Morgunblaðið - 15.06.1988, Side 31

Morgunblaðið - 15.06.1988, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ 1988 31 Verðbólga er á uppleið í Svíþjóð Stokkhólmi, Reuter. VERÐBÓLGA í Svíþjóð í maí nam 6,7% miðað við heilt ár og Bandaríkin: Bretar þurfa ekki vega- bréfsáritun Lundúnum, Reuter. BRESKIR ferðamenn þurfa ekki vegabréfsáritun til að komast til Bandaríkjanna frá 1. júlí næst- komandi og svo gæti farið að sama gilti um ferðamenn frá sjö öðrum ríkjum reynist þessi hátt- ur vel, að því er Patricia Foran, vararæðismaður Bandaríkjanna í Lundúnum, sagði í gær. Patricia Foran sagði að Banda- ríkjastjóm hefði gert samning við níu flugfélög, sem eru með áætlana- flug yfir Atlantshafið, þar sem gert væri ráð fyrir að breskir farþegar með miða báðar leiðir gætu komið til Bandaríkjanna án vegabréfsárit- unar. Þetta gilti um Breta sem hygðust dvelja í Bandaríkjunum sem ferðamenn eða í viðskiptaerind- um í 90 daga eða minna. „Við erum að reyna að draga úr ónauðsynlegum vegabréfsáritunum til manna sem sjaldan misnota þær,“ sagði Foran. Hún sagði að næst verði reynt að hafa sama hátt á í Japan og síðan í sex öðmm lönd- um, án þess að geta hver þau væm. Bretar fá flestar vegabréfsárit- anir til Bandaríkjanna, eða um eina milljón á þessu ári, að sögn For- ans. Bandarískir ferðamenn þurfa ekki áritun til að komast til Bret- lands. íran: Síamství- burar með- al þríbura Nikósíu. Reuter. íranska fréttastofan IRNA skýrði frá því í gær að kona þar í landi hefði alið þríbura, þar af síamstvíbura. Að sögn IRNA fæddust síamstvíburamir andvana en einn þríburanna, drengur, lifði og er við góða heilsu þótt hann hafi aðeins verið 2,2 kíló við fæðingu. er það meiri verðbólga en frá því í september 1985. Hagfræð- ingar telja að efnahagslífi lands- ins stafi hætta af haldi sama verðlagsþróun áfram. Samkvæmt upplýsingum sænsku hagstofunnar hækkaði verðlag um 0,4% í maí og 0,9% í apríl. Jafngildir þróunin fyrstu fímm mánuði ársins 6,7% verð- bólgu á árinu. „Verðbólguþróunin er mikið áhyggjuefni," sagði Lillemor Thal- in_ hjá Svenska Handelsbanken. „Aætlun ríkisstjórnarinnar um 5,3% verðbólgu á þessu ári er út í hött,“ sagði hagfræðingur annars banka. Sú skoðun er ríkjandi með- al hagfræðinga að um næsti mán- aðamót nái verðbólgan hámarki og jafngildi 7,0% árshækkun, en lækki úr því. Kosningar eru fyrir- hugaðar í Svíþjóð í september og segja hagfræðingar að af þeim sökum hafí ríkisstjómin ekki gripið til ráðstafana er dugi til að draga úr verðlagshækkunum. Stjóm Jafnaðarmannaflokksins dró hins vegar upp bjarta mynd af sænsku efnahagslífí og framtíð þess þegar fjárlög voru endurskoð- uð fyrir tveimur mánuðum. Spáð var fullri atvinnu og dijúgum hag- vexti út næsta ár. EB-markaðurinn: Leikari með hund Reuter Kona horfir undrandi á leikarann Chuin Clavijo að leik með tilbú- inn hund á stífðri ól í Singapúr. Chuin er frá Kólumbíu og kem- ur fram á listahátið í Singapúr, sem stendur í mánuð. Viðurkenning á starfs- réttindum gildir milli ríkja Brílssel, frá Kristófer M. Kristinssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. Á FUNDI þeirra ráðherra aðildarríkja Evrópubandalagsins sem fara með málefni innri markaðarins og haldinn var f Lúxemborg f síðustu viku náðist umtalsverður árangur í gagnkvæmum viðurkenningum á starfsréttindum. Á fundinum ræddu ráðherrarnir jafnframt dvalar- leyfi fyrir námsmenn innan EB, búseturétt ellilífeyrisþega og at- vinnulausra, staðsetningu fyrirhugaðrar vörumerkjaskrifstofu bandalagsins og starfsemi hennar. Martin Bangeman, viðskiptaráð- ing á réttindum lækna, arkitekta herra Vestur-Þýskalands, er for- maður þeirrar ráðherranefndar sem fer með málefni innri markaðarins fram að I. júlí nk., en þá taka Grikkir við forsæti í ráðherranefnd- unum. Ráðherramir náðu sam- komulagi um gagnkvæma viður- kenningu á starfsréttindum en ákváðu jafnframt að í sumum tilfell- um gætu ríki krafist hæfnisprófs eða þjálfunar. Þetta á fyrst og fremst við í störfum á borð við lög- fræði, hugsanlega bókhald o.þ.h. Nú þegar er gagnkvæm viðurkenn- og lyfjafræðinga sem byggist á samræmingu námsefnis á undan- fömum árum. Þá fjölluðu ráðherr- amir um próf sem tekin em í há- skólum utan bandalagsins en slíkt er algengt meðal Grikkja og Lúx- emborgara en hinir síðamefndu eiga ekki háskóla. Samkomulag varð um að viðurkenning á starfs- réttindum í einu landi gildi fyrir öll aðildarríkin með því skilyrði að handhafí réttindanna hafí starfað í faginu a.m.k. þijú ár í heimalandi sínu. Búist er við því að endanlega verði gengið frá þessum samþykkt- um á fundi síðar í þessum mánuði. Umræður um búsetu innan bandalagsins byggjast fyrst og fremst á ótta innan nokkurra aðild- arríkja við að fólk muni í stórum stíl flytja til þeirra landa sem hafa fullkomið velferðarkerfí til að njóta góðs af því án þess að hafa greitt til þess. Þetta á sömuleiðis við um námsmenn og fólk á eftirlaunum. Líklegt er talið að utanríkisráð- herramir muni fjalla um þetta mál enda er það pólitískt mjög við- kvæmt. Ráðherramir fjölluðu og um sam- ræmingu laga um skrásetningu vörumerkja og staðsetningu fyrir- hugaðrar vörumerlqaskrifstofu bandalagsins en hart hefur verið barist um það hvaða háttur skuli hafður á samskiptamálum hennar. Tækifæris- fatnaður Ný sending ' VERSLUNIN ' M. MANDA KJÖRGARDI 2.HÆÐ. Hefurðu tekið eftir því að pizzurnar okkar eru komnar í nýjar hringlaga umbúðir? Inní eru sömu gómsætu pizzurnar og áður - en núna fer bara miklu betur um þær! Ola partý pizza Borðbúnaður fyrir veitingahús — GIÖS DUROBAR — Postulín PILLIVUYT Líttu við í DRANGEY Alltfulltafnýjum vörum Olympiupokarnir fyrir Olympíuleikana Verðfrákr. 695,- Naturai Life pokarnir Giæsiiegar ítalskar leðurtöskur frá Rubini Giampieri Mikið úrval af ferðatöskum frá Þýskaiandi. Gott verð Laugavegi 58 Sími 13311

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.