Morgunblaðið - 07.05.1988, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 07.05.1988, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. MAÍ 1988 "Aðalfundur Kaupfélags Eyfirðinga: Fjárfestingar og verklegar framkvæmdir takmarkaðar í ár 50 milljóna króna hagnaður af rekstri síðasta árs HEILDARVELTA í aðalrekstri Kaupfélags Eyfírðinga á árinu 1987 nam rúmum 5,7 miHjörðum króna og jókst um 23%, aukning- in er því yfir verðbólgumörkum, en er misjöfn eftir rekstrarsvið- um. Velta samstarfsfyrirtækj- anna nam á árinu tæpum 1,7 miljjarði króna og jókst um 6% frá fyrra ári. Mestur varð sam- dráttur i sölu og framleiðslu hjá Kaffibrennslu Akureyrar hf., Söltunarfélagi Dalvíkur hf. og lítillega hjá Fóðurvörudeild KEA og KSÞ sf. Aðalfundur KEA hófst í gær í Samkomuhúsinu á Akureyri og lýk- ur honum í dag. í skýrslu stjómar og kaupfélagsstjóra kemur fram að á árinu fjárfesti félagið í varanleg- um rekstrarfjármunum fyrir 68,5 millj. króna. I hlutabréfum fjárfesti félagið fyrir 63,6 millj. kr. og mun- ar þar mest um 40 milljóna króna hlutafjárframlag til Útgerðarfélags KEA hf. vegna kaupa á nýju Snæ- felli og einnig var hlutaféð aukið í Hafnarstræti 87-89 hf., sem byggir -Hótel KEA. Þá yfirtók félagið Akva sf., sem staðsett er í Mjólkursam- laginu, og tók þá við eignum og skuldum, sem hvort um sig var nálægt 30 millj kr. Vörubirgðir fé- lagsins hækkuðu milli áranna um 81,4 millj. sem er innan verðbólgu- marka og hafa því lækkað að magni til. Stofnsjóðir félagsmanna hækk- uðu aðeins lítillega, en innlánsdeild- in jókst um 82,4 millj. kr. og félag- ið fékk ný langtímalán nettó að fjár- hæð 147,2 milljónum. Þar af var skuldabréfasala félagsins 85 millj. kr. Hreint veltufé jókst um 103,4 millj. og veltuflárhlutfall hækkaði úr 1,19 í 1,24. Greiðslustaðan batn- aði því. Útistandandi skuldir hafa vaxið verulega og veldur það mikl- um áhyggjum og getur orsakað tfmabundna greiðsluerfíðleika hjá félaginu sjálfu. Skuldir samtals nema rúmum 2,2 milljörðum króna. í skýrslunni segir að rekstur fé- lagsins hafí verið mjög hagstæður miðað við mjög érfítt rekstrarum- hverfí. Miklar kostnaðarhækkanir innanlands samfara fastgengis- stefnu hefðu rýrt rekstrargrundvöll undirstöðuatvinnuveganna stórlega og afleiðingamar birtust í tap- rekstri fyrirtækja um land allt, sér- staklega á landsbyggðinni. „Það má því segja að rekstrarstaða KEA sé viðunandi miðað við allar aðstæð- ur. Hagnaður fyrir skattalegar ráð- stafanir er 49,7 milljónir kr., en sambærileg tala í árslok 1986 var 8,8 millj. kr. Aukaafskrift vöru- birgða lækkar í samræmi við ákvörðun fjármálaráðuneytisins og framkallar það tekjur í rekstrar- reikningi að fj'árhæð 12,1 millj. Ófrádráttarbær opinber gjöld eru 11,9 milljónir og nettóhagnaður ársins er 49,9 millj., en þá er með- talinn söluhagnaður eigna 18,7 milljónir þannig að án hans hefði nettóhagnaður orðið 31,3 millj. kr.