Morgunblaðið - 16.02.1988, Qupperneq 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 1988
Harðplast
parket
þetta sterka
HF.OFNASMIOJAN
SÖLUDEILD
HÁTEI6SVEGI7 S: 21220
Langar þigtil
útlanda í sumar?
Ef þú ert 15-18 ára getur þú sótt um að fara til
Danmerkur, Svíþjóðar, Þýskalands, Frakklands,
Noregs og Finnlands á vegum ASSE á íslandi.
Dvalið er hjá völdum fjölskyldum í 6 vikur.
Allar nánari upplýsingar á skrifstofu ASSE í
Nóatúni 17, s. 91-621455 kl. 13-17.
ASEACylinda
þvottavélar^sænskar og sérstakar
Fá frábæra dóma í neytendaprófunum fyrir
þvott, skolun, vindingu (fjölhraða lotuvind-
ing upp í 1200 snúninga), taumeðferð, sápu-
og orkusparnað. Efnisgæði og öryggi ein-
kenna ASEA. Gerðar til að endast.
f 3ár /rOniX
Hátúni 6A SÍMI (91)24420
/?Qn\x
ábyrgð
Rýmingarsala á
PBTBR KAISBR
BRUNO MAGLI QJ
Í3daga
KRINGWN
KI5IMeNM
S. 689212
Ath.: Við gefum 20% afslátt af öllum
kuldaskóm íverslunum okkar
21212
S. 689212
if
TOPg
T^SKÚRINN
VELTUSUNDI 1
Einstakf tækifæri
PANZL LEÐURSTÍGVÉL, ásamt mörg-
um öðrum tegundum af vönduðum gerð-
umafskómáaðeins
kr. 990,-
KRINGWN
KWMeNM
S. 689212
lega sterka tilhneigingu til að loka
augunum fyrir því sem fram fer og
beina meginkröftum sínum í þá átt
að skara eld að sinni köku eins og
aðrir. Sjálfsbjargarviðleitni þeirra er
að sjálfsögðu lofsverð, en hitt síður
að þeir skuli að miklu leyti vera
óvirkir og þögulir þolendur og áhorf-
endur að mjög svo varhugaverðri
þróun. Til þess eru vísindamenn og
fræðimenn að benda á hluti sem
betur mættu fara, bæði hver í sinni
grein og einnig í heildarsamhengi.
Það eru hlunnindi að fá að mennta
sig, en menntuninni fylgir líka sið-
ferðileg ábyrgð. Þessi umræða hefur
ekkert með menntahroka að gera,
en það færi vel á því að mennta-
menn og aðrir lærdómsmenn veittu
stjórnvöldum miklu meira aðhald en
þeir hafa gert undanfarið.
Hvað um heilbrigðisstétt-
irnar?
Hvað geta heilbrigðisstéttimar
gert umfram það að stunda sína
vinnu samviskusamlega innan fjög-
urra veggja? Margt bendir til þess
að velferðarstreita nútímamanna og
það sem henni fylgir, tilfinningalegt
los, einsemd og .skortur á lífsfyll-
ingu, ýti undir geðtruflanir og af-
brigðilegar aðlögunartruflanir eins
og fram hefur komið. Nútíma tækni-
væðing virðist ala á kvíða sem leiðir
til sjúklegra hegðunarfrávika. Illvígt
þægindakapphlaup og meðfylgjandi
siðræn tómhyggja og sinnuleysi
ógna andlegri velferð, innra jafn-
vægi og heilsufari. Spurningar um
hlutverk heilbrigðisþjónustunnar eru
áleitnar. Þær eru jafnan enn nálæg-
ari þegar geðheilbrigðisfræðin eiga
í hlut vegna sérstöðu þeirra við-
fangsefna sem þau fást við. Þar er
allt svo miklu óhlutbundnara en í
öðrum greinum heilbrigðisþjón-
ustunnar og um leið í nánari tengsl-
um við mannleg samskipti og hinn
andlega og félagslega veruleika
mannsins.
