Morgunblaðið - 07.05.1988, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 07.05.1988, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. MAÍ 1988 19 deildarstjóri í innflutningsdeild til ársloka 1980 og síðan fram- kvæmdastjóri Lundúnaskrifstofu SÍS. Hann hefði kosið að draga ekkert undan í framburði sínum um gang viðskiptanna, talið þær lögmætar og fylgt fyrirmælum yfirmanna sína um framkvæmd þeirra. Hann hefði hvort eð er átt erfítt með að gera annað, jafnvel þótt hann hefði talið að viðskiptin væru ólögmæt. Hann hefði reynt að vinna fyrirtæki sínu vel og ekki auðgast sjálfur á viðskiptunum, fremur en aðrir ákærðu. Loks benti veijandinn á að Sigurður Ámi hefði átt glæsilegan starfsferil hjá SÍS og mikið væri í húfí fyrir hann að ekki yrðu gerð þau mistök að sak- felia hann í refsimáli þessu og bæri að sýkna hann. SÍS keypti kaffið Öm Clausen hrl., veijandi Gísla Theódórssonar, var síðastur veij- enda til að tala i gær. Hann ræddi meðal annars um meinta launung varðandi hagnað SÍS af viðskiptun- um og benti á, að stjómarformaður SÍS og Kaffibrennslunnar væri einn og sami maðurinn og hann hefði vitað um hagnaðinn og staðið fyrir viðræðum milli fyrirtækjanna um hvora bæri hagnaðurinn. „Vora framin íjársvik? Gegndi SÍS hlut- verki umboðsmanns í viðskiptun- um?“ spurði veijandinn. Hann svar- aði sjálfur neitandi og sagði að sýnt hefði verið fram á að SÍS hefði neyðst til að ganga inn í kaup- in eftir 1979 og borga kaffisend- ingamar í London. Þetta hefði gerst þar sem Kaffibrennslan hafði ekki fjárhagslegt bolmagn til að standa undir slíkum skuldbinding- um. Sakadómur hefði komist að þeirri niðurstöðu að þetta hafí engu breytt um eðli viðskiptanna, en sú niðurstaða væri alröng. Kaffíkaup- in sjálf hafi verið Kaffibrennslunni óviðkomandi. SÍS hafi keypt kaffið og boðið Kaffibrennslunni til kaups á ákveðnu verði, sem síðamefnda fyrirtækið hefði samþykkt. Það hafi ekki verið fyrr en Kaffibrennsl- an var búin að samþykkja víxil á Akureyri sem hún hafi orðið eig- andi kaffisins. Veijandinn lagði áherslu á, að SÍS hefði átt hagnaðinn af viðskipt- unum, en það hefði valdið misskiln- ingi að hann var færður á reikning SIS í London, sem bar heitið „um- boðslaunareikningur". Hugtakið „umboðsviðskipti" hefði ávallt verið notað við rannsókn málsins og allir fallið í þann pytt. Hann fullyrti, að ef rannsókn málsins hefði verið nógu ítarleg hefði aldrei komið til ákæra, enda hefði Kaffíbrennslan ekki verið óánægð með viðskiptin að neinu leyti og ekki kært SIS. Öm sagði, að jafnvel þó svo ólík- lega færi að Hæstiréttur kæmist að þeirri niðurstöðu að um flársvik hefði verið að ræða, þá væri ljóst, að Gísli Theódórsson hefði aðeins framfylgt skipunum yfirmanna sinna. Það hafi ekki getað hvarflað að honum að eitthvað væri athuga- vert við framkvæmdina. í niður- stöðu héraðsdóms væri sagt að Gfsla hefði ekki átt að dyljast að ekki væri um eðlileg viðskipti að ræða. „Átti Gísli að velta fyrir sér hvað SIS gerði við peningana eftir að hann hafði innheimt þá sam- kvæmt fyrirmælum yfirmanna sinna?" spurði veijandinn. Hann sagði að það væri allt of langsótt að ætla að Gfsli hefði getað litið svo á að hann væri þátttakandi í fjársvikum og enginn gæti orðið hlutdeildarmaður án þess að vita að um brot væri að ræða. Loks sagði veijandinn, að málið væri allt byggt á misskilningi og væri eins konar herferð af hálfu opinberra aðila. Ákæravaldið hefði hlaupið á sig og mætti jafnvel ætla að það hefði verið vegna þess að fjölmiðlar hefðu komist í málið á meðan það var enn á rannsóknar- stigi og blásið það upp. Veijandinn ítrekaði kröfur sínar um sýknu og lagði málið f dóm. Nýkomin ítölsk gæða stálvara frá Zaniog Zani. GEGNUM GLERIÐ Morgunblaðið/Theodór Kr. Þórðareon Hluti