Morgunblaðið - 16.02.1988, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 1988
49
Amnesty Intemational:
SRÍ LANKA
Gnanaguru Aravinthan „hvarf“
að morgni 5. september 1985, tæp-
um tveim vikum eftir þrettánda
afmælisdag sinn. Hann hafði ásamt
foður sínum verið viðstaddur athöfn
klukkan átta um morguninn í sam-
bandi við lát ættingja. Eftir athöfn-
ina sendi faðirinn Aravinthan heim
til að skipta um föt og bað hann
koma aftur til miðdegisverðar í
húsið þar sem athöfnin hafði farið
fram. Aravinthan lagði af stað
heimleiðis á reiðhjóli, en leið hans
lá hjá Valvettiturai-herbúðunum.
Hann kom ekki aftur.
Þegar Aravinthan birtist ekki á
tilsettum tíma fór faðir hans heim
til að gá að honum. Hann fór síðan
aftur og át miðdegisverð með ætt-
ingjum sínum, sneri heim um fjög-
urleytið og beið sonar síns til klukk-
an sex. Loks lagði hann upp að
nýju til að leita sonar síns og hitti
tvo nágranna sem sögðust hafa séð
Aravinthan ásamt tveimur eldri
piltum í vörslu nokkurra hermanna
í grennd við herbúðimar klukkan
tíu um morguninn.
Faðirinn spurðist fyrir í Velvettit-
urai og Palali-herbúðunum, en allir
foringjar í hemum neituðu að hafa
handtekið son hans. Hann leitaði
til yfirvalda á staðnum og margs-
konar stofnana og samtaka, en allt
kom fyrir ekki. í apríl 1987 til-
kynnti ráðuneytisstjóri í hermála-
ráðuneytinu, að ráðuneytið hefði
engar upplýsingar eða skýrslur um
handtöku drengsins.
Amnesty Intemational hefur um
nokkurra ára skeið haft þungar
áhyggjur af sívaxandi tilhneigingu
stjómarhermanna til að handtaka
karla, konur og stundum börn sem
grunur leikur á að eigi einhvem
samskipti við vopnaðar sveitir
Tamíla. Þessu fólki er í fyrstu hald-
ið með leynd, og ættingjar eiga
þess engan kost að fá staðfest hvar
það sé niður komið. í september
1986 gaf Amnesti Intemational út
skýrslu um „Hvörf“ í Srí Lanka,
þar sem lýst var tilvikum 272
manna sem sagðir voru hafa „horf-
ið“ á tímabilinu júní 1983 til apríl
1986. Við þau bættist 31 tilfelli í
nóvember 1986, og í maí 1987 lýsti
Amnesty Intemational 216 tilvikum
„mannshvarfa“, sem voru nálega
öll studd eiðsvömum vitnisburðum,
aðallega sjónarvotta, um handtökur
öryggissveita ríkisins. Einungis
hefur tekist að fá upplýsingar um
verustaði fjögurra þessara manna,
en meðal þeirra var einn sem örygg-
issveitimár skutu til bana eftir að
hann var handtekinn. Amnesty Int-
emational hefur ekki fengið neinar
skýrslur um „mannshvörf" í Srí
Lanka eftir 29. júlí 1987, þegar
sáttmálinn milli Indlands og Srí
Lanka var undirritaður.
Stjómvöld á Srí Lanka hafa stað-
fastlega neitað að „mannshvörf"
hafí átt sér stað og hafa haldið því
fram að þeir sem eiga að hafa „horf-
ið“ hafi aldrei verið handteknir eða
hafi farið úr landi eða verið leystir
úr haldi. Hins vegar hefur Amnesty
Intemational fulla ástæðu til að
ætla að margir þeirra sem „hurfu“
hafí verið pyndaðir og látið lífið af
þeim sökum, en aðrir hafí verið
skotnir eftir að þeir vom hand-
teknir og lík þeirra fjarlægð með
leynd. Allmörgum fjölskyldum var
sagt að koma ekki tii herbúða, þar-
eð „horfnir" ættingjar þeirra „hefðu
verið skotnir". Öðmm vom afhent
blóðidrifin föt „horfinna" ættingja
þegar þær fóm til herbúðanna með
hrejnan fatnað handa þeim.
Árið 1985 handtók herinn 17 ára
pilt sem var á leið til kunningja
síns á reiðhjóli. Faðir hans gerði
ítrekaðar fyrirspumir um hann í
heila tvo mánuði, en þá var sonur-
inn leystur úr haldi eftir að hann
hafði verið pyndaður með raflostum
og barsmíðum. Honum var tekinn
vari fyrir að segja frá afdrifum
sínum. Reiðhjólinu var skilað þegar
hann var leystur úr haldi.
Gnanagum Aravinthan var nem-
andi í sjöunda bekk Chithambara
menntaskólans þegar hann var tek-
inn höndum. Amnesty Intemational
kemur ekki auga á neina haldbæra
skýringu á því að herinn skuli hafa
hann í haldi, og hvetur stjómvöld
á Srí Lanka til að setja þegar í stað
á laggimar óvilhalla rannsóknar-
nefnd til að fá úr því skorið hvar
hann er niður kominn.
Áskorunum skal beint til:
His Excellency
President J.R. Jayewardene,
Presidential Secretariat,
Republic Square,
Colombo 1, Sri Lanka.
NÝ METSÖLUBÓK EFTIR HÖFIIND SÖGUNNAR
-----------KJARNAKONA------------
barbaRa
TAYLOR
iADFORDi
Ný kilja frá Regnbogabókum
REGNBOGABÆKUR hafa nú
sent frá sér sjöttu kiljuna, en hún
heitir Af ráðnum hug og er eftir
breska metsöluhöfundinn Bar-
bara Taylor Bradford.
Hún hefur skrifað fjölda bóka sem
notið hafa mikilla vinsælda og þá
ekki hvað síst í krafti þeirra sjón-'
varpsþátta sem gerðir hafa verið
eftir sögum hennar. Sjónvarpið sýndi
á síðastliðnu ári sjónvarpsþætti eftir
sögu Bradford sem nefndir vom
Kjamakona á íslensku. Á þessu vori
mun Sjónvarpið síðan sýna nýja
þætti byggða á sögu hennar. Af
ráðnum hug er nýjasta bók höfundar
og kom út sl. sumar og var lengi á
vinsældalistum.
Bókin er um 350 blaðsíður og
fæst í bóka- og smásöluverslunum
um land allt og einnig í áskrift.
ÖD PIONEER
fFf//» ■•
/l/c-tilvahn
tilbreyting
Ljúffengt gæðakex í þremur bragðtegund-
um. Frábært með osti og ídýfum eða eitt
sér. TUC- eitt það besta. Láttu það ekki
vanta.
wjgttá
EGGERT
KRISTJÁNSSON H/F
SÍMI 6-85-300
*
Það nálgast stórmál. . . þegar tvö ný
SMÁMÁL
koma upp samtímis.
Súkkulaðifrauð
og Dalafrauð.