Morgunblaðið - 15.06.1988, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 15.06.1988, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ 1988 VSÍ um bráðabirgðalögin: Útiloka ekki kjarasamninga NIÐURSTAÐA greinargerðar Vinnuveitendasambands íslands til stjórnvalda vegna samninga ÍSAL og verkalýðsfélaganna er sú að þeir brjóti ekki í bága við bráðabirgðalögin, þar sem ekkert í lögun- um bendi til þess að þeim hafi verið ætlað að koma i veg fyrir að gildir samningar kæmust á á milli hinna ýmsu samningsaðila með samþykkt samningstillagna sem fyrir lágu og lögskýringareglur leyfi ekki þá túlkun laganna. Friðrik Sophusson, starfandi forsætisráð- herra, segir að greinargerðin verði kynnt ráðherrum og hún ásamt greinargerð verkalýðsfélaganna væntanlega rædd á ríkisstjómar- fundi á morgun fimmtudag. Greinargerðin er lögð fram að tilmælum ríkisstjómarinnar, þar sem ríkislögmaður hafði komist að þeirri niðurstöðu að undirritað samningstilboð vinnuveitenda, sem lagt var fram fyrir gildistöku bráða- birgðalaganna jafngilti ekki gildum kjarasamningi og því bryti samn- ingurinn í bága við lögin. I greinargerðinni segjr að í reynd sé enginn efnislegur munur á þeirri samningstillögu, sem studd sé sam- þykki samninganefndar verkalýðs- félaganna, og þeirri, sem vinnuveit- endur beini beint að hlutaðeigandi verkalýðsfélögum. Lagalega komist samningur ekki á milli aðila fyrr en þar til bærir aðilar hafa sam- þykkt hann, hvort heldur það eru stjómir félaganna, félagsfundir eða aliir félagar í allshetjaratkvæða- greiðslu. Það sé hins vegar mál- venja að segja samning gerðan þeg- ar samninganefnd áriti tillögu að samningi og sömu grunnreglur hljóti að gilda þegar fram kemur tillaga að samningi, sem síðar sé samþykkt af réttum aðilum. Síðan segin „Af því leiðir að telja verður tilvísun laganna til gerðra samn- inga eins ná til samningstillagna, þótt ekki séu þær með ótvíræðum hætti áritaðar af fulltrúum viðkom- andi verkalýðsfélaga, enda sæti þessar tillögur síðar sömu meðferð og aðrar samningstillögur, sem fyr- ir lágu við setningu bráðabirgðalag- Útlit fyrir gott berjaár Miðhúsum, Reykhólasveit. BLÓMGUN á lyngi virðist hafa tekist vel og ef tíð verður góð í júlí og ágúst ætti að verða mjög gott beijaár. Sérstaklega verður mikið um aðalbláber og kræki- beijaspretta gæti orðið góð. Ætla má að þroski beija verði heldur seint á ferðinni vegna þess hversu vorið var kalt, en það fer eftir sólfari og raka næstu mánuði. —Sveinn Friðrik Sophusson, starfandi for- sætisráðherra, sagði að ríkisstjómin myndi athuga greinargerðir aðila og í framhaldi af því taka ákvörðun um hvað eðlilegast væri að gera. I greinargerð VSÍ komi skýrt fram að það telji samningstilboðið til starfsmanna ÍSAL jafngilda kjara- samningi, þar sem það hafi komið fram fyrir gildistöku bráðabirgða- laganna. Á sama hátt sé það skýrt að VSÍ telji sig ekki geta gert aðra samninga en þessa meðan bráða- birgðalögin séu í gildi. Morgunblaðið/Júlíus Rennibrautin brátt tilbúin Að undanförnu hefur verið gert ráð fyrir að hún verði til- tekið afstöðu til þess hvort selt unnið við uppsetningu á 80 búin til notkunar í lok mánaðar- verði sérstaklega í brautina. metra vatnsrennibraut við ins. íþrótta- og tómstundaráð sundlaugina i Laugardal og er Reykjavíkur hefur enn ekki Landbúnaðarmálin rædd á ríkisstjórnarfundi: Ekkert ákveðið um niður- greiðslur eða útflutningsbætur Byggðastofnun láni 80 milljónir til loðdýraræktar FJÁRÞÖRF landbúnaðarins kom til umræðu á ríkisstjómarfundi í gærmorgun. Frestað var að afgreiða tillögur Jóns Helgason- ar landbúnaðarráðherra um lán- töku að upphæð 420 milljónir til greiðslu á útflutningsuppbótum og auknar niðurgreiðslur vegna verðlagshækkana á landbúnað- arvömm. Ágreiningur virðist milli Alþýðuflokks annars vegar og framsóknarmanna og sjálf- stæðismanna hins vegar um síðarnefnda þáttinn.Akvörðun um lántökuheimild tíl fiskeldis var einnig frestað milli funda. Stjómin náði hins vegar sam- komulagi um að beina því tíl Byggðastofnunar að hún beiti sér fyrir 80 miUjóna króna lán- veitingu tU loðdýrafóðurstöðva. „Það var skilningur okkar fram- sóknarmanna og kom fram hjá sjálfstæðismönnum einnig að það ætti að endurgreiða sama hlutfall af söluskatti á landbúnaðarvörur og ákveðið var við fjárlagagerðina. Eg hef sagt að