Morgunblaðið - 16.02.1988, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 1988
87
Arnór Diego
kosinn „Herra
ísland 1988“
ÁTJAN ára Reykvíkingur, Arnór Diego,
var kjörinn Herra ísland 1988 í fyrstu
islensku fegurðarsamkeppni karla.
Keppnin fór fram á veitingastaðnum
Zebra síðastliðið laugardagskvöld.
Ásamt Zebra stóð útvarpsstöðin Hljóð-
bylgjan og sólbaðsstofan Stjörnusól að
keppninni.
Hallgrímur Óskarsson, tvítugur nemi við
Menntaskólann á Akureyri, var kjörinn vin-
sælasti keppandinn á meðal keppendanna
sjö. Að sögn Kristjáns Kristjánssonar verður
framhald á fegurðarsamkeppni karla. Und-
irbúningur fyrir næstu keppni mun að öllum
líkindum hefjast strax.næsta sumar og þá
er jafnframt fyrirhugað að byija mun fyrr
og halda undankeppni í hveiju kjördæmi
fyrir sig eins og tíðkast hefur í Fegurðars-
amkeppni kvenna.
Arnór er nemandi á almennu bóknáms-
sviði við Fjölbrautaskólann í Breiðholti.
Hann kennir eróbikk hjá Dansstúdíói Dísu
í Garðabæ, starfar .hjá Módel ’79, dansar
fyrir Kramhúsið og hefur að undanfömu
dansað í sýningunni „Allt vitlaust" á Broad-
way.
Formaður dómnefndar var Anna Margrét
Jónsdóttir, fegurðardrottning íslands 1987,
og aðrir í dómnefnd voru þau Gígja Birgis-
dóttir fegurðardrottning íslands 1986,
Bjami Hafþór Helgason sjónvarpsstjóri,
. Ragnar Sverrisson kaupmaður í JMJ og
Bima Bjömsdóttir snyrtifræðingur. Kynnir
í keppninni var Bryndís Schram.
Araór Diego ásamt öðrum keppendum,
Önnu Margréti Jónsdóttur, formanni
dómnefndar og Bryndísi Schram, sem
var kynnir.
A
Morgunbl aðið/G S V
• •
Oskudagsball
í Dynheimum
Zontaklúbburinn Þórunn mun
halda öskudagsball í Dynheimum
á öskudaginn milli klukkan 15
og 18. Ballið er haldið til fjáröfl-
unar fyrir Sel II.
Allir krakkar í öskudagsbúning-
um eru hvattir til að mæta, einnig
em foreldrar velkomnir. Miðaverð
er 200 krónur en ókeypis er fyrir
foreldra. Veitingar verða á staðn-
um, kaffí, heitar vöfflur, gos og
fleira. Ýmsar uppákomur verða á
ballinu, svo sem grettukeppni, bún-
ingaverðlaun og annað þess háttar.
Bjóðum fullkomna viögeröarþjónustu á
sjónvarpstœkjum, útvarpstœkjum, sto-
ríomögnurum, plötuspilurum, segul-
bandstœkjum, bíhœkjum, talstöðvum,
fiskilortartœkjum og siglingartœkjum.
ísetning á bíltœkjum.
Sími (96) 23626 Glerárgötu 32 - Akureyri
Helgar-og
viðskiptaf erðir til
Reykjavíkur
Yið viljum búa til félags-
starfíð í kringum málefnið
— segir Margrét Kristinsdóttir nýkjörinn formaður
fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna á Akureyri
Fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna á Akureyri stendur fyrir
fundaröð um framhaldsskólamenntun á næstunni og verður fyrsti
fundurinn haldinn í kvöld kl. 20.30 í Kaupangi. Fjallað verður um
tengsl framhaldsskólans við atvinnulífið og verða frummælendur
þrír, þeir Bernharð Haraldsson skólameistari, Trausti Þorsteins-
son skólastjóri og Þorsteinn Þorsteinsson nemi. Nýr formaður
fulltrúaráðsins, Margrét Kristinsdóttir, tók við störfum fyrir
skömmu og af þvf tilefni ræddi Morgunblaðið stuttlega við Margr-
éti.
Fjögur sjálfstæðisfélög eru á
Akureyri: Sjálfstæðisfélag Akur-
eyrar, Félag ungra sjálfstæðis-
manna, sem heitir Vörður, Mál-
fundafélagið Sleipnir og Sjálfstæð-
iskvennafélagið Vöm. Margrét er
framhaldsskólakennari með hús-
mæðrakennaramenntun og starfar
nú sem kennslustjóri í Verk-
menntaskólanum. Hún hafði um-
sjón með fyrstu fræðsluþáttunum
um matargerð sem sýndir voru í
fslenska ríkissjónvarpinu á árunum
1970 og 1971. Þá flutti hún norður
og tók við Húsmæðraskóla Akur-
eyrar og gegndi skólastjórastöðu
hans þar til hann var sameinaður
Iðnskólanum og framhaldsdeitdum
Gagnfræðaskólans f Verkmennta-
skólann. „Ég fór að starfa af al-
vöru í pólitfk fyrir um það bil tíu
árum. Þá var ég i framboði við
sveitarstjómarkosningamar og sat
í bæjarstjóm á síðasta kjörtímabili.
