Morgunblaðið - 07.05.1988, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 07.05.1988, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. MAÍ 1988 31 Atlantshaf sbandalagið: Hljóðlaust skip hlerar kafbátana La Spezia. Reuter. Atlantshafsbandalagið tók í gær formleg-a i notkun hafrann- sóknaskipið Alliance en hernað- arsérfræðingar segja, að aldrei fyrr hafi jafn hljóðlátt skip siglt nm saltan mar. Skipinu, sem er 3.200 tonn, var hleypt af stokkunum í La Spezia í Ítalíu í júlí árið 1986 og hefur síðan vérið unnið að því að fullbúa það. Kostaði smíðin nærri hálfan annan milljarð ísl. kr. en Alliance er fyrsta skipið í eigu sjálfs NATO. Á næstu vikum verður skipið reynt undan Bahama-eyjum enn starfs- vettvangur þess^ verður Norður- Atlantshaf, við ísland, Noreg og Bretlandseyjar. Með nýrri tækni er næstum komið í veg fyrir, að nokkurt hljóð berist frá skipinu, og felst hún meðal annars í því að einangra sérstaklega allar vélar og önnur tæki frá skipsskrokknum. Eru von- ir bundnar við, að skipið komi að góðu gagni við að fýlgjast með kafbátsferðum Sovétmanna f norð- urhöfum. 28 maxms farast í sjó- slysi við Filippseyjar Manila. Reuter. TUTTUGU og átta manns að minnsta kosti fórust þegar flutn- ingabátur sökk við Filippseyjar í fyrradag og er óttast um af- drif 20 annarra. Leitarflokkar fundu í gær lík 13 manna og höfðu þá fundist 28 alls. Sagði yfírmaður strandgæslunnar í Leyte-héraði, sem er í miðjum eyja- klasanum, að enn væri 20 saknað en 122 komust lífs af úr slysinu. Báturinn, sem var í vöruflutning- um milli eyja og var aðeins 20 tonn, var ekki gerður til mannflutninga en þegar hann var að leggja frá landi í sína síðustu för þyrptist mikill fjöldi um borð. Litlu eftir brottför rakst báturinn á rekavið- ardrumb og sökk á skömmum tíma. Reuter Innrásarher í miðborg Stokkhólms Tæplega 3.000 sænskir hermenn tóku þátt í heræfíngum í Stokkhólmi í gær til að æfa vamir borgar- innar á átakatímum. Æfingamar stóðu yfír í þijár klukkustundir og vom hinar viðamestu sem fram hafa farið í höfuðborginni. Hluti herliðsins brá sér í hlutverk innrásarliðs en æfíngamar miðuðu að því að veija um 50 hemaðarlega mikilvæga staði í Stokkhólmi. Myndin var tekin í miðborginni en vegfar- endur ráku margir hveijir upp stór augu er skriðdrekar og hermenn, gráir fyrir jámum, birtust á götum borgarinnar. Chirac segist hafa sýnt hver sitii að völdum París. Reuter. Stjóramálaskýrendur vestan hafs og austan voru sammála um það í gær að ímynd Jacques Chirac, forsætisráðherra Frakk- lands, hefði batnað eftir að hon- um tókst að tryggja frelsi þriggja franskra gisla i Lfbanon og 23ja í Nýju Kaledóniu á miðvikudag og fimmtudag. Af þessum sökum er hann talinn hafa unnið á í keppninni við Francois Mitter- rand, forseta, um forsetaembæt- tið, sem lýkur á sunnudag. Fróð- ir menn tejja þó ólíklegt að þess- ir síðustu atburðir dugi Chirac til sigurs, þótt franska þjóðin fagni framgöngu hans í gísladeil- unum. Bandariska blaðið New York Times sagði f gær f rit- stjómargrein að Chirac hefði unnið pólitískan stórsigur með frelsun gfslanna en svo virtist sem hann hefði keypt hann dýru verði. Blaðið sagði að Chirac hefði snú- ið rækilega á mótframbjóðanda sinn en miklu hefði verið fómað. Samn- ingar hans við írani hefðu rofíð skarð í þá samstöðu, sem ríki hefðu haft með sér í baráttunni gegn hryðjuverkamönnum og gætu hugs- anlega orðið hvati til frekari mannr- ána. Mannræningjar væru þar með komnir í þá aðstöðu að geta hlutast til um kosningar í vestrænum ríkjum. „Það er þó enn alvarlegra að Frakkar munu, að því er sagt er, sleppa hiyðjuverkamanni, sem fangelsaður var árið 1980 fyrir morðtilræði við Shahpur Bakhtiar, fyrrum forsætisráðherra írans," sagði í leiðara New York Times. Franska stjómin