Morgunblaðið - 15.06.1988, Page 58

Morgunblaðið - 15.06.1988, Page 58
58 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ 1988 ©1967 Unlveml Praa» Syndicate „ Hann er ekkt m«-5 of turó.ba'c - 91 r-'' Þessar kökur þínar bráðna svo sannarlega á tungunni, enda hraðfrystar! Ég sé að þ ú ert bara sæt þegar þú hefur tekið gleraug- un niður ... HÖGNI HREKKVÍSI ©1988 McNaught Synd.. Inc. „VM.TO GLEyMA pESSO/l/| *.'!<ra/WÖSUM?/í' Of mikið um endur- sýningar Til Velvakanda. Mig langar til þess að lýsa óánægju minni vegna sífelldra end- ursýninga á kvikmyndum hjá Stöð 2. Mér fmnst svo sem í lagi þótt þeir endursýndu síðast á kvölddag- skránni í miðri viku fyrir þá sem geta vakað frameftir. En það keyrir um þverbak að bjóða manni upp á sömu kvikmynd- ina í þriðja sinn, og það á föstudags- kveldi þegar er flestir mega sofa út og vænta þess að fá að horfa á skemmtilegt helgarsjónvarp. Ég var að glugga í júnídagskrá frá þeim og þar eru nánast allar myndimar sem eru síðast á dag- skránni endursýndar jafnvel í þrígang, eins og t.d. laugardags- morguninn 18. júní. Mér finnst að við megum kreíj- ast þess að þeir sýni okkur nýrra efni, sérílagi um helgar. En ég vil samt þakka þeim fyrir frábærar dýralífsmyndir svo og margt gott efni annað er þeir bjóða upp á, en það vegur bara ekki nógu mikið upp á óánægju okkar vegna þessa er hér er kvartað yfír. jjg Skalli getur verið mikið viðkvæmnismál Skrifið eða hringið til Velvakanda Velvakandi hvetur lesendur til að skrifa þættinum um hvaðeina, sem hugur þeirra stendur til — eða hringja milli kl. 10 og 12, mánu- daga til fostudaga, ef þeir koma því ekki við að skrifa. Meðal efnis, sem vel er þegið, eru ábendingar og orðaskiptingar, fyrirspumir og frásagnir, auk pistla og stuttra greina. Bréf þurfa ekki að vera vélrituð, en nöfn, nafnnúmer og heimilisföng verða að fylgja öllu efni til þáttarins, þó að höfundur óski naftileyndar. Sérstaklega þykir ástæða til að beina því til lesenda blaðsins utan höfuðborgarsvæðisins, að þeir láti sinn hlut ekki eftir liggja hér í dálkunum. Til Velvakanda. 2. júní sl. birti Mbl. grein eftir Þóri S. Gröndal. Yfirskrift greinar- innar er „Fjölgar ámm, fækkar hárum.“ Í greininni fjallar Þórir um fyrirbærið skalla og bendir á mögu- lega mótleiki fyrir hina sköllóttu, s.s. ýmsar misfullkomnar hárkollur, söfnun „kragahárs" sem greitt er yfir annars beran hvirfilinn, Kojak- klippingu, uppskurði og gróðursetn- ingu hárs. I þessa fróðlegu grein Þóris vantar að Heilsuval, Lauga- vegi 92, er með árangursríka hár- rækt, viðurkennda af alþjóða læknasamtökunum. Hárrækt Heilsuvals gengur þannig fyrir sig: Farið er með kaldan léysergeisla og léttan rafstraum í 17 orku- punkta á höfði og höndum, hár- svörðurinn nuddaður með raf- magnsnuddi til að auka blóðrás í hársekkina, leysergeisla rennt yfir sama svæði til að gefa orku í hár- sekkina og örva starfsemi þeirra. Loks er orkupunktunum lokað með rafmagni. Þetta eykur hárvöxt um þriðjung. Hárið verður líflegra og glansmeira og þar sem skalli var kominn hefst hárvöxtur á ný. Með- ferðartíminn tekur 45—55 mín. og kostar 980 kr. Þessar upplýsingar tel ég brýnt að komi fram í umræðunni um skalla, kragahárssöfnun, hárkollur o.