Morgunblaðið - 13.03.1988, Síða 54
54
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. MARZ 1988
Höfn Hornafirði:
Fólk er að vakna til lífsins
KJARASAMNINGAR VSÍ og VMSÍ hafa mætt
harðri andstöðu og mörg verkalýðsfélög hafa
fellt þá. Þegar samningarnir voru undirritaðir
á sinum tíma skrifaði formaður verkalýðsfélags-
ins Jökuls á Höfn í Hornafirði og varaformaður
Alþýðusambands Austurlands, Björn Grétar
Sveinsson, ekki undir samningana. Þeir voru
síðan felldir á Hornafirði með 83 atkvæðum
gegn 3. Homfirðingar voru fyrstir manna til
að afla sér verkfallsheimildar en það var gert
á fjölmennum fundi verkalýðsfélagsins Jökuls
þann 14. janúar. Morgunblaðið heimsótti Höfn
í vikunni og birtast viðtöl og myndir úr þeirri
ferð hér með. Það skal tekið fram, að viðtal, sem
tekið var í ferðinni við Björa Grétar Sveinsson,
formann verkalýðsfélagsins, birtist í Morgun-
blaðinu á föstudaginn.
Hermann Hansson kaupfélagssljóri:
Afkoman í fiskvínnslunm
leyfir ekki hærri laun
Unnið að frystingu í Fiskiðjuveri KASK.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
„ÉG HEF engan heyrt halda þvi
fram að fiskvinnslufólk hafi of
há laun, svo við drögum ekkert i
efa að þörf sé á að hækka laun
fiskverkunarfólks," sagði Her-
mann Hansson kaupfélagsstjóri í
samtali við blaðamann Morgun-
blaðsins. „Hins vegar er það alveg
ljóst að afkoman í fiskvinnslunni
leyfir ekki hærri launagreiðslur
og það var þvi mjög eindregin
krafa frá fiskvinnslunni að ráð-
stafanir yrðu gerðar til að bæta
afkomu fiskvinnslunnar. Þessar
ráðstafanir voru gerðar, þær voru
of litlar og skila of litlum ár-
angri, þær skilja frystinguna enn-
þá eftir i tapi og okkur er mjög
þröngur stakkur búinn."
Er Hermann var inntur eftir stöðu
saltfiskverkunarinnar sagði hann að
menn vonuðust til þess að ekki yrði
tap á þeim rekstri. „Það er ekki sa-
mið sérstaklega við fólk sem vinnur
í saltfiski annars vegar og fólk i
frystingunni hins vegar. Við verðum
að gera kröfur til þess að afkoman
sé jákvæð í öllum greinum og við
höfum í raun ekkert leyfi til þess að
bæta halla á frystingunni upp með
hugsanlegum ábata af saltfiski.
Hann er ekki tryggur, markaðsað-
stæður eru mjög versnandi í salt-
físki."
Aðspurður hvort'hann teldi ný-
gerða kjarasamninga hafa verið eins
háa og mögulegt væri, sagðist Her-
mann frekar telja aðgerðir stjóm-
valda ófullnægjandi. Um fund vinnu-
veitenda og Alþýðusambandsins vildi
Hermann Hansson, kaupfélags-
sfjóri Austur-Skaftfellinga á
Höfn í Horaafirði.
hann sem minnst segja, menn færu
til að semja og það myndi enda með
þvi, fyrr eða síðar.
„Það þarf að ná samkomulagi,
spumingin er, hvaða svigrúm sé til
að gera þessa samninga og hvemig
menn geti nálgst niðurstöðu þannig
að báðir geti vel við unað. Mér fínnst
eðlilegt að þetta mál sé í höndum
sáttasemjara, þegar búið er að gera
samninga og fella þá, er eðlilegt að
leita til hans. Verkfall myndi lama
alla fískvinnslu hér og allir myndu
tapa á því. Ég hef alltaf skilið verk-
fallsrétt sem neyðarrétt og vænti
þess að hann sé notaður þannig. En
þar með er ég ekki að segja að það
verði verkfall."
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Vetrarvertíð í saltfiskvinnslu.
Mynd tekin í Skinney.Á innfeldu
myndinni er Herdís Jóhanns-
dóttir, fiskvinnslukona: „Veit
ekki hvar þetta þjóðfélag væri
statt án fiskverkafólks."
Yonum að sam-
ið verði um starfs-
aldurshækkanir
- segir Herdís Jóhannsdóttír, f iskverkakona
„SAMNINGURINN sem gerður
var í Garðastrætinu er ömurieg-
ur,“ sagði Herdís Jóhannsdóttir,
en hún vinnur i Saltfiskvinnsl-
unni Skinney. „Hér var alger
samstaða um að fella hann. Við
gerum okkur vonir um að þeir
semji um helgina og að við fáum
að minnsta kosti okkar kröfur
um starfsaldurshækkaniri gegn.
