Morgunblaðið - 07.05.1988, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 07.05.1988, Blaðsíða 42
' 42 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. MAÍ 1988 Opið bréf til fjármálaráðherra ^eftir Guðbjörn Jónsson Hr. fjármálaráðherra. Mig er farið að lengja eftir efnis- legu svari frá þér. Getur það verið, að stjómkerfí Islands sé það ómark- visst og skipulagslaust, að ekki sé hægt að svara spumingum mínum? Að vísu þarf ég varla að spyija, því ég fór að þínum ráðum og náði mér í skýrslu Þjóðhagsstofnunar, sem *-jþú bentir mér á. Það verður að segjast eins og er að skýrslan sú ama færði mér ekki nein ný fræði, um nýtilega vinnu hjá þeirri stofn- un, til stjómunarlegra ákvarðana. Ef þetta eru einu upplýsingamar sem þið hafíð um sundurliðun efna- hagslífsins, þá verð ég að biðja þig fyrirgefningar á þvi að hafa ætlast til þess að þú gætir gefíð mér þær upplýsingar sem ég fór fram á. NÚ má enginn taka orð mín svo, að þetta uppgjörsform Þjóðhagsstofn- unar sé ónothæft með öllu. Þetta er vafalaust ágætis form fyrir Sam- einuðu þjóðimar, enda samið fyrir þær, til þess að fá til sín saman- burðartölur úr efnahagslífí allra ''þjóða innan þeirra. Til þess að þetta kerfí verði nothæft til að leiða fram rekstrarlegar staðreyndir íslensks þjófélags þarf að gera töluverðar brejftingar á sundurliðunar og sam- töluflokkum þess. Ég held að mér sé óhætt að fullyrða, að enginn einkarekstur mundi láta sér nægja svona ófullkomnar upplýsingar. um tekjumyndun, og kostnað við hana, Og á hinn bóginn kostnað sem ein- göngu rýrir afkomuna. En nóg um þetta að sinni. Virðisaukaskattur Mér fínnst það lýsi mikilli van- þekkingu á rekstri lítilla fyrirtækja að telja virðisaukaskatt æskilega leið til skattheimtu hér. Meginþorri fyrirtælqa er af stærðinni 1 til 5 menn. Þessi fyrirtæki hafa ekki afkomugrundvöll til þess að bera uppi kostnaðarbókhald, sem nauð- synlegt er við útreining virðisauka- skatts. Þar sem þessi fyrirtæki eru, „að ég held“, yfír 25 þúsund að tölu hér á landi, en heildarfjöldi fyrirtælqa rétt um 30 þúsund, fínnst mér nauðsynlegt að gera nákvæma úttekt á afkomuröskun þeirra við svona breytingar, Þar má hvorki nota „gefnar forsendur" né meðaltal. Þar verður raunveru- leikinn að vera í fyrirrúmi. Árið 1983, er þú varst á kosn- ingaferðalagi um Norðurland vestra, komst þú í fyrirtæki það er ég starfaði við. Þá varst þú (og ég líka) gallharður á því að virðisauka- skattur ætti ekkert erindi inn í okk- ar kerfí. Ég vona, vegna Alþýðu- flokksins, að þú sért ekki að verða hálfgert jó jó í skoðunum. Við vor- um einnig sammála um að núver- andi söluskattskerfí væri ónothæft. Ég kynnti þér þar athuganir mínar á öðruvísi innheimtu söluskattsins, þ.e. að innheimta hann við tollaf- greiðslu. Þú varðst svo hrifínn af þessari útfærslu minni, að þú tókst Muta hennar (sennilega það sem þú mundir) upp í málflutning þinn á Alþingi, er þú boðaðir að taka ætti söluskatt í tolli. Staðreyndin varð bara sú (eins og alltaf) þegar farið er að breyta góðri hugmynd, annaðhvort af þekkingarskorti eða til þess að geta eignað