Morgunblaðið - 15.06.1988, Síða 4
4-
4
^or JVlffT. Sr 5TUO/*.nTT}JTVGTT/I GIGAJflTWOTOM
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ 1988
Þrjú hundruð Islendingar
dejja af völdum reykinga á ári
UM ÞAÐ bil 300 dauðsföll má
rekja til reykinga hér á landi á
ári hveiju. Jafnframt er dánar-
tíðni af völdum lungnakrabba-
meins á meðal íslenskra kvenna
ein sú hæsta S heiminum.
Þetta kemur fram í grein eftir
Jónas Ragnarson hjá Krabba-
meinsfélaginu og Guðjón Magnús-
son, aðstoðarlandlækni, er nefnist
„Reykingar, líf og dauði" og birtist
í nýjasta hefti tímaritsins Heil-
brigðismála, sem gefið er út af
Krabbameinsfélagi Islands.
Þar segir jafnframt að enn reykir
um þriðjungur allra fullorðinna ís-
lendinga, þrátt fyrir að mjög hafi
dregið úr reykingum síðustu tvo
áratugi.
Að meðaltali deyja um 35 karlar
og 30 konur af völdum lungna-
krabbameins á íslandi á ári hveiju.
Dánartíðnin hjá íslenskum konum
er ein sú hæsta í heimi. Reykingar-
menn eru að jafnaði í tíu sinnum
meiri hættu en aðrir á að fá þenn-
an sjúkdóm og er áætlað að 86%
dauðsfalla af völdum hans megi
rekja til reykinga. Það þýðir um
55 dauðsföll á ári, eða meira en
eitt á viku.
Samkvæmt greininni má rekja
um 25 dauðsföll á ári úr ýmiss
konar krabbameinum til reykinga,
til dæmis krabbamein í vélinda,
briskrabbamein, krabbamein í
munni og barkakýli og krabbamein
í þvagblöðru og nýrum. Því má
áætla að um 80 krabbameinsdauðs-
föll á ári megi rekja til reykinga,
eða flórða hvert dauðsfall úr þess-
um sjúkdómi.
Reykingamenn eru jafnframt í
tvöfalt til þrefalt meiri hættu en
aðrir á að fá kransæðasjúkdóma
og er talið að um 30% dauðsfalla
úr þessum sjúkdómum stafi af
reykingum. Nær 500 íslendingar
deyja ár hvert úr kransæðasjúk-
dómum og því má ætla að um 150
þessara dauðsfalla megi rekja til
reykinga.
Þá kemur fram að aðrir blóðrás-
arsjúkdómar en kransæðasjúk-
dómar hafa einnig verið tengdir
reykingum og er talið að um níu
af hverjum tíu sjúklingum sem fá
æðakölkun í útlimi reyki.
Dauðsföll af völdum berkjabólgu
og lungnaþembu er taldið að megi
í 80 til 90 prósent tilvika rekja til
reykinga og eru reykingamenn í
þrítugfaldri hættu miðað við aðra
á að fá þennan sjúkdóm.
Samkvæmt þessum niðurstöðum
má gera ráð fyrir að reykingar
valdi dauða um 250 manna á hveiju
ári, 150 karla og 100 kvenna. Það
er um sjötta hvert dauðsfall hjá
körlum og sjöunda hvert hjá kon-
um. Eru þá ekki talin með dauðs-
föll úr öðrum hjarta- og æðasjúk-
dómum en kransæðasjúkdómum
né heldur lungnasjúkdómum og
slysum. Væri það allt talið með
yrði fjöldi ótímabærra dauðsfalla
af völdum reykinga að minnsta
kosti um 300 á ári.
Þá eru ekki talin með dauðsföll
af völdum óbeinna reykinga, en í
grein Jónasar og Guðjóns er getið
bandarískrar könnunar þar sem
komist var að þeirri niðurstöðu að
slíkar reykingar eigi þátt í dauða
47.400 manna þar í landi á ári.
