Morgunblaðið - 16.02.1988, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 16.02.1988, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 1988 Kosið í New Hampshire í dag: Dole talinn hafa mik- ið forskot á Bush Reuter Sjónvarpsmenn frá leppríkjum Sovétríkjanna í Austur-Evrópu fengu nýlega að taka myndir í sovéskn kj amorkuflaugastöð og hér sjást þeir við SS-20-flaug í Rechisa, en ekki var vitað um þessar flaugar áður. Þessum flaugum ber að eyða samkvæmt samningi risaveldanna um upprætingu meðal- og skamm- drægra flauga. SS-20-flaugarnar bera þijá sjálfstæða kjarnaodda og geta hæft skotmörk í 5.000 km fjarlægð af mikilli nákvæmni. Flaugin á myndinni gæti til dæmis hæglega varpað sprengjum á valin skotmörk á Grænlandsjökli. Merrimack f New Hampshire, Reuter. ROBERT Dole er nú talinn sigur- stranglegastur frambjóðenda í New Hampshire, en þar fara fram forkosningar til útnefning- ar forsetaframbjóðenda stjórn- málaflokka í Bandaríkjunum. Gangi það eftir hafa möguleikar Doles til útnefningar Repúblik- anaflokksins stórlega aukist, því úrslit forkosninga í New Hamp- shire hafa til þessa haft mikil áhrif á úrslit í öðrum ríkjum, en þar að auki væri erfitt fyrir George Bush, varaforseta, að sannfæra kjósendur um ágæti sitt eftir að tapa í tveimur fyrstu forkosningunum. Samkvæmt Afvopnunarviðræður í Genf: Kremlveijar vilja takmarka hefðbundnar stýriflaugar Pravda sakar Vestur-Evrópuríki um uppbygg’ingn sjálfstæðrar kjarnorkufælingar New York-borg og Moskvu, Reuter. SOVÉSKIR samningamenn í af- vopnunarviðræðum risaveldanna í Genf ehi sagðir hafa farið fram á það við hina bandarísku starfs- bræður sína handan borðsins, að ríkin semji um takmörkun á stý- riflaugum með hefbundnum sprengioddum, sem skotið er af hafi. Kom þetta fram I fregn blaðsins New York Times á sunnudag, en f gær sagði Prav- da., málgagn sovéska kommún- istaflokksins, að ríki Vestur- Evrópu hygðu á uppbyggingu sjálfstæðrar „kjarnorkuregn- hlífar“, þar sem ráðamenn óttuð- ust að fælingingarmáttur banda- riskra kjamorkuvopna hrykki ekki til, eftir að undirritað var samkomulag um upprætingu meðal- og skammdrægra kjarn- orkuflauga í Washington í des- ember síðastliðnum. New York Times hafði það eftir bandarískum embættismönnum, að tillaga Sovétmanna um takmörkun stýriflauga með hefbundnum sprengioddum hefði komið þeim í opna skjöldu. Sögðu þeir það hafa verið skilning sinn á samkomulag- inu í desember, að í viðræðum um upprætingu langdrægra vopna yrði einungis rætt um þau án tengsla við önnur vopnakerfí. Samkvæmt tillögu Sovétmanna fengi hvor aðili um sig að ráða yfir 600 stýriflaugum með hefðbundn- um sprengioddum, sem skotið yrði af skipum eða úr kafbátum. Banda- ríkin hafa á hinn bóginn áætlað að koma sér upp 2.643 slíkum flaugum til þess að vera betur í stakk búin að veija Evrópu, ef til innrásar að austan kæmi. Til þessa hefur Atl- antshafsbandalagið reitt sig á lqamorkufælingu, en úr henni myndi stórlega draga eftir stað- festingu fyrmefndra samninga um upprætingu meðal- og skamm- drægra flauga. í Prövdu á mánudag birtist grein þar sem fjallað var um vamarsam- starf Frakklands og Vestur-Þýska- lands, sem