sér hana, þá verður útkoman skrípaleikur. Þessi hugmynd mín er í fullu gildi enn í dag. Mig langar að drepa hér á eitt dæmi því til stuðnings. Fýrirtæki í framleiðsluiðnaði er skil- ar rfkissjóði með framleiðslu sinni kr. 7.472.000,- í rauntekjur sölu- skatts með núverandi kerfi, skilar með minni aðferð kr. 8.389.000,- með þvf að söluskattsprósenta sé ákveðin 20% og veltuskattur 0,5%. Þessi aðferð mín mundi eyða upp- skrúfun þeirri sem núverandi sölu- skattskerfí hefur á eiginkostnað ríkissjóðs. Seld vinna og þjónusta lækkaði um söluskattsprósentuna þar sem söluskatur yrði ekki inn- heimtur út f þjóðfélaginu. Þú hefur talað mikið um endur- skoðun á tekjuöflunarkerfí ríkis- sjóðs. Þörfin er fyrst og fremst á því að bæta nýtingu tekna þeirra er ríkissjoður fær. Auglýsing þfn um ábendingar var fyrst og fremst auglýsing um bamaskap. Datt þér í alvöru í hug að hægt væri að gefa þér nothæfar ábendingar, svona rétt eins og að gá til veðurs? Ef gefa á nothæfar ábendingar f svona málum verður viðkomandi aðili að fá óheftan aðgang að öllum Qármunahreyfíngum hverrar ein- ingar ríkissjóðs. Mesta þörf á end- urskoðun er endurskoðun á tekju- öflunarkerfi þjóðfélagsins og nýtingu þeirra tekna. Ég vænti þess, að þú mundir leysa aukna tekjuþörf þína, með því að reyna að afla meiri tekna frá öðrum, en ekki með því að skattleggja fjöl- skyldu þína? Ráðstöfunartekjur Þér hefur orðið tíðrætt að und- anfömu um auknár ráðstöfunar- telq'u láglaunafólks. Máli þínu til stuðnings vitnar þú í skýrslur kjara- rannsóknamefíidar. Ég verð að segja, að það kemur mér mjög á óvart ef þessar skýrslur eru orðnar marktækar. Sfðast þegar ég vissi vantaði mestan hluta láglaunafólks inn í þessar rannsóknir. Þar fyrir utan hafa elli- og örorkulífeyris- þegar ekki verið inni í þessari könn- un heldur. Meðan svo er, er það ykkur stórlega til vansa að taka þetta sem stórasannleika og vinna út frá því. Samkvæmt mati ykkar sjálfra og launþegasamtakanna, þ.e. fram- færsluvfsitölunni, voru nauðþurft- artekjur einstaklingsins f mars- mánuði sl. kr. 49.160,-. Það er því ljóst, að elli- og örorkulffeyrisþegar eiga langt í land að ná ráðstöfíinar- tekjum. Einnig er það ljóst, að mik- ill fjöldi láglaunafólks í þessu landi verður að vinna yfírvinnu til þess að hafa einhveijar ráðstöfunartekj- ur. Það er athyglisvert hvað þið virð- ist allir sammála um að hoppa yfír fyrsta þrep tekjustigans, þ.e. nauð- þurftir. Svo lengi sem við þurfum peninga til þess að halda lífi verður að uppfylla þetta tekjumark áður en ráðstöfunartekjur myndast. Þetta vitið þið allir og það er ykkur einungis til skammar að reyna að moka yfír það með meðaltals- tölum. Sumarbústaðir smíð- aðir í Borgarnesi Borgarnesi. HAFIN er smiði sumarbústaða i Borgarnesi. Um er að ræða 30 til 50 fermetra timburhús með svefn- lofti, fordvri og verönd. Smiðirnir eru þeir Olafur Axelsson og Unn- steinn Arason. Þeir hafa undan- farin ár starfað saman við hús- asmiðar i Borgarnesi og uppsveit- um. Kváðust þeir félagar vera tilbúnir með tvö 30 fermetra hús, fullfrá- gengin að utan og einangruð. Að- spurðir