Morgunblaðið - 15.06.1988, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 15.06.1988, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ 1988 21 Opna Austurlandsmótið: Polgar-fj ölskyldan í fararbroddi Skák Karl Þorsteins Polgar-fjölskyldan frá Ungveija- landi hefur verð aðsópsmikil á Opna Austurlandsmótinu í skák sem nú fer fram á Egilsstöðum. Systurnar þrjár sem eru á aldrinum ellefu til nítján ára eru í forystusætum á mótinu og karl faðir þeirra kemur skammt á eftir. Vafalaust er það hin yngsta, hin ellefu ára gamla Judit Polgar, sem vekur mesta at- hygli. Þegar þetta er skrifað hefur hún, ásamt Zsuzsu Polgar tapað fæstum vinningum keppenda í A- flokki. Jafnteflin eru einungis tvö en fómarlömbin fjögur. Já, það er vart furða að mætustu menn hvái. Hér á árum áður voru nefnilega krakkar vart komnir á fermingaraldur litnir homauga á skáksamkundum enda við valin- kunna snillinga með áratuga reynslu við skákborðið að etja. En nú er öldin önnur og ljóst að kreddukenningarnar þarfnast end- urskoðunar þegar meistaramir gef- ast upp hver á fætur öðmm eftir bráðsnjalla taflmennsku hinnar ungu snótar. Til marks um frábæra frammistöðu stúlkunnar þá nægja tveir vinningar líklegast í síðustu þremur umferðunum til að öðlast áfanga að stórmeistaratitli. Það er margir keppendur á titil- veiðum í mótinu. Vart þarf að geta þess að áfangi að alþjóðlegum meistaratitli er innan seilingar hjá Judit og Hannes Hlífar hefur nú góða möguleika að öðlast alþjóðlega meistaratign að afloknu mótinu. Eftir lélega bytjun hefur hann nú borið sigur úr býtum í fjórum skák- um í röð og til alls líklegur í barátt- unni um efstu sætin. Zsuza Polgar stendur einnig vel að vígi. Hún er elst af þeim systr- um, nítján ára gömul, og hefur þegar vakið mikla athygli víða um veröld. Margir af snjöllustu skák- meisturum heims hafa mátt lúta í lægra haldi í viðureignum gegn henni og líkt og Judit hefur hún einungis leyft tvö jafntefli. Aðrir keppendur í A-flokki mega við minna una. Léleg frammistaða enska stórmeistarans Plasketts kemur e.t.v. mest á óvart. Gæfan hefur aldrei verið fylgifiskur hans við skákborðið á íslandi og er skemmst að minnast er hann tap- aði sjö skákum í röð á skákmóti í Vestmannaeyjum um árið. Meðalstig keppenda í A-flokki voru 2405 Elo-stig áður en sá leiði atburður henti að Helgi Ólafsson þurfti að yfirgefa skákmótið af per- sónulegum ástæðum og strikast þær skákir sem hann hafði teflt út af þeim sökum. Keppendur hafa af þeim sökum teflt mismunandi margar skákir og getur það gefið viUandi mynd af stöðunni. í upphafi var gert ráð fyrir að mótinu væri skipt í tvo opna styrk- leikaflokka þar sern raðað væri eft- ir Elo-skákstigum. A síðustu stundu var hins vegar breytt um ráð og ákveðið að í A-flokki tefldu 10 keppendur en B-flokkur væri hins vegar opinn hveijum sem áhuga hefði á þátttöku. Sá hængur var þó á að einum keppanda var ofauk- ið í hinum efri flokki. Það vanda- mál leystist er þriðja systirin Soffia Polgar bauðst til að tefla sem gest- ur í B-flokki. Auðvitað hefur hún nægan styrkleika til þátttöku í A-flokki, enda hefur hún örugga forystu í B-flokki. Einungis karl faðir hennar uppskar það og spiluðu fjölskyldutengsl þar eflaust inní. Baráttan um næstu sæti er hatrömm og hvergi útséð hvernig henni