Morgunblaðið - 07.05.1988, Blaðsíða 68

Morgunblaðið - 07.05.1988, Blaðsíða 68
SYKURLAUST WRIGtÉV’S 27711 M I C I 0 l 1 M............................I...R....Æ T 1. J. Svwrt Kristinsson. s8us$ri - Þorisilur Guímundsson. sölum. Þáöriur Halktosson, lögfr- Unnsieinn Bedhrt..sim 12320 LAUGARDAGUR 7. MAÍ 1988 VEM) í LAUSASÖLU 60 KR. Togarar í Vestmannaeyjum: Missa veiði- ferðir vegna langs lönd- unartíma TOGARINN Sindri frá Vest- mannaeyjum kom með full- fermi til Eyja á þriðjudagskvöld eftir fimm daga veiðiferð. Afl- inn var um 150 tonn, mest þorskur. Ekki var lokið við að landa úr togaranum fyrr en í gær og hann fær ekki ís um borð fyrr en eftir helgi og verð- ur þvi hátt í viku í landi. Hluti afla hans fer í gáma til sölu á markaði í Bretlandi, enda vant- ar fólk í frystihúsin og yfir- vinnubann Verkalýðsfélags Vestmannaeyja hefur verið í gildi frá 12. april. Togarar Vestmannaeyinga hafa selt afla sinn á fískmarkaðina frá því um miðjan apríl. Breki hefur tvisvar Iandað á Faxamark- aði, Sindri einu sinni og Eldey einu sinni í Hafnarfírði og einu sinni í Reykjavík, enda hefur afli verið óvenju mikill undanfarið. Togaramir Klakkur og Sindri hafa misst úr eina veiðiferð vegna þess hve langan tíma hefur tekið að landa úr þeim, en venjan var að löndun tæki einn dag. Tveir bátar Vestmannaeyinga lönduðu afla sínum síðast á Dalvík. Áður fór afli þeirra í gáma á markað erlendis. Verkalýðsfélag Vestmannaeyja og verkakvennafélagið Snót fund- uðu með vinnuveitendum hjá ríkis- sáttasemjara í gær. Til nýs fundar hefur verið boðað klukkan 13 í dag, en verkalýðsfélögin héldu fundi í gærkveldi. Brugðið á leik á hestadögum HESTADAGAR eru haldnir i Reiðhöllinni um helgina og meðal annars bregður þríeykið á myndinni á leik á sýningunum. Piltur- inn heitir Kristinn Hákonarson, hvolpurinn Dollý og hesturinn Snati. Fjölmörg önnur atriði eru á hestadögunum, t.d. fimleikar á hestum, hestar eru látnir stökkva yfir nýja bíla og í gær- kvöldi var í fyrsta skipti keppt i knattleik á hestum. Önnur sýn- ingin verður í kvöld og tvær eru á dagskrá á morgun. Forstjóri Hagvirkis: Getum lagt hálend- isveg fyrir brot af áætlun Vegagerðar JÓHANN G. Bergþórsson for- stjóri Hagvirkis segir að fyrir- tækið gæti án stórátaks lokið við malarveg frá Hreysiskvísl 80 kílómetra leið tíl byggða í Eyjafirði fyrir verð 7 vísitölu- húsa eins og hann orðaði það, eða innan við 100 mi\jónir króna. Hann sagði að kostnað- aráætlun Vegagerðarinnar um sama vegakafla, sem hljóðar upp á um það bil 500 miiyónir miðað við bundið slitlag, geri ráð fyrir að notað væri 2,5 sinn- um meira efni en nauðsynlegt væri. Þetta kom fram í erindi sem Jóhann hélt á ráðstefnu Verkfræðingafélags íslands um hálendisvegi framtíðarinnar og áhrif þeirra. Skiptar skoðanir voru meðal ráðstefnugesta um áhrif hálendis- vega á byggðaþróun og hvort, og þá með hvaða markmið í huga, ætti að ráðast í slíka vegagerð en vegaáætlun gerir ekki ráð fyrir Iagningu hálendisvega. Flestir ráð- stefnugesta virtust sammála um að ekki ætti að fóma áætluðum framkvæmdum samkvæmt vega- áætlun fyrir hálendisvegi. Jóhann Bergþórsson sagðist byggja fyrrgreindar áætlanir sínar á vegarkafla sem Hagvirki gerði fyrir Landsvirkjun á kaflanum frá Köldukvísl að Þúfuveri. Hann sagði að sá vegur væri gott dæmi um velheppnaða vegagerð á fjöll- um. Jóhann sagði að ef ákvörðun væri tekin strax um vegagerðina gæti komandi sumar nýst til að velja vegarstæði. Staðarval þyrfti að miða við að vegurinn lægi sem mest við vatnaskil, til að draga úr kostnaði við ræsa- og brúargerð Coldwater Seafood: Söliisamningiir í hættu Á lokastigi samningavið- ræðna Coldwater Seafood og fyrirtækis í Bandaríkjunum í síðustu viku um kaup á sjávar- afurðum, kom hik á bandaríska fyrirtækið vegna mótmælaað- gerða Greenpeace og fleiri aamtaka út af hvalveiðum ís- lendinga. Magnús Gústafsson