Morgunblaðið - 15.06.1988, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ 1988
23
fólk nú er kannski meðvitaðra
gildi heilsusamlegrar spilatækni,
svo og gildi leikfimi og líkamsrækt-
ar. Dansarar byija alltaf daginn á
teygjuæfíngum. Tónlistarfólk mætti
þá sér til fyrirmyndar."
Látum vera að spyija Önnu
Guðnýju hvers vegna hún valdi
píanóið frekar en eitthvað annað, en
það er oft áberandi hvað píanóleikar-
ar sinna kammertónlist lítið. Hvers
vegna laðast hún þá að einmitt henni?
AGG: „Áður en ég fór í kammer-
deildina, var ég eingöngu í spilatím-
um í eitt ár. Strax og ég kom út,
fann ég mér fólk til að spila með,
því ég var alltaf viss um að ég vildi
kammertónlist. Leitaði í átt til henn-
ar og var mjög ánægð, þegar ég
frétti af þessari deild við skólann.
Mér fannst ég afar heppin að kom-
ast þarna inn. í skóla voru tungumál
alltaf bestu fögin mín og þau tengj-
ast einmitt ljóðasöng. Eg fékk svo
þjálfun í að segja söngvurum til.
Vikulega var ég svo í tímum ásamt
söngvara og var þá sagt til, rétt eins
og honum.
Núna vinn ég við söngdeildina í
Tónlistarskólanum í Reykjavík. Tek
þá söngvara í tíma einu sinni í viku
og fer bæði í ljóðin og tónlistina.
Þessi yfirferð spannar margt. Það
fer mikill tími í framburð. Við skóla
úti þykir sjálfsagt að söngvaraefni
sæki tíma í tungumálum, en er ekki
hér og það er að sjálfsögðu mjög
slæmt. Auk kennslunnar spila ég
mikið með öðrum, bæði söngvurum
og hljóðfæraleikurum."
Náið samband við útlönd
er tónlistarmönnum
lí f snauðsynlegt
Bæði Anna Guðný og Svava hafa
reynslu af því að sinna spilamennsku
hér og annars staðar. Hvemig geng-
ur að halda utan um verkefnin?
AGG: „Gallinn er að verkefnin
hafa tilhneigingu til að koma í hrönn-
um. Hér er yfírleitt of skammur tími
til stefnu, verkefnin undirbúin of
seint. Það bitnar sérstaklega á viða-
meiri og tímafrekari verkum. Allt
skipulag í kringum tónleikahald er
of laust í reipunum. Alltof mikið um
að tónlistarmenn þurfí ekki aðeins
að undirbúa sig undir að flytja verk
á tónleikunum, heldur þurfí einnig
að sjá um að kynna tónleikana og
stússast í öðru, sem til þarf. Það
gengur ekki upp til lengdar að þurfa
bæði að æfa og að skipuleggja."
SB: „Hér vantar betra skipulag í
kringum tónleikahald, en það vantar
líka nánara samband við útlönd. Að
þessu leyti er lífið í Evrópu auðveld-
ara. Samgöngur greiðari og tónlist-
arsamvinna því hægari. En það er
lífsnauðsynlegt fyrir okkur hér, að
komast út til að halda tónleika, ná
til annarra áheyrenda, komast í opn-
ar kennslustundir til góðra kennara
stöku sinnum, á tónlistarhátíðir, sýna
sig og sjá aðra. Annars vofir sú
hætta yfir okkur hér, að við stöðn-
um...“
Texti: Sigrún Davíðsdóttir
Sigrún Úlfarsdóttir
í viðkomandi búninga. Þeir sem eiga
leið um miðbæinn á næstunni, ættu
að líta við í Hafnargalleríinu, sér
til upplyftingar og ánægju, ef þeir
hafa hug á að gægjast að tjalda-
baki.
Frabxr fatruiður ■ ■ KRAKKAR
-**■ ' ' KRINGLAN 8-12, S.681719 LAUGAVEGI 51. S.13041
Þú tjaldar ekki til einnar nætur
í tjaldi frá
Skátabúðinni
Skátabúðin býður ótrúlegt
úrval af íslenskum og erlend-
um tjöldum. Allt frá eins
manns göngutjöldum til stórra
fjölskyldutjalda. Sérþekking
okkar í sölu og meðferð á
tjöldum sem og öðrum úti-
verubúnaði er þín trygging.
Við hjá Skátabúðinni viljum
geta sagt að „þú tjaldir ekki
til einnar nætur" í tjaldi frá
okkur.
-SWRAK FKAMUK
SNORRABRAUT 60 S(M112045