lyktar. Aðbúnaður keppenda er með ágætum og við engan að sakast nema ef vera skyld' andstæðingana við að vera full fastheldnir á vinn- ingana. Lítum loks á sýnishorn af tafl- mennsku hinnar ellefu ára gömlu Judit Polgar. Það hefur komið fram að foreldrar stúlknanna eru mennt- aðir sálfræðingar og hafa helgað sig frama stúlknanna á skáksvið- inu. Almenn menntun stúlknanna er í þeirra höndum og meiri hluta ársins er fjölskyldan að heiman í á skákmótum um víða veröld. Að meðaltali segjast 'stúlkumar eyða fjórum til fimm klukkustundum á dag við skákrannsóknir og hafa fjöl- margir þekktir skákmeistarar verið þar tilkallaðir við leiðsögn. Og árangurinn er víst ekki amaleg- ur. . . Hvítt: Judit Polgar Svart: Hannes Hlífar Stefánsson Skandinavísk vörn 1. e4 - d5, 2. exd5 - Rf6, 3. d4 (Eftir 3. c4 — e6 kæmi upp alþekkt bragð sem drengirnir í taflfélaginu hafa gert vinsælt.) 3. — Rxd5, 4. c4 - Rb6, 5. Rf3 - g6, 6. Be2 - Bg7, 7. 0-0 - 0-0, 8. Rc3 - Rc6, 9. d5 - Re5, 10. Rxe5 - Bxe5, 11. Bh6 (Allt eru þetta leik- ir velþekktir úr teóríubókum en nú verður Hannesi fótaskortur. Eftir 11. — He8 taldi hann svartan mega vel við unan.) 11. — Bg7?, 12.- Bxg7 - Kxg7, 13. Dd4+ - f6, 14. c5 (Það er ljóst að hvítur hefur mun meira rými og drottningin er vel staðsett á miðborðinu. Staða hvíts er því mun betri.) 14. — e5, Hadl — a5, 18. a3 — axb4, 19. axb4 — f4, 20. d6! (Opinberar veik- leikana í svörtu stöðunni. Vamar- múrar svarta liðsaflans em harla veikir.) 20. - Rf6, 21. Rb5! - cxd6, 22. Db2 - Bf5, 23. Rxd6 - De7, 24. Bf3 - e4, 25. Bxe4! (Jud- it hefur ríka tilfínningu fyrir fléttu- taflmennsku og lítil gletta innsiglar hér sigurinn í þessari skák. Auðvit- að byggist fléttan á slæmri stað- setningu svörtu drottningarinnar.) 25. - Bxe4, 26. Hdel - Kh6, 27. f3 - b6, 28. fxe4 - bxc5, 29. bxc5 - Rh5, 30. e5 - De6, 31. Hf2 - Ha5, 32. c6 - Hc5, 33. Db7 — Dd5, 34. De7 og svartur gafst upp. Stórfellt liðstap er óum- flýjanlegt. 15. Dd2 - Rd7, 16. b4 - f5, 17. A REHTUB0K FftRDU MUN MEIRA ÚT EN ÞÚ IEGGURINN! r . n 1 VEXTIR A RENTUBÓKINNI HÆKKUPU FRÁ 1. JÚNÍ í ,36%, Þegar fara saman vel skipulagður sparnaður og öruggt og arðbært innlánsform, verður út- koman skínandi ávöxtun. Þannig er RENTUBÓKIN; þú færð mun meira út úr henni en þú leggur inn. Hún veitir þér vissu um að höfuðstóllinn fer stöðugt vaxandi að raunvirði, hvað sem allri verðbólgu líður. Þannig geturðu verið öruggur með sparifé þitt á RENTUBÓK, bók með traustum ávöxtunarkjörum. RENTUBÓKIN ber háa nafn- vexti og að sjálfsögðu tekur hún samanburði við verðlagsþróun. Þannig eru eiganda bókarinnar ætíð tryggðir raunvextir hvað sem verð- bólgunni líður. Hámarksávöxtun næst á RENTUBÓKINNI ef innstæðan stendur óhreyfð í 18 mánuði. Hún er þó að formi til óbundin. Engin þóknun er reiknuð af útteknu fé, sem staðið helur óhreyft á bókinni í 18 mánuði eða lengur. Kynntu þér nánar hvernig þú færð mest út úr Rentubókinni. Komdu í næsta Verzlunarbanka eða fáðu sendan bækling til þín. RENTUBÓK - hún rentar sig, þú nýtur lífsins! VeRZlUNRRÐRNKINN -vituavi <*te<5 fi&i! Bankastræti 5, Þarabakka 3, Þverholti 6, Mosfellsbæ, Laugavegi 172, Umferðarmiðstöðinni, Vatnsnesvegi 14, Keflavík. Grensásvegi 13, Húsi versluriarinnar.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.