“ Fram kemur í skýrslunni að eigið fé félagsins hefur aukist um 259,7 millj. kr. auk þess sem stofnsjóður félagsmanna hefur hækkað um 5 millj. kr. Eigiðflárhlutfall hefur hinsvegar lækkað nokkuð vegna misvísunar í vísitölum en er þó áfram mjög hátt miðað við íslensk fyrirtæki. Hlutfallið í árslok 1987 var 47,9% en var 49,8% í lok fyrra ársins. „Útistandandi kröfur hafa aukist um 252,3 millj. og veldur slíkt að sjálfsögðu verulegum erfið- leikum og veldur áhyggjum, greiðslustaða þyngist og fram- kvæmdagetan þrengist. í því sam- bandi er rétt að geta þess, að stjóm félagsins hefur rætt fjárfestingar- áætlun fyrir yfírstandandi og næstu ár. Ljóst er að flárfestingarþörfín er mjög mikil, enda um víðfeðman og fjölþættan rekstur að ræða. Aðstæður til ijárfestinga eru hins- vegar mjög óhagstæðar. Útistand- andi skuldir valda erfíðleikum, vaxtakjör í þjóðfélaginu eru mjög slæm, skattur er lagður á erlendar lántökur, en auk þess verða fjárfest- ingar væntanlega hagstæðari þegar virðisaukaskattur hefur verið tek- inn upp, væntanlega á næsta ári. Svo sem nú horfir verða fjárfesting- ar og verklegar framkvæmdir því mjög takmarkaðar í ár og ber öllum starfsdeildum félagsins að taka til- lit til þeirrar meginstefnu og þá bæði að því er varðar nýfram- kvæmdir og viðhald. Skuldir þarf einnig að innheimta af aukinni festu og draga úr útlánum. Þrátt fyrir það, sem að framan segir, má það þó ljóst vera, að fjármagn mun bind- ast, t.d. I tengslum við kaupin á nýja Snæfellinu svo og í endanleg- um framkvæmdum við stækkun Hótel KEA, en vonandi tekst þó að verulegu leyti að mæta þeimþörfum með aðfengnu lánsfé. Kaup Útgerð- arfélags Dalvíkinga hf. á nýjum Björgvin mun hinsvegar ekki kalla á hlutafjárframlög frá eigendum og virðist félagið geta fjármagnað þau kaup sjálft með eðlilegum lántök- um.“ Starfsmannafjöldi í aðalrekstri var á árinu að meðaltali nokkru lægri en á fyrra ári og munar þar 27 störfum þrátt fyrir aukna veltu. Starfsmannafjöldi samstarfsfyrir- tælq'a eykst hinsvegar nokkru meir þannig að meðaltalsflöldi starfs- manna hefur í heildina aukist um átta störf. Heildarlaunagreiðslur í Morgunblaðið/RÞB Valur Arnþórsson kaupfélags- stjóri. aðalrekstri og samstarfsfyrirtækj- um fer í fyrsta sinn yfír einn millj- arð króna og varð samtals 1.066,1 milljarður króna. Aukningin er 38% og er það innan marka hækkunar kauptaxta. Kammerhljómsveitin og Tónlistarfélagið: Ljúka starfsárinu með tónleikum Leikendur í Kertalogi sem Leikklúbbur MA frumsýnir i næstu viku. Morgunbiaðið/RÞB Leikklúbbur MA frumsýnir Kertalog Kammerhljómsveit Akureyrar og T ónlistarf élag Akureyrar ljúka vetrarstarfi sínu með óperutónleikum i íþróttaskemm- Hlíðarfjall: Lyftur opnar um helgina LYFTUR í Hlíðarfjalli verða opn- ar um helgina þó komið sé fram í maí, en undanfarin ár hefur hað verið viðtekin venja að loka lyftum þar 1. mai. Menn þar á bæ hyggjast þó gera á því undantekningu nú þar sem kappnógur snjór er í fjallinu og skíðafæri gott. Ef aðsókn verður góð, verða Skíðastaðir í Hlíðarfjalli opnir um þar næstu helgi einnig og hefur það ekki gerst lengi að kægt sé að skfða f Hlíðarfalli þegar komið er fram í miðjan maí. -i u i-rxf I f r ri *tU;jnlO) f f 11 