Morgunblaðið - 07.05.1988, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 07.05.1988, Blaðsíða 29
I Með staðfestingn byggingarleyfis ráðhússins í borgarstjórn hefur húsið lokið ferli sínum í nefndum og ráðum borgarinnar. Framkvæmd- ir standa nú yfir af fullum krafti og að sögn borgarstjóra verður farið að grafa fyrir húsinu eftir nokkra daga. Byggingarleyfi ráðhússins staðfest: Hálffasískt andrúms- loft ríkjandi í borginni - sögðu fulltrúar minnihlutans BYGGINGARLEYFI fyrir ráðhús Beykvíkinga við Tjömina var sam- þykkt á fundi borgarstjórnar á fimmtudagskvöldið. Snarpar umræður urðu um málið og minnihlutafulltrúar notuðu orð eins og „hálffasískt ástand“, „valdníðsla" og „ribbaldaháttur" um framgöngu borgarstjóra og meirihluta borgarstjómar við undirbúning að byggingu hússins. Minnihlutafulltrúar sögðu að áfram yrði allra ráða neytt til þess að stöðva byggingu hússins. Vera meðlima úr samtökunum Tjömin lifí á áheyrendapöllum setti nokkurn svip á fundinn. Forseti borgarstjóra- ar þurfti að hasta á fólkið vegna frammíkalla fyrir borgarstjóra, og undir ræðu hans reis fólkið skyndilega allt úr sætum og söng biblíu- sönginn „Á sandi byggði heimskur maður hús“ á meðan það gekk úr salnum. Tjörnin lifí fjölmennti á áheyrendapalla borgarstjómar. Nokkurt ónæði var af gestunum, einkum er borgarstjóri var f ræðustóli. Meðlimir samtakanna rifjuðu svo upp sunnudagaskólalærdóminn og sungu „Á sandi byggði heimskur maður hús,“ um leið og þeir gengu út undir ræðu borgarstjóra. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson (S), formaður skipulagsnefndar Reykjavíkur, skýrði frá umsögn borgarskipulags um athugasemdir þær, er bárust vegna ráðhússins er aukakynning á því fór fram að ósk félagsmálaráðherra 26. febrúar til 25. mars síðastliðinn. Sagði Vil- hjálmur að sex bréf hefðu borist. Atriði sem þar eru gagnrýnd eru meðal annars að ráðhúsið þrengi um of að fyrirhugaðri nýbyggingu Alþingis, að það sé of lítið, of stórt, hafí ekkert landrými, að það sé stflbrot miðað við önnur hús og ráðhústorg vanti. Einnig er efast um að það sé sannað að Reykjavík- urborg eigi Tjömina, og að heimilt sé að byggja út í vatn. Menn telja líka að ráðhúsið muni auka um- ferðarþunga um of. Þá kemur fram í athugasemdum að illa hafí verið staðið að kynningu á húsinu, mæli- kvarða hafí vantað á fjölda mynda, tölur um stærð bygginarinnar verið illlæsilegar og gestabók kynningar- innar ekki með tölusettum blaðsíð- um. Kynningin vel unnin Vilhjálmur sagði að öllum at- hugasemdum hefði verið svarað á vel rökstuddan hátt, og um þessa þætti hefði raunar þegar verið fja.ll- að ýtarlega. Starfsfólk Borgar- skipulags hefði lagt sig allt fram til þess að gera kynninguna sem 'best úr garði og sýna þar þróun byggingarinnar frá samkeppnistil- lögunni að framlögðum byggingar- nefndarteikningum, sem nú hefðu verið samþykktar. