Morgunblaðið - 07.05.1988, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. MAÍ 1988
23
Fróðárundur á Alþrngt
eftirÁsu Ketilsdóttur
í Eyrbyggju er getið um það fyr-
irbæri sem nefndist Fróðárundur.
Þar var magnaðastur drauga sels-
haus er kom upp úr gólfinu og
hafði þá náttúru að því meir sem
reynt var að lemja hann niður þeim
mun meira hækkaði hann og kom
ofar. Var trú manna að ef hann
brytist upp á gólfið þá glötuðust
þeir heimamenn sem eftir lifðu og
voru þó ærin áföll orðin þar á bæ.
Þvf kemur mér þessi mergjaða
saga í hug að nú hefur ófrýnilegt
selssmetti skotið upp kollinum á þvf
háa Alþingi f lfki bjórfrumvarpsins
enn einu sinni. Hingað til hefur
tekist að lemja það niður en nú er
svo að sjá að sveinninn Kjartan sé
heillum horfinn og óvætturinn
bijótist upp öllum landslýð til bölv-
unar, þó fégráðugir umboðsmenn,
blindaðir af giýju gróðans, hrósi
happi um stundarsakir.
EÍkki gátu stuðningsmenn frum-
varpsins borið fyrir sig að þeim
væri málið lftt kunnugt. Allir ábyrg-
ustu menn f læknastétt með land-
lækni og prófessora Háskólans f
„ Að maður í stöðu heil-
brigðisráðherra leggist
svo lágt að setja sitt
atkvæði á vogarskál-
arnar á þennan hátt er
svo furðulegt ábyrgð-
arleysi að helst gæti
manni dottið í hug að
þeir sem mestra hags-
muna eiga að gæta fjár-
hagsiega hafi beitt
manninn pólitískum
þrýstingi.“
broddi fyUdngar — en aukin áfeng-
isneysla á eftir að koma við þá —
færðu fram rök sfn á móti bjórnum.
Kvenfélagasambönd landsins
ítrekuðu áskoranir sínar gegn
ósómanum svo ekki sé minnst á
bindindisféiög en á þau ifta bjór-
menn nánast sem landráðalýð.
Mér dettur ekki f hug að allir sem
hafa meira en meðal gripsvit geri
sér ekki grein fyrir því að bjórinn
hlýtur að bætast við og örva áfeng-
isneyslu en dregur ekki úr. Hins
vegar eru svo margir andans bjálfar
að þeir óttast þá sem veina í dag-
blöðum um skert frelsi ef þeir fá
ekki að lepja bjórinn í friði. Frelsi
er dýrmæt gjöf en hömluleysi verð-
ur fyrr eða síðar að voða í höndum
óvita. Af því liði, sem studdi bjórinn
á Alþingi, fannst mér óskiljanlegust
afstaða Guðmundar Bjamasonar,
„heilbrigðisráðherra". Orðalag hans
„Bjórinn er neysluvara" er svo
furðuleg að engu tali tekur. Er
neysluvara allt sem menn innbyrða
f einhverju formi? Eru þá t.d. eitur-
lyf tekin inn sem pillur og sprautur
neysluvara?
Það væri fróðlegt að heyra skil-
greiningu á því.
Ráðherrann talaði lfka um for-
vamar- og fræðslustarf í áfengis-
málum sem vænlegri kost en bann
við bjór. Þó er eldd að sjá að öll
sú fræðsla sem hann og skoðana-
bræður hans á Alþingi hafa fengið
frá þeim sem gerst þekkja málið
hafi borið mikinn árangur. Að mað-
ur f stöðu heilbrigðisráðherra legg-
ist svo lágt að setja sitt atkvæði á
vogarskálamar á þennan hátt er
svo furðulegt ábyrgðarieysi að helst
gæti manni dottið f hug að þeir sem
mestra hagsmuna eiga að gæta
fjárhagslega hafi beitt manninn
pólitfskum þrýstingi.
Hvemig í ósköpunum er hægt
að líta fram hjá öllu því böli er
áfengi og vfmugjafar valda? Sund-
urtætt heimili, ofbeldi á konum og
vamarlausum bömum, slys og alls
kyns hremmingan Eiga íslendingar
ekki nóg af þessu þó ekki sé enn
bætt í árstrauminn hömlulausu
bjórsulli? Byrja ekki bömin nógu
snemma þó bjórkassinn verði ekki
f fsskápnum? Eru ekki afföllin á
vinnustöðum og skólum vegna
timburmanna og eftirkasta helgar-
fyllerfanna yfrið nóg þó því sé ekki
viðhaldið með bjórdrykkju? Er til
sú fjölskylda hér á landi að hún
þekki ekki einhvem sér meira eða
minna nákominn sem hefur látið
glepjast af Bakkusi og goldið það
dýni verði?
