Morgunblaðið - 15.06.1988, Síða 25

Morgunblaðið - 15.06.1988, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ 1988 25 Bæta má þjónustu myndbaudaleiga Kristjánsdóttur Á íslandi varð myndbandavæð- ing með miklum hraða í byijun þessa áratugs, líkt og í nálægum löndum. Myndbandstæknin hefur opnað möguleika til að gera kvikmynda- efni aðgengilegra almenningi. Myndbandstæki eru nú til á um helmingi íslenskra heimila og myndbandaleigur, fyrirtæki í einka- rekstri, hafa tekið að sér að svara þörfinni fyrir myndbandaefni. En hversu aðgengilegt er það efni sem í boði er á íslenskum myndbanda- leigum? Greinilegt er að töluvert vantar á til að hægt sé að auðvelda leit notenda að efni myndbandaleig- anna á viðunandi hátt. Möguleikar tölvutækni og bókasafns- og upp- lýsingafræði hafa lítið verið nýttir á sviði skipulagningar til að gera myndbandaefni aðgengilegt not- endum. Athugnn á mynd- bandaleigum Þetta er m.a. niðurstaðan úr B.A. verkefni mínu í bókasafns- og upp- lýsingafræði við Háskóla Islands. Ritgerðin nefnist „Myndbandaleig- ur; skipulagning og þjónusta." I ritgerðinni var athuguð skipu- lagning myndefnis og sú þjónusta sem myndbandaleigur á íslandi bjóða. Nokkrar myndbandaleigur á höfuðborgarsvæðinu voru heimsótt- ar og þjónusta þeirra athuguð. At- huguð var skráning og flokkun efn- isins ásamt notendaþjónustu. í ljós kom að flestar myndbanda- leigur starfa án markvissrar flokk- unar og skráningar efnisins, og virðist töluvert vanta á til að hægt sé að auðvelda leit að myndefni á viðunandi hátt. Hvernig er efnið kynnt notendum? Eftirtektarvert var að alls staðar þar sem einhver skráning á efninu átti sér stað var hægt að fletta upp Varst þú í um síðustu helgi? I BICCAD IMðl fforgtrotiMaftifo Metsölublad ó herjum degi! titli viðkomandi myndar þó ekki væri hægt að vísa á nákvæma stað- setningu myndhylkja í hillum. Hins vegar gat afgreiðslufólk nálgast myndböndin sjálf í númeraröð á „bak við“ afgreiðsluborð. Fyrir „framan" það var hins vegar tómum myndbandshulstrum komið fyrir í hillum (sjaldnast eftir ákveðnu skipulagi) þar sem notendur gátu virt þau fyrir sér með góðu móti. (sjá mynd) Sú mynd sem mætir notendum á myndbandaleigum virtist því frekar óskipuleg og sjaldnast um mark- vissa skipulagningu að ræða svo notendur geti fundið umbeðnar myndir á fljótlegan og einfaldan hátt. Upplýsingaþjónusta Athyglisvert var að hvergi var um að ræða upplýsingaþjónustu sem byggði á notkun skráa eða annarra upplýsingahandbóka. Ljóst er að á því sviði eru marg- ir möguleikar til að veita markviss- ar upplýsingar um efnissvið og þess háttar. Alls staðar var því af- greiðslumaðurinn sérlega mikil- vægur í öllu upplýsingaferlinu og í raun þungamiðjan í þjónustunni. Starfsfólk myndbandaleiga virt- ist hafa verulegan áhuga á að veita notendum góða þjónustu. Hins veg- ar virtust leiðir að því markmiði nokkuð ómarkvissar. Ef fólk kemur til dæmis inn á myndbandaleigu og biður um ákveðna mynd, eða mynd um ákveðið efni, hefur afgreiðslu- fólk ekki tök á fljótlegri leið til að finna viðkomandi myndhylki frammi á leigunni. Á myndbanda- leigum með mörg þúsund titlum gengur það vart upp að vísa fólki á efni eftir minni afgreiðslufólks. Því má segja að nokkurs konar „lykill" þurfi að vera að efninu svo unnt sé að frnna það á fljótlegan hátt. Af framansögðu er ljóst að leit að einstaka myndum getur reynst seinleg ef upplýsingarnar eru ekki þeim mun betur skráðar. Skráning upplýsinga Viðurkennt er að tölvutæknin stóreykur alla möguleika á sviði upplýsinga, með tilliti til skráningar og aðgangsmöguleika að efninu. Í athugun minni mátti greina tölu- verðan áhuga á að nýta tölvutækn- ina í myndbandaþjónustunni. Þó voru möguleikamir ekki nýttir sem skyldi. Myndir frá ákveðnum lönd- um, tímabili eða með tilteknum leik- urum eða leikstjórum var erfítt að nálgast. Einnig var athyglisvert að ef um var að ræða leit eftir ákveðnu efnissviði studdist starfsfólk mynd- bandaleiganna við minni. Alfa Kristjánsdóttir „Það sem mestu máli skiptir er að upplýs- ingatækni nútímans veitir almennum not- anda möguleika á að gera markvissari kröf- ur um þjónustu á mynd- bandaleigum en boðist hefur til þessa.“ Hvað er til ráða? Öll skipulagning hlýtur að miðast við að notendur hafi sem minnsta þekkingu á fyrirkomulagi hverrar og einnar myndbandaleigu. Fjölþættir möguleikar eru fyrir hendi til að bæta þjónustu mynd- bandaleiga, og greinilegt að bóka- safns- og upplýsingafræði er grein sem miklu betur má nýta í þeim tilgangi. Skipulögð upplýsingaþjón: usta, t.d. með aðstoð viðurkenndrá uppflettirita, markviss flokkun og skráning efnisins eru dæmi um það. Ljóst er að mörg vandamál á sviði skipulagningar safnkosts hafa verið leyst í bókasafns- og upplýs- ingáfraeði. Nærtækasta dæmið er viðurkennd flokkunarkerfi, ná- kvæmar skráningarreglur (AACR2), efnisflokkun skáldverka með aðstoð tilheyrandi efnisorða- lykla að ógleymdum gagnasafns- kerfum á borð við DBASEIII plus. Það sem mestu máli skiptir er að upplýsingatækni nútímans veitir almennum notanda möguleika á að gera markvissari kröfur um þjón- ustu á myndbandaleigum en boðist hefur til þessa. Þessa möguleika þarf að nýta betur á íslenskum myndbandaleigum. fánastöng úr áli 90 mm. Kynningarverð með fána framaö17.júní kr. 16.375.- BURSTAFELL HF Bíldshöföa 14 • Sími 38840 F/////Í Ódýrasti vinnupallur á íslandi Þú kemstörugglega í loftiö á Zarges A. KARLSSON HF. HEILDVERSLUN, BRAUTARHOLTI 28 SlMI: 91 -27444 lttiMik A myndbandaleigum eru tóm myndbandshulstur látin kynna efni það sem boðið er upp á. Þessa kynningu má gera markvissari t.d. með aðstoð skráa og annarra upplýsingagagna.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.