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir (Kvl) átaldi harðlega framgöngu borgarstjóra í ráðhúsmálinu. „Eg býst við þvf að meirihlutinn reikni með því að í kvöld sé rekinn enda- hnúturinn á þetta mál hér í borgar- stjóm," sagði Ingibjörg Sólrún. „Það liggur hins vegar fyrir að byggingarleyfíð verður kært, og um þá kæm þarf meðal annars bygg- ingamefnd að gefa umsögn. Hver afdrif kærunnar verða veit enginn á þessari stundu, en umræðan held- ur greinilega áfram hér í borgar- stjóm. Ég fullvissa borgarfulltrúa um það í andstöðunni við ráðhúsið verða allar þær ieiðir famar sem færar era.“ Ingibjörg kallaði aukakynning- una á ráðhúsinu sýndarkynningu og sagði að það hefði raunar verið ljóst áður en hún hófst að athuga- semdir borgarbúa yrðu að engu hafðar. Svör embættismanna borg- arinnar við þeim lægju nú fyrir, og hún furðaði sig á því hversu lítil- þægir og metnaðarlausir þeir væra, í mörgum tilvikum væri sneitt hjá því sem spurt væri um og farið út í aðra sálma. Ingibjörg Sólrún lagði síðan fram bókun frá fulltrúum Kvennalista, Framsóknarflokks og Alþýðu- bandálags, þar sem staðsetning ráðhússins er talin munu raska heildarsvip byggðarinnar við Tjöm- ina og húsið vera alltof dýrt. Einn- ig era látnar í ljós efasemdir um að veiting byggingarleyfís sé f sam- ræmi við skipulagslög, þar sem nýtingarhlutfall lóðarinnar sé miklu meira en gert sé ráð fyrir í aðal- skipulagi. Einnig hafi húsið stækk- að mikið í hönnun. Hálffasískt andrúmsloft Kristfn Á. Ólafsdóttir (Abl) tók í sama streng. „Fólk tárast jafnvel þegar það á leið um hjarta borgar- innar, ekki aðeins af þessum ljót- leika, sem blasir við því, heldur einnig af vanmegnugri reiði," sagði Kristín. Kristín kallaði framgöngu meirihlutans í þessu máli ribbalda- hátt, að gengið væri á skjön við landslög og ekki tekið mark á viija borgarbúa. Borgarstarfsmenn hefðu ekki þorað að skrifa undir mótmæli gegn ráðhúsinu vegna ótta um að verða látnir gjalda þess í starfí sínu. „Það verður til pólitískt ástand, sem margir kalla hálf- fasískt," sagði Kristín. „Að mínu mati er það réttnefni á því andrúms- lofti sem ríkir í Reykjavík undir stjóm Davíðs Oddssonar og meiri- hlutans." Sigrún Magnúsdóttir (F) sagð- ist ekki vera mótfallin ráðhúsinu sem slíku og hefði hún samþykkt byggingu þess á núverandi stað: Hins vegar teldi hún að þurft hefði betri tíma til undirbúnings og að hroðvirknislega hefði verið að hon- um staðið af hálfu meirihlutans. Framkoma borgarstjóra í málinu væri sterkasta vopn andstæðinga ráðhússins. Sigrún lagði fram bók- un þar sem hún rekur atriði þau, er hún telji aðfínnsluverð. Inn- kaupastofnun Reykjavíkurborgar hafi verið sniðgengin varðandi út- boð og innkaup, ekki hafí verið tek- ið lægsta tilboði í stálþil, útboðs- gögn hafi verið ófullkomin, kynning á ráðhúsreit verið ófullnægjandi og lífríki Ijamarinnar ekki rannsakað nægilega. Þá mótmælir Sigrún úr- ræðaleysi verkefnastjómar ráð- hússins varðandi bflastæðavanda Suður-Kvosar, eftir að bflastæðum í ráðhúskjallaranum hafi verið fækkað úr 330 í 130. Minnihlutinn talar gegn betri vitund Davíð Oddsson borgarstjóri sagði að þegar því væri haldið fram að borgaryfírvöld hefðu haldið á þessu máli á annan og lakari hátt en á öðram skipulagsmálum, töluðu menn gegn betri vitund. Áform um byggingu ráðhúss við Tjömina hefðu fyrst verið kynnt