ríkin hafa orðið ásátt um að auka mjög á næstunni. Var getum að því leitt að í hyggju væri að ríkin hefðu einnig samvinnu um kjamorkufælingu, þar sem þau teldu sig ekki nægilega trygg eftir samningana ! desember. Sagði Pravda að slík samvinna væri til einskis ef Bretar væru ekki í slag- togi og spáði því að ríkisstjómir Frakklands og Vestur-Þýskalands myndu leggja hart að Bretum til að fá þá til að vera í félagi við sig. Varaði blaðið eindregið við slíkum hugmyndum og sagði þær stefna friðnum í voða. nýjustu skoðanakönnunum hef- ur Dole um 36% fylgi, en Bush aðeins um 26%. George Bush á nú á brattann að sælqa og töldu menn sig heyra vonleysistón í máli hans á kapp- ræðufundi á sunnudag. „Ég myndi ekki sælqast eftir þessu starfí ef ég teldimig ekki hæfan til þess,“ sagði Bush meðal annars. „Eftir ellefu mánuði, þegar ég sver emb- ættiseið, mun ég mæla fjögur orð: Þakka þér New Hampshire." Það er hins vegar alls óvíst að hann hafí íbúum ríkisins nokkuð að þakka, ef marka má skoðana- kannanir sjónvarpsstöðvanna ABC og CBS, því þar hefur Dole foryst- una. Með tilliti til skekkjumarka er munurinn þó ekki jafnafgerandi og tölumar gefa til kynna, en eigi að síður hefur Dole forskot á Bush og ekki er meira en mánuður síðan 20% skildu þá Dole og varaforset- ann, Bush í vil. Það var áður en Bush varð í þriðja sæti forkosning- anna í Iowa, en síra Pat Robertson varð þar í öðru sæti öllum á óvart. Fyrirfram hafði verið talið víst að Dole yrði í fyrsta sæti og Bush öðru. í herbúðum demókrata heldur Michael Dukakis forystu sinni, en stjómmálaskýrendur segja það þó ekki endilega merki um að hann eigi meiri möguleika en fyrr til útnefningar Demókrataflokksins — vinsældir hans í New Hampshire séu svæðisbundnar. Þess í stað fylgjast grannt með hvemig annað og þriðja sæti verður skipað, en um það keppa þeir Richard Gep- hardt, sigurvegari demókrata í Iowa, og Paul Simon. Er talið að framtíð Simons velti á gengi hans í dag. Finnland: Mauno Koivisto endurkjörinn Helsinki, Reuter. MAUNO Koivisto, forseti Finn- lands, var endurkjörinn forseti á fundi kjörmanna f finnska þing- inu í gær. Koivisto hlaut rúman meirihluta, 189 atkvæði af 301, frambjóðandi miðjumanna, Pa- Sri Lanka: Átök tamíla og friðar- gæslusveita Batticaloa á Sri Lanka. Reuter. ÍBÚAR í Batticaloa segja að til átaka hafi komið milli friðar- gæslusveita Indveija og skæru- liða Tamíla á sunnudag. Talið er að tólf skæruliðar hafi fallið f átökunum. Að sögn íbúa í Batticaloa, sem er 150.000, manna bær austarlega á Sri Lanka, lenti friðargæslusveit- um saman við tamíla þegar þeir leituðu að skæruliðum skammt fyr- ir utan bæinn. Ekki er vitað nánar um atburðinn. Yfírvöld á Sri Lanka hafa ekki staðfest að átök hafí átt sér stað. avo Vaeyrinen hlaut 68 atkvæði, sósfalistinn Kalevi Kivisto hlaut 26 atkvæði og íhaldsmaðurinn Harri Holkeri 18 atkvæði. Koivisto, sem er sósíaldemókrati, hlaut 47.9 prósent atkvæða og 144 kjörmenn í forsetakosningunum 31. janúar síðastliðinn. Þar sem hann náði ekki meirihluta í þeim kosning- um kom í hlut kjörmanna að Iqósa forseta fyrir næsta lqörtímabil, sem er sex ár. Holkeri, sem Koivisto skipaði