fulltrúa á aðalfundinum. Stjórn kaupfélagsins situr við háborð- ið fjærst. ATHYGUSVERÐ MYND Á morgun, sunnudaginn 8. maí, kl. 15.00 mun Stöð 2 endursýna í opinni dagskrá myndina „ÍTÆKATÍÐ11. Myndin fjallar um konu, sem deyr af völd- um krabbameins, og kemur inn á málefni eins og aðstöðu sjúklinga til að dveljast heima þar til yfir lýkur og spurninguna um réttinn til að taka sitt eigið líf. Að sýningu lokinni verða umræður um efni myndarinnar. Líknarráð Krabbameinsfélagsins hvetur alla til að sjá þesa mynd. KRABBAMEINSFÉLAGIÐ Kaupfélag Borgfirðinga: Rekstrarhalli nam 32 milljónum króna Stafholti. AÐALFUNDUR Kaupfélags Borgfirðinga var haldinn i Borg- arnesi dagana 4.-5. maí sl. Heildarvelta kaupfélagsins á sfðasta ári varð tæpir 2 miljjarð- ar. Reksturinn var hins vegar erfiður, rekstrarhalli rúmar 32 milljónir eftir afskriftir að upp- hæð rúmlega 46 milljónir króna. Munar þar mestu um mjög auk- inn fjármagnskostnað sem hækk- aði milli ára um 150%. Rekstur hinna ýmsu deilda gekk hins vegar allvel og hagnaður fyrir fjármagnsliði var 36,4 milljónir króna. Auk verslana rekur KB nokkur iðn- og þjónustufyrirtæki, ennfremur mjólkursamlag og slát- urhús. Innlögð mjólk varð alls 9,5 milljónir lítra og minnkaði um 2,2% á árinu. Alls var slátrað 63.337 kindum í sláturhúsi félagsins og einnig þar var um nokkum sam- drátt að ræða. Alls lögðu framleið- endur inn hjá KB fyrir um 555 milljónir króna. Þrátt fyrir erfiðan rekstur kaupfélagsins er staða bænda gagnvart því góð og hafa inneignir þeirra aukist um 20 millj- ónir. Starfsfólk KB var í árslok alls 236 og hafði fækkað um 5 á árinu. En alls komust 669 manns á launa- skrá hjá félaginu á sfðasta ári. Kaupfélagsstjóraskipti verða nú hjá félaginu. ólafur Sverrisson sem verið hefur kaupfélagsstjóri sl. 20 ár lætur nú af störfum en við tekur Þórir Páll Guðjónsson áður kennari í Bifröst. . - Br.G. Þórir PáU Guðjónsson nýráðinn kaupfélagsstjóri. Vöruskiptin við útlönd í janúar: Óhagstæðurjöfnuður um 450 milljónir kr. skýrslueyðublöð vora tekin f notk- un. Á sama tfma hófst tölvuskrán- ing aðflutningsskýrslna hjá Toll- stjóraembættinu í Reylgavík. í framhaldi af tölvuskráningunni tekur Hagstofan nú við upplýsing- um úr aðflutningsskýrslum beint úr tölvuskrám tollstjórans f stað þess að vinna þær eftir afritum af aðflutningsskýrslum. Vöruskiptajöfnuðurinn i jan- úar var óhagstæður um 450 miiyónir kr, sem er minna en í janúar árið áður er hann var óhagstæður um 1.238 milfiónir kr. á sama gengi reiknað. I jan- úarmánuði voru fluttar út vðrur fyrir 2.068 milljónir en inn fyrir 2.518 miiyónir kr. fob. Verðmæti vöraútflutningsins var 5% meira á föstu gengi reiknað en á sama tíma í fyrra. Sjávaraf- urðir vora um 62% alls útflutnings- ins og vora 14% minni að verð- mæti en í janúar 1987. Útflutning- ur á áli var rösklega tvöfalt meiri að verðmæti en í janúar 1987 en útflutningur kísiljáms var fjórð- ungi minni en á sama tfma í fyrra. Útflutningsverðmæti annarrar vöra var 60% meira nú en í janúar 1987. Verðmæti vörainnflutningsins í janúar var 21% minna en á sama tíma í fyrra en samkvæmt upplýs- ingum Hagstofunnar skýrist þessi samdráttur að hluta af töfúm í tollafgreiðslu á fyrstu vikum árs- ins. Lítið fór fyrir innflutningi til stóriðju og olíuinnflutningi svo og innflutningi skipa og flugvéla í janúar. Séu þessir liðir frátaldir reyndist annar innflutningur hafa orðið um 10% minni en í janúar í fyiya á föstu gengi reiknað. í byrjun ársins varð mikil breyt- ing á inn- og útfiutningsskýrslum og meðferð tollyfírvalda á þeim. Ný tollskrá tók gildi og er hún í samræmi við nýtt flokkunarkerfí alþjóðatollasamvinnuráðsins og ný FACIT RITVÉLAR REIKNIVÉLAR PRENTARAR TÖLVUHÚSGÖGN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.