Morgunblaðið - 07.05.1988, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - 07.05.1988, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. MAÍ 1988 53 Sesselja Olafs- dóttir - Minning Fædd 13. júní 1897 Dáin 28. aprO 1988 Aldurhnigin góð kona er fallin frá. Þessarar konu vil ég minnast með nokkrum fátæklegum orðum. Þegar ég og fjölskylda mín flutt- umst til Patreksflarðar 1951 kynnt- umst við Sesselju, raunar sama dag og við komum hingað. Því hagaði svo til að hún og fjölskylda hennar bjuggu í næsta húsi við okkur. Góðvild og greiðvikni voru aðals- merki þessarar mætu konu. Sess- elja var gædd sérstakri skapgerð, hún vann sér vinsældir samferða- fólksins, framkoma hennar öll og hógværð var einstök. Henni var létt að umgangast aðra og ávinna sér traust þeirra. Þannig kom þessi góða kona mér ætíð fyrir sjónir. Nú er hún gengin á fund feðra sinna á 91. aldursári. Sesselja var fædd í Eyrarsveit á Snæfellsnesi þann 13. júní 1897 og ólst upp á Hellnafelli í sömu sveit hjá Sesselju Magnúsdóttur og Har- aldi Pálssyni. Ung að árum flyst hún hingað vestur á firði, og hér var hún alla tíð að undanteknum nú síðustu árum að hún var á Hrafnistu í Hafnarfirði, en þar and- aðist hún 28. apríl sl. Á Tálknafirði kynntist Sesselja eftirlifandi manni sínum, Ólafi Jósúa Guðmundssyni frá Stóra- Laugardal í Tálknafirði. Þau gengu í hjónaband þann 11. febr. 1923 og hófu sinn búskap í Tálknafirði. Ólafur var mikill dugnaðar- og at- orkumaður, stundaði sjómennsku lengstan hluta sambýlisára þeirra. Hann var því oft fjarri heimili, og því munu störf Sesselju hafa verið vandasöm og mikil, en hógværð hennar og skaplyndi veitti henni styrk til að standast þann vanda. Þau Sesselja og Ólafur eignuðust 11 böm og eru 9 þeirra á lífí. Eins og gefur að skilja hefur því oft verið þröngt í búi þeirra hjóna og mikla forsjálni þurft svo allt færi með ágætum, en það tókst þeim hjónum vel. Böm þeirra Sesselju og ólafs era þessi í aldursröð: Guðmundur Jó- hannes, Ólafsvík, f. 1921, kona ída Sigurðardóttir. Hulda, Patreksfirði, f. 1922, maður Ólafur Sveinsson. Haraldur, Patreksfirði, f. 1924, kona Bima Jóhanná Jónsdóttir. Cesar, Patreksfirði, f. 1925, ókvæntur. K. Júlíus, Patreksfirði, f. 1926, kona Jónína Helga Jóns- dóttir. Sverrir, Patreksfírði, f. 1928, kona Margrét Ryggstein Marteins- dóttir. Aðalsteinn, látinn, f. 1930, d. 1945. Svanborg, Hafnarfírði, f. 1932, maður Baldur Jóhannsson. Gróa, Patreksfirði, f. 1934, maður Haraldur Ólafsson. Meybam, látið f. 1931, d. sólarhrings gamalt. Erla Þorgerður, Sandgerði, f. 1937, maður Gunnar Sn. Gunnarsson. Böm þeirra Sesselju og Ólafs sem upp komust era öli atgervis- og dugnaðarfólk, eins og þau eiga kyn sitt til. Árið 1949 fluttu þau hjón Sess- elja og Ólafur til Patreksfjarðar, og hér bjuggu þau allt til að þau fluttu á Hrafnistu í Hafnarfirði. Hér á Patreksfirði hélt lífsbaráttan áfram. Ólafur stundaði sjómennsku á toguranum og á sinni eigin út- gerð, en síðari árin vann hann við fiskvinnslu og veiðarfæri. Síðari árin var Sesseija nokkuð farin að heilsu, og því var það ákvörðun þeirra að draga sig í hlé þegar þau fluttu að Hrafnistu. Þau vora sam- eiginlega búin að lyfta grettistaki í uppeldi bama sinna, grettistaki sem var og er þeim til sæmdar. Þrátt fyrir mikið erfiði í húsmóð- urstarfinu ieyfði Sesselja sér þann munað að lesa góðar bækur. Hún var víðlesin og minnug meðan heilsa hennar leyfði það. Mér kom Sess- elja fyrir sjónir sem menntuð kona og hún var það. Bókalestur hennar og meðfæddir hæfileikar veittu henni mikla menntun. Nú er þessi ljúfa kona gengin á fund feðra sinna og hvfld var henni þörf. Ég færi henni