c •ir# unni á Akureyri sunnudaginn 8. maí kl. 17.00. Á tónleikunum verða fluttir söngvar úr óperunum Carmen eftir Bizet, Faust eftir Gounod, Kátu ekkjunni eftir Lehar, Leðurblökunni eftir Strauss og II Trovatore, La Traviata og Rigoletto eftir Verdi. Einnig verða fluttir óperuforleikir eftir Suppe og Verdi ásamt Sverð- dansinum eftir Katshaturian. Kammerhljómsveitin verður skipuð 45 hljóðfæraleikurum, kenn- urum og nemendum við Tónlistar- skólann á Akureyri, ásamt tólf að- komumönnum. Einsöngvarar á tón- leikunum verða Elín Sigurvinsdóttir sópran, Þuríður Baldursdóttir mezzósópran, Páll Jóhannesson tenór og Michael J. Clarke baritón. Stjómandi verður Roar Kvam. Aðgöngumiðasala verður við inn- ganginn sem hefst einni klukku- stund fyrir tónleika og félagar Tón- listarfélags Akureyrar fá aðgöngu- miða á lægra verði með því að framvísa félagsskírteinum. uSufcntla i>j m:; .Tu/bnoííien iii Leikklúbbur Menntaskólans á Akureyri frumsýnir „Kertalog" eftir Jökul Jakobsson á mánu- Guðmundsson, en ekki Gunnarsson Ranglega var farið með eftimafn eins leikarans í leiklistargagnrýni Bolla Gústavssonar á Fiðlaranum á þakinu sem Leikfélag Akureyrar sýnir um þessar mundir. Einn leik- arinn, Gunnar Rafn Guðmundsson, var sagður Gunnarsson og er beðist velvirðingar á því. Bolli Gústavsson segir í gagnrýni sinni að Gunnar Rafn dragi upp skemmtilega mynd af bláfátækum klæðskera, sem minni helst á karekatúrteikningu eftir meistara Daumier. trlsnsló:!;' ií/ii.i' n 1 dagskvöld í Samkomuhúsinu. Leikstjóri er Erla Ruth Harðar- dóttir, sem jafnframt er leikari hjá Leikfélagi Akureyrar. Aðal- hlutverkin eru i höndum þeirra Þórgnýs Dýrfjörð og Sigríðar Ólafsdóttur. Alls taka þátt í sýningunni um 20 manns, en að sögn Bjargar Bjömsdóttur sem sér um sviðs- muni, er Leikklúbbur MA, einna öflugasta félagið innan menntaskól- ans. Haldið var leiklistamámskeið fyrir félaga í vetur auk þess sem leikklúbburinn sýndi einþáttung fyrir áramót sem bar heitið „Rign- ingardagur". Þá sá leikklúbburinn að vanda um frumsamda skemmti- dagskrá á árshátíð menntskælinga sem ávallt er haldin þann 1. des- ember. (•£ .'i-C' ..rucsbinslöila f sri 6Hiaíi f■ ' íí'i >ríit ir j i311 iF'V)? Björg sagði að Kertalog væri fyrst og fremst tilfínningaríkt leik- rit og hefði leikklúbburinn þar með bmgðið út af hefðinni, sem væri uppsetning léttari verka. í fyrra settu mennskælingar Bubba kóng á svið, sem er hvað frægast fyrir það, að hafa verið leikinn af Davíð Oddssyni borgarstjóra á mennta- skólaárum hans í MR, þá með Herranótt. Árið 1986 settu MA- ingar siðan Peysufatadag eftir Kjartan Ragnarsson á svið. Æfíngar á Kertalogi hafa staðið frá því að prófum lauk í febrúar- byrjun. Fmmsýningin hefst klukk- an 20.30 í Samkomuhúsinu og önn- ur sýning verður á miðvikudags- kvöld á sama tíma. Leikklúbburinn vildi að lokum koma kæm þakk- læti á framfæri til Leikfélags Akur- eyrar fyrir að fá afnot af leikhúsinu. isv8vS ifiiB J-iqiiðil8.f;(SáSv itiíini isiflthl, !!!'»(' f = d: •?<
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.