Morgunblaðið - 27.03.1988, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. MARZ 1988
59
t
Faðir okkar,
GUNNAR M. MAGNÚSS
rithöfundur,
er iátinn.
Magnús Gunnarsson,
Gunnsteinn Gunnarsson.
t
Eiginmaöur minn,
HALLDÓRJÖRGENSSON,
Akursbraut 17,
Akranesi,
andaðist 25. mars.
Blóm og kransar afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast hins látna
er bent á Krabbameinsfélagiö.
Ragnheiður Guðbjartsdóttir.
t
Móðir okkar og tengdamóðir,
KRISTÍN TEITSDÓTTIR
frá Móum,
lést 12. mars.
Útförin hefur farið fram.
Kristfn Guðmundsdóttir,
Sigriður Ólafsdóttir, Unnur Andrésdóttir,
Guðmundur Guðmundsson, Teitur Guðmundsson,
Rúna Guðmundsdóttir,
Magnús Guömundsson.
t
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
ÁSGEIR VALUR EINARSSON
veggfóörarameistari,
Langholtsvegi 143,
andaðist föstudaginn 25. mars í Landakotsspftala.
Jaröarförin verður auglýst síðar.
Fyrir okkar hönd og annarra aöstandenda,
Sigrfður Beinteinsdóttir,
Beinteinn Asgeirsson, Einar Gunnar Ásgeirsson,
Ólafur Mór Ásgeirsson, Valgeir Ásgeirsson.
t
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
ÁSGEIRÓ. MATTHÍASSON
blikksmíðameistarí,
Hofsvallagötu 22,
veröur jarðsunginn frá Dómkirkjunni mánudaginn 28. mars
kl. 13.30.
Dagmar Ásgeirsdóttir,
Guðfinna Anderson,
Ása Ásgeirsdóttir,
Anna Ásgeirsdóttir,
tengdasynir, barnabörn og barnabarnabörn.
t
Bróðir minn og móöurbróöir,
BIRGIR SIGURÐSSON,
Eirfksgötu 35,
veröur jarðsunginn frá Fossvogskirkju mánudaginn 28. mars kl.
15.00.
Sonja Sigurðardóttir,
Ólafur Valdimars.
t
Ástkær eiginmaður minn,
SVEINN GUÐMUNDSSON
fyrrverandi forstjóri,
verður jarösunginn í Dómkirkjunni þriöjudaginn 29. mars kl. 13.30.
Fyrir hönd barna, tengdabarna og barnabarna.
Anna Erlendsdóttir.
t
Ástkær eiginmaöur minn, faöir okkar, tengdafaöir og afi,
JÓN HJÖRTUR JÓNSSON,
Hrafnistu,
áður Smyrlahrauni 5, Hafnarfirði,
verður jarðsunginn frá Frikirkjunni í Hafnarfirði þriðjudaginn 29.
mars kl. 13.30.
Þeir, sem vildu minnast hans er bent á Frikirkjuna í Hafnarfiröi.
Guðrfður Einarsdóttir,
Esther Jónsdóttir, Gunnar Guðjónsson,
Einar Jónsson, Þóra Valdimarsdóttir,
Þórður R. Jónsson, Ásthildur Eyjólfsdóttir,
Hjördfs Guðbjörnsdóttir, Karí Grönvold,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ásgeir ÓskarMatt-
híasson — minning
Fæddur 9. febrúar 1904
Dáinn 17. mars 1988
Aðfaranótt fímmtudagsins 17.
mars sl. lést hér í borg Ásgeir Óskar
Matthíasson, blikksmíðameistari, til
heimilis á Hofsvallagötu í
Reykjavík.
Ásgeir var fæddur á Akureyri
9. febrúar 1904 og því á áttugasta
og fímmta aldursári þegar hann
féll frá. Hann bjó fyrstu ár ævi
sinnar fyrir norðan en fluttist ungur
til Reykjavíkur til náms og starfa
og bjó þar til dauðadags. Foreldrar
Ásgeirs voru þau Guðfínna Gísla-
dóttir og Matthías Matthíasson, sjó-
maður og skósmiður, bæði af al-
þýðufólki komin.
