Morgunblaðið - 07.05.1988, Page 66
I
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. MAÍ 1988
KNATTSPYRNA / REYKJAVIKURMOTIÐ
„Þekkjum ekki ann-
að en vera í úrslitum
á gervigrasinu"
- segirÁsgeirElíasson, þjálfari Fram. Úrslitaleikur
Fram og KR á morgun.
„ÉG Irt fyrst og fremst á
Reykjavíkurmótiö sem œf-
ingamót, en aö sjálfsögöu
stefnum viö ávallt að sigri.
Þetta er fjóröa Reykjavíkur-
mótiö á gervigrasvellinum og
ífjóröa sinn, sem viö leikum
til úrslita. Við þekkjum ekki
annað en vera í úrslitum á
gervigrasinu og því er óg án-
œgður með mótið,“ sagöi
Ásgeir Elíasson, þjálfari
Fram, aðspuröur um úrslita-
leik Fram og KR, sem verður
annað kvöld og hefst klukkan
20.30.
Ian Ross, þjálfari KR, er heldur
ekki ókunnur úrslitaleikjum á
gervigrasinu, stýrði Valsmönnum
til sigurs í fyrra og liðið lék til
úrslita undir hans stjóm gegn
Pram 1985. „Öll mót skipta máli
og þeir sem taka þátt hljóta að
stefna að sigri. Þeir sem gera það
ekki eiga einfaldlega ekki að vera
með. í þessu móti fá lið, sem leika
í neðri deildum, gott tækifæri til
að etja kappi við lið í fyrstu deild,
en fyrirkomulagið gerir það að
verkum að betri liðin fá fleiri leiki
og um leið góða leikæfingu fyrir
íslandsmótið," sagði Ross.
Fram sigraði f riðlinum
Reykjavíkurmótið er leikið í
tveimur riðlum og fara tvö efstu.
liðin í hvorum riðli í undanúrslit.
Fram og KR voru í sama riðli og
vann Fram 2:0 í leik liðanna í riðl-
inum, sem fram fór við verstu
hugsanlegu veðurskilyrði. „Þeir
voru betri á öllum sviðum og óveð-
rið afsakar ekki tap okkar. Hins
vegar höfum við vonandi lært af
mistökunum og ef svo er kvíði ég
ekki úrslitunum," bætti Ross við.
Ásgeir sagði að í umræddum leik
Ásgslr Elfasson.
hefðu Framarar haft undirtökin
og ráðið betur við veðrið, „en á
morgun verður leikið við aðrar og
betri aðstæður. Bæði liðin eru í
lan Ross.
betri leikæfíngu, en ég held að
það lið sigri, sem vinnur betur án
boltans."
Marglr landsllösmenn
Fram og KR stilla upp sínu sterk-
asta liði á morgun nema hvað
Framarinn _ Kristinn Jónsson er
meiddur. í byijunarliði Fram
verða sjö landsliðsmenn, sem voru
í landsleikjaferðinni á dögunum,
en KR-ingamir voru þrír í sömu
för. Þjálfaramir vom sammála
um að ferðin og úrslit leikjanna
gætu setið í þessum mönnum en
eins gætu þeir tvíeflst við töpin,
því titill væri í veði.
Fram vann Víking 5:3 eftir fram-
lengingu og vítaspymukeppni í
undanúrslitum og KR vann Val
1:0. Víkingur og Valur leika um
þriðja sætið í dag og hefst viður-
eignin klukkan 15.
KNATTSPYRNA
„Hef ekki gefið kost á mér
í neinn ákveðinn landsleik"
- segir Ásgeir Sigurvinsson, fyrirliði Stuttgart
„ÞAÐ er svekkjandi aö fá ekki
tœkifœri til aö leika, nú þegar
vellirnir hór eru orðnir góðir
og tœkifœri gefst til að leika
góða knattspyrnu," sagði Ás-
geir Slgurvinsson, sem er enn
ekki orðinn góður eftir meiösli
í nára, í samtali við Morgun-
blaðið í gær.
