Morgunblaðið - 15.06.1988, Page 33

Morgunblaðið - 15.06.1988, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ 1988 33 Útsýni iðnaðarmannanna úr turni HallgTÍmskirkju er stórkostlegt. Morgunblaðið/Þorkell Klukknaspilið lagað um leið og steypuskemmdir VIÐGERÐUM á steypuskemmd- um í Hallgrímskirkjuturni miðar vel áfram, að sögn Ragnars Fjal- ars Lárussonar, sóknarprests, en áætlað er að þeim ljúki i septemb- er á þessu ári. Mikið hefur molnað úr steyp- ustöplunum í kirkjunni eftir frost og veðrun, og var var orðið brýnt að stöðva það. Skemmdimar eru lag- færðar með Zika-steypuviðgerðar- efni, en kostnaðurinn við viðgerðirn- ar mun vera 7-10 milljónir króna. Þá er hugmyndin að nota tækifær- ið og laga klukknaspilið í Hallgríms- kirlqu á meðan vinnupallamir við kirkjuna standa, en það hefur verið óvirkt í nokkur ár vegna ryðs. Ragn- ar Fjalar sagði að menn hefðu ekki verið upplýstir nægilega mikið um viðhald þess, en frost, regn og vind- ar mæddu greinilega mjög mikið á þessum stað. Hugmyndir eru um að setja tölvustýringu í klukknaspilið um leið og gert verður við það, en Reykvíkingar ættu að geta heyrt í hinum 30 klukkum Hallgrímskirkju á ný á hausti komanda. Tillaga Æskulýðsráðs ríkisins um að leggja ráðið niður: Verksvið sem hægt er er að afhenda frjáls- um félagasamtökum - segir Arni Sigfússon formaður „TILLÖGUR okkar eru að minnsta kosti jákvæð viðleitni til þess að vera ekki að halda úti nefnd með verksvið sem hægt er að afhenda frjálsum félagasamtökum,“ sagði Arni Sigfússon, formaður Æsku- lýðsráðs, í samtali við Morgun- blaðið, en Æskulýðsráð hefur lagt það til við menntamálaráð- herra að ráðið verði lagt niður. „Það eru sex hundruð nefndir og ráð starfandi á vegum ríkisins með 3.300 nefndarmönnum. Kostnaðurinn er gífurlegur; ekki bara nefndarlaun, heldur einnig alls konar falinn kostnaður á borð við fundakostnað. Ef tilgangur og verkefni allra þessara nefnda eru jafnóljós og hjá æskulýðsráði er þörf á að menn taki starfsemi þeirra til gagngerrar endurskoð- unar,“ sagði Arni Sigfússon. Birgir Isleifur Gunnarsson, menntamálaráðherra, sagði að til- lögur Æskulýðsráðs væru til at- Árni Sigfússon. hugunar í ráðuneytinu. Hann væri ekki tilbúinn að tjá sig um málið fyrr en þeirri athugun væri lokið. Fyrstu íbúðirn- ar kapalvæddar á Seltjarnarnesi ÚTVARPSFÉLAG Seltjarnarness hefur lengi haft uppi áform um lagningu kapalsjónvarps á Seltjarnarnesi og er nú unnið að lagn- ingu kapalkerfis í 36 íbúðir við Eiðistorg. Að sögn Juliusar Sólnes hjá Utvarpsfélaginu er þar um tilraunakerfi að ræða en meiningin er að kapalvæða allt Nesið um leið og lagaheimild fæst til þess. Júlíus sagði að þeir hefðu farið sér hægt í þessum efnum vegna ákvæða í núgildandi útvarpslögum sem meðal annars kvæðu á um að ekki mætti leggja sjónvarps- kapal í fleiri en 36 íbúðir í einu. Hann taldi þó horfur á að það myndi breytast í náinni framtíð. „Eg hef trú á að þessum lögum verði breytt. Evrópuráðið í Stras- burg mun væntanlega samþykkja á næstunni sáttmála sem bannar hvers kyns hindranir á