Og ég spyr Hvar voru hugir
þeirra alþingismanna er greiddu
bjórfrumvarpinu atkvæði sitt? Sáu
þeir aðeins bjórinn glóa f giösum
sfnum en litu fram hjá öllum þeim
tárum er úthellt hefur verið vegna
þeirrar óhamingju sem vfmuefnin
hafa valdið og nágrannaþjóðir okk-
ar viðurkenna að bjórinn eigi sinn
hlut f? Auðvitað er deginum ljósari
sá tvískinnungsháttur og yfirdreps-
skapur stjómvalda að veita þeim
sem fara inn f landið bjórfrelsi. En
vitaskuld er það með ráðum gert
Best er að auka rennsiið smátt og
smátt, slæva dómgreind fólks og
þá er aðeins eftir að taka tappann
úr og setja allt á flot og gullið —
eða blóðpeningar — giamrar í vös-
um áfengissala og umboðsmanna.
Er íslendingum fyrirmunað að
læra af reynsiunni?
Hvaða máli skiptir álit útlendinga
á bjóriausu landi? Það eru ugglaust
Ifka til menn í útlöndum sem skilja
ekki f þrjósku svona fámenns hóps
að stritast við að halda hér uppi
sjálfstæðu rfki. Að endingu vil ég
þakka þingmönnum allra flokka er
hafa sýnt þann manndóm að greiða
atkvæði móti bjór og vona að áfeng-
islöggjöfin verði tekin tál gagn-
gerðrar umQöllunar og þau sjónar-
mið látin ráða sem taka mið af
velferð þegnanna, andlegri og
Ifkamlegri, en hirðmönnum Bakkus-
ar og Mammons verði hnmdið af
stalli.
HSfundur er húsfreyja i Lauga-
landi í StjaUfannardal ÍNorður-
ísafjarðarsýahi.
Er meðaltalskonan
óhæfur starfskraftur?
eftirÁstuM.
Ásmundsdóttur
í tilefni af ummælum Aðalsteins
Jónssonar f Morgunblaðinu 4. maí
varðandi grein mfna í sama blaði
3. maí 1988, Iangar mig að skýra
viss atriði.
Aðalsteinn lætur f það skína að
ég hafi ekki haft neinn áhuga á
starfi þvf sem hér um ræðir og
hafi eingöngu verið að sækjast
eftir sumarstarfi. Ekkert slfkt kom
fram f upphafí samtals okkar og
er kjami málsins sá að mér var
aldrei gefið tækifæri, eingöngu á
þeim forendum að ég er kona.
Hann spurði aldrei hvort ég ætlaði
að sækja um sumarvinnu enda
vorum við að ræða þetta margum-
talaða starf efnafræðings við
málningardeildina, sem hann segir
að sé ekki á valdi kvenmanns.
Aðalsteinn neitar að fyrirtækið
fylgi vissri stefnu f mannaráðning-
um. Viðhorf hans eru svo greinileg
farin á morgun, sunnudaginn 8.
mai. Brottför er frá Grófartorgi
(bflastæðinu milli Vesturgötu 2
og 4).
Frá Grófartorgi verður gengið um
Aðalstræti og meðfram 'Ijöminni
og gegnum Hljómskálagarðinn að
BSL Við BSÍ, bensfnsölu, er hægt
að slást f hópinn kl. 13.45. Áfram
er haidið um skógargötu f öskjuhlfð
og meðfram Fossvogi f Skógræktar-
stöðina Fossvogi. Þar er hægt að
koma f gönguna kl. 15.15 og halda
inn Fossvogsdalinn að Elliðaárstöð
þar sem göngunni lýkur kl. 17.30.