forsætisráðherra Finnlands í fyrra, varð þriðji í forsetakosning- unum í janúar, en bað lqörmenn sína, 63 að tölu, um að greiða Koi- visto atkvæði á fundi kjörmanna. Úrslitin sýna að 45 kjörmenn hans fóru að ósk hans. Koivisto var fyrst kjörinn forseti árið 1982, en þá greiddu kommún- istar og sósíalistar honum atkvæði. Kjörmenn kommúnista 'og sósía- lista, 26 að tölu, vildu hins vegar ekki greiða Koivisto atkvæði nú, vegna ákvörðunar hans um að skipa Holkeri forsætisráðherra í fyrra. Flokkur Holkeris, íhaldsflokkurinn, hafði verið helsti stjómarandstöðu- flokkur Finnlands í 21 ár. Forseti Finnlands hefur mikil völd, myndar stjóm og skipar æðstu embættismenn, stýrir rfkisstjómar- fundum og fer með utanríkismál. Frambjóðendumir f forsetakosningunum á Kýpur -greiða atkvæði. Glafkos Clerides er lengst til vinstri, Spyros Kyprianou f miðið og George Vassiliou til hægri. Tyrkir hyggjast kalla hersveitir frá Kýpur Ankara. Nikósíu. Reuter. TYRKIR hyggjast kalla hluta herafla síns á Norður-Kýpur heim til þess að auðvelda samn- inga um framtfð eynnar, að sögn erlendra stjómarerind- reka. Vera hersveitanna hefur verið eitt helzta ágreiningsefni milli Kýpur-Grikkja og Kýpur-Tyrkja. Nú eru Tyrkir sagðir íhuga að kalla um 5.000 hermenn heim frá eynni í framhaldi af forsetakosn- ingunum um helgina. Er talið að það gæti orðið til þess að leið- togar þjóðarhelminganna hæfu viðræður um sameiningu eyja- skeggja undir eina stjóm, en þær hafa legið niðri. í kosningunum féll Spyros Kyprianou, forseti, og verður að kjósa aftur næsta sunnudag milli hægrimannsins Glafkos Clerides og George Vassiliou, frambjóð- anda kommúnista. Bæði Clerides og Vassiliou hafa sagst reiðubún- ir að samþykkja tilvist takmark- aðs tyrknesks herafla á Kýpur sem hluta af samkomulagi um frið og sameiningu allra Kýpurbúa í eitt riki. Rauf Denktash, leiðtogi Kýp- ur-Tyrkja, og leiðtogar í Tyrk- landi sögðust myndu bíða úrslita úr því myndi myndi kjöri áður en þeir segðu sitt álit á kosningun- um. Úrslit kosninganna eru sögð til marks um að Kýpur-Grikkir vilji breytta stefnu í málefnum eynn- ar. Sameining eynnar var helzta baráttumál mótframbjóðenda Kyprianou óg var hann vændur um að hafa ekki náð neinum ár- angri { sameiningarmálum á 11 ára valdaferli sfnum. Clerides er 67 ára lögfræðingur og Vassiliou 56 ára hagfræðing- ur, sem brotist hefur úr litlum efnum til mikilla auðæfa. Báðir vilja mynda svonefnda sameining- arsfjóm með aðild allra flokka. Vassiliou er frambjóðandi komm- únista en hann hlaut einnig fylgi frá fólki sem telst til hægri og í miðju hins pólitíska litrófs. Hlaut hann 30,09% atkvæða, en Clerides 33,34% og Kyprianou 27,47%. Talið er að um 30 þúsund tyrk- neskir hermenn séu á Norður- Kýpur, sem stjómin í Ankara ein viðurkennir sem sérstakt lýðveldi. Stjómarerindrekar herma að stjóminni í Ankara sé áfram um að leysa Kýpurdeiluna, ekki sízt eftir að forsætisráðherrar Grikk- lands og Tyrklands sömdu um fyrir hálfum mánuði að hvorugur aðilinn réðist á hinn. Lýstu þeir yfír að einn möguleikinn til að draga úr þeirri hættu væri heimk- vaðning hersveita.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.