Morgunblaðið - 16.02.1988, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 1988
17
Þess skal getið,
sem vel er gjört
eftirJórunni
Ólafsdóttur
Hugsjónin, sem varð kveikjan
að stofnun Rauða krossins ar göf-
ug, og ómæld sú blessun, sem
hennar vegna hefur veitt verið í
áranna rás.
Þessi alheimshreyfing hefur ver-
ið sterkt vígi og veitull aflgjafi í
þágu hins góða stríðshijáðum og
trylltum heimi.
í deildum um víða veröld hefur
allt frá því að þær urðu til verið
unnið ómetanlegt hjálpar og fóm-
arstarf.
Rauði kross íslands er vissulega
virkur þar á meðal.
Gagnmerk hefur starfsemi hans
reynst á áratugaferli, og er verð-
ugt að meta hana og muna. Hún
hefur á síðari árum orðið æ fjöl-
þættari og bent um margt til síauk-
ins skilnings á kjörum þeirra, sem
margskonar erfíðleikar, og þá sér
í lagi sjúkdómar, sækja heim.
Avöxtur þessa skilnings og vitni
um aukna íjolbreytni { starfinu var
m.a. stofnun og starfræksla
sjúkrahótels sem hófst síðla árs
1974. Þetta var mikið heillaverk,
sem létt hefur göngu margra þeg-
ar þyngdi fyrir fæti og syrti að í
margvíslegum skilningi.
í Skipholti 21 í Reykjavík var
hótelinu • búinn staður. Það var
hæfilega stórt til að þar gæfust
manneskjuleg tengsl. Og þama
varð til hlýtt og einkar menningar-
legt heimili, þar sem veikir og van-
megna, þreyttir og þjáðir áttu
ómetanlegt athvarf um lengri eða
skemmri tíma.
Gestabókin, sem þarna lá
frammi, sýndi greinilega, svo að
ekki varð um villst, þann hug, sem
fjölmargir úr röðum dvalargesta
báru til þessa staðar, og hvað þeir
töldu sig hafa að þakka.
Sæti húsfreyjunnar í Skipholti
21 skipaði frá upphafí frú Bryndís
Jónsdóttir. Gestimir mörgu, sem
kvöddu dyra á staðnum, hittu ekki
fyrir hótel, sem bar svipmót stofn-
unar, heldur heimilisarin. Þannig
var það byggt upp af hálfu hennar
sem stjómina hafði með höndum.
Frú Bryndís er afbragðs gest-
gjafi og hefur rausn og reglusemi
í hávegum. Þess gætti ríkulega í
heimilishaldinu í Skipholtinu,
ásamt ágætri þjónustu starfsliðs.
Ég mæli hér af miklum kunn-
leikum, því að allt frá árinu 1978
dvaldi ég þama mörgum sinnum
og stundum langtímum saman. Og
ávallt var það svo, að þegar ég
gekk inn um dyr í Skipholti 21,
fannst mér, sem ég væri að koma
heim. Segir það meira en mörg orð
um það, sem þar var að finna og
njóta. Því mun ég ávallt hugsa
með hlýrri þökk til þeirra, sem
orkuðu því að þetta varð þannig,
og biðja þeim blessunar á hverri
tíð. Og ég er þess fullviss að und-
ir það munu margir taka með mér.
Hitt er og víst að nú á tímum
eru breytingar örar og oft er skipt
um svið. Ráðamenn RKÍ voru víst
í takt við þá staðreynd þegar þeir
ákváðu að selja Skipholt 21 og
kaupa í staðinn hótel Hof við Rauð-
arárstíg. Á vordögum á sl. ári var
þangað flutt úr Skipholti, sjúkra-
þjónustan svo og skrifstofur RKÍ.
Til þess að hið fyrrnefnda gæti
haldið áfram var brugðið á það ráð
að byggja eina hæð ofan á þær
þijár sem fyrir voru á hótelinu við
Rauðarárstíg 18, sem með eig-
endaskiptunum hlaut nýtt nafn og
heitir nú hótel Lind. Þar á 4. hæð
er nú starfrækt sjúkradeild og ríkir
þar sama regla um innkomu og
rétt til dvalar og var í Skipholti
21 árin öll, sem sjúkrahótelið fékk
að halda þar velli.