útsending- um sjónvarpsefnis innan Evrópu. Væntnlega myndi þýðingarskyld- an sem nú kemur í veg fyrir að við getum tekið við beinum útsend- ingum frá Evrópu flokkast undir þesskonar hindrun og þar með verða óframkvæmanleg. Við höf- um til dæmis verið að leita sam- banda við franska rás en þeir vilja ekki leyfa útsendingar á sínu efni nema það yrði sent út jafn óðum °g óþýtt. Eg tel þessa þýðingar- skyldu gersamlega óþarfa og ekki þjóna þeim tilgangi sem henni er ætlað, að vinna gegn enskum áhrifum. Þvert á móti hindrar hún að hægt sé að sjónvarpa efni frá öðrum Evrópulöndum" sagði Jú- líus Sólnes. manna, heldur einnig aðbúnaður. Þessi stéttamunur hefur ekki fyrir- fundist á Norðurlöndum síðustu 10-15 árin,“ sagði Tanner. Þá ræddi Tanner hvernig æska manna hefði áhrif á heilsu þeirra síðar á ævinni. Þar væri aldurinn frá 6 mánaða til 2 ára örlagaríkast- ur. „Þau áföll sem einstaklingar verða fyrir á þessu skeiði ævinnar, hafa áhrif æVilangt. Faraldsfræð- ingar settu nýlega fram kenningu þar sem sýnt var fram á að sá skaði sem fóstur og böm á fyrstu árum ævinnar yrðu fyrir, gæti síðar vald- ið hjarta- og æðasjúkdómum. Nefndi Tanner í því sambandi rann- sókn sem gerð var á 1,4 milljónum Norðmanna fyrir 10-15 árum. Smám saman hefur komið í ljós að þeir sem lávaxnari eru, deyja frekar úr slíkum sjúkdómum ogtelja Norð- menn það ekki geta stafað af erfð- um, heldur aðbúnaði í æsku. Morgunblaðið/Bjami J.M. Tanner flytur opnunarer- indi sitt á þingi norrænna barna- lækna. Hitaveita Akraness og Borgarfjarðar: Skuldir hækkuðu um 120 millj- ónir vegna gengisfellingarinnar SKULDIR Hitaveitu Akraness og Borgarfjarðar hækkuðu um ná- lægt 120 milljónum króna, vegna gengisfellingarinnar í síðasta mánuði. Það þýðir, að vaxta- greiðslur fyrirtækisins munu hækka um átta og hálfa milljóin á árinu. Gengisfellingin mun þó ekki hafa bein áhrif á gjaldskrá hitaveitunnar, að sögn Ingólfs Hrólfssonar hitaveitustjóra. í fyrra varð verulegur gengis- hagnaður hjá hitaveitunni. „Við höfum miðað við að láta gjaldskrá fylgja innlendu verðlagi, en við höfum líka reiknað með að skuldir fylgi innlendu verðlagi. Ef gengisfellingar verða ekki daglegt brauð, þá hefur þessi ekki veruleg áhrif. A síðasta ári varð verulegur gengishagnaður hjá okkur„ þannig að þessi gengisfelling kom okkur ekkert á óvart eins og sumum ráð- herranna. Við höfum aldrei reiknað með að skuldir yrðu greiddar miðað við rangt skráð gengi,“ sagði Ing- ólfur. Fjárhagsáætlun hitaveitunnar gerði ráð fyrir um sex milljóna króna rekstrarafgangi á þessu ári, en með þessari hækkun á vaxta- greiðslum má gera ráð fyrir að eitt- hvað tap verði á rekstrinum, þó innan skekkjumarka að sögn Ing- ólfs. Gjaldskrá mun eitthvað hækka, þegar byggingarvísitala hækkar, en gjaldskráin fylgir henni. „Auðvitað hækkar þetta allt með einhvetjum hætti, þótt við þurfum ekki að hækka gjaldskrána beinlín- is vegna gengisfellingarinnar. Ég á von á að verðbólgan auki tekjurnar seinna á árinu,“ sagði Ingólfur Hrólfsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.