forstjóri Coldwater segir þó að ekki hafi slitnað upp úr viðræð- unum og verið sé að kynna fyr- irtækinu alla málavexti hvaía- málsins. Greenpeace hóf herferð sína fyrr á þessu ári og beinir henni gegn veitingahúsakeðjum sem kaupa sjávarafurðir af íslensku físksölufyrirtælqunum í Banda- ríkjunum. Mótmælin beinast aðal- lega gegn ijórum fyrirtælqum, Burger King, Wendy’s, Long John Silver’s og Shoney’s. í blaðinu Nations Restaurant News, sem er víðlesið í veitingahúsageiran- um, var frétt um mótmælin 18. apríl síðastliðinn og m.a. haft eft- ir Randy Jones, talsmanni Green- peace, að spjótunum væri einkum beint gegn Burger King þar sem fyrirtækið væri stærsti kaupandi íslenskra fískafurða á Bandaríkja- markaði. Burger King skiptir aðallega við Iceland Seafood, dótturfyrir- tæki Sambandsins, en í samtali við Morgunblaðið sagði Sigurður Markússon, framkvæmdastjóri sjávarafurðadeildar Sambandsins, að hann hefði ekki orðið var við mikil áhrif á viðskipti Iceland Sea- food vegna áróðurs Greenpeace. Hann sagðist þó vera nýkominn frá Bandaríkjunum og sér hefði þá fundist hann heyra meira um hvalamál heldur en oft áður. „Ég tel því að málið sé komið á það stig að við verðum að fylgjast mjög náið með framvindunni frá degi til dags,“ sagði Sigurður Markússon. Magnús Gústafsson fram- kvæmdastjóri Coldwater Seafood, dótturfyrirtækis Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna, sagði við Morgunblaðið £ið viðskiptavinir fyrirtækisins hefðu vissulega látið í ljósi áhyggjur vegna þessarra mótmæla enda væri mönnum allt- af illa við slíkt. „Það gerðist síðan í síðustu viku að á lokastigi samn- ingaviðræðna við fyrirtæki, sem vonandi á eftir að verða stór við- skiptavinur Coldwater í framtíð- inni, kom hik á fyrirtækið vegna þeirra neikvæðu áhrifa sem þetta gæti haft á þeirra viðskipti. Við erum að útskýra fyrir þeim málið og að allar gerðir íslendinga í hvalamálinu séu í samráði við bandarísk stjómvöld en það er greinilega auðvelt að hræða veit- ingahúsamenn núna vegna þess m.a. að salan gengur ekki alltof vel,“ sagði Magnús Gústafsson. og minnka hættu á úrrennsli. Velja þurfí stæðið þannig að nægilegt efni sé til staðar en ekki þurfi að aka því að. Sumarið 1989 þyrfti síðan að ýta upp malarvegi án brúa. Með því að leggja veginn án tafa við brýr og ræsi yrðu aðdrætt- ir ódýrari en ella auk þess sem náttúran ijúfí ekki vegi eftir teikn- ingum, henni sé best treystandi til að velja þá staði sem hún lætur vatn fara í vorleysingum. Veturinn 1989-1990 yrði síðan fylgst með veginum og að fenginni jákvæðri reynslu, unnið að gerð ræsa og brúa. Reynist vegurinn ónothæfur að vetrarlagi, mætti fresta fram- kvæmdum en nota veginn sem sumarveg í stað núverandi slóða. Meðal annarra framsögumanna var Þorleifur Einarsson prófessor, sem taldi hálendisvegi æskilega frá sjónarmiði náttúruvemdar. „Gerð upphleyptra vega á aðalleiðum um hálendið myndi draga mjög úr akstri utan vega og þá um leið úr jarðraski sem víða er því miður enn of algeng sjón,“ sagði Þorleifur meðal annars. „Greiðfærir vegir um hálendið gætu einnig dregið úr mesta álaginu á hinum vinsælu ferðamannastöðum á hálendinu svo sem í Landmannalaugum og Herðubreiðarlindum sem nú liggja undir skemmdum." Þorleifur sagði einnig að í tengslum við vegagerð- ina þyrfti að koma upp þjónustu- miðstöðvum eða tjaldstæðum á láglendi svo sælq'a mætti í hina vinsælu ferðamannastaði í dags- ferðum. vegna áróðursherferðar “ Morgunblaðið/ól. K. Magnússon Krían komin í hólmann Krían er komin í hólmann i Reylqavíkurtjörn og te\ja margir það vera staðfestingu á sumarkomunni. Fyrir nokkrum dögum sást krían fyrst á Suðausturlandi og ljóst er að hún er löngu hætt að láta dagsetninguna 14. maí stjórna ferðum sínum. Þessi mynd var tekin í gær við Tjömina af kríupari á flugi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.