Morgunblaðið - 07.05.1988, Side 56
56
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. MAÍ 1988
Stykkishólmur:
Barna- og unglingastarf
SEINASTI fundur í bamastúk-
inni Björk nr. 94 á þessu starfs-
ári var haldinn laugardaginn 23.
aprO sl. og mættu yfir 100 félag-
ar á fundinum sem var mjög
áhrifaríkur.
Fréttaritari hefir verið gæslu-
maður þessa ágæta félagsskapar
tæp 40 ár og er það eitt af hans
störfum sem honum þykir einna
vænst um. Grunnskólinn hefir stað-
ið með þessu starfí af lífí og sál
og þennan fund annaðist 1. bekkur
undir stjóm yfírkennara, Gunnars
Svanlaugssonar. Gæslumaður
þakkaði veturinn, hvatti til dáða og
óskaði gleðilegs sumars. Bað starf-
inu blessunar í framtíð.
Lúðvíg Halldórsson skólastjóri
flutti þakkir skólans og gleði sína
yfír framgangi þessa góða starfs.
Lárus Kristinn Jónsson, sem hefír
um Qölda ára verið umsjónarmaður
skólans og hjálparhella bamastúk-
unnar, átti um þetta leyti 75 ára
afmæli og var þess minnst og flutti
Lúðvíg honum kveðjur og þakkir
frá bömum, unglingum og starfsliði
skólans og afhenti honum ávarp og
veglega gjöf sem Láms þakkaði
með því að rifja upp kærar minning-
ar í sambandi við skólann. En Lár-
us hefír alla sína ævi verið búsettur
í Hólminum.
Þá fóm fram mörg og góð hag-
nefndaratriði 1. bekkjar og Haf-
steinn Sigurðsson tónlistarkennari
lauk svo dagskrá með undirleik
undir blokkflaututónlist sem þær
Björg Elvarsdóttir og Ragnheiður
Vignisdóttir léku en Hafsteinn lék
á harmoniku. Var þetta athyglis-
vert atriði sem innilega var fagnað.
Þannig lauk þessu starfsári, en
hugað er að því að fara í stúkuferð-
ina um Dalasýslu í lok maímánaðar
og koma við í Mjólkurstöðinni þar.
Og var þeirri hugmynd fagnað.
Og þar með lauk 61. starfsári
þessa ágæta félagsskapar bama í
Stykkishólmi.
- Arni
Morgunblaðið/Ámi Helgason
Frá fundi bamastúkunnar Bjarkar i Stykkishólmi.
fofcíÉí
W W W* Ur'
slM<f f»»iB
KOMA ^0!
Spænsk hönnun og spænsk smíði
hafa sjaldan átt eins mikilli
velgengni að fagna og núna.
í Gráfeldi við Borgartún gefst þér
tækifæri til að kynnast spænskum
straumum í húsgagnasmíði. Borð,
stólar, sófar, rúm, Ijós, hillur.
Allt gæðahönnun sem sómir sér
vel hvar sem er.
GRÁFELDUR
Borgartúni 28 sími 623222
Það gengur á ýmsu hjá hjónakomunum Goldie Hawn og Kurt Russell
í Fyrir borð.
Skassið tamið
Kvikmyndlr
Sæbjörn Valdimarsson
BÍÓHÖLLIN:
FYRIR BORÐ - „OVERBOARD“
Leikstjóri Garry Marshall. Hand-
rit Leslie Dixon. Tónlist Alan
Siivestri. Kvikmyndatökustjórn
John A. Alonzo. Framleiðendur
Alexandra Rose og Anthea Syl-
bert. Aðalleikendur Goldie
Hawn, Kurt Russell, Edward
Herrmann, Katherine Helmond,
Michael Hagerty, Roddy McDow-
ail. Bandarísk. MGM 1987.
í upphafí sjáum við Goldie Hawn
sem gjörsamlega óþolandi, forríkt
skass sem siglir í vellystingum um
sólbakað Kyrrahafið á snekkju
sinni. Sökum vélarbilunar verður
gnoðin að leita inná krummaskuð
nokkurt í Oregon til viðgerðar.
Hyggst kvensniftinn þá nota
tímann til að koma reglu á í skó-
geymslum sfnum og ræður til þess
smið úr landi (Russell). Verða með
þeim fáleikar nokkrir, ekki síst þar
sem hún neitar að greiða smiðslaun-
in. Er nú skemmst frá að segja að
á útstíminu fellur pilsvargurinn fýr-
ir borð og fréttist næst af henni á
héraðssjúkrahúsinu. Er hún þar
talin bæði óalandi og illfeijandi.
Að auki hefur hún misst minnið.