þakkir mínar og konu minnar fyrir samfylgdina og það sem af henni mátti læra. Þér, Ólafur minn vottum við Ing- veldur samúð okkar. Löng samfylgd þín og konu þinnar er slitin um stundarsakir. Kristur kenndi okkur um framhaldslífið þegar hann sagði „Hver sem trúir á mig mun lifa Fermingar Fermingarböm í Eyrarbakka- kirkju sunnudaginn 8. mai kl. 13.00. Prestur sr. Úlfar Guðmundsson. Fermd verða: Helena Marteinsdóttir, Eyrargötu 28. Magnea Svava Guðmundsdóttir, Túngötu 66. Ragnhildur Loftsdóttir, Háeyrarvöllum 50. Rannveig Bjarnfinnsdóttir, Túngötu 55. Sandra Dís Hafþórsdóttir, Túngötu 32. Valgerður Dóra Jónsdóttir, Túngötu 43. Gísli Ragnar Jóhannsson, Kirlquhúsi. Guðjjón Smári Jónsson, Túngötu 18. Siguijón VSdalín Guðmundsson, Eyrargötu 44b. Fermingarböra í Selfosskirkju sunnudaginn 8. mai 1988 kl. 10.30 og kl. 14.00 Fermd verða kl. 10.30: Alma Siguijónsdóttir, Spóarima 13. Selma Siguijónsdóttir, Spóarima 13. Benedikta Ketilsdóttir, Fossheiði 52. Gerður Halldóra Sigurðardóttir, Lambahaga 19. Guðmundur Grétar Guðmundsson, Hrísholti 20. Lára Traustadóttir, Lambhaga 4. Linda Dögg Sveinsdóttir, Laufhaga 7. , á morgnn Sigurður Árni Ólason, Lágengi 5. Sigursteinn Gunnar Sævarsson, Sunnuvegi 3. Silja Amardsóttir, Starengi 17. Unnsteinn Lár Oddsson, Lambhaga 36. Valgerður Helga Sigurðardóttir, Reyrhgaga 5. Þórarinn Sigfússon, Sunnuvegi 12. Þorsteinn Bragi Valdimarsson, Engjavegi 79. Þórann Brynja Sigurbjömsdóttir, Úthaga 18. Fermd verða kl. 14.00 Benedikt Karl Valdimarsson, Sigtúnum 3. Bjami Baldvin Guðmundsson, Miðenp 16. Einar Bjömsson, Grashaga 17. Eva Dögg Ingvadóttir, Smáratúni 12. Guðmundur Elís Pálsson, Lágengi 4. Guðmunda Sigríður Davíðsdóttir, Stekkholti 34. Guðmundur Geir Sveinsson, Seljavegi 8. Hafdís Unnur Daníelsdóttir, Gauksrima 9. Henný Margrét Ásgrímsdóttir, Laufhaga 9. Ingólfur Snorrason, Stekkholti 10. Jón Hreggviðsson, Suðurengi 10. Kolbrún Ásta Jónsdóttir, Heiðmörk 5. þótt hann deyi.“ Þannig munu sam- fundir ykkar Sesselju verða að vera- leika aftur. Ég bið þann sem boð- aði mannkyninu þennan boðskap lífsins að vera með þér í framtíðinni. Bömum og tengdabömum Sess- elju vottum við hjónin okkar sam- úð. Mikilhæf kona kveður þetta líf. Henni sé vegsemd og þökk. Ágúst H. Pétursson, Patreksfirði. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinimir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. (Vald. Briem) Sigtryggur Jónatans- son - Kveðjuorð Fæddur 19. janúar 1917 Dáinn 28. mars 1988 Mánudaginn þann 28. mars barst okkur sú sorglega fregn til eyma að elskulegi afí okkar, Sig- tryggur Jónatansson, væri látinn. Okkur langar að minnast hans nokkram orðum. Afi okkar var fæddur á Siglu- fírði, sonur hjónanna Jónatans Guðmundssonar og Vilhelmínu Norðfjörð. Afi bjó á Þórsgötu 15 í Reykjavík og átti átta böm. Það sem mest bar á í fari afa okkar var hvað viðkvæmur og blíður hann var. Ætíð var hann hress og kátur. Alltaf var gott að koma til afa og ömmu á Þórsgötu 15, en amma dó 23. febrúar 1987 og var það afa mikið áfall. Afí kom oft norður á Sauðárkrók og þá var oft farið í veiði, því það var hans iíf og yndi. Afí var með eindæmum bamgóður. Átti hann 25 bama- böm sem honum þótti mjög vænt um og öll sakna hans. