Morgunblaðið - 15.06.1988, Side 64

Morgunblaðið - 15.06.1988, Side 64
Tork þurrkur. hgar breinbrti er nauMvn. 121 Reykjavik Simi (91) 26733 MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ 1988 VERÐ í LAUSASÖLU 60 KR. Morgunblaðið/Gunnar Rafn 19 punda urriði á stöng Húsavík. EINN stærsti urriði sem fengist hefur á stöng, hér um slóðir að minnsta kosti, veiddist í Litluá i Kelduhverfi á mánu- dag. Þá veiddi Gústav Axel Guðmundsson 19 punda bolta- fisk á svæði 5 og sést hann á myndinni með fenginn. Þetta er þriðja veiðimetið sem Gústav setur við veiði í Litluá, en 1986 veiddi hann 9 punda urriða sem þá var sá stærsti sem þar hafði veiðst. I fyrra bætti hann metið þegar hann veiddi, 15 punda urriða og í ár var metið 19 punda urriði, hversu lengi sem það stendur. — Fréttaritari Tillögur fjármálaráðherra í landbúnaðarmálum: Ríkisjarðir verði seldar verkalýðshreyfingunni JÓN Baldvin Hannibalsson fjár- málaráðherra hefur lagt til að verkalýðshreyfingunni verði heimiluð kaup á ríkisjörðum und- ir orlofshús til þess að stuðla að samdrætti landbúnaðarfram- leiðslu. Guðmundur Sigþórsson, skrifstofustjóri í landbúnaðar- ráðuneytinu og einn þriggja emb- ættismanna sem yfirfara nú til- lögur um fjárframlög til land- búnaðarins, staðfesti við Morgun- blaðið að fjármálaráðherra hefði lagt fram tillögur í þessa veru. Hann sagði þó að á þessu ári hefði þegar verið unnið að því að ríkisjarðir, sem losna úr ábúð og mælt væri með að yrðu ekki not- aðar til sauðfjárbúskapar, yrðu nýttar til skógræktar og útivistar. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins hefur fjármálaráðherra lagt til að um 180 jarðir verði nýttar undir orlofshúsabyggð. ,,Það má búast við því að ef farið yrði af stað með þetta mál, yrði eftir- spurnin takmörkuð því að þegar hefur verið byggt mikið af orlofs- byggðum," sagði Guðmundur Sig- þórsson. „Sjálfsagt getur þetta þó orðið eitt af þeim atriðum, sem ver- ið er að kanna frekar í landbúnaðar- málum.“ Guðmundur sagðist telja að 180 jarðir væri nokkuð há tala, þar sem reikna mætti með um 10 orlofshúsum á hverri jörð að meðal- tali. „Það komast nokkuð margir fyrir í 1800 orlofshúsum,“ sagði Guðmundur. Guðmundur sagði að jarðimar yrðu væntanlega seldar við vægu verði ef til kæmi, enda væri jarðar- verðið yfírleitt minnstur hluti kostn- aðar við að koma upp orlofshúsa- hverfí. Að sögn Guðmundar eru um 700 jarðir í eigu ríkissjóðs. Þær væru þó alls ekki allar í ábúð. Sólskin og hlýindi eru um norðan- og austanvert landið þessa dagana og komst hitinn í 20 stig á Egilsstöðum í gær. Samkvæmt upplýsingum frá veðurstofunni er búist við áframhaldandi góðviðri. Krakkarnir í leikskólanum á Seyðisfirði voru því léttklædd þegar þessi mynd var tekin fyrir nokkru. Morgunblaðið/Garðar Rúnar Léttklædd í leikskólanum áSíðu SLÁTTUR hófst í gærmorgun hjá Steingrími Lárussyni bónda á Hörglandskoti á Síðu. Steingrím- ur sagði í samtali við Morgun- blaðið að hann væri hinn ánægð- asti með sprettuna. Hann sló um einn hektara í gær og kom öllu heyinu, sem hann verkar í vot- hey, í hús. „Eg hef oft bytjað um þetta leyti, 11. til 18. júní,“ sagði Steingrímur. Hann sagði að ekkert ætti að vera því til fyrirstöðu að