Morgunblaðið - 16.02.1988, Page 31
iprfra
TTTTrníT«i rnr^A njT/fn
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 1988
31
Nicaragua:
Efnahagsaðgerðir
og myntbreyting
Managua. Reuter.
Sandinistastjórnin í Niearagna leiðslugreinunum og mikill vöru-
ætlar að taka upp nýjan gjald- skortur hafa ýtt undir svartamark-
miðil, nýjan cordoba, og er það aðsbrask og utan bankakerfisins
liður í tilraunum hennar til að eru milljarðar cordoba í umferð.
bæta efnahagsástandið, sem er Vakir það ekki síst fyrir stjóminni
afar bágborið. með myntbreytingunni að ná til
Daniel Ortega forseti sagði í út- þessara peninga.
varpsávarpi á sunnudag, að fyrstu, Sandinistastjómin hefur reynt að
nýju cordobamir yrðu settir í um- koma á opinberri verðstýringu en
ferð á mánudag en verðgildi þeirra án árangurs og hefur það ekki
verður 1.000 sinnum meira en breytt neinu þótt svartmarkaðs-
þeirra gömlu og gengisskráningin braskaramir séu stimplaðir „óvinir
föst, • 10 cordobar fyrir dollar. Þá byltingarinnar".
verða almenn laun og verð fyrir
vömr og þjónustu endurskoðuð.
Ortega kenndi skæruliðum og
Bandaríkjastjóm um það hvemig
komið væri í efnahagsmálunum en
samtök einkarekstrarmanna í Nic-
aragua segja, að verðbólgan sé
meira en 1.500%. Erfiðleikar í fram-
Paraguau:
Mannrétt-
indabrotum
mótmælt
Hópur Vestur-Þjóðveija
mótmælti mannréttinda-
brotum í Austur-Þýska-
landi fyrir utan kvik-
myndahús í Vestur-Berlín
í gær, þegar frumsýnd var
austur-þýsk mynd sem
fjallar um samskipti ríkis
og kirkju. Eitt slagorð-
anna var: „í frelsinu felst
alltaf frelsið til að hugsa
öðruvísi."
Strössner
sigraði í
áttundasinn
Asuncion í Paragnay. Reuter.
ALFREDO Strössner hershöfð-
ingi, forseti var á sunnudag sagð-
ur vera öruggur sigurvegari í
forsetakosningum sem fram fóru
í Paraguay á laugardag. Er þetta
áttunda kjörtímabil Strössners.
Víða kom til mótmæla og stjórn-
arandstæðingar vilja halda því
fram að stórfelld kosningasvik
hafi átt áer stað.
Strössner, sem hefur verið for-
seti Paraguay í 33 ár, er 75 ára
gamall. Formaður flokks hans, Col-
orado-flokksins, Sabino Montanaro
sagði á sunnudag eftir að tveir
þriðju hlutar atkvæða hefðu verið
taldir hefði verið ljóst að Strössner
var öruggur sigurvegar, með 89%
fylgi. Keppinautar Strössners um
embætti forseta voru tveir og
hvöttu þeir kjósendur til að halda
sig heima á kosningadaginn eða
skila auðu.
Domingo Laino, formaður Rót-
tæka frjálslyndaflokksins, sem er
stærsti stjómarandstöðuflokkur
landsins, sagði að 60-65% kjósenda
hefði ekki tekið þátt í kosningunum.
„Kosningamar voru skrípaleikur,"
sagði hann við blaðamenn. Til átaka
kom víða um landið á kosningadag-
inn en lögregla var vel á verði og
í sex bæjum hið minnsta vora mót-
mælendur handteknir.
Filippseyjar:
Þingið andvígt
neyðarlögum
Manila. Reuter.
ÞING Filippseyja samþykkti
ályktun í gær um að það væri
andvigt hugsanlegri setningu
neyðarlaga til þess að auðvelda
stjóm landsins og her baráttuna
gegn kommúnistum.
Corazon Aquino, forseti, sagðist
hafa leitað eftir áliti vamarmálaráð-
herra landsins á kröfum hersins og
hafði hún ekki fengið álit hans er
þingið tók sína afstöðu. Ferdinand
Marcos, forveri Aquino á forseta-
stóli, beitti herlögum í baráttunni
gegn skæraliðum. Sú ráðstöfun varð
einungis til þess að auka á vandann
því sveitafólki blöskraði svo fram-
ferði hersins að það gekk til liðs við
uppreisnarmenn.
Til harðra átaka kom milli skæra-
liða kommúnista og stjómarhersins
víðs vegar um land um helgina og
staðfest var að á fjórða tug manna
hefðu fallið.
Nýr metsölubíll með
fimm árn ábyigð.
Hyundai (borið frarn hondæ) er í dag einn
mest vaxandi bílaframleiðandi heims og sel-
ur nú bíla í 65 þjóðlöndum. Hyundai Excel
hefur verið mest seldi innflutti bíllinn, bæði
í Bandaríkjunum og Kanada, síðustu 18 mán-
uði.*
Þennan árangur má þakka þeirri einföldu
staðreynd að Hyundai er rétt byggður og
rétt verðlagður.
Hyundai Excel er fyrsti bíllinn á íslenskum
markaði með 5 ára ábyrgð**. Hann er gerð-
ur til að endast, viðhaldið er í lágmarki og
þú getur verið áhyggjulaus í 5 ár.
Excel er sterkbyggður og hannaður til að
þola rysjótt veðurfar og misgóða vegi. Einnig
hefur verið séð til þess að bílarnir séu
aðlagaðir viðkomandi markaði, t.d, eru allir
bílarnir sem seldir eru hér á landi búnir
styrktu raíkerfi og með sérstakri ryðvörn.
Excel er með framhjóladrifi og sjálfstæðri
fjöðrun á hverju hjóli, 1,5 lítra kraftmikilli
vél og hægt er að velja um 4 eða 5 gíra bein-
skiptingu eða 3 stiga sjálfskiptingu. Öryggi
farþeganna gleymist heldur ékki. Hyundai
Excel er með styrktarbitum í hurðum og
öryggisstuðurum.
Hyundai Excel kostar frá 428 þúsund -
krónum og er betur búinn en gengur og ger-
ist með bíla í sama flokki. Excel er bíll íyrir
skynsamt fólk sem vill eiga vel hannaðan,
öruggan og endingargóðan bíl, án þess að
þurfa að kosta allt of miklu til.
'Wards Automative Reports " Kynnið ykkur ábyrgðarskilmála Iscan hf.
HYunoni
í Framtíð við Skeifuna. Sími 685100.
BÍLBELTI ERU SKYNSAMLEG.
essemrrvslA 18.02