Morgunblaðið - 16.02.1988, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 1988
Morgunblaðið/Þorkell
„Ég er ekki tónskáld, ég túlka verk þeirra.“ Roberto Scherson leikur fyrir 9 ára börn í Melaskóla.
ROBERTO SCHERSON
Ungir áhorfendur
veita mér mikinn kraft
Amaður ekki alltaf að vera
glaður þegar maður spil-
ar?,“ spurði lítill snáði chileanska
píanóleikarann Roberto Scher-
son, sem lék fyrir 9 ára bekki
Melaskóia í Reykjavík, síðastlið-
inn föstudag. „Nei, stundum er
gott að vera svolítið leiður,"
svaraði hann og lék stuttan en
sorglegan lagstúf.
Þó að dvöl Scherson væri stutt
að þessu sinni, aðeins þrír dag-
ar, gaf hann sér tíma til að leika
fyrir nemendur Melaskóla og
Menntaskólans við Hamrahlíð. A
tónleikunum í Melaskóla lék
hann nokkur stutt lög eftir Beet-
hoven, Chopin, Schumann og
Lást og veitti nemendunum ör-
litla innsýn í heim píanósins.
Hann ræddi um hvemig eigi að
hlusta á sígilda tónlist, samband
tónskálds og píanóleikarans,
tónlistina sem tungumál og
hljóðfærið sjálft. „Og svo reyni
ég að vera svolítið fyndinn,"
segir Scherson. Lagaskráin nær
allt frá Bach til Gerswins og
Rachmaninovs en ekki lengra,
því honum líkar ekki nútíma-
tónlist. „Ég sé ekki neina
framtíð í henni. Ég tel að nú
þegar hafí öll sú sígilda tónlist
verið samin sem á að semja. Við
eigum að ígmnda hlutverk henn-
ar, ekki að bæta við.“
Og við áhorfenduma segir
hann; „plata er eins og ljós-
mynd. Að hlusta á plötu sem
maður hefur leikið inn á, er eins
og að sjá gamla ljósmynd af
sér.“ Nemendumir vilja þá fá
að vita hvort hann geti sest nið-
ur hvar sem er og samið en
hann neitar því. Hann segist
ekki hafa þann hæfíleika, hann
láti sér nægja að túlka það sem
aðrir hafí samið. Svo mörg falleg
lög séu til að hann eigi hreinlega
í erfíðleikum með að velja.
Að loknum tónleikunum nær
blaðamaður tali af Scherson.
„Gott að þú komst, því mér ligg-
ur svo margt á hjarta núna,“
segir hann. „Veistu, það besta
sem píanóleikari getur gert er
að leika fyrir unga áhorfendur.
Þeir veita manni svo mikinn
kraft, að jafnvel þó að maður
sé líkamlega dauðþreyttur, þá
er maður fullur orku eftir að
hafa leikið fyrir ungt fólk. Kraft-
urinn frá íslenskri æsku er
hreinni og tærari en andrúms-
loftið hér.
Framtíðina sjáum við í unga
fólkinu. Eg held að mér hafí
hingað til tekist vel að ná til
þeirra og það veitir mér mikla
ánægju. í Frakklandi, þar sem
ég bý, leik ég fyrir um 1000
böm og ungt fólk á mánuði. En
eg er einleikari að atvinnu, þetta
er aðeins hluti af mínu starfí;
Ég er fæddur í Chile en hef
búið í Frakklandi síðastliðin tíu
ár. Ég fer reglulega til heima-
lands míns og spila og alltaf er
vel tekið á móti mér. Enda er
ég fyrst og fremst rómansk-
amerískur píanóleikari. Undir-
staðan er evrópsk en innblástur-
inn, hann er rómansk-amerísk-
ur.
í tónlistinni skiptir mig mestu
máli stuðningur starfsbræðra
minna, því tónlist er ekki íþrótt.
Maður hvorki vinnur né tapar,
maður túlkar.“
Hvað dregur þig hingað? „Ég
er á sífelldum ferðalögum milli
Nýja og Gamla heimsins og ís-
land er í mínum huga einhvers
konar brú þar á milli. ísland er
mjög framandi staður fyrir mér,
landfræðilega séð. Einnig fólkið,
það dregur dám af umhverfínu,
að því undanskildu að það er
alls ekki kuldalegt. Það hefur
tekið vel á móti mér og ég á
örugglega eftir að koma aftur
hingað.
Því hér er ákaflega fallegt
samspil litá og ljóss, besta vatn
í heimi og mjög fallegar konur.
Hvers frekar getur rómantískur
píanóleikari óskað sér?“
aáderimceti Joo.ooo
55
KawMáfoi*
Fellagörðum ■ Breiðholti III (i dansskóla HEIÐARS)
ALMENN NÁMSKEIÐ - 6 VIKUR
Ukamsstaða, göngulag, fótaburður, fata- og litaval, and-
lits- og handsnyrting, hárgreiðsla, mataræði, borðsiðir,
almenn framkoma o.fl.
MÓPEL NÁMSKEIÐ - 7 VIKUR
Sviðsframkoma, göngulag, hreyfingar, líkamsbeiting,
snyrting fyrir svið og Ijósmyndir, hárgreiðsla, fatnaður o.fl.
INNRITUN ALLA DAGA FRÁ KL. 16.00-20.00 í SÍMA 38126.
NU
SPÖRUMVIÐ
PENINGA
Qg smíðum sjálf!
Við eigum fyrirliggjandi flest það efni,sem til þarf þegar
þið smíðið sjálf. Til dæmis efni í fataskápa, eldhús-
innréttingar, húsgögn, hvers konar vegghillur o.fl. Enn-
fremur loftbitaefni, viðarþiljur, límtré og spónaplötur.
Þið getið fengið að sníða niður allt plötuefni í stórri sög
hjá okkur.
Við veitum fúslega
allar nánari upplýsingar
í síma 621566.
BJORNINN HF
Borgarlún 28 —
sími 621566 — Reykjavík.
Og nú erum við í Borgartúni 28