Ásgeir hóf nám í jámsmíði hjá
Vélsmiðjunni Hamri árið 1922, en
stundaði jafnframt nám í Iðnskólan-
um í Reykjavík á sama tíma. Hann
smíðaði sveinstykki sitt í september
1926 en varð atvinnulaus að loknu
námi og það var ekki fyrr en síðla
vetrar 1927 sem hann hóf störf hjá
Nýju blikksmiðjunni og vann þar
allt til 1953, síðustu sex árin sem
verkstjóri.
Hann varð meistari í blikksmíði
1946.
Frá árinu 1955 hóf hann störf
hjá Blikksmiðjunni Glófaxa og
starfaði þar langt fram á áttræðis-
aldur og raunar féll honum aldrei
verk úr hendi fram til hins síðasta.
Ásgeir var virkur félagi í stéttar-
félagi sínu, sat lengi í stjóm Félags
blikksmiða, þar á meðal formaður,
og fyrir þau störf var hann gerður
að heiðursfélaga og sæmdur gull-
merki félagsins á sínum efri árum.
Ásgeir var kvæntur Þorgerði
Magnúsdóttur frá Sléttu í Mjóafírði
í tæp fímmtíu ár eða allt þar til
Þorgerður lést fyrir þremur árum.
Þau áttu fjórar dætur, Dagmar,
Guðfinnu og tvíburasystumar Ásu
og Önnu. Bamaböm þeirra eru tólf
talsins.
Það fór ekki mikið fyrir Ásgeiri.
Hann var hógvær maður og fremur
fáskiptinn, orðvar og nokkuð dulur.
En á bak við hófsemina bjó heitt
skap og mikið stolt. Hann var sein-
þreyttur til vandræða en skjótur til
velgjörða og hafði yndi af gleðskap
og góðra vina fundi. Á sínum yngri
árum lék Ásgeir á harmóníku á
dansleikjum og það kviknaði jafnan
bros í augum hans, þegar hann ri§-
aði upp þá gömlu daga.
Það var hvorki hlutskipti hans
t
Móðir mín, amma okkar og langamma,
SIGURLAUG JÓNSDÓTTIR,
sem andaöist á Hrafnistu 18. mars sl. verður jarösungin frá Foss-
vogskirkju þriðjudaginn 29. mars kl. 15.00.
Jón Hilmar Jónsson,
Hilmar Jónsson og fjölskylda,
Gunnar R. Jónsson og fjölskylda,
Jón Grétar Jónsson.
t
Þökkum auðsýnda vinsemd og samúö viö andlát og útför
BJARNHEIÐAR SIGURRÍNSDÓTTUR,
Skipholti 32,
veitti þaö okkur styrk og huggun á sorgarstundu.
Páll Sveinsson,
Steinunn Pálsdóttir, Sturia Már Jónsson,
Ásta Ólafsdóttir, Guðni Þórarínn Valdimarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Andvirði þakkarkorta hefur verið gefið í líknarsjóð St. Jósefsspít-
ala, Landakoti.
t
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug
við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður,
afa og langafa,
ÞÓRHALLS LEÓSSONAR
verslunarmanns,
Hvassaleiti 66,
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á deild 3a Hrafnistu fyrir
góöa umönnun.
Steinunn Ásgeirsdóttir,
Lea Krístfn Þórhallsdóttir,
Ásrún Þórhallsdóttir,
Þórhallur Þórhallsson,
Ásgeir Þórhallsson,
Leó Þórhallsson,
barnabörn og
Bjarni Helgason,
JónasJóhannsson,
Theodóra Emilsdóttir,
Jóhanna Árnadóttir,
barnabarnabörn.
LEGSTEINAR
MOSAIK H.F.
Hamarshöfða 4 — Sími 681960
Legstelnar
Framleiðum allar stærðir og gerðir af legsteinum.
Veitum fúslega upplýsingar og ráðgjof
um gerð og val legsteina.
