Morgunblaðið - 15.06.1988, Side 26

Morgunblaðið - 15.06.1988, Side 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ 1988 Nánast engin starfsemi 1 tívolíinu í Hveragerði DAUFLEGT hefur verið í Tívol- íinu í Hveragerði síðan á föstu- dag þegar Sigurður Kárason, áður framkvæmdastjóri fyrir- tækisins, lét loka fyrir rafmagn þangað. Honum var sagt upp störfum fyrr sama dag á aðal- fundi hluthafa, sem hann telur ólöglegan. Ólafur Ragnarsson, hæstaréttariögmaður og eigandi tívolíbygginganna, var á aðal- fundinum kosinn stjórnarform- aður Skemmtigarðsins hf., sem rekur Tívolíið og þar með hefur nýr meirihluti tekið við fyrirtæk- inu. Ólafur Ragnarsson og Sigurður Kárason hafa áður átt í etjum, en að sögn Sigurðar snerist deilan nú um nýjar stjómunaraðferðir í fyrir- tækinu og hlutaíjáreign hluthafa. Hann segir að uppsagnarskeyti frá Ólafi skipti sig engu. Hann voni að úr rætist og starf tívolísins geti hafíst að nýju. Öll starfsemi, utan hestaleiga, skotbakkar og bátar, liggi nú niðri vegna rafmagnsleysis og af hljótist geysimikið tap sem sé engum til góðs. Rafmagn var að sögn Sigurðar tekið af tívolíinu þegar hann og Pálmar Magnússon ásamt skyldmennum sínum drógu til baka ábyrgðir fyrir því, að lokn- um aðalfundi síðastliðinn fóstudag. Sigurður kveðst ætla að kæra aðalfundinn til viðskiptaráðuneytis- ins og ef þörf krefji fari málið fyrir dómstóla. Hann gekk af fundinum eftir að úrskurðað hafði verið um eign Ólafs á helmingi hlutabréfa og myndaður nýr meirihluti í stjóm tívolísins með Gunnlaugi Jósepssyni sem á 1% hlutabréfa. Sigurður lítur svo á að sjálfur eigi hann eftir sem áður 16% hlutabréfa og fylgismaður hans, Pálmar Magnússon, 48%. Ólafur Ragnarsson segist ekki eiga í deilu við Sigurð, málið hafi verið útkljáð á löglegan' máta á aðalfundi sem til var boðað af Baldri Guðlaugssyni, hæstaréttar- lögmanni, að beiðni sinni til við- skiptaráðherra. Kveðst Ólafur áður hafa beðið Sigurð ítrekað um stjórn- arfund án þess að því væri sinnt. Engir ársreikningar voru lagðir fram á fundinum síðastliðinn föstu- dag og nú er reynt að afla upplýs- inga um fjárhagsstöðu fyrirtækis- ins, sem virðist slæm, að sögn Ól- afs. Ólafur segir að hann vinni nú að því að koma rekstrinum í eðli- legt horf sem takist vonandi hið fyrsta. Ólöglegt sé og heimildar- laust hjá Sigurði Kárasyni að láta taka rafmagn af tívolíinu. Morgunblaðið/KGA Frá blaðamannafundi ASÍ í gær, þar sem kæra sambandsins til Al- þjóðavinnumálastofnunarinnar var kynnt. Kæra ASÍ send til Alþjóðavinnumálastofnunarinnar: Tímabundin verkf öll eða yf- irvinnubann koma til greina ÁSMUNDUR Stefánsson, forseti Alþýðusambands íslands, segir að fyllilega komi til greina að verka- lýðshreyfingin grípi til einhverra aðgerða síðsumars eða i haust til þess að mótmæla bráðabirgðalög- um ríkisstjómarinnar um efna- hagsráðstafanir frá 20. mai síðast- liðnum. Hann var ekki tilbúin til að kveða upp úr með til hvaða aðgerða yrði gripið, en nefndi sem hugsanlega möguleika meðal ann- arra tímabundin verkföll eða yfir- vinnubann. Þetta kom fram á blaðamannafundi i gær, þar sem kæra Alþýðusambandsins til Al- þjóðavinnumálastofnunarinnar (ILO) vegna