Morgunblaðið - 07.05.1988, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 07.05.1988, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. MAÍ 1988 27 5) Við útfærslu landhelginnar í 200 mflur var það þjóðinni kapps- mál að fá að ráða sjálf yfír auðlind sinni, fískinum í sjónum. Við erum í vaxandi mæli að afhenda öðrum þennan yfírráðarétt með beinum og óbeinum hætti. Gætum okkar þar. 6) Piskvinnsla á íslandi á a.m.k. ekki síður framtíð fyrir sér en físk- vinnsla í Evrópubandalaginu, sem við nú fæðum dyggilega af hrá- efni. Við ráðum jrfír betra hráefni upp úr sjó en aðrir hafa og mikilli og dýrmætri reynslu fjölmargra vinnandi manna til siós og lands. 7) Fiskvinnslan á Islandi borgar í dag nærri tvöfold laun á við físk- vinnsluna í Grimsby og Hull, þar sem stór hluti íslenska físksins er nú unninn. Er það ekki stórkostleg- ur árangur? 8) Fiskvinnslan á íslandi tryggir starfsfólki sínu jafna og stöðuga vinnu og víða stórkostlega vinnuað- stöðu í samanburði við lausráðið starfsfólk í blikkskúrum. Áfram mætti telja ótal atriði bæði til skýringar á mikilvægi fisk- vinnslunnar fyrir þjóðarbúið og þær hættur sem leynast í þjóðlífi okkar og geta orðið henni skeinuhættar, en ég læt þetta nægja að sinni, enda munu aðrir flalla um fleiri þætti þessa máls. Ég skal fúslega viðurkenna að mér geti skjátlast eins og öðrum og hver fyrir sig má trúa því, sem hann vill í þessu efni. Ég hlýt þó að segja, að mér fínnst það ódrengi- legt af þeim, sem hæst láta og hafa uppi niðurlægjandi orð um fiskvinnslu þessa lands, að reyna ekki að kynna sér aðstæður og draga sínar ályktanir af þeim, í stað þess að kveða upp dóma áður en þeir kynna sér sjálfír málavöxtu. Fiskvinnslan nýtur ekki sannmælis Loks er ekki hægt að ræða þessi mál án þess að neftia hvaða áhrif þau hafa á búsetu manna í landinu og byggðastefnuna. Alltof margir virðast hafa þá trú, að þjóðin geti þjappast saman hér á suðvestur- hominu og lifað samt góðu lífí. Ég er ekki forspár, en bágt á ég með _að trúa því, að svo verði. Nyir tímar koma með nýjar hug- myndir og nýjar áherslur og enda þótt fjölmörg önnur atriði hafí áhrif á búsetuval fólks, þá ræður flár- hagsleg afkoma jafnan miklu og hún verður betri úti á landi. Ég held, að það þjóðfélag, sem sumir virðast sjá fýrir sér, með langmestan hluta þjóðarinnar starf- andi við að þjónusta hver annan hér á suðvesturhominu sé dapurt þjóðfélag og því munu áfram verða öflugar byggðir vítt um land. Vissulega munum við sjá byggðakjama rísa og eflast á kostn- að minni sveitarfélaganna, en það mun einungis efla byggðina á við- komandi svæði. Um nokkuð langan tíma hefur það viðgengist, að opinberir starfs- menn hafa fengið staðaruppbót af ýmsu tagi, þegar þeir ráða sig til starfa út á land. Lengst af hafa meðaltekjur fólks í sjávarplássum irerið hærri en annars staðar í landinu. Það er einkar eðlilegt. Þar verða mestu verðmætin til og því eðlilegt að reyna að skilja eitthvað af þeim þar eftir í formi daglauna. Ég varð fyrir miklum vonbrigð- um vegna þess, að ekki skyldi finnast leið til að ná fram skatt- fríðindum fyrir fólk í fískvinnslu í síðustu kjarasamningum ekki síður en fyrir sjómenn. Mér er sagt, að það sé ekki hægt vegna samanburðar við annað fólk í landi, en það eru veik rök. Hvem- ig sem á það er litið, þá borgar físk- vinnslan íslenska miklum mun hærri laun en þekkist meðal þeirra fískvinnsluþjóða, sem við okkur keppa. Samt fínnst fískvinnslufólki hér á landi að betur mætti gera. Þensluþjóðfélagið sér til þess. Spá mín er sú, að innan tíðar verði aftur eftirsótt að vinna við fískvinnsluna á íslandi, fískvinnslu framtíðarinnar. Ágætu fundarmenn. Fiskvinnsl- an nýtur ekki um sinn sannmælis, en hún nýtur mikillar virðingar er- lendis. Hefjum hana aftur til virð- ingar hérlendis. i "• • ' f* 'i i i p i \ e n n t é s l r f 1 < d 3:; • -1 . iúsiifi titcíl iíc ii (t MAJORKA OG KÝPUR Beint leiguflug í sólina á Majorku. Fyrsta brottför var í gœr og reglulegar brottfarir eru til 1. október. Vikulegar ferðir til Kýpur eru meðal nýjunga sumarsins. Á Kýpur er sumarið langt og síðasta brottför okkar þangað í sumar er 27. október. SUMARÍ DANMÖRKU Aldrei ódýrara Flogið er beint til Billund á Jótlandi og dvalið í alveg nýjum, afar vönduðum sumarhúsum á fögrum stað við Ebeltoft. Verð frá 23.800 kr. Innifalið í verði: Flug, sumarhús í tvœr vikur, flutningur til og frá flugvelli erlendis og íslensk fararstjórn. Flug og bíll um Kaupmanna- höfn Kóngsins Kaupmannahöfn er alltaf ofarlega á vinsœldalista okkar íslendinga. Við bjóðum flug og bíl um Kaupmannahöfn á afar góðu verði. Dœmi um verð: 14.250 kr* Innifalið í verði: Flug ogFordSierra í eina viku, ótakmarkaður akstur, kaskótrygging og söluskattur. * Miðað við að 2 fullorðnir og 2 börn, 2-11 ára, ferðist saman. nue OG BÍU UM LUXEMBOURG Enn lœkkar verðið. Mjög hagstœðir samningar okkar um bílaleigubíla í Luxembourg gera okkur kleift að gera enn betur við þá sem velja flug og bíl um Luxembourg. Dœmi um verð: 13.750 kr.** Innifalið í verði: Flug og Ford Sierra í eina viku, ótakmarkaður akstur, kaskótrygging og söluskatt- ur. ** Miðað við að 2 fullorðnir og 2 börn, 2-11 ára, ferðist saman. TAKMARKAÐ UR SÆTAFJÖLDI! FERDASKRIFSTOFAN ÚRVAÍ - fólk sem kann sitt fag! Pósth ússtrœti 13.Sími 26900 1 E r i mmmmmmmmmétmmmmmmmm —.n.-. ■ , .Lt.tni •:<i>Í2;il i*\i liitn jt" iI; Ml([ (l 83)1 U njjiv 1 í nu;i í 11 )ii 119 ftl . * » i > n 13 )Ii.';qJ) TiiTTTÍinntSaJiircc
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.