Morgunblaðið - 15.06.1988, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 15.06.1988, Blaðsíða 43
8Pfir ÍMUT. .?,r HTJOAQIDTIVQIM .GIQAUaVlUOJIOM MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ 1988 Hestamót Léttfeta: Margir stórfaJlegir hestar Sauðárkróki. ... ——— —-■ ANNAÐ hestamót sumarsins var haldið á félagssvæði Léttfeta á Sauðárkróki, við Flæðagerði laugardaginn 4. júni sl. Aður hafði farið fram firmakeppni Léttfeta á annan í hvítasunnu, en þessi tvö mót eru nú orðin árviss viðburður í starfsemi fé- lagsins. Sýndir voru gæðingar í A- og B-flokki, og einnig kepptu ungling- ar í eldri og yngri flokki, þá var og keppt í brokki, skeiði og stökki. í A-flokki dæmdist þannig; Nr. 1 Víkingur, eigandi Stefán Haraldsson, knapi Róbert Haralds- son. Nr. 2 Dagslátta, eigandi Sigríður Ingimarsdóttir, knapi Ingimar Páls- son. Nr. 3 Stólpi, eigandi Róbert Har- aldsson, knapi eigandi. Nr. 4 Hlynur, eigandi Ámi Áma- son, knapi Guðmundur Sveinsson. Nr. 5 Sporður, eigandi Ámi Áma- son, knapi Guðmundur Sveinsson. í B-flokki dæmdist þannig: Nr. 1 Glampi, eigandi Jónas Sigur- jónsson, knapi eigandi. Nr. 2 Prins, eigandi Jóhann Skúla- son, knapi eigandi. Nr. 3 Ösp, eigandi Jóhann Skúla- son, knapi eigandi. Nr. 4 Fluga, eigandi Þorvaldur Ámason, knapi Halldór Þorvalds- son. Nr. 5 Þytur, eigandi Jóhann Skúla- son, knapi eigandi. í flokki unglinga eldri varð efstur Helgi Ingimarsson á Cesar, í öðru Morgunblaðið/Bjöm Bjömsson A-flokkur gæðinga við verðlaunaafhendingu, f.v. Víkingur, eigandi Stefán Haraldsson, knapi Róbert Haraldsson, síðan Dagslátta, Stólpi, Hlynur og Sporður. sæti Ragnar Magnússon á Húna og í þriðja sæti Ingibjörg Sveins- dóttir á Faxa. í flokki unglinga yngri varð efst- ur Björgvin Kristjánsson á Glettu, í öðm sæti varð Margrét Bjöms- dóttir á Rebekku, og í þriðja sæti Stefánn Jónsson á Jarp. Að afloknum gæðingadómum og unglingakeppni var keppt í kapp- reiðum og urðu úrslit þessi: 150 m skeið: Nr. 1 Dagslátta, eigandi Sigríður Ingimarsdóttir, knapi Ingimar Páls- son. Nr. 2 Vörður, eigandi Steinþór Tryggvason, knapi eigandi. Nr. 3 Hrefnu Brúnka, eigandi Sig- urður Bergþórsson, knapi Guð- mundur Sveinsson. 250 m skeið: Nr. 1 Vörður, eigandi Steinþór Tryggvason, knapi eigandi. Nr. 2 Hrefnu Brúnka, eigandi Sig- urður Bergþórsson, knapi Guð- mundur Sveinsson. 300 m stökk: Nr. 1 Fluga, eigandi Þorvaldur Ámason, knapi Halldór Þorvalds- son. Nr. 2 Þytur, eigandi Jóhann Skúla- son, knapi eigandi. Nr. 3 Rauðskjóni, eigandi Siguijón Jónasson, knapi Elvar Einarsson. 300 m brokk: Nr. 1 Skratti, eigandi Amór Haf- stað, knapi eigandi. Nr. 2 Skuggi, eigandi Jón Geir- mundsson, knapi Bjöm Hansen. Nr. 3 Logi, Magnús B. Magnússon, knapi eigandi. 