árið 1984, og húsið hafí verið komið inn á skipulagsteikningar í september 1985 en borgarfulltrúar minnihlut- ans ættu kannski erfitt við sína eigin samvisku að hafa ekki gert athugasemdir við málið fyrir síðustu kosningar og gert það að kosningamáli. „Þessir borgarfull- trúar hafa skeytingarleysi sínu ekki til afsökunar að þeir hafí ekki vitað um málið," sagði borgarstjóri. Davíð sagði málflutning ráð- hússandstæðinga með eindæmum og að þar ræki hver þversögnin aðra. Fyrst hefði nánast eingöngu verið rætt um lífríki Tjamarinnar, en þegar Náttúravemdarráð gerði ekki athugasemdir af þeim sökum, hefði sú umræða fallið um sjálfa sig. Þá hefðu menn haldið því fram að ráðhúsið væri orðið stærra en ráðhúsbyggingin við Iðnó, sem hætt hefði verið við á sjöunda ára- tugnum. Sannleikurinn væri sá að gamla ráðhúsið hefði átt að verða 53.000 rúmmmetrar en væntanlegt ráðhús yrði 24.000. Næst hefði verið kvartað yfír því að þrír bfla- kjallarar myndu stórauka umferð- ina niður f Kvosina, en þegar af spamaðar- og öryggisástæðum hefði verið hætt við þá, hefðu menn skyndilega farið að fjargviðrast yfír því að það væra ekki nógu mörg bílastæði í húsinu. Næst hefðu menn haldið því fram að Tjömin myndi tæmast, en skömmu síðar héldi sama fólk þvl fram að hún myndi fyllast. „Engu líkara var en að helsti gallinn við þessa byggingu og þetta skipulag væri sá að ekki væri reiknað með hættu á heims- endi. Miðbærinn átti allur að fara á kaf, en þetta hugsuðu menn auð- vitað ekki út í fyrr en ráðhúsið kom til sögunnar." sagði borgarstjóri. „Ég var varla búinn að kyngja því fyrr en ég las að mest hætta væri á að ráðhúsið færi á flot.“ Davíð sagði að staðhæfíngar um að ekkert mark væri tekið á undir- skriftum borgarbúa gegn ráðhúsinu kæmu úr hörðustu átt. „Þetta er eina stóra undirskriftasöfnunin á mínum borgarstjóraferli, en á með- an Sigurjón Pétursson og félagar réðu hér ríkjum vora þær að minnsta kosti fjórar, um Sogamýr- ina, Seðlabankann, Útitaflið og Fæðingarheimilið. Þetta vora milli 5000 og 9000 nöfn í hverri söfnun og ætíð vora fyrstu viðbrögð Sigur- jóns Péturssonar þau að á þessu yrði ekki tekið mark. Meirihlutinn stóð með honum í þessu utan einu sinni þegar mér tókst að fá einn fulltrúa minnihlutans til þess að styðja það að Fæðingarheimilið yrði ekki lagt niður,“ sagði borgarstjóri. Össur Skarphéðinsson (Abl) hélt langa ræðu um flóðahættu í Reykjavik og hugsanlega hækkun sjávarmáls með breytingum á veð- urfari. Niðurstaða Óssurar var sú að Kvosinni allri væri veruleg hætta búin af þessum sökum, en ekki væri ástæða til þess að hætta við byggingu annarra húsa en ráð- hússins í Kvosarskipulaginu. Einka- aðilar yrðu sjálfír að bera ábyrgð á húsum, sem þeir byggðu fyrir eigið fé. Ráðhúsið væri hins vegar byggt fyrir fé borgarbúa og ekki hættandi á að það sykki í sæ. Að umræðum loknum var gengið til atkvæða um staðfestingu bygg- ingarleyfis fyrir ráðhúsið. Fulltrúar sjálfstæðismanna, niu að tölu, greiddu staðfestingunni atkvæði en allir sex fulltrúar minnihlutaflokk- anna vora á móti.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.