Geta þessi fræði lagt nokkuð af
mörkum til samfélagsumræðu, eða
jafnvel samfélagsgagnrýni og úr-
bóta? Sjálft hugtakið geðheilsa og
geðheilbrigði er ákaflega óljóst. Þó
að undarlegt megi virðast þá er
auðveldara að benda á það sem er
sjúkt en að skilgreina það sem er
heilbrigt. Orsakafræði geðsjúk-
dómafræðinnar er flóknari en ann-
arra sérgreina læknisfræðinnar í
samræmi við þá sérstöðu að viðfang
hennar er annað og meira en líkam-
inn einn í efnislegum skilningi. Við-
fangsefni hefðbundinnar læknis-
fræði ér líkaminn sem flókin og
margslungin vél, svo og bilanir,
meinsemdir og truflanir á þessari
vél og starfsemi hennar. Allt er þetta
kyrfilega bundið efnisveruleikanum.
Viðfangsefnigeðsjúkdómafræðinnar
er samkvæmt orðanna hljóðan: geð-
ið, mannshugurinn, vitundin, sálin,
sálarlífið, tilfínningamar, hugsan-
imar, sjálfstjóm, atferlið, samskipti,
félagshæfni, persónuleikinn og svo
framvegis. Viðfangið er ennfremur
— tmflanir og skerðingar á manns-
huganum, starfsemi hans og sjálfs-
stjóm og um leið og ekki síst sú
andlega vanlíðan og aðrar afleiðing-
ar sem slíkum tmflunum fylgja, svo
sem kvíði, einsemd, tómleiki, von-
leysi, örvænting, þunglyndi, fjöl-
skylduvandamál, vímuefnaneysla og
vaxandi sambandsleysi við veruleik-
ann. Allt em þetta í senn vandamál
einstaklinga og samfélagsins í heild.
Svo má spyija að hve miklu leyti
þessi fyrirbæri og einkenni, þjáning-
ar og þrautir séu óaðskiljanlegur
hluti af eðli mannsins og tilveru
hans, það er að segja nánast samgró-
inn eða innborinn þáttur í mannlegu
hlutskipti, eða að hve miklu leyti þau
séu manninum í rauninni óeiginleg
og um leið „óþörf“, en til komin
fyrir tilverknað flókinna „ytri“ og
„innri" orsakaþátta, og þá meðal
annars rangrar breytni í víðum skiln-
ingi? Þetta eru klassískar spumingar
og deiluefni. Þessi umræða tengist
mjög náið spumingunni um frelsi
mannsins og möguleika hans til að
hafa áhrif á lífið og framvindu þess
til góðs eða ills. Svörin við þessum
. spumingum skipta greinilega mjög
miklu máli og móta afstöðuna til
mannlífsins og viðleitnina til að hafa
áhrif á það.
Um leið og allur geðheilsubrestur
hlýtur að hafa félagsleg áhrif, þá
er ljóst að félagslegir og menningar-
legir þættir hafa geysimikil áhrif á
geðheilsu manna. Ahugi á hinum
félagslegu, andlegu og sálrænu þátt-
um í þessu samhengi, eykur um leið
áhugann á samfélaginu og mannleg-
um samskiptum almennt í því skyni
áð öðlast aukinn skilning á myndun
einkenna, úrræðum og lausnum og
síðast en ekki síst hugsanlegri fyrir-
byggingn þeirra.
Ahugavert er að rifja það upp að
fyrir nokkrum ámm, eða um líkt
leyti og áðumefnd „stúdentaupp-
reisn", kom fram stefna innan geð-
læknisfræðinriar sem kölluð var
anti-psykiatria sem gekk út á það
að það sé samfélagið sem sé sjúkt
og þjaki vissa einstaklinga og þvingi
út í svokölluð geðræn sjúkdómsein-
kenni. Þessir einstaklingar séu þó í
rauri hinir heilbrigðu eða að minnsta
kosti hinir heiðarlegu, þeir sem neiti
að „dansa“ eða geti ekki „dansað“
með í hinu sjúklega samspili kerfís
og tíðaranda og séu þar með af-
stætt heilbrigðir miðað við umhverf-
ið og menninguna eða réttara sagt
ómenninguna sem orðin sé gjör-
spilltu peningavaldi og neysluhyggju
að bráð og farin að vinna gegn raun-
verulegri andlegri velferð manna og
hamingju. Hið hefðbundna hlutverk
geðlæknisfræðinnar er samkvæmt
þessu aumlegt og snautlegt: sem
sagt það að aðlaga (!) þessa einstakl-
inga á ný að samfélaginu, oft jafn-
-
FEBRÚAR-TILBOÐ
500
150
JOTUR
325
65
HlTACHl ÖRBYLGJUOFN
gerð MR. 6610
KRINGLUNNI -SÍMI (91)685868