sögðu þeir að töluvert væri að gera hjá þeim við smfði annarra húsa, en ef sumarbústaðimir líkuðu vel, þá héldu þeir framleiðslunni áfram. Það fer vel á því að sumarbústað- ir séu byggðir í Borgamesi. Mikil og stöðug fjölgun bústaða er og hefur verið undanfarin ár f héraðinu. Með samdrætti í hinum hefðbundnu bú- greinum hafa æ fleiri bændur farið út í að leigja eða selja jarðarskika undir sumarbústaði. Haft hefur verið á orði að yfir sumartímann breytist Borgaifyörðurinn í nokkurs konar allsheijar orlofsheimili fólks af höf- uðborgarsvæðinu. - TKÞ Morgunblaðið/Theodór Kr. Þórðarson Smiðirnir Unnsteinn Arason og Ólafur Axelsson framan við tvo 30 fermetra sumarbústaði sem þeir hafa nýlokið við. Guðbjörn Jónsson „Ef gefa á nothæfar ábendingar í svona mál- um verður viðkomandi aðili að fá óheftan að- gang að öllum fjár- munahreyfingum hverrar einingar ríkis- sjóðs.“ Tryggingarfélögin Svona í lokin langar mig til þess að minna þig á mál sem þú lofaðir mér fyrir rúmu ári að athuga. Þetta varðaði erindi er ég sendi öllum þingflokkum á Alþingi f marsmánuði 1986. Erindi þetta fjallaði um lögvemaða einokun á bifreiðatryggingum hér á landi. Einnig varðaði þetta erindi þegjandi samþykki Alþingis við grófum stjómarskrárbrotum, við sakar- ákvörðun vegna umferðaróhappa. Ég sendi Alþingi þetta, til þess að það væri hægt að leiðrétta þetta vð samningu nýrra umferðarlaga. Ári eftir að ég afhenti þetta erindi í Alþingishúsinu, merkt öllum þing- flokkum, Hvaðst þú aldrei hafa séð það. Það er slæmur vitnisburður um starfshætti þama innan dyra. En hvað um það. Ekki þýðir að gráta það liðna, þótt tap mitt vegna sinnuleysis Alþingis hafí orðið um 500 þúsund á verðlagi ársins 1986. Þá er það bara lítið brot af þvf tapi sem ég er með skýrslur yfír. Átt þú von á að tekið verði á þessu máli við endurskoðun nýju umferðarlaganna? Með bestu kveðjum. Höfundur er í málefnanefnd Þjóð- arflokksim. smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar V^húsnæói~: f í boöi < SPAHH Eignist eigiö orlofshús é mjög hagstæöu verði á sólríkasta stað Spánar. Sveigjanleglr greiöslu- skilmálar. Kynning daglega á Laugavegi 18 virka daga kl. 9-18, lau. og sun. kl. 14-17. Reglulegar kynnisferöir. Orlofshús, G. Óskarsson & Co„ 8Ímar 17045 og 15945. Hvítasunnukirkjan Fíladelfia Almenn samkoma í kvöld kl. 20.30. Ræðumaöur Salomon Douhne frá fsrael. Krossinn Auðbrekku 2,200 Kópavogur Samkoma í kvöld kl. 20.30. Allir velkomnir. Innanfélagsmót veröur haldið í dag, laugardag- inn, 7. mai. Mótiö hefst kl. 12.00 stundvíslega. Keppt veröur i öll- um aldursflokkum. Rútuferðir samkvæmt áætlun. Félagar fjölmennið. Stjórnin. m Utivist, g Simar 14606 oa 2373? Sunnudagur 8. maí kl. 10 Fjallahringurinn 4. ferð Skipaskagi - Akrafjall (643 m.y.s.). Brottför meö Akraborg frá Grófarbryggju kl. 10.00. Mætið timanlega fyrir brottför. Heimkoma kl. 18.30. Verö 1.100,- kr. Góö og hressandi ganga. Sjáumst! Útivist, ferðafélag. I dag kl. 14.00-17.00 er opið hús í Þríbúöum, Hverfisgötu 42. Litiö inn og rabbiö viö okkur um daginn og veginn. Heitt kaffi á könnunni. Kl. 