þ.h. Skalli er nefnilega ekki bara auðvelt viðfangsefni brandara- smiða, heldur einnig mikið við- kvæmnismál bamungra fómar- lamba og þá ekki síður þeirra kvenna sem eiga við blettaskalla, hárlos eða algjört hárleysi að stríða. Jens Guðmundsson Víkverji skrifar Fyrir þá sem ekki hafa tök á því að aka út fyrir höfuðborg- ina til að fá sér hressingargöngu á hvíldardegi getur verið ánægjulegt að ganga út á Seltjarnarnes. A hinn bóginn vekur það furðu þess sem í slíka ferð heldur og ætlar að ganga með sjónum, að hvorki norðan á nesinu né á því sunnanverðu virðist ætlast til þess að aðrir séu á ferð en þeir, sem em akandi í bifreiðum. Á stuttum spottum em engir gang- stígar. Nú kann að vera, að svo fáir leggi land undir fót á þessum slóðum, að yfirvöldum á Seltjarnamesi þyki ekki ástæða til að fjárfesta í gang- stéttum á þessum köflum, þar sem göngumaðurinn neyðist til að halda sér í vegakantinum nema í þurru veðri, þegar hann getur gengið í grasi utan vegar. Á hinn bóginn er einnig til þess að líta, að notkun reiðhjóla hefur færst í vöxt hjá ungum sem öldnum. Hjólreiðamenn mega nota gangstéttir og gera það margir. ^Færi vel á því að stígur fyrir þá yrði lagður með sjónum umhverfis Seltjarnarnes. Er Víkveiji viss um að slík braut yrði mikið notuð. Raunar ættu yfirvöld í Reykjavík og á Seltjarnamesi að koma sér saman um lagningu hjól- reiðastígs með allri strandlengjunni frá Elliðavogi inn í Fossvog. Það yrði mörgum í senn ævintýri og heilsubót að fara slíkan hring með sjávarsíðunni. xxx Hugmyndir af þessu tagi þykja líklega ekki mjög fmmlegar nú á tímum, þegar boðnar em flug- ferðir á Öræfajökul og síðan farið í stutta göngu frá vélinni upp á Hvannadalshnjúk. Vonandi fer eng- inn sér að voða í þeirri ævintýra- leit. Raunar vaknaði sú spurning í huga Víkveija, þegar hann heyrði um þessar flugferðir, hvort nokkur staður hér á landi eða annars stað- ar yrði sveipaður dulúð í huga kom- andi kynslóða. Fyrir nokkm var sagt frá því, að japönsk sjónvarpsstöð hefði kost- að leiðangra upp á Everest-tind og vom fjallamennimir með sjónvarps- myndavélar í hjálmunum, þannig að unnt var að fylgjast með því í beinni útsendingu, sem fyrir augu bar. Afreksverk af þessu tagi fá á sig aðra mynd, þegar menn geta setið heima í stofu og tekið þátt í því þar að komast á hæsta topp jarðar. Hingað til hefur það talist til töluverðra afreksverka, að minnsta kosti í huga þessa Víkverja, að komast upp á Hvannadalshnjúk. Hér eftir ræðst það kannski aðeins af því, hvort maður þorir að fara með skíða-flugvél, hvort tindinum verði náð? xxx Eftir að farið er að fljúga með fólk upp á Öræfajökul, vaknar sú spurning, hvort ekki sé tíma- bært að fara að skipuleggja ferðir ofan í Snæfellsjökul og láta draum Jules Veme þar með rætast. Víkveiji minnist þess og að hafa einhvers staðar lesið, að víða um land séu merkir hellar, sem ekki þyki ástæða til að tala mikið um fyrir utan þröngan hóp af ótta við, að þeir verði eyðilagðir af ferða- mönnum og ágangi fólks. Og enn er það fyrsta sem fréttamenn spytja um, þegar rætt er um ferðamanna- staði, hvort þeir séu ekki (öugg- lega!) illa farnir vegna komu ferða- mannanna. Með öllum tiltækum ráðum þarf að koma málum þannig fyrir, að sem flestir fái að njóta þeirrar feg- urðar, sem landið hefur að bjóða. Mestu skiptir að finna meðalveginn þannig að heimsóknir ferðamanna valdi ekki umhverfistjóni. Er vafa- laust, að það verður best gert með því að gera aðstöðu fyrir ferðamenn sem besta á vinsælustu stöðunum og sjá til þess að allar leiðir séu vel merktar og greiðfærar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.