Morgunblaðið - 16.02.1988, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 1988
Smárahvammsland:
Agreiningur um
1.193 þúsund kr.
SÍS móttók með fyrirvara 19,2 millj-
ónir kr. frá Kópavogskaupstað
BÆJARSTJÓRINN í Kópavogi
greiddi Sambandi íslenskra sam-
vinnufélaga í gær útlagðan
kostnað vegna kaupa SÍS á spildu
úr Smárahvammslandi sem
Kópavogskaupstaður gekk inn í
með því að nýta forkaupsrétt.
Greiddi bæjarstjórinn SÍS
19.177.432 krónur, sem er 1.193
þúsund kr. minna en SÍS krafð-
ist. Munurinn liggur í mismun-
andi útreikningi vaxta og verð-
bóta og kostnaði við skipulag.
Krisú'án Guðmundsson bæjar-
stjóri sagðist í gær hafa greitt þessa
upphæð til SÍS og þar hefði verið
tekið við henni með fyrirvara. Sagði
hann að þetta væri nánast sama
upphæð og SÍS hafnaði að veita
móttöku fyrir helgi, að viðbættum
sölulaunum sem voru rúmar 800
þúsund krónur. Sagði Kristján að
ákveðið hefði verið að greiða SÍS
vexti af höfuðstóli skuldarinnar,
þrátt fyrir að slíkt væri áhorfsmál.
Við vaxtaútreikninginn væri miðað
við vegið meðaltal innlánsvaxta
sparisjóðsbóka samkvæmt upplýs-
ingum Seðalbanka íslands. Vaxta-
greiðslan sem SÍS krefðist væri
hins vegar um 800 þúsundum
hærri. Þá krefðist SÍS einnig kostn-
aðar vegna skipulags, um 400 þús-
und króna, en þeirri kröfu hefði
verið hafnað. „Við teljum okkur
ekki skylt að greiða slíkan kostnað
þó menn séu að skoða land,“ sagði
Kristján.
Gott „skot“
fyrir vestan
NÝLIÐIN helgi var gjöful togur-
um á Vestfjarðamiðum. Framan
af vikunni var afli þeirra fremur
tregur, en gott skot um helgina
lífgaði upp á veiðina. Nær allir
Vestfjarðatogaramir komu því
inn á mánudag með 130 til 200
tonn.
Jón Páll Halldórsson sagði að fyrri
hluta vikunnar hefðu togaramir ver-
ið við Víkurál og fengið fremur lítið.
Þeir hefðu fært sig yfir á Kögurgrun-
nið um helgina og fengið þar ágætt
skot. Öll skip væru með góðan afla
og útgerð línubáta gengi vel.
VEÐURHORFUR í DAG, 16.2.88
YFIRLIT í gær: Milli íslands og Færeyja var kröpp 988 mb lægð á
hreyfingu norð-austur. Skammt suð-vestur af Hvarfi var 965 mb
lægð, einnig á hreyfingu norð-austur.
SPÁ: Þykknar upp með vaxandi suð-austanátt og hlýnar, víða orð-
ið allhvasst og komin rigning vestanlands undir hádegi, en bjart
veöur og frost á Norð-austur- og Austurlandi fram eftir degi.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA
HORFUR Á MIÐVIKUDAG: Suðlæg átt og hiti víða 1-4 stig. Rign-
ing öðru hverju sunnan- og vestanlands, en þurrt Norð-austanlands.
HORFUR Á FiMMTUDAG: Suð-vestanátt og hiti víða nálægt frost-
marki. Snjó- eða slydduél um vestanvert landið, en bjart veöur
austanlands.
