ sagði Indriði. „Það má því
gera ráð fyrir að heildargreiðsla á
árinu verði um 2,8 til 2,9 milljarðar
miðað við meðalverðlag árið 1988.“
Greiðslan sem nú kemur til út-
borgunar er fjórðungur af bama-
bótum mjðað við verðlag í
ársbyijun. í kjölfar bamabóta verð-
ur bamabótaauki greiddur en það
er fyrirframgreiðsla og miðast við
27,5% af bamabótaauka sem við-
takandi fékk á síðasta ári.
Einnig fluttir út 1.000 lítrar af hrognum
Leysigeisli
við skurð-
aðgerðir
Borgarspítalinn festi fyrir
nokkru kaup á leysigeislatæki
sem þykir henta mjög vel við
aðgerðir á raddböndum og við
aðgerðir vegna slímhúðarbreyt-
inga, góðkynja og ilikynja, í
munni og koki.
Að sögn Hannesar Hjartarsonar
læknis, sem ásamt Einari Thorodd-
sen lækni gerir aðgerðir með leysi-
eða lasertækinu, eru helstu kostir
tækisins þeir að með því er unnið
í gegnum smásjá og því hægt að
sjá mun betur hvað verið er að
gera. Leysigeislinn orsakar minni
skemmdir í vefjum kringum skurð-
inn en þegar skorið er með hníf og
bjúgmyndun í vefjunum verður auk
þess minni. Sár gróa fljótt og einn-
ig fær sjúkiingurinn minni verki
eftir aðgerðina en ella. Þetta þýðir
styttri sjúkrahúsdvöl sjúklinga, sem
aftur er spamaður fyrir þjóðfélagið.
Tækið er vandmeðfarið að sögn
Hannesar og endurkastist geislinn
í málmhlut getur það skaðað hom-
himnur augans ef það er ekki varið,
svo og þarf að gæta þess vel að
andlit sjúklings brenni ekki. Það
er gert með rökum grisjum en ieysi-
geislinn hefur engin áhrif á vökva.,
Leysitækið á Háls-, nef- og eyma-
deild Borgarspítalans er notað við
tvær til þijár aðgerðir í viku.
Sjá grein á bls. 22-23.
Kald-
asta
nóttin
AÐFARANÓTT
laugardags var
kaldasta nótt
vetrarins, sam-
kvæmt upplýs-
ingum frá
Veðurstofunni.
Mest mældist
frostið á Möðru-
dal 28 stig. Þrátt
fyrir það voru
heimamenn að
búa sig undir
snjósleðaferð á
þorrablót á
Vopnafirði í gær.
Hlýjast var í
Vestmannaeyj-
um um 5 stiga
frost.
Á Hveravöllum
var 26 stiga frost
og á Staðarhóli í
Aðaldal var 24
stiga frost. Á Eg-
ilsstöðum var 21
stigs frost og á
Vopnafirði og á
Hamraendum í
Borgarfírði mæld-
ist 20 stiga frost.
Mesta frost í
Reykjavík mældist
15 stig. Búast má
við að nokkuð
dragi úr frostinu í
dag.
Morgunblaðið/Ámi Sœberg
Seiði flutt út fyrir
300 milljónir króna
okkar umframframleiðslu í Noregi,
,en leyfí hafa enn ekki fengist til
innflutnings þangað. Búist er við
að leyfí fáist fljótlega. Norðmenn
telja sig reyndar framleiða nóg af
seiðum, en vegna aðstæðna er út-
lit fyrir að staðbundinn skortur
verði, aðallega í Norður-Noregi.
Á síðasta ári fluttu 8 stöðvar
út seiði, 924 þúsund seiði til Nor-
egs og hálfa milljón seiða til
írlands. Ekki er vitað hvað mikið
verður flutt út til írlands en 26
stöðvar hafa lýst áhuga á að flytja
út seiði til Noregs, og er talið
líklegt að þangað fari 4—5 milljón-
ir gönguseiða í ár. Friðrik telur
að svipað verð fáist fyrir seiðin og
fékkst á síðasta ári. Islensku seið-
in fara í sjókvíar við Noregsstrend-
ur og ætti þessi fjöldi gönguseiða
að skila norsku stöðvunum 8 þús-
und tonna framleiðslu af laxi eftir
tvö ár.