Eg hef enn ekki gert upp hug
minn hvort að ég hætti að leika
með landsliðinu. Ég ætla að fá mig
fullkomlega góðan og síðan mun
það koma í ljós hvað ég geri. Sigi
Held, landsliðsþjálfari íslands, hef-
ur rætt við mig, en ég sagði honum
að ég myndi ekki spá í spilin fyrr
en eftir þetta keppnistímabil. Nei,
ég hef ekki gefíð kost á mér í neinn
ákveðinn landsleik, sem er fram-
undan," sagði Ásgeir, sem sagðist
ætla að taka sér gott sumarfrí, til
að fá sig góðan fyrir næsta keppn-
istímabil.
GETRAUNIR
Á fimmtu milljón
í fyrsta vinning?
ikil sala hefur verið í get-
raunaseðlum í vikunni enda
óvenju hár pottur í boði. Fyrsti
vinningur hefur ekki gengið út
undanfamar þijár vikur og þvf
bætast rúmlega tvær milljónir í
pottinn, en gert er ráð fyrir að á
fímmtu milljón verði í fyrsta vinn-
ing í dag. Þá lýkur starfsári ís-
lenskra getrauna og verður pott-
urinn greiddur út til þeirra sem
hafa flesta leiki rétta og þarf
ekki tólf rétta eins og áður í vetur.
„Salan hefur tekið mikinn kipp
og í gær þurfti að prenta fleiri
miða til að anna eftirspum. Ef
heldur sem horfir verða á fímmtu
milljón í fyrsta vinning," sagði
Anna Guðmundsdóttir hjá Get-
raunum.
SPÁÐU í LiÐÍN
SPJLADU MED
Hægt er að spá í leikina símleiðis og
greiða fyrirmeð kreditkorti.
Þessi þjónusta er veittalla föstudaga frá kl. 9:00
til 17:00 og laugardaga frá kl. 9:00 til 13:30.
Síminn er 688 322
f\ö
rfa|dur
&
ISLENSKAR GETRAUNIR
- eirti lukkupotturinn þar sem þekking
margfaldar vinningslíkur.
Leikir 7. maf 19SS K
1 X 2
1 Chelsea - Charlton 2 Coventry - Q.P.R. 3 Everton - Arsfenal :.‘j
4 Man. United - PortsmoUth 5 Newcastle - West Ham 6 Norwich - Wimbledon
7 Nottingham Forest - Oxford 8 Sheffield Wed. - Liverpool 9 Southampton - Luton
10 Middlesbro - Lelcester 11 Millwall - Blackburn 12 Swindon - Aston Vllla
. n • ; i.
TTT
tt—: r:r:—r
l •,:411 i i i I r 111
* 1
TTTTT-
KORFUBOLTI
Kolbolnn Pálsson.
Kolbeinn
Pálsson
gefur kost
<H}.rjnul!3lJtt |t»i:
- til formennsku
KOLBEINN Pálsson, fyrrum
landsliðsmaður f körfuknattleik
úr KR, hefur ákveöiö aö gefa
kost á sór sem formaður Körfu-
knattleikssambands íslands.
Ársþing sambandsins hefst í
dag á ÍSÍ-hótelinu í Reykjavfk.
Þetta framboð kom mjög snöggt
upp. Það er margt að gerast
í körfuknattleiknum. Mörg
skemmtileg verkefni, sem vert er
að vinna að. Nýr ungverskur lands-
liðsþjálfari er væntanlegur og þá
verður Norðurlandamótið hér á
landi í vor. Framtíðin er björt hjá
körfuknattleiknum á íslandi. Það
væri gaman að koma aftur til starfa
fyrir körfuknattleiksíþróttina,"
sagði Kolbeinn í samtali við Morg-
unblaðið í gær.
Eins og hefur komið fram þá gefur
Bjöm Björgvinsson, formaður KKÍ,
ekki kost á sér til endurkjörs. Hins
vegar eru allar líkur á að Kristinn
Albertsson, gjaldkeri KKÍ, gefi kost
á sér til formennsku sambandsins
á þinginu um helgina. . .<>!<<•
(t I i 11) l i< r:i r £ v nllfsf tlif
„...I .nriii (V tLi n
ÍPfémR
FOLK
■ WILLIAM Ayache, sem lengi
gerði garðinn frægan með franska
knattspymuliðinu Nantes er kom-
inn „heirn" á ný. Ayache var seldur
til Parfs SG og þaðan til Marseille
en er nú kominn aftur til Nantes,
þar sem hann skrifaði undir fimm
ára samning.