Það gæti jafngilt allt að 40 til 50
dauðsföllum hér á landi.
VEÐUR
Morgunblaðið/Sigurgeir
Flugvél Landgræðslunnar, TF-TÚN, dreifir áburði og grasfæi yfir
Vestmannaeyjum.
Landgræðsla ríkisins:
Áburði og gras-
fræi dreift í Eyjum
FLUGVÉL Landgræðslunnar,
TF-TÚN, var í Vestmannaeyjum
nú í byrjun júní og dreifði þar
40 tonnum af áburði og gras-
fræi. Að sögn Sveins Runólfsson-
ar Landgræðslustjóra er þessi
áburðardreifing framhald af
fyrri landgræðsluverkefnum á
Heimaey.
Uppgræðsla í Heimaey hófst
strax á fyrsta sumri eftir gosið
1973 og sagði Sveinn að eitthvað
hefði verið unnið þar að upp-
græðslu á hveiju ári síðan og væri
eyjan öll að verða græn á ný.
Dreift var víðs vegar um eyna en
fyrst og fremst þar sem vikurbreið-
umar voru stærstar. Einnig var sáð
í Helgafellið, í hlíðar Eldfellsins og
í Vestmannaeyjabæ. Borið var á í
Heijólfsdal þar sem gróður var
mjög illa farinn eftir gos en er nú
að mestu að ná sér aftur.
Flugmenn á TF-TÚN voru Pétur
Steinþórsson og Hafsteinn Heiðars-
son. Þeir hafa flogið hjá Land-
græðslunni í 12 ár en eru nú starfs-
menn Landhelgisgæslunnar. Land-
helgisgæslan annast viðhald á flug-
vélum Landgræðslunnar og flug-
menn frá þeim fljúga minni flugvél-
unum og að hluta til á stóru vél-
inni. Þó fljúga flugmenn Flugleiða
enn sjálfboðastarf á Douglas-vél-
inni eins og þeir hafa gert undanfar-
in 15 ár.
Að sögn Sveins er eitt stærsta
verkefni sumarsins á Haukadals-
heiði í Ámessýslu, þar sem sáð
verður grasfræi og borið á nær
6000 ha lands, sem er girt og frið-
að frá allri búfjárbeit. Sagði hann
að það hefði verið á þessum slóðum
sem mest af því moldroki sem gekk
yfír Suðurland á sl. ári hefði átt
upptök sín.
Önnur stór landgræðslusvæði em
við Skógey á Homafirði, í Þingeyj-
arsýslu, Suðumesin á Reykjanes-
skaga og svæði norð—austan við
Þingvelli. Sveinn sagði að lokum
að kapp væri lagt á samvinnu við
bæjar- og sveitarfélög um sameig-
inleg verkefni á sviði uppgræðslu
víðs vegar um landið.
Uppboð á frystíhúsi R.A. Péturssonar:
VEÐURHORFUR í DAG, 15. JÚNÍ 1988
YFIRUT t GÆR: Á Grænlandshafi er 995 mb lægð sem hreyfist
norðaustur, en suðvestur af írlandi er 1028 mb víðáttumikil hæð.
Áfram verður hlýtt austan- og norðaustanlands, en mun svalara í
öðrum landshlutum.
SPÁ: Suðvestanátt, víðast kaldi eða stinningskaldi. Smáskúrir eða
súld á Suðvestur- og Vesturlandi en bjart veður og allt að 20 stiga
hiti norðaustanlands.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA
HORFUR Á FIMMTUDAG: Suðvestanátt og smáskúrir og síðar
rigning vestanlands, en þurrt og bjart veður austanlands. Hiti verð-
ur 8—12 vestan til en 13—20 stig annars staðar.
HORFUR Á FÖSTUDAG: Sunnanátt og rigning á Suðvestur- og
Vesturlandi en þurrt að mestu annars staðar. Hiti 8—12 stig vest-
an tif en 12—18 stig austan til.
