Morgunblaðið - 15.06.1988, Blaðsíða 59

Morgunblaðið - 15.06.1988, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ 1988 59 Burt með rollurnar Áhugamaður um landgræðslu- hringdi: „Fyrir skömmu skrifar einhver, sem líklega er bóndi, skondna grein í Velvakanda. Þar er því haldið fram að sauðfjárbeit eyði ekki gróðri en að sjálfsögðu eru ekki færð nein rök fyrir þeirri staðhæfingu. Staðreyndin er ein- mitt sú að sauðfjárbeit er ein aðal ástæðan fyrir þeirri hnignun sem orðið hefur á gróðurfari hér á landi frá landnámi. Síðan segir þessi heiðursmaður: „En er það til of mikils mælst að skógræktar- menn girði lönd sín af?“ Svar: Já, það er til of mikils mælst. Þeir sem stunda sauðfjárbúskap eru nógu lengi búnir að komast upp með að sleppa rollum sínum laus- um á lönd annara. Það ætti að skylda þá til að -girða af sínar rollur. Burt með rollumar af öllum skógræktarlöndum. “ Dagsetningar Haftvar samband við Velvakanda frá Ölgerð Egils Skallagrímsson- ar: „Kristín Sigurðardóttir spyr laugardaginn 11. júní hvers vegna dagsetningar vantar á botn dósa frá okkur sem hún keypti. Ástæð- an er sú að við áttum við byijunar- erfiðleika að etja með tæki sem setja dagsetningar á botn dósana en þetta er nú komið í lag. Inni- hald ómerktu dósana er í lagi fram á næsta ár og þarf fólk því ekki að hafa áhyggjur af þessu.“ Góð þjónusta Sigurbjörg hringdi: „Ég vil þakka fyrir góða þjón- ustu sem ég fékk hjá versluninni í Austurstræti 17. Eg keypti hjá þeim í kvöldmatinn en þegar til kom reyndist kjötið svo salt að Sauðfjárbeit eyðir ekki gróðri Til Velvitkanda. að kenna. Sumir halda því meira hér á landi og er fýrir þvi sterk Þvi vm- haldið fram í Velvak- að aegja fram að gróið land hafi hefð. Nú er mikiMal^Uim frelsi. það var ekki borðandi. Ég hringdi í verslunina og fékk samband við kjötiðnaðarmann þar. Hann sýndi þessu fullan skilning og eftir tíu mínútur var hann kominn heim til mín með þannan stórkostlega kjötrétt. Þetta kalla ég snögga og góða þjónustu. Ég átti að vísu von á að fá kjötið endurgreitt en ekki þessum liðlegheitum." Hæpin tilhögun H.F. hringdi: „Þannig er að Eurocardfyrir- tækið krefst þess að verðandi korthafar leggi inn tryggingarví- xil áður en þeir fá kortin. Ætlast til þess að það sé skrifað upp á þennan víxil óútfylltan og hann síðan lagður inn. Þetta tel ég að sé hæpin tilhögun því þeir sem skrifa uppá þessa víxla fyrir kort- hafa vita ekki hversu mikilli upp- hæð þeir gætu orðið ábyrgir fyr- ir. Þetta er nokkuð sem ég tel að fólk þurfi að fá skýringu á.“ Látið eitthvað af hendi rakna Kristjana Jakobsen hringdi: „Mig langar að hvetja fólk til að láta eitthvað fé af hendi rakna vegna brunans á Torfufelli 31 handa móðurinni og dætrum hennar tveimur. Mér er vel kunn- ugt um dugnað og mikla vinnu konunnar undanfarin ár til að halda þessu húsnæði sem nú hef- ur eyðilagst í eldi ásamt öllu inn- búi og fatnaði. Innbú var ekki tryggt svo hún er svo sannarlega hjálparþurfi. Hægt er að leggja peninga inn á bankabók nr. 42087 í Lands- banka Islands, Langholtsútibú, á nafn Guðrúnar Óskarsdóttur. Einnig er hægt að leggja inn í hvaða banka sem er með C-gíró- seðli á númer bókarinnar." Kvæði Spurt var eftir kvæði í Velvak- anda fyrir skömmu en kvæðið hófst á setningunni: Ég mætti hér um morguninn / manni ofanúr sveit. Kona hringdi og sagði að þetta kvæði héti Skinnsokkavals- inn og hefði birtst í Heima er best í október 1962. Gullúr Kvengullúr fannst við Njáls- götu fyrir skömmu. Upplýsingar í síma 28819. Köttur Fyrir rúmlega viku síðan fór gulbröndóttur sjö mánaða gamall högni að heima frá sér í Högun- um. Hann er hvítur á bringu og kvið og hefur hvítan blett á baki á stærð við krónupening. Hann er ómerktur. Þeir sem orðið hafa varir við kisa eru vinsamlegast beðnir að hringja í síma 23015 eða síma 694743. Hugleiðing um lífið og tilvenma Kæri Velvakandi. Þegar bréf þetta er ritað skín sól- in þar sem ég sit á rökum steini á norðanverðu Snæfellsnesi. Að vísu má segja sem svo að sólin lýsi ávallt, þó ský renni sér yfír landið og vökvi það svalandi regni. En þessa stund ljómar sólin yfir íslenskri náttúru eftir skúratíð liðinna daga. Hér, þar sem ég sit og reyni að finna mér þurrari stað á íslensku gijóti og er orðinn dálítið rakur í þeim skilningi sem að framan getur, virði ég fyrir mér tilveruna meðan hugsanir um tilgang lífsins raska ró minni þegar mér verður