ítrekaði f gær að ekki hefði verið borgað neitt lausn- argjald fyrir gíslana eða látið undan kröfum ræningjanna að öðm leyti. Háttsettur vestur-þýzkur embættis- maður sagði í Bonn að Jean-Bem- ard Raimond, utanríkisráðherra Reuter Jacques Chirac, forsætisráð- herra Frakklands, heldur á knetti, sem stuðmngsmenn hans gáfu honum á kosningafundi í gær, lokadegi kosningabarát- tunnar fyrir seinni umferð frönsku forsetakosninganna á morgun. Frakka, hefði skýrt sendiherrum evrópskra ríkja frá því að Frakkar hefðu einungis greitt írönum hluta gamals láns í stað gíslana. Raimond hefði einnig harðneitað á fundi með sendiherrunum að Frakkar hefðu lofað írönum vopnum. Bilið minnkar Samkvæmt lögum er bannað að birta skoðanakannanir í Frakklandi viku fyrir kosningar. í könnun, sem birt var um síðustu helgi, var Mit- terrand spáð 10 prósentustiga meiri atkvæðaQölda en Chirac, en stjóm- málaskýrendur telja að bilið hafí minnkað f vikunni. í gær vitnaði blaðið Tribune de l’Expansion hins vegar til leynilegra skoðanakannanna, sem sýndu að bilið væri komið niður í fjögur pró- sentustig. Þá sögðu menn, sem vinna að skoðanakönnunum að Chirac hefði ótvírætt dregið á Mit- terrand síðustu tvo daga. Parísar- blaðið Liberation spáði því hins veg- ar að Chirac hefði litlu bætt við sig. Mitterrand sagðist samgleðjast þjóðinni er frönsku sendifulltrúamir Marcel Carton og Marcel Fontaine og blaðamaðurinn Jean-Paul Kauff- mann komu til Parísar f fyrradag eftir þriggja ára fangavist hjá mannræningjum í Líbanon. Mitterrand ávítaði Chirac hins vegar harðlega fyrir að senda vfkingasveit á aðskilnaðarsinna kanaka, sem héldu 23 frönskum gíslum í heili á Nýju Kaledóníu. Nítján kanakar féllu og tveir liðs- menn víkingasveitanna. „Ég er harma þessa óþörfu blóðsúthell- ingu. Ég hefði fremur kosið samn- inga- og sáttaleiðir," sagði forset- inn. Chirac að búa í haginn? Chirac sagðist í gær hafa fært mönnum heim sannin um það, hver völdin hefði í Frakklandi. Sagðist hann stoltur af þvf að hafa tiyggt frelsi gíslanna og að úrslit kosning- anna á sunnudag myndu engu breyta þar um. Stjómmálaskýrendur sögðu að hugsanlega hefðu hinir mörgu pólitísku sigrar Chiracs síðustu daga komið of seint til að ráða úr- slitum á morgun. Þeir sögðu að hann hefði hins vegar búið vel í haginn fyrir næstu forsetakosning- ar ef Mitterrand sigrar á morgun. Júgóslavía: 54 klukkustunda brandaraþolraun Belgrad. Reuter. SÉRVITRINGUR nokkur f Belgrad, Miroslav Mihailovic að nafni, sagðist eiga von á meira en einni hláturgusu, þegar hann hæfí 54 klukkustunda brandaram- araþon á Belgrad-torgi. Hann hóf þuluna kl. 16 f gærdag, og er markmið hans að komast i Heims- metabók Guinness. Mihailovic, sem er fímmtugur að aldri, sagðist kunna 287.000 brand- ara og stefndi að því að halda hlátrin- um vakandi þangað til seint á sunnu- dagskvöld. „Ég get jafnvel komið manni til að hlæja á banabeði sínum," sagði Mihailovic í blaðaviðtali. Reuter Bein útsending af Everest-tindi F.ins og fram hefur komið í blaðinu, klifu tveir hópar fjallgöngu- manna Everest-fjall á dögunum og réðust þeir til uppgöngu sitt hvoru megin fjallsins. Þegar fyrri hópurinn komst á foldgnáan Everest-tindinn sfðastliðinn fimmtudag tóku fjallgöngugarparnir tæki og tól úr farteski sinu og hófu beina sjónvarpssendingu frá tindinum. Beindu þeir sendingu sinni til himins, en henni var endurvarpað um gervihnött til Japans, Kfna, Nepal og Suður- Kóreu þar sem tugmilljónir manna fylgdust grannt með. Hópara- ir ætla þó ekki niður við svo búið, heldur ætla þeir að ganga niður þá leið, sem hinn hópurin kleif upp. Þetta er í fyrsta skipti, sem menn reyna að ganga yfir Everest-fjall þvert. Ever- est tindur er f 8.848 m hæð yfír sjávarmáli.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.