Við þessar fréttir sjá tveir herra-
menn sér leik á borði; eiginmaður
hennar vill ekkert við hana kannast
en verður frelsinu feginn og upphef-
ur gjálífi mikið, hinn er smiðsblókin
sem hefnir sín nú grimmilega. Fer
á spítalann og fullvissar sjúkrahús-
yfirvöld að hann sé eiginmaður
þeirrar minnislausu. Hún heldur því
heim með „bónda" sínum og tekur
nú við sannkölluð martröð. „Heimil-
ið“ er hjallur sem tæpast heldur
vatni né vindi, að auki á snikkarinn
fjóra strákorma, hvern öðrum
óprúttnari. Og þeir kalla hana nátt-
úrlega mömmu!
Það verður ekki af Hawn skafíð
að hún er með albestu gamanleik-
konum vestan hafs þegar hún hefur
úr góðu efni að moða. Látæðið og
sérstaklega tímasetningin er henn-
ar aðal. En því miður vill sá bögg-
ull fylgja skammrifi að blessuð
stúlkan fínnur oftast hjá sér knýj-
andi þörf til að prédika yfír múgn-
um. Fyrir borð fer ekki varhluta
af þessum madonnukomplexum
stjömunnar sem uppgötvar hér að
ekki er allt fengið með ríkidæminu
og ýmislegt það sem teljast má eft-
irsóknarverðast á jörðu hér er ekki
falt fyrir fé. Það stendur hvorki
Claude Montana né Armani á ham-
ingjunni.
Þrátt fyrir stöku spretti þá fer
þessi nýjasta gamanmynd leikkon-
unnar (og manns hennar) aldrei
virkilega í gang. Hún er létt og
brosleg, einkum atriðin í kringum
sjónvarpsfréttamennskuna á
krummaskuðinu. Fagmannlega að
öllu staðið, vandamálið er einfald-
lega ekki nógu fyndið handrit. Þeg-
ar stórstjama á borð við Hawn á f
hlut vill maður eiga í vændum hlát-
urrokur annað slagið, afþreyingu
af fyrstu stærðargráðu. Ævintýrið
verður ádeilunni yfírsterkara.
Brids
Amór Ragnarsson
Bridsdeild Hún-
vetningafélagsins
Tvær umferðir eru búnar af fímm
í barómeterkeppninni og stefnir í
hörkukeppni efstu para.
Staðan:
Gunnar Bergsson — Jóngeir Hlinarson 114
Cyrus Hjartarson — Hjörtur Cyrusson 112
Sæmundur Bjömsson — Hrefna Eyjólfsdóttir 102
Rafn Kristjánsson — Þorsteinn Kristjánsson 101
Tryggvi Gíslason — Gísli Tryggvason 101
Erla Ellertsdóttir — Kristfn Jónsdóttir 99
Þriðja umferð verður spiluð nk.
miðvikudag kl. 19.30 í Skeifunni
17, þriðju hæð. Keppnisstjóri er
Jóhann Lúthersson.
Enn er einum leik ólokið í sveita-
keppninni en hann verður væntan-
lega spilaður nk. sunnudag.
Bridsfélag’ Breiðholts
Sl. þriðjudag var spilaður eins
kvölds tvímenningur.
Röð efstu para var þessi:
A-riðill, 14 para
Lárus Hermannsson —
Gunnar Þorkelsson 195
María Ásmundsdóttir —
Steindór Ingimundarson 184
Jón Hersir Elíasson 184
Guðmundur Aronsson —
Jóhann Jóelsson 182
Stefán R. Jónsson —
Guðmundur Grétarsson 173
B-riðiU, 12 para
Baldur Bjartmarsson —
Helgi Skúlason 138
Guðjón L. Sigurðsson —
Ólafur Tryggvason 131
Jón Ingi Ragnarsson —
Burkni Dómaldsson 128
Næsta þriðjudag verður spiluð
firmakeppi. Spilaður verður venju-
legur eins kvölds tvímenningur og
er öllum heimil þátttaka meðan
riðlaskipan leyfir. Spilað er í Gerðu-
bergi kl. 19.30 stundvíslega.
Bridssamband Vesturlands
Vesturiandsmót í tvímenningi
var haldið í Stykkishólmi dagana
29. og 30. aprfl sl. Spilaður var
barómeter tvímenningur með þátt-
töku 16 para. Vesturlandsmeistarar
urðu Hreinn Bjömsson og Jón
Valdimar Bjömsson frá Akranesi.
Staða eftu para: Hreinn Bjömsson —
Jón V. Bjömsson Þór Qeirsson — 64
Erlar Kristjánsson Níels Guðmundsson — 58
Jón Þ. Bjömsson Halldór Hallgrímsson — 50
Karl Ó. Alfreðsson Ellert Kristinsson — 50
Kristinn Friðriksson Alfreð Viktorsson — 49