Morgunblaðið - 07.05.1988, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. MAÍ 1988
39
Kostnaður Seðlabankahússins:
1273 milljónir
JÓN Sigurðsson svaraði i fyrir-
spurnartfma Alþingis á fðstudag
fyrirspurn frá Olafi Þ. Þórðarsyni
(F/Vf) um kostnað við byggingu
Seðlabankahússins. Svarið var
stutt og laggott: 1273 miiyónir
króna miðað við síðustu áramót.
Eftir að ráðherrann hafði svarað
fyrirspuminni kvaddi sér Ólafur Þ.
hljóðs á ný. Harmaði hann að ekki
væru gefnar upp nýrri tölur en frá
síðustu áramótum.
Einar Kr. Guðfinnsson (S/Vf)
sagði að í Tímanum hefðu birst tölur
um byggingarkostnað sem væru
hálfum milljarði hærri en tölur ráð-
herrans. í jólaönnunum hefði mikið
verið rætt um byggingarkostnað
Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar en þar
hefði mismunurinn á upphaflegum
áætlunum og endanlegum kostnaði
verið einn milljarður. Niðurstaða
Tfmamanna væri sú að byggingar-
kostnaður á fermetra væri svipaður
í báðum byggingunum. Gæti verið
að álíka alvarleg mistök hefðu átt
sér stað í Seðlabankanum og ij'ár-
málaráðherra hefði sagt að hefðu
orðið við byggingu flugstöðvarinnar?
spurði Einar.
Jón Sigurðsson, viðskiptaráð-
herra, sagði að aðrir sem væru mál-
inu nánari þyrftu að svara fyrir um
það hvemig endanlegur kostnaður
sneri að upphaflegri áætlun. Annað
hvort gæti hann sjálfur svarað því
með skriflegum hætti eða Seðlabank-
inn gert grein fyrir því.
Albert Guðmundsson (B/Rvk)
sagði svarið ekki vera neitt svar.
Hann hefði viljað fá það sundurliðað
þar sem menn lægju undir ámæli
um að hafa sóað fjármunum. Hann
taldi ekki óeðlilegt að bygging svona
húss væri dýr þar sem mörgum stöðl-
um þyrfti að fylgja við byggingu
banka.
Ólafur Þ. Þórðarson beindi einnig
fyrirspumar til viðskiptaráðherra
vegna 1100 milljón króna rekstrar-
halla Seðlabankans. Spurði Ólafur
Þ. hvort vænta mætti þess hvort
Seðlabankinn gripi til aðgerða til að
auka framlegð í bankanum og bæta
rekstur hans, svo sem með því að
selja eignir, endurskipuleggja starfs-
mannahald eða segja upp starfsfólki.
Jón Sigurðsson sagði rekstarhalla
Seðlabanka aðallega stafa af verð-
breytingum innanlands og utan en
einnig hefði byggingakostnaður haft
veruleg áhrif á afkomu. Þrátt fyrir
gengisáhættu hefði þó afkoman ver-
ið sæmileg að jafnaði. Viðskiptaráð-
herra sagði ekki ætlunina að selja
eignir til þess að mæta þessu. Bank-
inn hefði selt töluvert af húsnæði
sínu þegar hann flutti í nýbygging-
una og ráðinu því fylgt að nokkm.
Ekki sá hann heldur ástæðu til upp-
sagna eða breytinga á starfsmanna-
haldi.
Ólafur Þ. sagði að það hefði verið
eðlilegt að selja leigjendum i Seðla-
bankanum húsnæði þegar svona ár-
aði.
Einar Kr. Guðfinnsson sagði að
það væri kaldhæðni að raungengis-
þróunin hefði þama „komið vel á
vondan". í stað orðsins „Seðlabanki"
mætti allt eins setja orðið „útflutn-
ingsatvinnuvegir". Við svo stóran
aðila sem Seðlabankann væri ekki
gott að deila, og þó framleiðslufyrir-
tækin hefðu ekki stórt vægi í umræð-
unni taldi Einar Kr. að ekki væri til
lengdar hægt að búa Seðlabankanum
svona slæm skilyrði.