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem) Við þökkum afa fyrir allt það sem hann gerði fyrir okkur, alla hans umhyggju, ástúð og fómfýsi. Við biðjum Guð að blessa minningu hans. Sigtryggur, Sigurlaug og Helga Hrönn. Það vora ófáar gleði- og ánægju- stundimar sem við systkinin áttum niðri í Krók hjá ömmu og afa. Þar áttum við einnig okkar annað heim- ili. Ekki þurfti mikið út af að bera til að við færam til ömmu, og aldr- ei kom fyrir að hún hefði ekki tíma fyrir okkur, þó svo að hún hefði í mörg hom að líta, því gestkvæmt var í Króknum. Það er hollt og gott fyrir böm og ungiinga, eins og við voram á Patreksfírði, að verða þeirrar gæfu aðnjótandi að kynnast konu eins og amma var. Það er hlý og björt mining sem amma skilur eftir sig í hugum okk- ar og hjörtum, minning um góða og kærleiksríka konu, minning sem aldrei verður frá okkur tekin, né við munum gleyma. Minningin lifir þó maðurinn falli. Elsku afi, við sendum þér okkar dýpstu samúðarkveðjur. Krista, Muddi og Sesselja Linda Björk Bjama- dóttir — Minning Kristín Einarsdóttir, Stekkholti 8. María Ólafsdóttir, Reynivöllum 8. María Pálsdóttir, Birkivöllum 29. Oddný Sigríður Gísladóttir, Kirkjuvegi 15. Sigríður Sigfúsdóttir, Bankavegi 3. Sigurlín Garðarsdóttir, Vallholti 45. Sylvia Ólafsdóttir, Lambhaga 22. ítölsk vika haldin í lok maí ÍTÖLSK vika verður haldin á hótel Holiday Inn dagana 29. mai tíl 4. júnf. Þar verða kynntar ítalskar vörur, sem eru seldar hér á landi. í tilefni af ftölsku vikunni koma hingað til lands fulltrúar nokkurra ítalskra fyrirtækja, sem era að leita sér að umboðsmönnum. Á ítölsku vikunni mun hótelið framreiða ftalskan mat og kemur ítalskur kokkur hingað í tilefni af vikunni. Einnig verða hér á ferðinni ítalskir hljómlistarmenn og munu þeir skemmta á hótelinu. Að ítölsku vikunni standa, auk Holiday Inn, Amarflug og ferða- skrifstofan Utsýn. ítalski aðalræð- ismaðurinn f Reykjavfk og verslun- arfulltrúi sendiráðs ítalfu í Ósló aðstoða, við skipulegginguna. > \ u- Mig langar að skrifa nokkur orð um systur mína heitna, Lindu Björk Bjamadóttur, er lést miðvikudaginn 20. apríl. Hún var á þriðja ári er hún missti föður sinn. Nokkram áram seinna giftist móðir okkar. Þegar Linda var yngri passaði hún okkur yngri systkinin. Hún var 15 ára er hún flutti til afa okkar og ömmu á Sogavegi 158. Hún var ætíð í nán- um tengslum við okkur og var með okkur öll aðfangadagskvöld. Næstu jól verða því tómleg. Hún var ætíð kát og létt yfir henni. Er hún fór til Ameríku skrifaði hún okkur mörg bréf sem voru svo innileg og hlý. Missir okkar og Söknuður er mikill. Ég bið Guð að blessa Lindu og varðveita. Ég þakka henni fyrir allt og allt, sem hún gerði fyrir mig. Ó, þá náð að eiga Jesú einkavin í hverri þraut. Ó, þá heill að halla mega höfði sinu í drottins skaut. Ó, það slys því hnossi að hafna, hvílíkt fár á þinni braut, ef þú blindur vilt ei varpa von og sorg í drottins skaut. Gerða Kristín, Grindavik t Innilegar þakkir fýrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og jarðarför eiginmanns míns, föðurokkar, tengdaföður, afa og langafa, VILHJÁLMS kristins ingibergssonar húsasmíðameistara. Ragnheiður Þórunn Jónsdóttir, Guðbjörg Vilhjálmsdóttir, Óli S. Runólfsson, Ingibergur Vilhjálmsson, Ása Ásmundsdóttir, Guðlaugur J. Vilhjálmsson, Aöalbjörg Baldvlnsdóttir, Haukur Vilhjálmsson, Ólöf Steinarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og jarðarför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, SIGRÍÐAR EINARSDÓTTUR, Stangarholti 26. Ágústa Ólafsdóttir, Garöar Ólafsson, Anna Marfa Samúelsdóttir, Jón Ólafsson, Ingigerður Eggertsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til birting- ar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á ritstjórn blaðsins á 2. hæð í Aðalstræti 6, Reykjavík og á skrifstofu blaðsins í Hafn- arstræti 85, Akureyri. Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðvikudagsblaði að berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga. .............. •' ■ ' ■
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.