N: x Norðan, 4 vindstig: ^ Vindörin sýnir vind- •j 0 Hitastig: 10 gráður á Celsius
stefnu og fjaðrirnar • V Skúrir
Heiðskírt vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig. * Él
V
Léttskýjað / / / / / / / Rigning = Þoka
/ / / — Þokumóða
Hálfskýjað * / * 5 9 Súld
Skýjað r * ' * Slydda oo Mistur
/ * /
* * # 4 Skafrenningur
Alskýjað * * * * Snjókoma * * * K Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12:00 í gæt að ísl. tíma
Akureyrl Reykjavík hitl +10 +2 veður úrkoma þoke
Bergen 2 hátfskýjaó
Halsinkl 2 alskýjað
Jan Mayen +3 léttskýjað
Kaupmannah. 2 þokumóða
Narasarasuaq 0 skafrennlngur
Nuuk 2 akýjað
Oaló 3 þoka
Stokkhólmur 3 rígning
Þórshöfn vantar
Algarve 12 rigning
Amsterdam 8 akýjað
Aþana vantar
Barcelona 14 akýjað
Berlln 6 helðakfrt
Chlcago +4 alskýjað
Feneyjar vantar
Frankfurt 4 léttskýjað
Glaagow 7 rignlng
Hamborg 3 miatur
Las Palmas 17 akýjað
London 12 skýjað
LosAngeles 14 heiðskfrt
Lúxamborg 4 léttakýjað
Medríd 12 léttskýjað
Malaga 17 hélfskýjað
Mallorca 14 hélfskýjað
Montreal +2 snjóél
NewYork vantar
Paría 10 Mttskýjað
Róm vantar
Vfn 2 mlstur
Waahlngton 2 alskýjað
Wlnnlpeg +24 léttskýjað
Valencla 13 akýjað
Isinn hörfar
frá landinu
FYRIR seinustu helgi sótti hafísinn óðfluga að Norðurlandi og
Austur-íslandsstraumurinn var farinn að flytja hafís suður með
Austurlandi. Á sunnudag brá til betri áttar með suðlægum vind-
um og landsins forni fjandi hörfaði til hafs á ný. Þegar Morgun-
blaðsmenn flugu fyrir Norðurlandi síðastliðinn sunnudag blaflti
hafísjaðarinn við úti fyrir Skagafirði og þéttur ís var utan við
höfnina í Grímsey. Einstaka ísapangir voru á hafi úti og í fjörð-
um og víkum Norðanlands.
Morgunblaðið brá sér til
Grímseyjar í gær. Þá voru norðan-
bátar að leggja veiðarfæri sín út
og suður, bæði stórir bátar og
smáir, en á sjónum var dúnalogn
sem á heiðatjöm væri tugi mílna
norður frá landinu. Á svæðinu
suðvestan og norðaustan við
Grímsey voru nokkrar ísspangir
af Grímseyjarstærð, en við höfnina
í Grímsey lá enn nokkurt safn
ísjaka og sá stærsti var strandaður
í innsiglingunni. Á meðan við
stöldruðum við opnaðist siglinga-
leið inn í höfnina og ekki leið á
löngu þar til fyrsti Grímseyjarbát-
urinn var búinn að sleppa land-
festum. Þrír af stærri bátum
Grímseyinga vom fluttir . til
Dalvíkur þegar ísinn fór að nálg-
ast, en í gær héldu eigendur þeirra
til fastalandsins til þess að sækja
báta sína, enda veiðihugur í mönn-
um og veiði það sem af er vetrar-
vertíð með eindæmum treg vegna
gæftaleysis. Hins vegar vopu að
berast fréttir' af rífandi þorski,
bæði norðanlands og sunnan og á
Vestmannaeyjamiðum hafa þeir
verið að fá boldangsþorsk sem
hefur vart sést þar um árabil, en
hefur lengi verið hefðbundinn á
Suðurlandsmiðum.
í Grímsey hittum við fólk í salt-
fískvinnslu. Það var létt í því hljóð-
ið, en menn biðu spenntir eftir þy>
að afli bærist á land eftir þretin
að undanfömu.
Frá Grímsey var haldið til í iglm
fjarðar, en þar er nú all fnikill
snjór og landleiðin ófær ennþá, en
veður var hið stilltasta. Eng>r
skaðar urðu af snjóflóðum sem
féllu þar um helgina, enda voru
þau fyrir innan bæinn. 60—80 sm
djúpur snjór var í Siglufírði.
