Morgunblaðið - 16.02.1988, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 1988
29
Sviss:
Sex létust í stórbruna
ZUrich, frá önnu Bjarnadóttur, fréttaritara
SEX manns, tvenn svissnesk
hjón og tveir hótelstarfsmenn,
fórust í stórbruna á matstað á
31. hæð hótelsins International
Gáfumenn
sagðir nota
minni orku
við heila-
starfsemi
Boston, Reuter.
NÝJAR rannsóknir benda ein-
dregið til þess að heilar gáfu-
manna noti mun minni orku en
þeirra, sem síður eru gefnir.
Stafar þetta að likindum af því
að boðleiðir í heilum hinna snjall-
ari eru mun skilvirkari, en það
gerir gæfumuninn hvað gáfurn-
ar varðar.
Sagt er að sumir séu seinteknir
eða seinir til, en samkvæmt rann-
sóknum með sneiðmyndatækjum og
öðrum slíkum tólum, stafar það að
líkindum af því að skipan heilastarf-
semi er ekki jafnvel skipulögð og í
hinum skarpari. Nota þeir því stærri
hluta heilans og lengur en nauðsyn-
legt er.
Dr. Richard Haier sagði á fundi
Samtaka fyrir eflingu vísinda að
þeir sem fengið hefðu ágætisein-
kunn á greindarprófum hefðu
reynst eyða minnstum blóðsykri til
heilastarfsemi. „Þrátt fyrir að mað-
ur myndi gera ráð fyrir að heili
gáfumanns starfaði af meiri krafti
en þess, sem ekki gengur jafnvel,
er því þveröfugt farið,“ sagði dr.
Haier þegar hann kynnti niðurstöð-
ur rannsóknar sinnar og félaga
sinna.
Niðurstöður rannsóknarinnar eru
ekki fullunnar, en þær gefa til
kynna að taugafrumur í heilum
gáfufólks séu þéttriðnari en í heilum
hinna sem álitnir eru minna greind-
ir.
Haier er aðstoðarprófessor í geð-
iækningum og atferlisfræði við
Kalifomíuháskóla í Irving.
Morgunblaðsins.
í Ziirich á sunnudag. Matstað-
urinn, sem sérhæfði sig I glóða-
réttum og bauð upp á mikið
útsýni, brann til kaldra kola
eftir að þjónn hellti brennslu-
spritti í heitt eldunartæki fyrir
logandi rétti. Banvænn eldur-
inn breiddist út með leiftur-
hraða og olli margra milljóna
franka tjóni.
Tuttugu gestir og tíu starfs-
menn voru á matstaðnum þegar
kviknaði í skömmu eftir hádegið.
Slökkviliði var þegar gert viðvart
og það náði tökum á eldinum á
rúmum klukkutíma. Bilun í sérs-
takri brunalyftu hótelsins og mik-
ill hiti torveldaði slökkvistarfið.
Brunaliðið þurfti að bera slökkvi-
tæki og önnur verkfæri upp allar
hæðimar og við það fór dýrmætur
tími til spillis. Hitinn var svo gífur-
legur að hjálmur eins slökkviliðs-
mannsins bráðnaði og hann
brenndist illa.
Útgöngudyr matstaðarins voru
nokkum spöl frá borðunum. Mikill
reykur var í salnum og byrgði
mönnum sýn. Hinir látnu köfnuðu.
Þeir fundust skammt fyrir innan
útgöngudymar. Annar starfs-
mannanna Var frá Malaysíu en
hinn var svissneskur. Réttarhöld
vegna gáleysis við meðferð elds
og manndráps bíða þjónsins.
Um 180 gestir vora á hótelinu,
sem er í eigu Swissotel, dótturfyr-
irtækis Swissair, þegar braninn
varð. Þeir yfirgáfu það á ör-
skömmum tíma. Ekki er talið að
þeir hafí verið í neinni hættu.
Gestimir gagnrýndu branavarha-
kerfi hótelsins. Nokkrir þeirra
sögðust fyrst hafa orðið varir við
hættuna þegar þeir litu út um
gluggann og sáu eldtungur og
reykmökk stíga upp frá hótelinu.
Israel:
Reykjarský frá táragassprengjum ísraela i bænum Majdal
Gólanhæðum en þar kom til mikilla mótmæla.
Reuter
Shams i
Ókyrrð í Gólanhæðum og
auknar deilur í stjórnimii
Tel Aviv, Washington, Majdal. Reuter.
TIL uppþota kom í gær í þorpum
drúsa i Gólanhæðum en þær tóku
ísraelar frá Sýrlendingum árið
1967. Ókyrrt var einnig á Vestur-
bakkanum og á Gazasvæðinu.
Ágreiningur stjórnarflokkanna í
ísrael fer dagvaxandi en þeir
deila einkum um hugsanlega
friðarráðstefnu og einnig um
siðustu friðartillögur Banda-
Israelska lögreglan beitti tára-
gasi gegn hundraðum drúsa, sem
réðust að henni með gijótkasti, en
síðustu árin hafa drúsar alltaf efnt
til mótmæla 14. febrúar. Þann dag
árið 1982 voru ísraelsk lög einnig
látin ná til Gólanhæðanna. „Með
mótmælunum viljum við sýna ísra-
elum, að við kæram okkur ekki um
að tilheyra þeirra landi. Við eram
Sýrlendingar og viljum vera það
áfram," sagði einn drúsísku ungl-
inganna. Á Gazasvæðinu var kveikt
í ísraelskri langferðabifreið og þar
voru allar verslanir lokaðar í gær.