Það var þann 1. maí sl. vor að
Jórunn Olafsdóttir
„Það færði mér vissu
um að fyllsti vilji er til
staðar, varðandi það að
búa sem best að þeim,
sem þarna koma og
dvelja lengur eða skem-
ur.“
starfsemin hófst þama, í fallegum
salarkynnum við nútímaþægindi.
Ég kom þangað inn fáeinum dög-
um síðar til frekar stuttrar dvalar.
Staðurinn var mér framandi og það
tók mig nokkra stund að átta mig
á umskiptunum og samhæfast
ýmsum breytingum þeim samfara.
En áður en varði hafði ég aðlag-
ast, sem vera ber, enda var þama
ýmsum kunnugum að mæta, bæði
á meðal starfsliðs og sjúklinga.
Og þegar ég fór heim sagði mér
vel hugur um framhaldið, þ.e. að
koma aftur, er ég þyrfti þess við,
gista staðinn og njóta þess, sem
hann hefur að veita. Það gjörðist
á síðustu mánuðum sl. árs. Þá átti
ég þama dvöl í 9 vikur, undi mér
vel og fann mig sátta. Hlýtt við-
mót, umhyggja og góð þjónusta
var svo sannarlega í té látið. Það
færði mér vissu um að fyllsti vilji
er til staðar, varðandi það að búa
sem best að þeim, sem þama koma
og dvelja lengur eða skemur. Og
allmargir em þeir sem koma aftur
og aftur vegna þess að brostin
heilsa þeirra og meðhöndlun til
samræmis leiðir til slíks. Á reynsl-
utíð er mikilvægt að fá þrýst hlýja
hönd og fundið traust. I nefndri
dvöl minni á sjúkradeild hótel Lind-
ar á haust- og vetrardögum fann
ég gamla og góða vini og eignað-
ist nýja, sem var mjög uppörvandi
og vakti hlýju í huga.
Starfsliði sjúkradeildarinnar
færi ég fyllstu þakkir mínar og
góðar óskir. Það stendur sig prýð-
isvel í önn og erli daganna og lað-
ar þannig fram hjá þeim, sem það
veitir þjónustu sína, líðan góða,
eftir því sem unnt er.
Hótelstjóra Lindar, Ólafi Emi
Ólafssyni, flyt ég þakkir og óska
allra heilla.
Höfundur býr & Akureyri og er
frá Sörlastöðum í Fiýóskadal.
OTTIROn
AFGREIÐSLUKASSAR
Engin
hætkun
í heilt ár
•
- Já, því ekki að segja frá því þegar allt verðlagskerfi landsins
riðlast, að í verslun okkar hafa húsgögn ekki hækkað - í það
heila tekið - síðan í febrúar í fyrra.
Síðan 1964 - þegar við byrjuðum að versla - hefur aldrei
verið hagstæðara að kaupa húsgögn en nú.
Yinningur
í verslun okkar eru öll húsgögn verðlögð á nettóverði - svo-
nefndu staðgreiðsluverði, sem að sjálfsögðu verður til þess að
þeir, sem kaupa með afborgunum hjá okkur, skaðast ekki um
staðgreiðsluafslátt, sem víða er 5-10% af útsöluverði - og aug-
ljóslega hrein viðbót við vexti.
Peningar
Greiðslukortin frá Visa og Euro eru peningar í verslun okkar
- eins og hveijir aðrir peningaseðlar - hvort heldur sem fullnað-
argreiðsla eða útborguri á kaupsamninga.v Greiðslukortin eru
peningar okkar tíma - svo einfalt er það.
Auðvelt
Við bjóðum upp á léttar greiðsluraðir - í allt að 12 mánuði -
á afborgunarsamningum, sem greiða má af í hvaða banka sem
er - og samninga, sem kortafyrirtækin Euro og Visa gefa út
og annast innheimtu á, þér að fyrithafnarlausu. Eurokredit og
Visa vildarkjör.
Öryggi
Dagsett sölunóta er ábyrgðarskírteini þitt, því við bjóðum 2ja
ára ábyrgð á gæðum efnis og vinnu húsgagnanna.
Úrval .
Öll viljum við eiga falleg heimili og það er gaman að versla
þar sem úrval er mikið - ef við gefum okkur til þess góðan
tíma. Berum saman hinar ýmsu gerðir og liti, mælum og met-
um gæðin og gerum verðsamanburð.
/ Húsgagnahöllinni er mesta og fjölbreyttasta úrval húsgagna
á íslandi - um það efast enginn sem lítur til okkar.
REYKJAVÍK