Morgunblaðið - 15.06.1988, Qupperneq 47

Morgunblaðið - 15.06.1988, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ 1988 47 Stjórnar- skipti í Sögufélaginu AÐALFUNDUR Sögxifélagsins var haldinn þann 30. apríl sl. Forseti félagsins, Einar Laxness, baðst undan endurkjöri. Einar hefur verið forseti félagsins und- anfarin tíu ár, en alls hefur hann átt sæti í stjórninni i 27 ár. Sigríður Th. Erlendsdóttir ritari og Ólafur Egilsson meðstjórn- andi gáfu ekki kost á sér til end- urkjörs. Voru þeirn öllum þökkuð velunnin störf i þágu félagsins. Ný stjóm var kosin, sem skipti þannig með sér verkum: Heimir Þorleifsson forseti, Loftur Gutt- ormsson gjaldkeri, Anna Agnars- dóttir ritari, en aðrir aðalstjórnar- menn eru Björn Bjarnason og Helgi Skúli Kjartansson. í varastjórn eiga sæti Ragnheiður Mósesdóttir og Már Jónsson. Allir áhugamenn um sögulegan fróðleik geta gerst fé- lagsmenn í Sögufélaginu. Félagið gefur út tvö tímarit árlega, Sögu og Nýja Sögu, sem kemur út um þessar mundir. (Fréttatilkynning) Borgar fj ör ður; Ekkert sam- komuliald í Húsafelli um verslun- armanna- helgina FALLIÐ hefur verið frá fyrir- huguðu samkomuhaldi í Húsa- felli um verslunarmannahelgina. Ástæðan er sú að forráðamönn- um Ungmennasambands Borgar- fjarðar og Björgunarsveitarinn- ar Ok, sem hugðust standa fyrir samkomuhaldinu, þykja kröfur sýslumannsembættis Mýra- og Borgarfjarðarsýslu varðandi greiðslur fyrir löggæslu á sam- komunni vera það háar, að þeir sjá sér ekki fært að standa fyrir samkomuhaldinu þeirra vegna. í svarbréfi sýslumanns til Ung- mennasambands Borgarfjarðar varðandi ósk þess um leyfi til sam- komuhalds í Húsafelli, eru sett fram skilyrði í þrettán liðum varðandi fyrirhugað samkomuhald. í fylgi- bréfí kemur jafnframt fram að áætlaður kostnaður vegna lög- gæslumanna á samkomunni nemi tæplega þremur milljónum króna, en auk þess verði þeim séð fyrir fæði og húsnæði á meðan á samko- munni stendur. Sýslumanns- embættið gerir einnig kröfur varð- andi aldurstakmark að mótssvæð- inu, og að sögn væntanlegra móts- haldara kæmi það til með að útiloka ákveðinn aldurshóp frá samkom- unni. Börnum yngri en sextán ára yrði samkvæmt þessu óheimill að- gangur nema í fylgd með forráða- mönnum sínum. Samkvæmt upplýsingum frá Ungmennasambandi Borgatfyarð- ar, þá var allur undirbúningur sam- komuhaldsins vel á veg kominn, og gífurlega vinnu væri meðal annars búið að leggja í skipulagningu þess. Embætti sýslumanns hafi ekki verið til viðræðna varðandi breytingar á þeim kröfum, sem mestu máli skipta varðandi fjárhagslega af- komu mótsins. Einnig kom fram að löggæslukostnaður við Húsa- fellsmótið á síðastliðnu sumri hefði hækkað um 200% frá uppgefinni áætlun sýslumannsembættisins þá. Telja stjómir Ungmennasambands Borgarfjarðar og Björgunarsveitar- innar Ok að túlka beri vinnubrögð sýslumannsembættisins í máli þessu sem beina árás á ferðaþjón- , ustu í héraðinu og jafnframt á af- i komu fyrrgreindra félagasamtaka. ...ímyndaðu þér mjúkt, ofboðslega gott kex. ...ímyndaðu þér bragðmikið appelsínuhlaup og ekta hnausþykka súkkulaðihúð. ...ímyndaðu þér PIMS frá LU, ólýsanlega gott kex. Ummm... að ímynda sér. EGGERT KRISTJÁNSSON H/F SÍMI 6-85-300 - en það er miklu betra að smakka PIMS. < O eð RDflm I' LAUGAVEGUR47
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.