15.30 tökum við lagið og syngjum kóra. Takið meö ykkur gesti. Allir eru hjart- anlega velkomnir. Samhjálp FERÐAFÉLAG ÍSLANDS ÖLDUGÖTU3 SÍIIAR11796 og 19533. Dagsferðir Ferðafólagsins sunnudaginn 8. maí Kl. 09 - Skarðsheiðl (1065 m). Gengið frá Efra Skaröi upp með Skarðsá. Verð kr. 1.000. Kl. 13 - Eyrarfjall (424 m). Ekiö inn Miödal og gengiö frá Eilifsdal á fjallið. Verð kr. 800. Brottför frá Umferðarmiöstööinni, austanmegin. Farmiöar viö bfl. Frftt fyrir böm f fylgd fullorölnna. Ath.: Sfðasta myndakvöld vetr- arlns verður mlðvikudaglnn 11. maf ( Rfslnu, Hverflsgötu 106. Feröafélag fslands. Sunnudagur 8. maf Útivistardagurinn: Reykjavíkurganga Útivistar Kl. 13.00 Brottför fré Grófar- torgi (bílastæðinu milli Vestur- götu 2 og 4). Einnig er hægt aö mæta i gönguna á eftirtöldum stöðum: Kl. 13.45, BSf, bensínsölu. Kl. 14.15, Nauthólsvík. Kl. 15.15, Skógræktarstöðinni, Fossvogi. Rútuferöir frá EHiöarérstöö að lokinni göngu kl. 17.30. Ekkert þátttökugjald. Fjölmenniö i gönguna og. kynnist fjölbreyttri leiö um höfuöborgina, mikiö til í náttúrulegu umhverfi. Gengið frá. Grófinni meöfram Tjörninni, um Hljómskálagarðinn, Öskjuhlíö, Fossvog og Foss- vogsdal i Elliöaárdal. Gestir koma í gönguna og fræða m.a. um fuglalif á Tjörninni, jaröfræði Öskjuhlíðar og Fossvogs og skógrækt. Áning i Skógræktarstöðinni meö harmónlkuleik og söng. Tilvalin fjölskylduganga. Sjáumst! Útivist, feröafélag. FERDAFÉLAG ÍSLANDS ÖLDUGÖTU 3 SÍMAR11796 og 19533. Fuglaskoðunarferð laugardaginn 7. maí á Suðurnes Fyrst veröur ekiö út á Álftanes og skyggnst eftir margæs, síðan um Hafnarfjörð, Garöskaga, Sandgerði og á Hafnaberg. i Hafnabergi má sjá allar bjarg- fuglategundir landsins að haft- yrölinum undanskildum, en hann er aðeins aö finna i Grimsey. Skrá yfir þær fuglategundir sem sést hafa í fuglaskoöunarferðum Feröafélagsins veröur afhent i upphafi feröar og geta þátttak- endur borið saman hvaða fuglar hafa sést frá ári til árs og merkt við þá sem sjást f þessari ferö. Brottför er frá Umferðarmið- stöðinni, austanmegin kl. 10.00 árdegis. Farmiöar viö bíl. Frítt fyrir börn í fylgd fulloröinna. Verö kr. 1.000,- Þátttakendum er ráölagt að hafa meö sór sjónauka og fuglabók. Farastjórar: Gunnlaugur Péturs- son, Haukur Bjarnason, Grétar Eiríksson og Jón Hallur Jóhanns- son. Feröafélag íslands. ÚtÍVÍSt, Grofmni , Laugardagur 7. maí kl. 10.30. Fulga- og náttúruskoð- unarferð á Suðurnes Garðskagaviti - Sandgerði - Fuglavík. Gengiö á milli staö- anna. Hugaö verður aö umferöa- farfuglum t.d. tildru, rauöbryst- ing og sanderlu og mörgum öðr- um áhugaverðum fuglategund- um. Þátttakendur fá nafnalista og fjöldi tegunda verður talinn. Viðkoma verður á Bessastaöa- nesi (margæsir) og á Náttúru- fræöistofu Kópavogs. í feröinni veröur hugaö aö fleiru í náttúr- unnar riki t.d. sel. Verö 850,- kr„ fritt f. börn m. fullorðnum. Leiðbeinandi: Árni Waag. Áhugaverö og fræðandi ferö fyr- ir alla. Hafið sjónauka meö- ferðis. Brottför frá BSl, benaín- sölu. Sjáumst. Útivist. HCI.IH III:HI.‘l'IMI vfl'-A ’ 11
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.