TÁKN:
Heiðskirt
•á
á
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
Alskýjað
y, Norðan, 4 vindstig:
' Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrimar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
r r r
r r r r Rigning
r r r
* r *
r * r * Slydda
r * r
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
-\ 0 Hitastig:
10 gráður á Celsius
ý Skúrir
*
V
Él
=E Öoka
= Þokumóða
’, ’ Súld
OO Mistur
4
K
Skafrenningur
Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
Id. 12:00 í gær að ísl. tíma
Akureyri Reykjavík hltl 19 9 veóur skýjað þokumóða
Bergen 12 léttskýjað
Helsinki 19 skýjað
Jan Mayen 3 suld
Kaupmannah. 22 léttskýjað
Narssarssuaq 4 rigning
Nuuk 1 snjókoma
Oaló 19 léttskýjað
Stokkhólmur 14 skýjað
Þórshöfn 12 skýjað
Algarve 19 skýjað
Amaterdam 19 skýjað
Aþena vantar
Barcelona 23 léttskýjað
Chicago 23 heiðskírt
Feneyjar 24 skýjað
Frankfurt 24 skýjað
Glaagow 20 reykur
Hamborg 17 skýjað
Las Palmas 24 léttskýjað
London 20 skýjað
Los Angeles 15 þokumóóa
Lúxemborg 22 léttskýjað
Madrid 19 skýjað
Malaga vantar
Mallorca 25 léttskýjað
Montreal 21 hálfskýjað
New York 26 mengun
París 24 skýjað
Róm 23 skýjað
San Diego 16 mistur
Winnipeg 14 alskýjað
Erfiðleikar raktir
til fisksölusvindls
Keflavik.
Nauðungaruppboð, þriðja og
síðasta, á hraðfrystihúsinu R.A.
Péturssyni í Njarðvík fer fram í
dag og er það annað frystihúsið
í Njarðvík sem lendir undir
hamrinum á tæpu ári. Hrað-
frystihúsið Sjöstjarnan var slegið
Útvegsbanka íslands á síðast-
liðnu hausti, en hann er einn
stærsti kröfuhafinn í þrotabúið
nú ásamt Fiskveiðisjóði og
Byggðastofnun. Einn kröfuhaf-
inn bauð 12 milþ’ónir króna i
eignir þrotabúsins á öðru og
síðasta uppboði.
Hraðfrystihúsið R.A. Pétursson
hefur verið starfrækt við Bolafót í
Njarðvík síðan 1974 og hefur á
þessum árum margsinnis fengið
viðurkenningar fyrir gott hráefni
og vöruvöndun. Erfíðleikar fyrir-
tækisins hófust á síðasta ári þegar
það seldi óvönduðum fiskkaup-
mönnum frá Hollandi 65 tonn af
ferskum fiski sem ekki fékkst
greiddur.
Fiskurinn var sendur flugleiðis
til Lundúna þar sem hann var sett-
ur á vörubíla og honum ekið til
meginlandsins. Eigendur hrað-
frystihúss R.A. Péturssonar höfðu
samband við viðskiptabanka sinn
til að kanna bankatraust hinsenska
fyrirtækis.
Eftir að viðskipti höfðu hafist
gengu hlutirnir hratt fyrir sig og
R.A. Pétursson flutti út um 65 tonn
af ferskfíski á stuttum tíma. Greitt
var með ávísunum og reyndist
mestur hluti þeirra innstæðulaus.
Málið var kært til hollensku lögregl-
unnar sem hefur nú handtekið 4
menn sem tengjast fisksölusvindl-
inu. í maí kom hollenskur rannsókn-
arlögreglumaður til íslands í beinu
framhaldi af handtöku fjórmenn-
inganna og er enn unnið að rann-
sókn málsins.
- BB
• !- LiSTAHATIÐ
——■ 1 ■■■——■
Dagskráin í dag
K1 20.00 Iðnó
Théatre de l’Arbre
„S.O.S. - látbragðsleikur
Yves Lebreton
K1 20.00 Þjóðleikhúsið
Black Ballet Jazz
frumsýning