Morgunblaðið - 07.05.1988, Page 57
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. MAÍ 1988
5?
SÍNE-félagar í New York:
Svanhildur Bogadóttir
nýtur fyllsta trausts okkar
Morgunblaðinu hefur borizt
eftirfarandi ályktun, sem sam-
þykkt var einróma á vorfundi
SINE í New York 30. apríl 1988:
Að gefnu tilefni vilja SÍNE fé-
lagar í New York taka það fram
að Svanhildur Bogadóttir, fulltrúi
SÍNE í stjóm LÍN, nýtur fyllsta
stuðnings og trausts okkar. Við
þekkjum Svanhildi af góðu einu,
því að hún sýndi mikinn dug og
kraft er hún starfaði sem trúnaðar-
maður SÍNE í New York 1986-
1987. Áður en hún kom til starfa
sem trúnaðarmaður hafði starf-
semi hér legið niðri um nokkurt
skeið.
Svanhildur hefur sýnt það með
starfí sínu á vegum SÍNE hér í
New York og í sijóm LÍN að hún
lætur pólitíska flokkadrætti ekki
hafa áhrif á afstöðu sína í hags-
munamálum námsmanna erlendis.
Áhugi og umhyggja fyrir kjöram
námsmanna ræður gjörðum henn-
ar.
Við viljum lýsa furðu okkar og
óánægju með starfshætti og fram-
komu formanns og framkvæmda-
stjóra SÍNE, Kristjáns Ara Arason-
ar. Hann og meirihluti sjómar
SÍNE hunsaði vilja sumarráðstefnu
SÍNE um að efnt yrði til aukakosn-
inga um laus sæti í stjóm SÍNE.
Rökin vora þau að það yrði of
kostnaðarsamt. Samt sem áður
hefur formaðurinn séð sér fært að
leggja íjármuni félagsmanna í
stofnun pólitískrar útvarpsstöðvar,
án þess að bera það undir félags-
menn. Enn fremur hafa Qármunir
SÍNE verið notaðir til að veita
pólitísku félagi í Háskóla íslands
fjárhagsstuðning. Við teljum það
ekki í verkahring SÍNE að niður-
greiða ferðir í kvikmyndahús fyrir
pólitíska félagshópa í Háskóla ís-
lands.
Kristján Ari Arason hefur þegið
laun upp á nærri 100.000 krónur
á mánuði sem framkvæmdastjóri
SÍNE. Samt sem áður hefur hann
ekki séð sér fært að vera á skrif-
stofu SÍNE nema endram og sinn-
um. í heila þrjá mánuði náði trún-
aðarmaður SÍNE í New York ekki
í framkvæmdastjórann á auglýst-
um símatímum. Við fordæmum
það að framkvæmdastjórinn skuli
láta SÍNE greiða sér dagpeninga
í níu daga er hann dvaldist erlend-
is. Þessar greiðslur vora ekki bom-
ar undir stjóm SÍNE og ekki hægt
að sjá að ferð hans hafí á nokkum
hátt verið vegna málefna SÍNE.
Við krefjumst þess að stjóm SÍNE
fái tafarlaust óháða löggilta endur-
skoðendur til að yfirfara fjárreiður
og bókhald SÍNE vegna yfírstand-
andi starfsárs og niðurstöður verði
kynntar félagsmönnum.
Við teljum ógeðfellt hvemig
framkvæmdastjóri SÍNE hefur
notað Sæmund, málgagn náms-
manna erlendis, til persónulegra
svívirðinga og árása á fólk sem
hefur unnið það eitt til saka að
hafa ekki sömu stjómmálaskoðanir
og hann. Það er skylduaðild að
SINE og því er það skylda forráða-
manna félagsins að gæta þess að
ekki sé stunduð flokkapólitík f
nafni þess.
Kristján Ari Arason nýtur ekki
trausts okkar til að gegna áfram
trúnaðar- og ábyrgðarstörfum í
okkar nafni. Það er afdráttarlaus
krafa okkar að hann láti tafarlaust
af störfum sem framkvæmdastjóri
SÍNE og segi af sér formennsku.
F.h. New York deildar SÍNE
Sólveig Hreiðarsdóttir,
trúnaðarmaður (sign.)
611106.
Kristinn Sigriðarson,
stjómarmaður (sign.) s.
901-201-333-8376.
Konráð Gylfason, stjóm-
armaður (sign.) s. 901-
718-869-1364.
Gunnar Björnsson
Sellótón-
leikar í
Egilsstaða-
kirkju
GUNNAR Bjömsson heldur tón-
leika í Egilsstaðakirkju sunnu-
Hnginn 8. maí kl. 17.00.
Á efnisskránni era þijár svftur
fyrir einleiks-selló eftir J.S. Bach;
nr. I í G-dúr, nr. II í d-moll og nr.
IH í C-dúr, sem hann samdi meðan
hann vann hjá Leópold kjörfursta
af Cöthen á áranum 1717 til 1723.
(FréttatUkynnins)
AFIHISTILBOD 8L OG HERTZ
Flug og bíll í Kaupmannahöfn:
FVRSTA VDÍW
IRflT!
Eina skilyröiö er að bóka bílinn í 2 vikur
eða lengur. Þá dregst sjálfkrafa af
verðinu einnar viku leigugjald, - og
tryggingargjaldið að auki!
Ódýrara og þægilegra gerist það varla.
Þú flýgur með Flugleiðum til
Kaupmannahafnar á laugardags-
morgni. Áflugvellinum bíðurþín nýr
eða nýlegur gæðingurfrá//&/£?■
Þaðan eru þér allir vegirfærir;
• Inn í líflegastemmningu
Kaupmannahafnar; Strikið, Circus
Benneweis, Dýragarðurinn, götulífið,
veitingahúsin að ógleymdu Tívolíinu o.fl.
o.fl. • Með ferjunni yfir til Svíþjóðar og
Noregs. • Inn í mið-Evrópu;áeinum
deginærðuinníRínardalinn! • Til
Englands. Það er ekki nema dagskeyrsla í
ferjuna. • Niðurtil Suður-Evrópu; þú
nærð án nokkurs asa til Spánar og til baka
átveimurvikum.
Staðfestu
fyrir 25. maí -það gefur
stórkostlegan vinningsmöguleika.
(sumar drögum við glæsilegan vinning úr
staðfestum bókunum, hvort sem þar eru
2,5, eða 7 farþegar:
Flug fyrir alla til hvaða áfangastaðar
sem er á áætlun Flugleiða og
glæsikerra í 2 vikur frá íffárfrR
-FRÍTT
býður betur
Ekkert kílómetragjald.
Vandað vegakort.
Tölvuútskrift með leiðbeiningum
um auðveldustu leiðirtil helstu
áfangastaða.
Afsláttarbók með margskonar
afslætti á gististöðum,
skemmtistöðum, leikhúsum,
skemmtigörðum og víðar.
Handhæg taska að gjöf, - tilvalin
fyrir léttan farangur.
Krakkapakki handa börnunum,
- spil, myndablöð og fleira
skemmtilegt.
Samvinnuferdir - Landsýn
Austurstræti 12 • Sími 91-69-10-10
Hótel Sögu við Hagatorg ■ 91 -62-22-77. Akureyri: Skipagötu 14 • 96-2-72-00