Seðlabankinn
Forsætisráðherra:
Eitt mikilvægasta verkefnið
að ná niður viðskiptahalla
ÞORSTEINN Pálsson, forsætis-
ráðherra, svaraði á fimmtudag
fyrirspum frá Albert Guðmunds-
syni (B/Rvk) um það hvernig
ríkisstjómin hyggðist „bregðast
við spám Þjóðhagsstofnunar um
viðskiptahalla við útlönd sem talið
er að verði vel yfir 10 mil(jarða
króna, jafnvel allt að 20 miljjörð-
um króna á árinu 1988?“ Forsæt-
isráðherra sagði það aldrei hafa
komið fram að viðskiptahalli gæti
orðið 20 miiyarðar.
Þorsteinn Pálsson, forsætisráð-
herra, sagði að hann teldi það vera
eitt mikilvægasta verkefni ríkis-
stjómarinnar að ná niður viðskipta-
halla. Þjóðhagsstofnun reiknaði með
að við núverandi aðstæður gæti hann
orðið rúmlega 10 milljarðar en aðrir
sérfræðingar, m.a. fjármálaráðu-
neytisins, teldu að hann gæti orðið
lægri. Aldrei hefði komið fram að
hann gæti orðið 20 milljarðar.
Forsætisráðherra sagði að það
væra þijú atriði í almennri efnahags-
málastjómun sem hefðu áhrif á við-
skiptahalla. í fyrsta lagi skráning
gengis, í öðra lagi stefna í ríkis-
Qármálum og í þriðja lagi stefnan í
peningamálum.
í peningamálum hefði verið fylgt
efnahagsstefnu sem hefði haldið
uppi innlendum spamaði og teknar
ákvarðanir sem drægju úr erlendum
lántökum. Varðandi stefnuna í ríkis-
fjármálum þá væri ríkissjóður nú
rekinn með jöfnuði sem væri rpjög
mikilvægt. Allar tillögur stjómar-
andstæðinga um hallarekstur hefðu
verið felldar.
Þríklofin nefnd
í kaupleigumálinu
FRUMVARP félagsmál&ráðherra
um kaupleiguíbúðir kom til ann-
arrar umræðu í efri deild. Félags-
málanefnd þríklofnaði í afstöðu
sinni til málsins. Þeir þingmenn
sem tóku til máls i umræðunum
tóku frekar jákvætt i hugmyndina
um kaupleiguibúðir þó að þeir
töldu flestir að þær hefðu átt að
Menntamálaráðherra í umræðum um frainhaldsskólafnimvarpið:
Skólastarf verði
opnað almenningi
ÖNNUR umræða um framhaldsskólafrumvarpið fór fram í efrí deild
i gær. Menntamálanefnd deildarinnar varð ekki sammála um af-
greiðslu málsins heldur klofnaði i tvennt. Það voru aðallega ákvæði
frumvarpsins um að fimm manna skólanefndir taki þátt i stjórnun
framhaldsskóla sem voru deilumál. Birgir ísleifur Gunnarsson,
menntamálaráðherra, sagði þessar stofnanir vera liður i þvi að opna
skólastarfið fyrir almenning. Fátt værí til dæmis mikilvægara fyrir
byggðarlög en það sem kennt værí i skólum þar.
Halldór Blöndal, formaður
menntamálanefndar neðrí deild-
ar, mælti fyrir nefndaráliti meiri-
hlutans sem leggur til að frum-
varpið verði samþykkt óbreytt eins
og það kom óbreytt frá neðri deild.
Skólanefndir
ágreiningsmál
Þau Danfríður Skarphéðins-
dóttir (Kvl/Vl) og Svavar Gests-
son (Abl/Rvk) eru ekki sammála
áliti meirihlutans. Þau skiluðu inn
sér áliti og fluttu breytingartillögur
við frumvarpið. Það er helst stjóm-
unarþáttur frumvarpsins sem þau
era ósátt við og þá sér f lagi skóla-
nefndimar. Telja þau að nefndunum
séu veitt of mikil völd og áhrif hvað
varðar þróun skóla, innra starf,
námsbrautir og rekstur. Einnig
væra fagleg sjónarmið fyrir borð
borin með þessu fyrirkomulagi. Þau
væru þó virt f framvarpinu þegar
fjallað væri um sérstaka fagmennt-
un, s.s. iðnnám eða nám í sjávarút-
vegsfræðum. Einnig væri að finna
í frumvarpinu ákvæði um sem
víðtækust samráð við atvinnulífið,
en þegar að hinni almennu menntun
kæmi ættu pólitfskt kjömir fulltrúar
að hafa vit fyrir fagfólki, nemend-
um og öðrum þeim sem störfuðu
innan veggja skólans. Sagði Svavar
Gestsson að þessar „makalausu
skólanefndir" myndu „kássast" upp
á innra starf skólanna.