Nú er hrognaskortur í Noregi
og hafa íslensku stöðvamar fengið
nokkrar fyrirspumir um hrogn.
Þegar hefur verið gengið frá sölu
þangað og til Chile og býst Friðrik
við að um 1.000 lítrar af hrognum
verði fluttir út í vetur, að verð-
mæti nálægt 14 milljónum kr.
Morgunblaðið/Sverrir
Krabbamein í tungu brennt burt með leysigeislatæki Háis-,
nef- og eymadeildar Borgarspitalans.
Angóraull keypt frá Noregi
Hagstæður markaður fyrir fatnað að opnast í Noregi
FÍNULL hf. hefur gert samkomulag við norska og danska angóra-
ullarútflytjendur að kaupa af þeim hráefni í fataframleiðslu sína
—i;' meðan íslenskir kanínubændur framleiða ekki næga ull fyrir
verksmiðjuna. Jafnframt hefur norskur innflytjandi fengið einka-
umboð til sölu á fatnaði Fínullar í Noregi.
Fulltrúar norsku fyrirtækjanna
eru á ferð hér á landi. Þeir hafa
meðal annars skoðað verksmiðju
Fínullar og framleiðslu hennar og
gengið frá samkomulagi um vænt-
anleg viðskipti. Sigurður Sigurðar-
son aðstoðarframkvæmdastjóri
Fínullar sem sér um markaðs- og
sölumál sagði í samtali við Morg-
unblaðið að Fínull þyrfti að kaupa
hráefni erlendis frá vegna þess að
framleiðslan innanlands væri ekki
nógu mikil enn og hefði angóraull-
in aðallega verið keypt frá Kína.
Hagkvæmara yrði að kaupa ullina
frá Noregi vegna minni kostnaðar
við flutninga, auk þess sem örugg-
ari afgreiðsla vörunnar væri
tryggð. Síðar verður gengið frá
samningum um magn og verð, en
búist er við að innflutningur á
angórakanínuull frá Noregi og
Danmörku hefjíst næsta haust.
Þá væru Norðmennimir mjög
áhugasamir um að kaupa fatnað
frá Fínull og væru tilbúnir til að
greiða sama verð og fengist fyrir
hann á innanlandsmarkaði. Taldi
Sigurður að Norðmennimir myndu
fljótlega kaupa jafn mikið af fatn-
aði og seldist hér innanlands, eða
fyrir 20 milljónir kr. á ári, og að
síðar yrði hægt að margfalda þá
sölu. Mest af framleiðslu Fínullar
hefur farið til Þýskalands en þaðan
var verksmiðja fyrirtækisins
keypt. Einnig hafa farið vörur til
annarra landa.
„Þetta samkomulag setur mjög
sterkar stoðir undir rekstur fyrir-
tækisins og gerir það að verkum
að þessi aukabúgrein verður arð-
vænlegri hér á landi,“ sagði
Sigurður.
ÚTLIT er fyrir að helmingur
gönguseiðaframleiðslu íslensku
fiskeldisstöðvanna verði fluttur
úr landi næsta sumar, eða 4—5
milljón seiði. Verði af þessu
verða seiðaskip í flutningum á
milli íslands og Noregs allt
næsta sumar. Verðmæti útflutn-
ingsins gæti orðið 300 milljónir
kr. Nú er líka farið að flytja út
hrogn í stórum stU og fara
líklega 1.000 litrar út í vetur.
Landssamband fískeldis- og haf-
beitarstöðva hefur lagt vinnu í að
samræma útflutninginn og aðstoða
seiðastöðvamar: Friðrik Sigurðs-
son framkvæmdastjóri sambands-
ins telur að markaður sé fyrir alla