bráðabirgðalaganna var kynnt. Kæran var send ILO í gær, en Ásmundur sagði að hann ætti ekki von á svari fyrr en í nóvember. Verkalýðssamtökin myndu hins veg- ar ekki bíða eftir niðurstöðu í kæru- málinu með að gripa til aðgerða ef það yrði ofan á. Hann benti á að ennþá hefði ríkisstjómin tíma til þess að sjá að sér og draga lagasetning- una til baka, þannig að verkalýðs- Gerðahreppur 80 ára í dag: Ibúunum boðið í kaffi og bakkelsi á 17. júní í dag er Gerðahreppur 80 ára. Það var 15 júní 1908 sem Rosm- hvalneshreppi hinum yngri var skipt í Gerðahrepp og Keflavíkur- hrepp. Samkvæmt nýjustu heim- ildum mun hafa verið búið í Gerðahreppi frá 10. öld og oft þéttbýlt. I upphafi þessarar aldar voru íbúar tæpir 700 og var þá Gerðahreppur stærsti íbúalgam- inn á Suðurnesjum. Ibúunum fór síðan fækkandi og vora tæplega 400 um 1930 en eru nú 1050- 1060. Sveitarstjóm Gerðahrepps hefir ákveðið að minnast þessara tíma- móta með tvennum hætti á þjóðhát- íðardaginn, 17. júní. Hreppsnefndin mun halda útihátíðarfund þar sem rædd verða málefni tengd þessum tímamótum. Þá mun hreppsnefndin taka á móti gestum í samkomuhús- inu kl. 15,30 - 17,30. Eru allir Garð- menn og velunnarar sérstaklega vel- komnir. Hefír sveitarsjóður látið baka ijómatertu í tilefni dagsins sem er um 4 fermetrar. Hátíðarhöldin 17. júní hefjast kl. 14 við bamaskólann og er áætlað að þau verði ívið stærri í sniðum en undanfarin ár en fer þó eftir veðri. Þá er áætlað að vera með kvölddag- skrá í eða utan við samkomuhúsið. Til glöggvunar fyrir gesti og gangandi má geta þess að þéttbúli- skjami Gerðahrepps heitir Garður. Það nafn var lögfest af menntamála- ráðuneytinu 29. desember 1978, eða fyrir tæpum 10 árum. Þá má og geta þess að einn besti golfvöllur landsins er í Gerðahreppi, golfvöllur- inn í Leiru. Þar var á árum áður einn stærsti byggðarkjami Gerða- hrepps en nú eru íbúamir tveir. Amór. félögin ættu kost á að gera samn- inga. I kærunni eru rakin níu dæmi þess á undanfömum tíu ámm að sett hafi verið lög sem skerða kjör og samningsrétt og telur ASÍ að bráðabirgðalögin bijóti gegn ákvæð- um Alþjóðavinnumálastofnunarinnar nr. 87 um félagafrelsi og vemdun þess og nr. 98 um beitingu grundvall- arreglna um réttinn til að stofna fé- lög og semja sameiginlega. Sam- þykktir þessar voru staðfestar af Islands hálfu árin 1950 og 1952. í kæmnni segir meðal annars: „Afskipti þau af kjarasamningum, sem felast í ákvæðum bráðabirgða- laganna frá 20. maí 1988, fela í sér að rétturinn til frjálsrar samnings- gerðar á sviði kjaramála er algerlega afnuminn í 11 mánuði og jafnframt em ógild gerð samningsákvæði í gildandi kjarasamningum. Hér er um að ræða mikilvæg ákvæði, sem lúta að hækkunum kaupgjalds á samn- ingstímabilinu og rétti til endurskoð- unar kaupgjaldsákvæða, ef verð- hækkanir fara úr böndum og verða verulega meiri en gert hafði verið ráð fyrir við gerð kjarasamninga og eins ákvæði um endurskoðun kaup- liða með hliðsjón af hækkunum ann- arra hópa. Þá er það óumdeilt, að aðgerðir rikisstjómarinnar í efnahagsmálum, sem meðal annars felast í lækkun gengis íslenskrar krónu, muni leiða til vemlegra verðhækkana í landinu, sem lagt er bann við að