tölumar, sem miðað- ar /oru við forsendur íjárlaganna, hljóti að hækka um leið og inn- heimta ríkisins á skattinum,“ sagði Jón Helgason landbúnaðarráðherra eftir fundinn. Hann sagði að land- búnaðarvörur hlytu að hækka ef söluskattur yrði ekki endurgreiddur í samræmi við hækkun þeirra. Friðrik Sophusson, iðnaðarráð- herra, sagði að sjálfstæðismenn hefðu lagt sama skilning í þetta mál og endurgreiða ætti söluskatt af landbúnaðarafurðum. „Þegar ákveðið var að taka söluskattinn af tilteknum landbúnaðarvörum töldum við að verðlagsbreytingar umfram þær sem þá voru áætlað- ar, ættu ekki að leiða til þess að ríkissjóður hagnaðist af söluskatti á þessum sömu vörum,“ sagði Frið- rik. Jón Baldvin Hannibalsson fjár- málaráðherra vildi ekki tjá sig um málið að öðru leyti en því að emb- ættismenn væru að vinna á grund- velli tillagna sem hann lagði fram sl. föstudag. Guðmundur Malmquist, forstjóri Byggðastofnunar, sagði að ætti stofnunin að veita 80 milljóna lán til loðdýrafóðurstöðvanna, væri ljóst að það fé yrði að fá að láni erlendis. Erík Sönderholm fyrr- um forstöðumaður Norræna hússins látinn Atak í landgræðslu: Byggir á framlögum fyr- irtækja og einstaklinga Selfoan. ÁTAK I landgræðslu hófst formlega í Gunnarsholti I gær er fyrstu framlögin til átaksins voru afhent. Landgræðsluátak- ið er til komið að frumkvæði Félags íslenskra stórkaup- manna sem samþykkti að minn- ast 60 ára afmælis sins með því að gangast fyrir átaki til að- stoðar Landgræðslu ríkisins við uppgræðslu lands. Verkefiiið Átak í landgræðslu verður starfrækt í 3 ár og þunga- miðjan í starfínu verður að afla Qár sem jafnóðum verður afhent Landgræðslunni til ráðstöfunar. Tillagan á aðalfundi Félags íslenskra stórkaupmanna var samþykkt að frumkvæði Áma Gestssonar forstjóra Globus hf. Stofnuð hefur verið framkvæmda- nefnd vegna þessa verkefnis og hefur Kristín Áðalsteinsdóttir ver- ið ráðin framkvæmdastjóri. Hún hefur aðsetur á skrifstofu Land- græðslu ríkisins við Hlemmtorg í Reykjavík. Merki landgræðsluá- taksins byggir á rofabarði og orð- unum: Græðum og græðum. Græðum ísland, ísland græðir. „Ég hef séð hvaða þrekvirki þessi stofnun getur unnið," sagði Ámi Gestsson forstjóri þegar hann afhenti Sveini Runólfssyni landgræðslustjóra fyrsta framlag- ið vegna átaksins. Sveinn lagði áherslu á að mestur raunveruleg- ur árangur næðist ef þjóðin öll sameinaðist um að taka á upp- græðslu lands á sem víðustum grundvelli. Hann fagnaði þessu framtaki og sagði það geta verið flárveitingavaldinu hvatning til að leggja fé á móti. Hann sagði mikið verk framundan í upp- græðslu landsins og það væri vel framkvæmanlegt að klæða það gróðri. Í því sambandi benti hann á að Gunnarsholtsjörðin hefði ver- ið ein eyðimörk fyrir 60 árum. -Sig. Jóns. ERIK Sönderholm, fyrrum for- stöðumaður Norræna hússins í Reykjavík, lést á heimili sínu í Kaupmannahöfn sl. mánudag, á 60. aldursári. Erik Sönderholm fæddist í Dan- mörku 11. október 1928. Hann lauk cand.mag. prófí í dönsku og þýsku árið 1953 og var sendikennari í dönsku við Háskóla íslands frá 1955 til 1962. Eftir það kenndi hann aðallega við Kaupmannahafn- arháskóla þaðan sem hann lauk doktorsprófi 1972. Erik Sönderholm tók við starfí forstjóra Norræna hússins 1. ágúst 1976 og gegndi því til 31. janúar 1981. Hann tók þá við prófessor- stöðu í dönsku og dönskum bók- menntum við Kaupmannahafnar- háskóla sem hann gegndi til dauða- dags. Sönderholm talaði lýtalausa íslensku og þýddi mörg íslensk bók- menntaverk á danska tungu, þar á meðal verk eftir Halldórs Laxness. Eftirlifandi eiginkona Eriks Erik Sönderholm Sönderholms er Traute Sönder- holm. Þau eignuðust tvö börn sem bæði fæddust á íslandi. Þrír sóknarprestar eru í barneignaleyfi ÞRÍR sóknarprestar, þær sr. Agnes M. Sigurðardóttir á Hvanneyri, sr. Yrsa Þórðardóttir á Hálsi í Fnjóskadal og sr. Sol- veig Lára Guðmundsdóttir á Seltjarnarnesi, eru i bameigna- leyfi um þessar mundir. Tveir prestanna, sr. Yrsa og sr. Agnes fæddu syni og er sonur sr. Yrsu hennar fyrsta barn en sonur sr. Agnesar hennar þriðja. Að sögn sr. Solveigar, sem væntir sín í lok þessa mánaðar, mun þetta vera í fyrsta sinn sem þrír sóknarprestar eru samtímis í bameignaleyfí, en ellefu konur hafa tekið prestvígslu hér á landi. i
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.