Breytingartillögur þeirra fólust
flestar í því að draga úr valdi skóla-
nefnda en fela það í staðinn skóla-
ráði sem skipað væri fulltrúum
nemenda og kennara. Einnig gagn-
rýndu fulltrúar minnihlutans
ákvæði í lögunum um sérskóla fyr-
ir fatlaða og töldu að þar gæti orð-
ið um mismunun að ræða.
Meginatriðið að opna
starfið
Salome Þorkelsdóttir (S/Rn)
gerði skólanefndimar að umtalsefni
og sagðist aldrei hafa vör við
pólitís,ka togstreitu í nefndum af
þessu tagi. Þær væru kannski kosn-
ar pólitískt en ynnu síðan málefna-
lega eftir kosningar. Meginmálið
væri að opna skólastarfíð en ekki
loka því. Foreldrar og aðrir ættu
að fá að taka þátt í starfinu ef þau
hefðu áhuga á því.
Birgir ísleifur Gunnarsson,
menntamálaráðherra, sagðist
vilja vekja sérstaka athygli á því
að verkefni þessara skólanefnda
væru mjög takmörkuð í þessu frum-
varpi. Mætti skipta verksviði þeirra
upp í þrennt.
I fyrsta lagi að ákveða náms-
starfíð með skólameistara, þ.e. að
ákveða hvaða námsgreinar yrðu
kenndar við skólann en ekki hvem-
ig ætti að kenna þær. Ekkert væri
byggðarlögunum meira hagsmuna-
mál en hvaða nám væri boðið upp á
í skólanum þar og hversu langt
nemendur þyrftu annars að sækja
það nám. Sagði hann það vera verk-
efni fólksins að ákveða það.
í öðra lagi ættu skólanefndimar
að hafa eftirlit með fjárreiðum skóla
og sagði menntamálaráðherra eðli-
legt að fulltrúar almannavaldsins
fylgdust þar með.
I þriðja lagi ættu þær svo að
hafa ákveðin afskipti af ráðningum.
Engin afskipti af
faglegu starfi
Birgir ísleifur sagði að skóla-
nefndimar ættu ekki að hafa neitt
að gera með það faglega starf sem
færi fram innan skólanna. Þessi
umræða um hvort skólar ættu að
vera lokaðar stofnanir eða hvort
almenningur ætti að fá að taka
þátt í þeim einangraðist ekki við
þetta frumvarp. Hún færi nú fram
í mörgum löndum.
Einstaka hópar kennara sagði
hann telja þetta koma fólki ekki
við en hann væri andvígur því sjón-
armiði og teldi að opna ætti skólana
að vissu marki. Hann bar skólana
saman við sjúkrahús og spurði hvort
það ætti að vera alfarið í höndum
lækna hvaða deildir væra I viðkom-
andi sjúkrahúsi. Hann teldi að svo
ætti ekki að vera enda hefðum við
byggt upp okkar stjómkerfi á ann-
an veg.
Menntamálaráðherra benti einn-
ig á Iðnskólann og sagði að þar
hefði verið starfandi skólanefnd
áratugum saman sem kosin væri
Birgir ísleifur Gunnarsson
af borgarstjóm. Skólastjóri þess
skóla hefði sagt sér að hann vildi
ekki missa þá nefnd. Sagði ráð-
herrann að þeir sem hefðu haft
skólanefndir vildu hafa þær áfram
en þeir sem ekki þekktu þær væru
hræddir við hið óþekkta og á móti
þeim.