verði bættar launafólki, þannig að um stórfellda lögbundna kjaraskerðingu er að ræða. “ Sögufélagið: Ný stjórn AÐALFUNDUR Sögufélagsins var haldinn þann 30. apríl sl. Forseti félagsins, Einar Laxness, baðst undan endurkjöri. Einar hefur verið forseti félagsins undanfarin tíu ár, en hann átti sæti í stjóm- inni í 27 ár. Sigríður Th. Erlends- dóttir ritari og Ólafur Egilsson meðstjórnandi gáfu ekki kost á sér til endurkjörs. Voru þeim þökkuð velunnin störf í þágu félagsins. Ný stjóm var kosin, sem skipti þannig með sér verkum: Heimir Þor- leifsson forseti, Loftur Guttormsson gjaldkeri, Anna Agnarsdóttir ritari, en aðrir aðalstjómarmenn em Bjöm Bjamason og Helgi Skúli Kjartans- son. í varastjóm eiga sæti Ragn- heiður Mósesdóttir og Már Jónsson. Allir áhugamenn um sögulegan fróð- leik geta gerst félagsmenn í Sögufé- laginu. Félagið gefur út tvö tímarit árlega, Sögu og Nýja Sögu, sem kem- ur út um þessar mundir. (Fréttatilkynning) Dómkirkjan: Sr. Lárus Halldórs- son kemur til starfa Morgunblaðið/Amór Það hefir víða verið tekið til hendinni síðustu dagana við fegrun bæjarins. Ef grannt er skoðað má sjá á meðfylgjandi mynd tengsl íbúanna við lifibrauð landans - sjávarútveginn. SR. Lárus Halldórsson kemur til starfa við Dómkirkjuna i Reykjavík I dag, miðvikudag. Hann mun Ieysa Sr. Þóri Stephen- sen af til 15. júní á næsta ári, en sr. Þórir er nú í ársleyfi frá prests- Sjónvarpshátíð í Kanada: Þættir í leikstjóm Lárusar Ýmis Óskarssonar fá fyrstu verðlaun SÆNSKU sjónvarpsþættirnir „HMstens öga“ eða „Auga hestsins" í leikstjórn Lárusar Ýmis Óskarssonar hlutu fyrstu verðlaun í sinum flokki á alþjóðlegri sjónvarpsmyndahátíð sem haldin er árlega í Kanada og heiðursverðlaun á svipaðri hátíð sem haldin var í Tékkóslóvakíu í fyrra. Þættirnir verða trúlega sýndir í sjón- varpinu næsta vetur. Að sögn Lárusar Ýmis Óskars- sonar voru þættimir teknir upp haustið 1986 og sýndir í sænska sjónvarpinu í fyrra. „Þetta eru þrír 45 mínútna þættir um ævin- týri fjórtán ára borgarstelpu og jafnaldra hennar ofan úr sveit. Ég fer til Svíþjóðar í haust að fylgjast með lokavinnunni við að klippa þá saman í kvikmynd sem vonaiidi verður hægt að selja á Ameríkumarkað," sagði Lárus Ýmir. Þættimir vom myndaðir í svart-hvítu af Göran Nilsson, en handrit er eftir Gunillu Linn Pers- son og Lars Bill Lundholm. Að sögn Sigríðar Rögnu Sigurðar- dóttur hjá Sjónvarpinu eru þætt- imir dýrir í innkaupi en verða trú- lega sýndir hér á næsta vetri. Yfír 500 þátttakendur voru á kanadísku sjónvarpshátíðinni sem nú var haldin níunda árið í röð. Alls voru sýndir 433 þættir en 145 valdir til keppni. Tólf þáttar- aðir vom í sama flokki og „Auga hestsins". störfum til að gegna embætti stað- arhaldara I Viðey. Sr. Láms gegndi síðast sóknar- prestsembætti í Breiðholtsprestakalli í Reykjavík frá 1972, en síðustu ár hefur hann leyst af presta í leyfum, nú síðast í Bolungarvík. Viðtalstími sr. Lámsar verður í Dómkirkjunni milli klukkan 16 og 17 virka daga nema laugardaga. Hann mun flytja fyrstu predikun sína í Dómkirkjunni við messu sunnudag- inn 19. júní næstkomandi. Sr. Láms Halldórsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.