bændur á næstu bæjum færu að slá, því að sprettan væri góð og undanfama viku hefði verið einstök blíða, 18-20 stiga hiti í forsælu. „Menn verða að reyna allt sem þeir geta til að losna við að gefa fóðurbæti á þessum síðustu og verstu tímum kvóta og skömmtun- ar,“ sagði Steingrímur. „Með úrvals- heyi, sem er vel verkað, þarf að gefa sáralítið af fóðurbæti." Jónas Jónsson, búnaðarmála- stjóri, sagðist ekki hafa heyrt af fleimm, sem væm byijaðir að slá. Honum kæmi þó ekki á óvart þótt sláttur hæfist fljótlega á ýmsum bæjum í Eyjafírði og á austanverðu Suðurlandi, þar sem blíðviðri hefur verið undanfarið. Jónas sagði að spretta hefði víðast hvar farið vel af stað og hefði hann hvergi heyrt annað en að sprettuhorfur væm góðar. Auglýsendur athugið Ekkert blað kemur út næst- komandi laugardag vegna þjóð- hátíðardags, 17. júní. Auglýs- ingar í sunnudagsblað 19. júnf þurfa að berast auglýsingadeild fyrir kl. 16.00 fimmtudaginn 16. júní. Verulegur árangur náðist í álviðræðunum í London segir dr. Jóhannes Nordal. Annar fundur í Reykjavík 4. júlí „FUNDURINN var mjög jákvæð- ur og verulegur árangur náðist í viðræðum okkar og álfyrirtækj- anna. Ein af niðurstöðum fund- arins var að við ákváðum að hitt- ast aftur í Reykjavík 4. júlí,“ segir dr. Jóhannes Nordal I sam- tali við Morgunbiaðið, en hann veitir íslensku viðræðunefndinni um stækkun álversins í Straumsvík forystu. Fundurinn var haldinn á Shera- ton hótelinu í London í gærmorgun með fulltrúum Alusuisse, Alumined Beheer í Amsterdam, Gránges í Stokkhólmi og Austria Metall í Austurríki. „Það er ljóst að allir þessir aðilar vilja vinna áfram í sameiningu að undirbúningsvinnu fyrir stækkun álversins og eitt af þeim verkefnum sem framundan em er að gera hag- kvæmnisathugun á þessu verki,“ segir dr. Jóhannes. I máli dr. Jóhannesar kom fram að náðst hefði sá árangur sem að var stefnt með fundinum í London og átti hann von á að næsti fundur í Reykjavík yrði jafn árangursríkur enda væri áhugi fyrrgreindra fyrir- tækja vemlegur á þessu verkefni. Friðrik Sophusson iðnaðarráð- herra sagði að hann væri mjög ánægður með þann áfanga sem náðst hefði á þessum fundi enda ljóst að þessir aðilar hefðu áhuga á að skoða málið ofan í kjölinn. „Ef það gengur upp að hægt verði að skrifa undir samstarfs- samning ætti endanleg ákvörðun að liggja fyrir innan árs og verði sú ákvörðun jákvæð mætti hefja rekstur árið 1992 en slíkt fellur mjög vel að virkjanaáformum okk- ar,“ segir Friðrik Sophusson. Hann vildi þó taka það fram að enn væri málið einungis á viðræðustiginu en ekki endanlega í höfn, þótt merkj- anlegur væri áhugi hjá þessum fjór- um aðilum. I umræðunni nú er rætt um stækkun álversins í Straumsvík, í formi nýrrar verksmiðju, með 90.000 til 110.000 tonna afkasta- getu sem kæmist í gagnið árið 1992 eins og fyrr segir. Auk þess er inn í myndinni að tvöfalda þá stækkun en þau áform myndu ekki líta dags- ins ljós fyrr en 4-6 árum eftir fyrri áfangann. Ekki eru til neinar hald- bærar tölur um kostnað við þetta verk en fyrir nokkrum árum var gerð kostnaðaráætlun fyrir 180.000 tonna álver og nam sá kostnaður um 20 milljörðum króna. Sláttur hafinn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.