250 m stökk: Nr. 1 Ás, eigandi Bjöm Hansen, knapi Elvar Einarsson Nr. 2 Bleikur, eigandi Magnús B. Magnússon, knapi eigandi. Nr. 3 Tvistur, eigandi Ingibjörg Sveinsdóttir, knapi Hólmfríður Sveinsdóttir. Að sögn forráðamanna mótsins tókst það í alla staði hið besta, að visu var nokkuð svalt í veðri sem vafalaust varð til þess að færri áhorfendur komu til að fýlgjast með, en ella hefði orðið. - BB Jóhanna Bogadóttir myndlistarkona opnar sýningu á verkum sinum á Siglufirði 17. júní. Myndlistasýning í ráð- húsinu í Siglufirði JÓHANNA Bogadóttir mun opna sýningu í Ráðhúsi Siglufjarðar, 17. júní kl. 15.00. Á sýningunni verða um 30 verk, bæði málverk og grafík, sem öll eru til sölu. Nýjustu myndimar vann hún nú í vor á stóru verkstæði í San Francisco í boði Magnolia Edi- tions. Þær eru unnar með bland- aðri tækni, era eiginlega málverk og grafík. Verk eftir Jóhönnu hafa verið keypt af ýmsum þekktum listasöfn- um t.d. The Museum of Modern Art I New York, Atheneum ríkis- listasafninu í Finnlandi o.fl. Hún hefur sýnt á ýmsum stöðum víða um heim, t.d. á Norðurlöndun- um, í Póllandi, Bandaríkjunum og Frakklandi. Einnig hefur hún haft sýningar víða hér á landi, t.d. tvisv- ar áður á Siglufirði. Jóhanna er fædd í Vestmanna- eyjum en móðurætt hennar er frá Siglufirði og dvaldi Jóhanna þar mikið á sumrin hér áður fyrr. Sýningin verður opin kl. 15.00— 21.00 til mánudagskvöldsins 20. júní. (Fréttatilkynning) Mikið vart við ref á Skógarströnd Stykkishólmi „MIKIÐ hefur orðið vart við ref hér á Skógarströnd og nágrenni í vor.“ Þetta sagði Jóel Jónasson bóndi á Bíldhóli á Skógarströnd við fréttaritara Morgunblaðsins. „Við erum alltaf að sjá refi hér á ferð- inni og nú erum við tveir að leggja upp i herferð gegn þessum skolla,“ sagði hann ennfremur. „Við förum strax eftir helgina og göngum um fjöll hér á Skógarströndinni. En það sem verst er við leit í dag er það að gömlu grenin og árvissu eru mörg og jafnvel flest yfirgefin en refirnir búnir að koma sér fyrir annars staðar í nýjum grenjum. Allt þetta gerir vinnsluna mun erfiðari." „Ég er nýbúinn að ná einum ref. Það var karldýr. Hann var unninn að Hálsi hér á ströndinni. Þar búa tvær systur. Þær urðu varar við að refur kom í vor og var við fjár- húsin að sniglast kringum féð. Þjappaði þeim saman og kom á óróa. Þær systur gerðu mér viðvart og fór ég á vettvang og náði refnum við fjárhúsvegginn. Hann ætlaði að forða sér eins og gengur og gerist, en ég varð fljótari til.“ Jóel var spurður um aldur þessar- ar tófu. „Ég giska á,“ sagði hann, „að þetta sé þriggja ára karldýr. Hann virtist ekki svangur, því ekki varð séð að hann hefði ráðist á nokkurt lamb. En auðvitað hefír hann verið að huga að bráð. Nú er bara eftir að vita hvar bústaður hans er. Hann getur bæði verið í fjallinu og eins á nálægum slóðum, því eins og ég sagði áðan gengur maður ekki að greninu vísu. Vitum að það er mikið af þessum dýram og nú er bara að vita hvað við verð- um veiðnir þegar við leggjum upp í leiðangurinn. Á Skógarströnd er einnig talsvert um mink. Hann held- ur sig nálægt ánum, hefír von um veiði þar. Og mikið er veitt af hon- um á hveiju ári hér við Breiðafjörð- inn.“ — Ámi I«. 4 .41 TMWÆWWi 44tlff _ (UEEN Nýlagaö kaffi 12-20 bollar tilbúnir á abeins 5 minútum. Gædi, Þekking, Þjónusta A. KARLSSOM HL HEILDVERSLUN, BRAUTARHOLTI28 SlMI: 91 -27444 TWWWWWi .j^pglýsinga- síminn er22480 Nýtt k reditkortatímabil HAGEAUT byrjar i dag Miðvikud. 15. júní
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.