hugsað til allra þeirra manna sem framið hafa þann verknað að binda enda á sitt eigið líf. Nú er náttúran í blóma, grænar grundir liggja hér allt um kring og drekka í sig lifandi vatnið meðan sólin skín. Fuglamir í klettun- um hér fyrir ofan mig liggja á nýju lífi meðan aðrir leita sér ætis. Hundgá heyrist í fjarska neðan úr þorpinu við tígulegt Kirkjufellið og bátar liggja við net úti á fírðinum. Allt í kring um birtu sólarljóssins ljóma fleiri stjömur í fjarska þó myrkur í mörgum sálum komi mörg- um manninum undir fetin sex þar sem geislar sólarinnar ná ekki að skína. Hvers vegna skyldi maðurinn ekki lifa svo lengi sem honum er ætlað fyrst hann varð til á annað borð? Ekki var það af mannsins hálfu að hann varð til eða hvað? Hví skyldi hann binda enda á líf sitt sem honum er gefið? Fyrst hann varð til ber honum þá ekki að lifa sitt æviskeið á enda? Hugsum okkur þær stundir og ár sem foreldrar okkar önnuðust okkur og studdu. Meðan við vomm ósjálf- bjarga beygðu foreldrar okkar sig yfir okkur til að annast hið nýja líf. Og hversu sár hlýtur sá missir að vera að sjá á eftir lífí sem maður hefur alið upp frá fæðingu, matað, stutt til gangs, huggað og glaðst með? Líf hverrar manneskju er Verð- mætt og verður aldrei metið á vogar- skáium. Aldrei. Um það ber Heilög ritning vitni og uppörvar okkur ekki aðeins um að bera umhyggju fyrir náunga okkar heldur gerir okkur ljóst að við skulum vegna kærleikans annast, styðja, hjálpa og elska, ekki aðeins okkar nánustu heldur jafnvel óvini okkar. Þegar líf er einu sinni kviknað, þegar Guð hefur skapað, allt frá getnaði, ber að vemda það. Við sem lifum getum gert stóra hluti til að gera Guðs vilja, með hans hjálp. Þomað hefur á steini og ég rölti heim á leið_ eftir þessa hugleiðingu um lífið. Lifíð sem dregur andann hér allt í kring og lífið sem góður Guð gaf mér og ykkur öllum hinum. Lofað verði hans heilaga nafn, Je- hóva, og sonar hans Jesú Krists. Einar Ingvi Magnússon Forsetavaldið hef- ur staðfest lögin Til Velvakanda. Að undanfömu hefur mörgum landsmönnum blöskrað mótframboð Sigrúnar Þorsteinsdóttur og gífur- legur meirihluti hefur stutt Vigdísi forseta og það álit hennar að skyn- samlegast sé fyrir forseta að stað- festa lög. Nú er forsetaembættið nýbúið að staðfesta bráðabirgðalög ríkisstjórnarinnar en samt er kominn upp alvarlegur orðrómur um að þessi lög muni ekki duga vegna vöntunar á refsiákvæði. Til hvers er forseta- valdið að staðfesta lög sem gilda aðeins að hluta til? Hann hlýtur að kreijast þess að ríkisstjómin fram- fylgi eigin lögum sem forsetavaldið er nýbúið að staðfesta. Með öðrum orðum að endurgera Straumsvíkur- samninginn, því miður. Vilhjálmur Alfreðsson roadstar AUTO-HiFÍ AD-7360 Útvarp/segulband: LW/MW/FMstereo-tónstiflir 64W magnari - spilar sjálfvirkt í báöar áttir - hljómmögnun hraöspólun í báöar áttir - jafnvægisstillir - truflanadeyfir 5 banda tónjafnari - DNR suöeyöir - hátalaradeilir (fader). 'KFF27Í720, AD-7580 Utvarp/segulband: LW/MW/FM stereo - 64V magnari-aðskildirbassa-og hátónastillar - spiiar sjálfvirl- í báöar áttir - hljómmögnun - stilling á spólugerö (meta chrome o. þ.h.) - hraöspólun í báöar áttir - jafnvægisstill truflanadeyfir - DNR suöeyöir - hátalaradeilir (fadei 18 minnisrásir. AD-7710 Utvarp/segulband: LW/MW/FM stereo - 64V magnari-aöskildirbassa- og hátónastillar - spilar sjálfvirk í báöar áttir - hljómmögnun - stilling á spólugerö (metal chrome o. þ.h.) - hraðspólun í báöaráttir- jafnvægisstilli truflanadeyfir - DNR suöeyöir - hátalaradeilir (fader 18 minnisrásir - 5 banda tónjafnari. í alla bíla ! Eftirtaldir seija Roadstar: Bifr. og landbúnaöarvélar, Suöurlandsbr. 14, Reykjav. K.S. Samkaup, Njarövík, Radoinaust, Glerárgötu 26, Akureyri, Hegri, Sauöárkróki, S. Kristjánsson raftækjav. Hamraborg 11, Kópavogi. SKIPHOLTl 19 SÍMI29800 'KÍF6T480,- RA-378 LX Utvarp: LW/MW/FM stereo - tónstillir jafnváegisstillir - hljómmögnun (loudness) - truflanadeyfir 15W magnari. AD-7032 Útvarp/segulbánd: LW/MW/FMstereo -tónstifiir 15W magnari - spilar sjálfvirkt í báöar áttic - hljómmögnun hraöspólun í báöar áttir - jafnvægisstillir - truflanadeyfir. AD-7430 Útvarp/segulband: LW/MW/FMstereo -tónstilíir 15W magnari - spilar sjálfvirkt í báöar áttir - hljómmögnun hraöspólun í báöar áttir - jafnvægisstillir - truflanadeyfir stafrænn skjár.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.