Þaðan verða rútuferðir til baka að
BSÍ og Grófartorgi. Allir em vel-
komnir að vera með og þátttöku-
gjald er ekkert. Gönguferðin er lqör-
in til að kynnast náttúmlegri göngu-
leið innan höfuðborgarinnar sem
eflaust margir hafa ekki gert sér
grein fyrir að væri til. Sérfróðir
menn koma f gönguna og fræða
m.a. um fuglalff á Ijöminni, jarð-
fræði öskjuhlíðar og Fossvogs o.fl.
og koma vel fram í grein minni
og einnig f svörum hans f blaðinu
daginn eftir, að óskiljanlegt er að
hann skuli reyna að breiða yfir
þetta. Hann segir f Morgunblaðinu
4. maí: „Þó svo að einstaka kona
hafi unnið á þessum vettvangi og
þær geti spjarað sig ágætlega þá
er það ekki hin algilda regla. Mað-
ur verður að reikna með meðaltal-
inu.“ Sem sagt: á heildina litið
hafa konur staðið sig verr í starfi
en karimenn. (Ég geri ráð fyrir
að Aðalsteinn sé hér að tala um
efnafræðinga hjá málningarfyrir-
tækjum.) Er þetta ekki hæpin full-
yrðing?
Sú staðreynd að færri konur
hafa komið nálægt vinnu við máln-
ingu en karlmenn sesgir nákvæm-
lega ekkert um það hvort kven-
efnafræðingur sé vanhæfari en
karlefnafræðingur til starfa við
málningarverksmiðju. Það sér
hvert mannsbam hversu fáránleg
rök þetta eru. Getur ekki ein
ástæðan fyrir þvf hve fáar konur
hafa unnið á þessum vettvangi
ræktarstöðmm Fossvogi, þar sem
lagið verður tekið við harmóniku-
og gftarieik.
Auk þessarar göngu verða tvær
aðrar ferðir um þessa helgi: Á laug-
ardag er fugla- og náttúruskoðunar-
ferð á Suðumes. Brottför er kl.
10.30 frá BSÍ, bensfnsölu. Farið
verður á Garðskaga, um Sandgerði
og Fuglavík og einnig komið við á
Bessastaðanesi og f Náttúrufræði-
stofu Kópavogs. Þátttakendum er
ráðlagt að hafa meðferðis sjónauka.
Á sunnudaginn verður 4. ferð í
ferðasyrpu Útivistar, „Fjallahring-
urinn". Gengið verður á Akrafjall
(643 m.y.s.). Farið verður með
Akraborg upp á Akranes og með
rútu þaðan að fjallinu. Brottför er
frá Grófarbryggju kl. 10.00.
Á miðvikudagskvöld 11. maí
verður farinn fyrsti áfangi af Qórum
um þjóðleiðina til Þingvalla. Gengið
er frá Árbæ að Langavatni. Brottför
er kl. 20.00. Þessa ferð átti að fara
á miðvikudaginn var, en hún féll
niður vegna óhagstæðs veðurs.
(Frtttatilkynning)
Ásta M. Ásmundsdóttir
verið sú, að þegar konur hættta
sér inn á viss svið í atvinnulffinu,
rekast þær á vegg þar sem fyrir
em menn eins og Áðalsteinn, en
ekki vegna þess að þær séu van-
hæfari eða hafa ekki sama innsæi
f hlutina.
Aðalsteinn segir að málið hefði
horft allt öðm vísi við ef um starf
f snyrtivömdeildinni hefði verið að
ræða. Varla yrði konan síður ófrísk
eða frá vinnu af öðmm sökum
þótt hún ynni í snyrtivömdeildinni
frekar en f málningardeildinni. Það
sem hann er hér að segja er að
kona geti ekki valdið þessu starfí
sem þó er ekki líkamlega erfítt,
en ég spurði séretaklega að því.
Að liggja í gólfum og leggja gólf-
efni fullyrði ég að sé allt eins á
færi kvenmanna og karlmanna.
Auk þess sem ég leyfi mér að ef-
ast um þetta teljist stór hluti af
starfi viðkomandi efnafræðings.
Það er sorglegt til eþss að vita
að svona viðhorf eins og berlega
kom í ljós í þessu máli skuli enn
vera við lýði f þessu þjóðfélagi. Það
er ekki ætlun mfn að gera Aðal-
stein að einhverjum blóraböggli en
viðhorf hans em augljós hvort sem
þau endurepegla stefnu eftiaverk-
smiðjunnar Sjafnar eða fyritækja
almennt hér á landi varðandi
mannráðningar.
Höfundur verður brautakrið sem
efaafræðingur fri HAskóla ís-
laudsívor.
Reykjavíkurganga
Utivistar á morgun
ÁRLEG Reykj avíkurganga Aðaláningarstaður verður f Skóg-
ferðafélagsins Útívistar verður
Símar35408og83033
ÚTHVERFI
Síðumúli o.fl.
Viðjugerði
AUSTURBÆR
Laugavegur 101-171
Skúiagata
KéOPAVOGUR
Hamraborq