Aður en kóssinn var tekinn til
Reykjavíkur, lentum við á Akur-
eyri. Þar vom tvær Fokker-vélar
Flugleiða að búa sig undir fluK
Alnæmi ekki aðeins heilbrigðisvandamál:
Félagslegar af-
leiðingar ekki
síður áhyggjuefni
- sagði landlækn-
ir á fræðslufundi
um sjúkdóminn
FRÆÐSLUFUNDUR um alnæmi
var haldinn í Domus Medica í gær
á vegum borgarlæknisins f
Reykjavík með forráðamönnum
þeirra starfsstétta, sem líklegar
eru til að eiga skipti við alnæmis-
sjúklinga, starfa sinna vegna. Á
fundinum sagði Olafur Olafsson
landlæknir frá þeim aðgerðum,
sem hér á landi hefur verið grip-
ið til gegn þessum sjúkdómi.
Hann gat einnig um aðrar hliðar
alnæmis en sjúkdóminn sjálfan,
þ.e. félagslegar afleiðingar, sem
hann sagði ekki sfður áhyggju-
efni. Þá talaði hann um smitleið-
ir og áhættu f því efni, ekki væri
lengur talað um áhættuhópa eins
og t.d. homma, heldur um
áhættuhegðun.
Fimm önnur framsöguerindi voru
flutt á fundinum, sem haldinn var
að tilhlutan borgarlæknisins í
Reykjavík. Skúli G Johnsen borgar-
læknir setti fundinn og stýrði hon-
um.
Landlæknir rakti sögu sjúkdóms-
ins, sem þekkt er aðeins um 15 ár
aftur í tímann. Hann sagði ástandið
ekki gott, „Það er ljóst að við verðum
fyrir áföllum", sagði hann, en kvað
okkur þó betur stödd en sum þróun-
arlönd og tók dæmi af ríki, þar sem
45% þungaðra kvenna og jafn hátt
hlutfall innkallaðra hermanna eru
sýkt. Þá lýsti hann vömum hér gegn
alnæmi og kom fram í máli hans,
að mikilvægast er nú, að fræða al-
menning, ekki síst unglinga, um
þennan sjúkdóm. „Þeir unglingar
sem lifa hættulegasta kynlífinu eru
þeir, sem eru að leita fyrir sér, að
leita sér að maka. Ef þeir smitast,
þá leita þeir ekki til okkar fyrr en
um 1997. Því verður að gera eitt-
hvað nú “, sagði landlæknir. I lok
framsögu sinnar sagði Olafur frá
því, að hann liti alnæmi það alvarleg-
um augum, að hann hefði lagt til
við heilbrigðisráðherra, að skipuð
verði landsnefnd til þess að kljást
við alnæmi, hún verði ekki einungis
skipuð fólki úr heilbrigðisstéttunum,
heldur yrðu þar fulltrúar fleiri hópa.
Þannig ætti nefndin einnig að kljást
við félagsleg og fjárhagsleg vanda-
mál sem sjúkdóminum fylgja og eru
ekki minni vandamál, að sögn land-
læknis og var það samdóma álit
ræðumanna,.
Sigldi í
sólarhring
með slagsíðu
DANSKT skip, Sine Boye, kon*
til hafnar í Hafnarfirði á sunnu-
dag eftir að hafa fengið á sig
slagsíðu f vonskuveðri milli Fser-
eyja og Hjaltlandseyja.
Að sögn Baldvins Magnússonar,
umboðsmanns skipsins, urðu engar
skemmdir á því, enda sigldi það
fram hjá Færeyjum og áfram til
íslands í sólarhring eftir að hafa
fengið á sig slagsíðuna. Skipið flutti
jám til íslands, en engar skemmdir
urðu á farminum þó að hann hafl
hreyfst nokkuð til, sagði Baldvin.