Morgunblaðið - 27.03.1988, Blaðsíða 1
96 SIÐURB
73. tbl. 76. árg.
SUNNUDAGUR 27. MARZ 1988
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Vopnasölumálið:
North og Poin-
dexter saklausir
- segir Reagan Bandaríkjaforseti
Washíngton, Reuter.
RONALD Reagan Bandaríkja-
forseti hefur lýst yfir sakleysi
fyrrum aðstoðarmanna sinna,
sem nú eru fyrir rétti vegna
vopnasölumálsins svokallaða.
Þar með hefur Reagan brotið þá
hefð, að forseti Bandaríkjanna
ræði ekki um sakamál, sem eru
fyrir rétti.
Reagan lýsti þessu yfir á fundi
með námsmönnum, sem voru í
heimsókn í Hvíta húsinu, og átti
þar við Oliver North ofursta og
John Poindexter, fyrrum öryggis-
ráðgjafa. Að sögn lögfræðinga geta
þessi ummæli forsetans dregið dilk
á eftir sér. Einnig er talið, að þau
geti vakið pólitískar deilur eins og
átti sér stað árið 1970, þegar Ric-
hard Nixon, þáverandi forseti, lýsti
Charles Manson sekan um fjölda-
morð áður en Manson var dæmdur
fyrir að myrða leikkonuna Sharon
Tate og fleira fólk.
Fram að þessu hefur Reagan
aðeins sagt um vopnasölumálið, að
hann viti ekki til þess, að nein lög
hafi verið brotin. En á föstudag
gekk hann miklu lengra og lýsti
þá North og Poindexter saklausa.
„Ég verð bara að vona, að þeir
verði sýknaðir, því að ég held ekki,
að þeir haf. gert neitt af sér eða
framið neinn glæp,“ sagði hann og
endurtók enn fremur ummæli, sem
hann viðhafði í viðtali við Time
1986: „Ég held enn, að Ollie North
sé hetja."
Breskur heimskautafari:
Osonlagið heldur í
okkur öllum líf inu
Tókýó, Reuter.
BRESKI heimskautafarinn og
umhverfisverndarmaðurinn Ro-
bert Swan beindi þeim tilmælum
til Japana í gær, að þeir legðu
sitt af mörkum til verndunar
ósonlags jarðar.
Swan, sem var oddviti frægs
suðurskautsleiðangurs árið 1985,
er nú í hnattferð til að berjast fyrir
Persaflóastríðið:
Rannsókn
vegna efna-
vopnaárása
Sameinuðu þjóðunum, Reuter.
TVEIR sérfræðingar, sem
starfa á vegum Sameinuðu
þjóðanna, munu halda til írans
eftir helgina að kröfu stjórn-
valda þar vegna meintra efna-
vopnaárása Iraka, sem sagðar
eru hafa kostað 5.000 manns
lífið.
íranir fullyrtu í síðustu viku
að 5.000 manns hefðu fallið í
efnavopnaárás íraka á bæinn
Halabja. Bærinn tilheyrir írökum
en hersveitir írana hafa náð hon-
um á sitt vald. í Iqolfar árásarinn-
ar fóru stjómvöld í íran fram á
það að Sameinuðu þjóðimar
sendu nefnd sérfræðinga til
landsins en samkvæmt alþjóða-
samþykktum er bannað að beita
efnavopnum á stríðstímum.
Talsmaður Sameinuðu þjóð-
anna skýrði frá því á föstudag
að ákveðið hefði verið að senda
tvo menn til írans og yrði annar
þeirra læknismenntaður. Sendi-
herra írana hjá Sameinuðu þjóð-
unum sagði í gær að mennirnir
kæmu til Irans á morgun en ekki
væri enn ljóst hvort þeim yrði
heimilað að fara til Halabja.
því, að fólk kaupi ekki úðavörur,
sem notast við klórflúorkolefni.
Samkvæmt áliti vísindamanna
stuðlar þetta efni að eyðingu óson-
lagsins.
Swan sagði, að heiminum stafaði
þegar hætta af gatinu, sem komið
væri á ósonlagið yfir Suðurskauts-
landinu. „Ósonlagið heldur í okkur
öllum lífinu,“ sagði hann á fundi
með japönskum fréttamönnum.
Hann varaði við því, að gatið, sem
nú er á stærð við Bandaríkin, gæti
hækkað hitastig og valdið bráðnun
á suðurskautsísnum og þar með
fært afganginn af heiminum í kaf.
Swan ætlar að efna til sex manna
leiðangurs á norðurpólinn til þess
að vekja athygli á baráttu sinni.
Tungl á Eyjafjallajökli
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson.
••
Oryggissveitir halda uppi gæslu í Armeníu:
Stj ómvöld leysa upp bar-
áttunefnd þjóðemissinna
YFIRVÖLD í sovétlýðveldinu Armeníu hafa leyst upp nefnd armen-
skra andófsmanna sem skipulagt hefur baráttu þeirra fyrir þvi að
landbúnaðarhéraðið Nagorno-Karabakh verði afhent Armenum að
nýju. Hundruð sovéskra öryggisvarða halda uppi gæslu í Jerevan,
höfuðborg Armeniu, en boðað hafði verið til mótmæla i gær þar í
borg eftir að ljóst varð að Sovétstjórnin hugðist ekki ganga að kröf-
um Armena. Armenskir andófsmenn sögðu að borgarbúar hygðust
halda sig heima við og sýna samstöðu sína á þann hátt.
Sovésk dagblöð skýrðu frá því í
gær að forsætisnefnd Æðsta ráðs
Armeníu hefði „stöðvað starfsemi
Karabakh-nefndarinnar“ og stað-
festu viðmælendur Reuters-frétta-
stofunnar þær fregnir. Dagblaðið
Izvestia greindi og frá því að arm-
enskir þjóðernissinnar hefðu sjálfir
ákveðið að leysa upp undimefndir,
sem komið hafði verið á fót í verk-
smiðjum í lýðveldinu til að skipu-
leggja baráttuna.
Stjómvöld í Moskvu lýstu yfir
því í síðustu viku að ekki kæmi til
greina að ganga að kröfum Armena
og breyta landamærum sovétlýð-
veldanna Armeníu og Azerbajdzh-
an. Hundruð þúsunda manna söfn-
uðust saman í Jerevan um síðustu
mánaðamót og kröfðust þess að
Nagomo-Karabakh yrði sameinað
Armeníu að nýju en það hefur til-
heyrt Azbajdzönum síðustu 65 árin.
Samhliða tilkynningu Sovét-
stjómarinnar var fjölmennt herlið
sent til Jerevan til að koma í veg
fyrir mótmæli, sem þjóðernissinnar
höfðu boðað til í gær. Heimildar-
menn JZeuíers-fréttastofunnar
sögðu að flórir menn hefðu verið
handteknir og væri einn þeirra
meðlimur Nakomo-Karabakh-
nefndarinnar. Hundmð öryggi-
svarða héldu uppi gæslu á götum
Jerevan en yfírvöld í lýðveldinu
hafa lagt bann við hvers kyns
fjöldafundum og mótmælum í borg-
inni. Á föstudagskvöld komu þekkt-
ir armenskir listamenn fram í sjón-
varpi 'og hvöttu landa sína til að
sýna stillingu. Armenskir andófs-
menn sögðu í gær að íbúarnir hygð-
ust sýna samstöðu sína með því að
halda sig heima þannig að Jerevan
yrði líkust „draugabæ".