Morgunblaðið - 13.03.1988, Page 30
30
MORGUNBLAÐIÐ,“SUNNUDAGUR 13. MARZ 1988
LANGUEDOC-ROUSSILLON
Hérað alsett...
hliðum, tumum og skrauti höggnu
í steininn.
„Sá sem ekki sá Avignon á
dögum páfanna hefur ekkert séð,“
skrifaði rithöfundurinn Alphonse
Daudet. Að vísu eru liðin 500 ár
síðan páfmn sat í Avignon, svo sem
frægt er í sögunni og af deilunum
miklu, sem m.a. koma fram í
bókinni „Nafn Rósarinnar".
Páfahöllin stendur þama enn með
öllum sínum glæsibrag og
stórkostlegri gotneskri dómkirkju
og raunar er öll gamla borgin innan
múranna eitt safn fomrar
menningar. Enda er þessi borg
gífurlegur ferðamannastaður. I
páfahöllinni og torgunum í kring
fer fram hin fræga
sumarleiklistarhátíð og sjást þess
merki í stómm útiskreytingum á
leikhúsunum þótt langt sé liðið fram
yfir hátíðina í júlí.
Leiklistarhátíðin í Avignon er
einstök í sinni röð. Upphafið nær
aftur til 1947 þegar franski
leikhúsmaðurinn frægi Jean Vilar
var beðinn um að koma þama suður
eftir með merka sígilda leiksýningu
og sýna það úti. Hann varð hrifínn
af páfahöllinni og hafði orð á því
að Shakespeare veitti ekki af að fá
aftur svolítið rými og leikhúsgestir
loft í lungun eftir rykfallin og
kæfandi leikhúsin. Úti á torginu við
höllina sýndi hann
Shakespeare-leikrit við góðar
undirtektir og hrifningu leikara og
leikhúsfólks. Þannig hófust árlegar
leiklistarhátíðir f júlímánuði. Þetta
var í rauninni kveikjan að Theatre
National Populaire,
þjóðarleikhúsinu franska í Palais
de Challiot í París undir fomstu
Jeans Vilars og Avigion
leiklistarhátíðin varð þá
sumarstarfsemi leikhússins, í
samræmi við þá stefriu Jeans Vilars
að leikhúsið nálgaðist æ meira
almenning í landinu. Hátíðin efldist
og færði út kvíamar, 1966 bættist
við hátíð ungra leikstjóra og 1968
er öll borgin orðin að einu leikhúsi
yfir hátíðina, leikflokkar streyma
alls staðar að og er svo enn. Síðan
Jean Vilar dó 1971 hefur leiklistin
þó heldur látið undan síga á
hátíðunum, en aukist söngleikir,
kvikmyndir o.s.frv. En þetta er enn
hátíð sem leikhúsfólk sækir mikið
og ættu áhugmenn um leikhús að
stilla ferðir sínar á þessar slóðir á
tíma hátíðarinnar.
Eftir að hafa borðað á litlu
veitingahúsi í gömlu borginni og
dreypt á páfavíninu
Chateauneuf-du-Pape, sem ræktað
er þama skammt frá í Róndalnum,
en þetta er árstíminn þegar nýja
vínið er að koma á markað, höldum
við niður með ánni austanmegin í
Province-héraði. Rón er þama orðið
mikið fljót og breitt, en í
óshólmunum við Miðjarðarhafið er
Camargue-sveitin milli kvísla með
áveituskurðum og hrísgijónarækt.
Þar má sjá á 50 búgörðum svörtu
nautin sem ræktuð eru þar fyrir
nautaötin, sem fara þama fram í
20 bæjum í rómönsku
hringleikahúsunum, og þar sjást á
beit hvítu þekktu
Camargue-hestamir og geta
ferðamenn leigt sér hesta. Þama í
óshólmunum em líka helstu
heimkynni rauðu flamingóanna,
sem setja svip á lónin, en þeir eru
nú orðið víðar á lónunum upp af
ströndinni. Fuglalíf er auðugt og í
Camargue er stórt
náttúmvemdarsvæði. Og þama á
hólmunum milli árkvíslanna er
sérkennilegum þjóðlegum hefðum
viðhaldið.
Kunnuglegt landslag
við Arles
Áður en komið er að bænum
Arles fer landslagið að verða
kunnuglegt, þótt aldrei hafi ég
komið þangað áður. Þama em
lifandi komin af málverkum Van
Goghs sípmstrén sem halla sér í
röðum undan vindinum, og á
ökmnum má sjá leifamar af gulu
sólblómunum hans og merki um
bláu írisblómin, sem skarta m.a. á
málverkinu hans, sem sló öll
sölumet hjá Sothesby í New York
þessa sömu daga, seldist fyrir 110
milljónir dollara. En málverkin hans
lágu óseld meðan málarinn eyddi
þar síðustu ámm ævi sinnar, illa
haldinn á sálinni og málaði þessi
meistaraverk. Þetta er gömul borg
með rómönskum rústum og alls
konar menningarverðmætum.
Þama er til dæmis rómverskur
Hvitu Camargue-hestarair eru
frægir og margir ferðamenn
bregða sér á bak.
greftrunarstaður með steinkistum í
röðum ofanjarðar. Og í Arles er
rómverskt hringleikahús sem tekur
25 þúsund manns í sæti, þar sem
á hveijum sunnudegi á sumrin er
nautaat með sérstöku sniði. Og í
þessu gríðarstóra og vel við haldna
útileikhúsi eru færðar upp óperur.