Hinsvegar bauð ég mig ekki fram
aftur, en var f fimmta sæti á Norð-
urlandi eystra fyrir síðustu alþing-
iskosningar."
Margrét sagði að bæjarpólitíkin
hlyti vissulega að vera frábrugðin
landsmálapólitikinni þótt markmið-
in væru svipuð. „Óneitanlega þarf
alþingismaðurinn að hafa víðara
þekkingarsvið heldur en sveitar-
stjómarmaðurinn. Nauðsynlegt er
þó fyrir bæjarstjómarmenn að
þekkja vel til sem flestra sviða þar
sem bæjarmálin tengjast lands-
málapólitíkinni á alla kanta. Bæim-
ir eru engar eyðieyjar, heldur mis-
munandi stórir hlutar af samfélag-
inu. Ég held að mikill styrkur hljóti
að fylgja því að menn kynnist sveit-
arstjómarmálum vel áður en þeir
bjóða sig fram til Alþingis. Mitt
hlutverk sem formaður fulltrúa-
ráðsins er að sameina átak allra
sjálfstæðisfélaganna í þá átt að
útbreiða stefhu félaganna og örva
starf þeirra. í deiglunni er ýmis-
legt, en þó viljum við hafa fundar-
dreifíngu sem jafnasta út árið.
Markvisst sameiginlegt átak félag-
anna hefur ekki verið svo ýkja
mikið hingað tii, aðsókn hefur oft
á tíðum verið dræm, samkeppni
skapast um frístundir fólks, en með
þessu erum við að reyna að auka
áhuga fólks á því sem það sjálft
vill taka þátt í.“
Fundaröðin, sem fulltrúaráðið
stendur fyrir, er í tengslum við
Morgunblaðið/GSV
Margrét Kristmsdóttir, form-
aður fulltrúaráðs sjálfstæðis-
félaganna á Akureyri.
félagsstarf sjálfstæðismanna. Mar-
grét sagði að henni væri ætiað að
virkja félagana til starfs á ákveðn-
um málefnum sem væru í brenni-
deplinum hveiju sinni. Þetta ætti
ekki aðeins við Akureyringa, heldur
væri meiningin að efnið næði til
allra Norðlendinga. Ákveðið hefði
verið að taka fyrir framhaldsskóla-
menntunina í iandinu þar sem
þessa dagana væri verið að leggja
frumvarp til laga um framhalds-
skólann fyrir Alþingi. „Við viljum
búa til félagsstarfíð í kringum
málefnið, en ekki færa málefnið inn
í félagsstarfíð," sagði Margrét.
Næsti fundur verður haldinn
mánudaginn 22. febrúar og verður
þá fjallað um rekstur og fjármögn-
un framhaldsskólanna. FVummæl-
endur verða þær Katrín Eymunds-
dóttir forseti bæjarstjómar á
Húsavík og Sólrún Jensdóttir skrif-
stofustjóri í menntamálaráðuneyt-
inu. Þriðji fundurinn um fram-
haldsskólann fer fram þriðjudaginn
1. mars þar sem fjallað verður um
innra starf framhaldsskólans.
FVummælendur verða Ingibjörg
Elíasdóttir nemi, Jón Már Héðins-
son framhaldsskólakennari og
Margrét Kristinsdóttir kennslu-
syóri. Lokafundurinn að þessu
sinni verður fostudaginn 4. mars.
Rætt verður þá um frumvarp til
laga um framhaldsskóla og álits-
gerðir allra fyrri funda ræddar og
kynntar. Frummælendur verða þeir
Guðmundur Magnússon aðstoðar-
maður menntamálaráðherra og
Tómas Ingi Olrich framhaldsskóla-
kennari. Þá um kvöldið verður jafn-
framt haldin árshátíð sjálfstæðis-
manna í Svartfugli þar sem Birgir
ísieifur Gunnarsson menntamála-
ráðherra flytur hátíðarræðu. Ráð-
herra ætlar jafnframt að boða til
opins fundar um framhaldsskólann
þann 5. mars.
Margrét sagði að stefnan hjá
framhaldsskólum landsins væri að
tengjast atvinnulífínu væri meira
en orðið er. Til dæmis væri Háskó-
lanum á Akureyri ætlað stórt hlut-
verk í því efni. Matvælafræðibraut
nyti sjálfsagt góðs af miklum mat-
vælaiðnaði á Akureyri, að sama
skapi nyti sjávarútvegsbraut góðs
af sjávarútvegi og svo hjúkrunar-
og iðnrekstrarbrautir, sem þegar
eru hafnar. „Ég tel að allir hugs-
andi atvinnurekendur séu jákvæðir
gagnvart þessu. Hinsvegar eru
ekki allir sammála um réttu stefn-
una,“ sagði Margrét að lokum.
Ótrúlega hagstætt verð
Verðfrákr. 6.859,-
Ferðaskrífstofa Akureyrar,
Ráðhústorgi 3, sími 25000.
Horft af brúnni
Frumsýning4. mars.
Forsala aðgöngumiða hafin.
MIÐASALA
96-24073
ISKPéLAG AKUREYRAR
0 [ K\
I IConica UBIX
Telefaxvélar
| .J
-I
BÓKVAL
Sími 96-26100