Hjá okkur er mun lægri prósenta
á þeim hækkunum en hjá öðrum
hópum.“
„Eins og kaupið er nú er engan
veginn hægt að lifa á dagvinnu-
kaupi en við gerum okkur vonir um
að það verði hægt. Til þess eru
42.000 króna byijunarlaun algjört
lágmark. Hér í saltfískverkuninni
erum við á sérstökum hópbónus sem
gildir þar til samið verður. Ef til
verkfalls kemur fylgjum við hin-
um.“
Herdís sagði ástæðu þess að
samningurinn hefði verið felldur,
vera þá að fiskvinnslufólk sæti allt-
af eftir í samningum. „Ég veit ekki
hvar þessi þjóð væri stödd án físk-
vinnsiufólks. Alls staðar virðast
vera nægir peningar til að kaupa
nýja báta og byggja hús, því hljóta
að vera til peningar að borga okkur
hærra kaup.“
Herdís sagðist ekki gera sér
neina grein fyrir því hvort verkfall
yrði. Enginn hefði efni á verkfalli
en það hefði heldur enginn efni á
að vinna fyrir kaupinu eins og það
væri nú.
Morgunblaðið/Ámi Sæbcrg
Daði Sigurðsson, trúnaðarmaður
starfsfólks fiskiðju KASK.
Bónusinn of stór hluti launanna
- segja fiskvinnslustúlkur hjá KASK
Á KAFFISTOFU Fiskiðjunnar
hittu Morgunblaðsmenn fyrir
Jónínu Jónsdóttur, Öldu Búadótt-
ur, Elísabetu Jóhannesdóttur og
Sif Axelsdóttur. Þær töldu ótrú-
legt að samið yrði og sögðust
tilbúnar í verkfall ef svo færi.
Aðspurðar hvað þær teldu eðli-
lega kauphækkun sögðu þær að
undir 42.000 ætti ekki að vera
til umræðu. „Það þarf einfald-
lega að hækka launin og minnka
vægi bónusins. Hann er alltof
stór hluti launanna eins og er,“
sögðu þær.
Margföld skömm að ný-
gerðum lgarasamningum
- segir Daði Sigurðsson trúnaðarmaður
„ÁSTANDIÐ er eins slæmt og
mögulegt er. Það er margföld
skömm að þessum nýgerðu samn-
ingum,“ sagði Daði Sigurðsson
trúnaðarmaður starfsfólks í
Fiskiðjuveri KASK aðspurður
um stöðu mála í framhaldi ný-
gerðra kjarasamninga. „En við
treystum okkar manni; Birni
Grétari, vel til að halda á málun-
um. Það sýnir mætingin á fund-
inn sem samþykkti verkfalls-
heimildina."
Að sögn Daða er mikill hugur í
mönnum. „Við ætlum okkur minnst
40.000 í byrjunarlaun, lægri laun
ættu ekki að vera til umræðu. Bón-
uskerfið ætti líka að afnema."
Daði taldi engan vafa á því að
menn ættu að fara í verkfall ef
ekki semdist og að það stæði eins
lengi og með þyrfti. „Það er mikill
hugur í mönnum, fólk er vakna til
lífsins og gera sér grein fyrir hversu
slæm kjörin raunverulega eru. Fólk
er að slíta sér út á mikilli vinnu.“
Farandverkafólk heyrir undir
verkalýðsfélagið Jökul hefur þó
ekki atkvæðisrétt. I spjalli við
nokkra félaga í saltfískverkuninni
Skinney kom fram að þeir teldu
launin í þessu ekki mannsæmandi
og vildu kenna um staðgreiðslu-
kerfí skatta. „Það borgar enginn
af lánum á því sem við fáum út-
borgað," sagði Heiðar Ingvarsson.
„Kaupið lítur nógu vel út á launa-
seðlinum en það sem við fáum út-
borgað er allt of lítið.“ Þeir félagar
sögðust vera komnir til Hornafjarð-
ar í uppgrip en það væri borin von.
Er þeir voru spurðir hvað þeir
myndu gera ef til verkfalls kæmi,
sögðu þeir fátt annað að gera en
að koma sér burt. „Ef vinnan stöðv-
ast förum við, því hér er ekkert
fyrir okkur að hafa.“
Morgunblaðið/Ámi Sæbcrg
Farandverkamennirair í Skinnfaxa voru aðallega óánægðir með
matarskattinn, f.v.: Heiðar Ingvason, Halldór Þorsteinsson, Þröstur
Jóhannesson, Boði Stefánsson, Guðjón Benediktsson og Hjalti Stef-
ánsson.
A kaffistofu KASK, f.v.: Jónína Jónsdóttir, Alda Búadóttir, Elísabet
Jóhannesdóttir og Sif Axelsdóttir.