Á þessum slóðum vekur furðu,
hve Rómveijamir hafa á herferðum
sínum til að sigra heiminn verið
iðnir við að byggja hringleikahús,
og raunar alls konar merkileg
mannvirki sem enn standa. I
borginni Nimes, sem er ein stærsta
iðnaðar- og verslunarborgin í
Longuedoc-héraði, sjáum við annað
og ennþá stærra rómverkst
hringleikahús, þar sem auk
óperuhátíða er efnt til popptónleika
og alveg furðulegt að ekki skuli
hljótast af stórslys í þessum
snarbröttu sætaröðum og pöllum
við óvarða bogagluggana, en ekkert
nema steinninn langt fyrir neðan.
Þar er jafnan efnt ti! mikils
nautaats um hvítasunnuna og
nautin rekin á staðinn eftir
götunum eins og Hemingway lýsir
svo vel í bókum sínum. Þá er mikil
hátíð í bænum með leikjum og
dönsum, m.a. flamengodönsum. Þá
streyma til Nimes allir áhugamenn
um nautaat hvaðanæva að. I Nimes
er líka hið fræga „Ferhyrnda hús“,
sem að einum þriðja er baðhús frá
Rómveijum og er nú safn sem
geymir fomar styttur og listmuni.
Og margt fleira er þar að skoða.
En ekki langt frá er svo þessi frægi
uppbyggði Rómveijavegur eða brú
Pont du Gard.
Hér hefur verið drepið á fátt eitt
af því sem þama er fróðlegt að
skoða og kynnast. En slík skynni
bíða betri tíma — bæði fyrir
blaðamann og lesendur.
TEXTI: ELÍN PÁLMADÓTTIR
RANGE ROVER VOGUE 1984
Til sölu er glæsilegur Range Rover Vogue '84,
sjálfskiptur, centrallæsing, rafmagn í rúðum. Ekinn
50.000 km. Skipti á ódýrari eða skuldabréf.
Mercedes Benz 190E 1985
Til sölu vel með farinn Mercedes Benz 190E 85,
sjálfskiptur, centrallæsing, litað gler, topplúga.
Ekinn 55.000 km.
Upplýsingar í símum 611060 og 673269.
Fyrrum
forsljóri
UNICEF
dæmdur
Brussel, frá Kristófer Má Kristinssyni,
fréttaritara Morgunblaðsins.
LOKIÐ er í Brussel réttarhöldum
yfir 18 sakborningum vegna að-
ildar þeirra að barnavændi. Það
vakti athygli þegar þetta mál
kom upp fyrir réttu ári að það
tengdist, af öllum stofnunum
veraldar, starfsmönnum UNIC-
EF, barnahjálpar Sameinuðu
þjóðanna. Húsvörður stofnunar-
innar hafði útbúið aðstöðu í hús-
næði hennar til að taka ósiðlegar
myndir og jafnvel þjálfa börn til
vændis.
Rannsókn málsins, sem stóð í
marga mánuði, leiddi m.a. til svip-
aðra málaferla bæði í Hollandi og
Bretlandi, en vændishringurinn
náði til beggja þessara landa. Harð-
asta dóma fengu forsprakkamir eða
tíu ára fangelsi, húsvörður UNICEF
var dæmdur í níu ára fangelsi en
yfirmaður hans, Joseph Verbeeck,
fyrrverandi framkvæmdastjóri
bamahjálparinnar í Belgíu, hlaut
tveggja ára skilorðsbundinn fang-
elsisdóm. í dómnum kemur fram
að útilokað er talið að hann hafi
ekki vitað um iðju húsvarðarins
þrátt fyrir staðhæfingar hans um
eigið sakleysi. Af sakbomingunum
vom tvær mæður sýknaðar, annars
vegar vegna greindarskorts og hins
vegar þótti sýnt að um vísvitandi
aðild hefði ekki verið að ræða
BORGARSPÍTALINN
HJ1JKRUIVARFRÆÐI1VGAR OG
HJÚKRUIVARIVEMAR Á 4. V4MS4RI
í vor losna stööur hjúkrunarfræðinga
á lyf lækningadeild A-6.
Á deildinni eru 30 rúm, en henni er skipt í 2 einingar, 14 og 16 rúm.
Deildarstjóri er á hvorri einingu fyrir sig, en nokkur samvinna er á
milli eininga. Á deildinni fer fram hjúkrun sjúklinga með heila- og
taugasjúkdóma, nýrnasjúkdóma, meltingar- og innkirtlasjúkdóma
o.fl.
í samræmi við hugmyndafræði og markmið hjúkrunarþjónustu Borg-
arspítalans byggir hjúkrunin á markvissri upplýsingasöfnun, áætlana-
gerð, framkvæmd og mati.
Vinnuskipulag er í formi hóphjúkrunar.
Sérstök uppbygging varðandi fræðslu og stuðning við starfsfólk á deild-
inni er framundan. Á veturna eru nemendur frá ýmsum skólum á
deildinni og taka hjúkrunarfræðingar þátt í að leiðbeina þeim.
Vinnutími og vaktafyrirkomulag er sveigjanlegt.
Skipulagður aðlögunartími er einstaklingsbundinn.
Ef þú hefur áhuga á að þróa hæfni þína og þekkingu á þessari deild eru
upplýsingar veittar hjá Margréti Björnsdóttur hjúkrunarfram-
kvæmdastjóra í súna 696354 eða á skrifstofu hjúkrunarforstjóra,
starfsmannaþjónustu í síma 696356.