Á Vesturbakkanum slösuðust þrír
ungir drengir þegar þeir urðu fyrir
gúmmíkúlum lögreglumanna.
Aðstoðarmaður Yitzhaks Sham-
irs, forsætisráðherra ísraels, sagði
á sunnudag, að hann vonaði, að
írakar skutu niður ómann-
aðar nj ósnaflugvélar
Baghdad. Reuter.
ÍRAKAR sögðust í gær hafa sko-
tið niður tvær ómannaðar og
fjarstýrðar íranskar njósnaflug-
vélar á vigveilinum í suðurhluta
landsins á sunnudag. Þá segjast
þeir hafa skotið niður fjarstýrða
ísraelska njósnaflugvél, sem ver-
ið hafi i könnunarflugi fyrir ír-
ana, meðfram landamærum
sínum við Kuwait og Saudi
Arabiu síðastliðinn föstudag.
Formælandi ísraelska utanríkis-
ráðuneytisins hefur vísað þessari
fullyrðingu á bug.
íranir létu einnig frá sér fara
ýmsar yfírlýsingar um gang Persaf-
lóastríðsins. Sögðust þeir hafa sko-
tið á bandarískar herþyrlur sem
flogið hefðu inn yfir þeirra yfirráða-
svæði á föstudagskvöldið. Hafði
íranska útvarpið eftir sjóliðsforingja
að þyrluflugmennimir hefðu hvorki
svarað talstöðvarkalli né beygt af
leið þegar aðvörunarskotum var
skotið, en flúið þegar skótið var
föstum skotum. Atvikið átti sér
stað, að sögn íranska útvarpsins,
við eyjamar Sirri og Abu Musa.
Talsmaður bandaríska flotans á
Persaflóa sagði engan hafa sakað
í árásinni.
Verkamannaflokkur Shimons Per-
esar hætti stjómarsamstarfínu
vegna ágreiningsins um friðartil-
lögur Bandarílcjastjómar. Sagði
hann, að verkamannaflokksmenn
hefðu svikið stjómarsáttmálann og
væru ekki heilir í samstarfinu. I
síðustu viku sagði Peres, að and-
staða Shamirs við alþjóðlega friðar-
ráðstefnu ætti sína sök á ástandinu
á Gaza og Vesturbakkanum og
Sh'amir svaraði með því að segja,
að Peres hefði lekið leynilegum
upplýsingum til íjölmiðla og grafið
undan samningsstöðu stjómarinn-
Zbigniew Brzezinski, fyrram
formaður bandaríska þjóðarörygg-
isráðsins, sagði á sunnudag, að
áframhaldandi ókyrrð á hemumdu
svæðunum gæti orðið til draga úr
stuðningi Bapdaríkjamanna við
ísraela. „Baridaríkjamenn hafa
stutt ísraela vegna þess, að þeim
hafa fundist þeir vera fulltrúar þess,
sem er gott og til fyrirmyndar en
ef barsmíðamar og manndrápin
halda áfram er hætt við, að almenn-
ingur fari að sjá þá í öðra ljósi,"
sagði Brzezinski.
Egyptar og Jórdaníumenn, helstu
bandamenn Bandaríkjanna í Araba-
löndum, skoraðu í gær á Banda-
ríkjastjóm að vinna að varanlegum
samningum um málefni Miðaustur-
landa í stað þess að einskorða sig
við sjálfstjóm Palestínumanna.
LAUNAMISRETTIÐILANDINU
KVQLDRADSTEFNA
IHOTEL SELFOSSI
MIÐVIKUPAGSKVOLDIÐ
17.FEBRUARKL20.30
Þorsteinn Guðmundur Sigurður Grétar Ólafía
Kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksins í
Suðurlandskjördæmi boðartil opins
fundar í Hótel Selfossi þar sem rætt
verður um launamisréttið í landinu.
Ræðumenn:
Þorsteinn Pálsson, forsætisráðherra
og formaður Sjálfstæðisflokksins.
Ásmundur Stefánsson, forseti
Alþýðusambands íslands.
Guðmundur J. Guðmundsson, for-
maður Verkamannasambands ís-
lands.
Friðrik Sóphusson, iðnaðarráðherra
og varaformaður Sjálfstæðisflokks-
ins.
Stella Steinþórsdóttir, verkamaður,
ritari Verkalýðsfélags Norðfjarðar.
Ólafía M. Guðmundsdóttir, Ijósmóð-
ir, Selfossi
Þórir N. Kjartansson, framkvæmda-
stjóri, Vík í Mýrdal.
Geir Grétar Pétursson, verkamaður,
Þorlákshöfn.
Sigurður Óskarsson, forseti Alþýðu-
sambands Suðurlands.
Að loknum framsöguræðum verða
umræður og fyrirspurnir, en á fund-
inum geta menn skráð sig í vinnu-
hóp, sem mun fjaila um efni
fundarins á næstu vikum.
Fundarstjóri verður.Árni Johnsen,
formaður kjördæmisráðs Sjálfstæð-
isflokksins í Suðurlands kjördæmi.
Kjördæmisráð Sjálfstæðisf lokksins í Suðurlandskjördæmi