Sérskólar fatlaðra
Menntamálaráðherra sagði það
vera ótvíræða stefnu menntamála-
ráðuneytisins að allir fatlaðir, sem
það gætu, stunduðu nám í almenn-
um skólum. Til væra þó einstakling-
ar sem nýttist betur nám í sérdeild-
um og gætu ekki verið við nám
almennum skólum. Neðri deild hefði
því bætt inn í frumvarpið ákvæðinu
um sérskóla fyrir fatlaða eftir að
hafa rætt við þá sem hefðu með
málefni fatlaðra að gera.
Nú væru starfandi á landinu 4
sérskólar á framhaldsskólastigi fyr-
ir fatlaða, sem hefðu engan laga-
grundvöll, og stunduðu um 300
nemendur í þeim nám. Það væri
mat sérfræðinga sem hann hefði
rætt við að þessir nemendur gætu
ekki stundað nám í almennum skól-
um.
Þetta ákvæði ætti þó ekki að
þjóna þeim tilgangi að hinir al-
mennu framhaldsskólar gætu ýtt
út nemendum sem þar stunduðu
nám.
vera liður I heildarendurskoðun á
húsnæðiskerfinu.
Karl Steinar Guðnason, formaður
félagsmálanefndar efri deildar, mælti
fyrir nefiidaráliti meirihlutans sem
leggur til að framvarpið verði sam-
þykkt óbreytt eins og það kom frá
efri deild.
Svavar Gestsson (Abl/Rvk)
myndaði fyrsta minnihluta félags-
málanefndar. Hann sagðist styðja
þetta framvarp með þeim rökum að
talið væri að kaupleigukerfi gæti
opnað möguleika fyrir leiguhúsnæði
og kaupleiga gæti opnað nýja mögu-
leika f hinu félagslega húsnæðislána-
kerfi. Yrði þetta frumvarp samþykkt
þyrfti að gera kröfur til þess að ríkis-
stjómin stæði við þau fyrirheit sem
f frumvarpinu fælust.
Svavar sagði það ekki vekja mikla
tiltrú á annars ágætu máli að stjóm-
arliðið afgreiddi málið í „hinni mestu
fylu og með hundshaus". Einu rök
meirihlutans í neðri deild hefðu verið
að þar sem formenn stjómarflokk-
anna vildu afgreiða málið þá væri
það gert. Þetta nægði ekki Svavari.
Hann sagði afstöðu sfna byggjast á
efnislegum forsendum.
Guðrún Agnarsdóttir (Kvl/Rvk)
mælti fyrir áliti annars minnihluta
félasmálanefndar. Hún sagði alls
staðar vanta leigufbúðir og víða um
landið væri skortur á leiguhúsnæði
sem væri m.a. talið standa í vegi
fyrir eðlilegri þróun byggða og at-
vinnulífs. Það væri því fyllilega tíma-
bært að opna nýjar leiðir f húsnæðis-
málum landsmanna, m.a. með því
að auka framboð á leiguhúsnæði.
Þingmaðurinn sagði meginhug-
myndina að baki framvarpinu veræ
jttvæða en hún teldi ekki tímabært
að koma á nýju kerfi við hlið þess
sem fyrir væri án þess að heildar-
stefiia væri mótuð og án þess að fjár-
magn til þess væri tryggt. Lagði hún
til að málinu yrði vísað til ríkisstjóm-
arinnar.
Valgerður Sverrísdóttír (F/Ne)
sagðist hvorki vera í fylu né með
hundshaus. Hún sagði menn skiptast
í nokkra hópa í afstöðu sinni gagn-
vart þessu frumvarpi og tilheyrði hún
þeim sem teldi þessar hugmyndir
vera áhugaverðar en erfiðar í fram-
kvæmd. Valgerður sagðist að sumu
leyti taka undir með þeim teldu að
þetta framvarp ætti að bíða þar til
húsnæðislöggjöfin hefði verið tekin
til endurskoðunar í heild.
Guðmundur Agústsson (B/Rvk)
sagði þingmenn Borgaraflokksins
hafa lagt fram heilsteyptar tillögur
í húsnæðismálum. Þetta framvarp
væri einn angi af þeim tillögum og.
í anda frumvarpsins. Honum hefði
þó þótt nær að lagðar hefðu verið
fyrir þingið tillögur um heildarendur-
skoðun á húsnæðiskerfínu.