■ MEIRA frá Frakklandi: talið
er lfklegt að Vestur-Þjóðveijinn
Karlheinz Förster fari frá Mar-
seille í vor. Lið í Sviss og á ítaliu
em á höttunum á eftir honum og
er reiknað að Neuchatel Xamax f
Sviss hreppi hnossið. Eftirmaður
Försters hjá Marseille er talinn
verða Brasiliumaðurinn Julio
Cesar sem nú leikur með Mont-
pellier.
■ DOMINIQ UE Byotat, mið-
vallarleikmaður hjá Bordeaux,
kann ekki við sig f vínræktarhérað-
inu kunna. Hann lék áður með
Mónakó og vill helst komast aftur
til furstadæmisins. Líkur em á að
félögin komist að samkomulagi,
Ieikmaðurinn fari niður að Miðjarð-
arhafinu á ný og Bordeaux fái
framheijann Dib í staðinn, og pen-
ingagreiðslu að auki.
■ ERIC Cantona heitir nýjasta
stjaman sem alinn er upp hjá Aux-
erre, en félagið hefur alið upp
margan snjallan knattspymumann-
inn. Hann er framheiji og aðalmað-
ur U-21 árs landsliðs Frakka, sem
sló Englendinga út úr Evrópu-
keppninni á dögunum. Samningur
Cantona við Auxerre rennur ekki
út fyrr en 1994. Stóm félögin em
þegar farin að renna hým auga til
leikmannsins, og em Matra Racing
og Marseille helst nefnd í því sam-
bandi. Auxerre er tilbúið að láta
leikmanninn fara hvert sem, þrátt
fyrir að langt sé þar til samningur
hans rennur út, en fyrir rétta fjár-
hæð. Cantona er sem sagt til sölu;
fyrir 22 milljónir franskra franka.
Það jafngildir tæplega 151 milljón-
um íslenskra króna.
■ FJÖLNIR, hið nýstofnaða
Ungmennafélag Grafarvogs, hélt
fjölskylduhlaup 1. maí í samvinnu
við Olís. Vel á þriðja hundrað
manns mættu á þennan fyrsta
íþróttaviðburð í hverfínu og var al-
gengt að sjá alla fjölskylduna
hlaupa saman. Yngstu þátttakend-
umir muna hafa verið þriggja ára
í þessu 2,5 km langa hlaupi. Sigur-
vegari varð Jón Gíslason á 10,34
mín. í öðm sæti varð ólafur Þor-
steinn Blomberg, 13 ára, á 10,48
mfn. Guðmundur Kristjánsson
varð f þriðja sæti á tímanum 11,16.
Næstir komu Gunnar Sverrir
Harðarson, 10 ára, með tímann
11,36, Birgir Hilmarsson, 10 ára,
á 11,41 og Stefán Ari Stefánsson,
12 ára, á 11,51 mín. í tilkynningu
frá UMFÍ segir að íþróttaaðstaðan
sé heldur fátækleg á svæðinu enn
sem komið er, en í sumar sé fyrir-
hugað að stunda æfingar í knatt-
spymu og fijálsum íþróttum fyrir
yngstu flokkana í Grafarvogi.
I BOBBY Robson, landsliðs-
þjálfari Englands, heldur tryggð við
Peter Shilton, markvörð Derby.
Margir hafa talið að Shilton, sem ’v
verður 38 ára í sumar og hefur leik-
ið 95 landsleiki, eigi að víkja fyrir
Chris Woods. „Að mínu mati er
Shilton bestur. Hann er í mjög
góðri æfíngu. Woods verður að
sýna að hann sé betri til að yfírtaka
markvarðarstöðuna," segir Rob-
■ GRAHAM Roberts hefur
líklega leikið sinn síðasta leik fyrir
Glasgow Rangers. Hann lenti í
miklu rifrildi við Graeme Souness,
framkvæmdastjóra Rangers, eftir
að liðið tapaði fyrir Aberdeen um
sfðustu helgi. f kjölfar þess lýsti
Souness því yfir að um leið og
hann fengi viðunandi tilboð í Ro-
berts myndi hann selja kappann.
Þess má geta að fyrir nokkrum vik-
um framlengdi Roberts samning
sinn við Rangers.
Uniiil jg3I 'JEE3>( jjku: 36 t 51<i
JlfJw’ 1' Í31!!',l SJ tr.vl J I »
ll