S.HELGASONHF
STEINSMIÐJA
SKSvlMUÆGI 48 SiMl 76677
né löngun að trana sér fram á
mannamótum, enda jafnan öðrum
hnöppum að hneppa við dagleg
störf og þá lífsbaráttu alþýðu-
mannsins, sem átti fyrir stóru heim-
ili að sjá. Má nærri geta að það
hafí ekki alltaf verið dans á rósum
og það setti mark sitt á Ásgeir.
Lundin var hinsvegar alltaf létt og
hann var spaugsamur og glaður
þegar svo bar undir.
Vinnan var honum mikils virði,
enda þekkti hann atvinnuleysið af
eigin raun og það sögðu mér vinnu-
veitendur Ásgeirs að samviskusam-
ari og starfsamari manni hafí þeir
ekki kynnst og er þá ekki getið
þess sem helst prýddi þennan heið^
ursmann að hann var algjör lista- "
maður í fagi sínu. Ef einhvem tím-
ann er hægt að tala um þúsund-
þjalasmið í orðsins fyllstu merkingu
þá var það Ásgeir Matthíasson. Það
lék bókstaflega allt í höndum hans
og þurfti þar ekki blikk til. Fyrir
þessa hæfni sína var Ásgeir annál-
aður meistarasmiður.
Ásgeir var meðal þeirra fyrstu
sem fluttu inn í verkamannabústað-
ina á Melunum. Þar bjó hann f nær
fímmtíu ár og honum þótti vænt
um umhverfi sitt og vesturbæinn*
Þar mátti sjá hann á göngu síðustu
árin, háan en lotinn í herðum, gaml-
an mann, sem bar aldurinn vel.
Hann lifði timanna tvenna en var
alla tíð trúr þeim málstað sem barð-
ist fyrir rétti hins vinnandi manns.
Starfíð og hlutskiptið í lifinu setti
ekki aðeins mark sitt á ytri mann-
inn, heldur og hinn innri, skoðanir
og skilning hans á þjóðfélaginu. Þar
stóð hann fastur fyrir eins og reynd-
ar í öllu _sem hann tók sér fyrir
hendur. Ásgeir Matthíasson var
maður, bæði orða og efnda. Hann
lét verkin tala.
Fyrir hönd vandamanna og af-
komenda er Ásgeiri þökkuð sam-^
fylgdin og minningin um góðan^
mann og vammlaust líf.
Ellert B. Schram
Hann afí Ásgeir er dáinn. Það
er svo skrítið að hugsa til þess að
fyrir fáeinum dögum var hann hér
hjá okkur en nú er hann horfinn.
Hann sagði okkur svo oft frá því
þegar hann var ungur og þeyttist
um á mótorhjólinu sínu með ömmu
aftaná. Kom honum þá bros á vör
enda þótti honum gaman að segja
okkur slíkar sögur svo minnugur
og fróður sem hann var.
Hann hafði alltaf verið mjög dug-
legur og helsuhraustur maður. Ef
eitthvað bilaði héma heima eða
þurfti að lagfæra eitthvað kom afí
um leið gangandi með verkfæra-
töskuna sína og hafði gaman af.
Allt fram á seinustu árin fór hann
daglega í göngutúr. Kom hann þá
jafnan við á leiðinni til okkar á
Stýró til að fá sér kaffibolla eða
kíkja í blöðin, því hann fylgdist
ávallt grannt með öllum fréttum
af viðburðum heimsmála. Hann lét
þó ekkert raska ró sinni og skildi
aldrei þennan asa í okkur unga
fólkinu heldur tók hann lífinu með
jafnaðargeði. Samt hafði hann
gaman af uppátektum okkar og var
stutt í skopskynið hjá honum.
Þó að afí hafí verið orðinn gam-
all þá er söknuðurinn jafn sár, en
við gleðjumst yfír góðum minning-
um um hann og trúum því að hon-
um líði vei og sé nú hjá ömmu sem
dó fyrir nokkrum árum.
Megi Guð vera með afa og ömmu
um alla eilífð.
Höskuldur, Aldís og Arna