Morgunblaðið - 24.06.1988, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 24. JÚNÍ 1988
33
raðauglýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar
tilboð — útboð ~|
iÚTBOÐ
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar fyrir
hönd Skólaskrifstofu Reykjavíkur óskar eftir
tilboðum í gerð loftræstikerfis í sundlaug
Árbæjarskóla, Reykjavík.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri,
Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík, gegn kr. 15.000,-
skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað fimmtu-
daginn 7. júlí kl. 14.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 — Simi 25800
| til sölu |
Fiskkör og kælitæki
Til sölu 30 stk. 660 lítra ný fiskkör, 14 stk.
frá Sæplasti og 16 stk. frá Normex.
Einnig eru til sölu ný kælitæki sem passa
fyrir 350 rúmmetra klefa. Hagstætt verð.
Upplýsingar í símum 73903 og 652524.
ýmislegt
Vantar verkefni
ítrésmíði, múrverki og málningu, t.d. glugga-
og þakviðgerðum, smíði á gluggum, innrétt-
ingavinnu á íbúðum og skrifstofum, múrvið-
gerðum á þakrennum og tröppum, flísalögn.
Einnig smíðum við sólstofur og grindverk í
garða, sumarhús og viðgerðir á þeim.
Verktakafyrirtækið Stoð,
símar 41070, 21608 og 985-27941.
tilkynningar
Söluskattur
Viðurlög falla á söluskatt fyrir maímánuð
1988, hafi hann ekki verið greiddur í síðasta
lagi 27. þ.m.
Viðurlög eru 4% af vangreiddum söluskatti
fyrir hvern byrjaðan virkan dag eftir eindaga
uns þau eru orðin 20%, en síðan reiknast
dráttarvextir til viðbótar fyrir hvern byrjaðan
mánuð, talið frá og með 16. júlí.
Fjármálaráðuneytið.
Frá undirkjörstjórn í
Mosfellsbæ
Kjörstaður vegna forsetakosninga 25. júní
1988 verður í Varmárskóla. Kjörstaður opnar
kl. 10.00 árdegis og kjörfundur stendur til
kl. 23.00.
Undirkjörstjórn í Mosfellsbæ.
húsnæði í boði
Til leigu
Til leigu er glæsileg, stór, fimm herbergja
íbúð á besta stað í Vesturbænum í Reykjavík.
Fallegt útsýni. Leigutími ca. 3 ár.
Tilboð sendist á auglýsingadeild Mbl. merkt:
„Vesturbær - 3753“.
húsnæði óskast
Þriggja herbergja íbúð óskast til leigu fyrir
hjúkrunarfræðing á Borgarspítalanum.
Nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu
hjúkrunarforstjóra, sími 696356.
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
1927 60 ára 1987
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU3
SÍMAR 11798 oq 19533.
Dagsferðir
Ferðafélagsins:
Laugardaglnn 25. júnf kl. 08.00.
- Gönguferð á Heklu. Verð kr.
1200.
Laugardaginn 25. júnf kl. 13.00.
- VIÐEY. Brottför frá Sunda-
höfn. Verð kr. 250.
Sunnudaginn 26. júnf kl. 13.00.
Straumsel - Öttarstaðasel.
Verð kr. 600.
Miðvikudaginn 29. júní kt.
20.00. - Gálgahraun. Verð kr.
400.
Brottför frá Umferðarmiðstöð-
inni, austanmegin. Farmiðar við
bíl. Fritt fyrir börn i fylgd fullorð-
inna.
Ath.: Sunnudaginn 26. júní verð-
ur farin dagsferð til Þórsmerkur
kl. 08.00. Verð kr. 1200.
Ferðafélag fslands.
með hlutverk
CTái YWAM - ísland
Helgistund
verður í Grensáskirkju laugardag-
inn 25. júní kl. 10.00 árdegis. Efni
stundarinnar verður íhugun og
bæn. Persónuleg þátttaka.
Fyrirbænasamvera veröur síðan i
framhaldi af helgistundinni.
Allir velkomnir.
ÚíÍVÍSt, G.o„nn,,
Helgarferðir 24.-26. júní
1. Jónsmessuferð f Þórsmörk.
Góð gistiaðstaða i Útivistarskái-
unum Básum. Gönguferðir við
allra hæfi m.a. í Teigstungur.
Brottför kl. 20.00.
2. Skógar - Fimmvörðuháls -
Básar. Gist í Básum. Gengiö
yfir á einum degi (8-9 klst.)
Áhugaverð leið.
3. Jónsmessuferð f Núpsstað-
arskóga. Tjöld. Gönguferöir.
Dagsferðir alla sunnudaga f
Þórsmörk. Brottför kl. 8. Verð
kr. 1200.-
Miðvikudagsferðir f Þórsmörk.
Tilvaldar fyrir sumardvalargesti.
Upplýsingar og farmiðar á skrif-
stofu, Grófinni 1, simar 14606
og 23732. Sjáumst!
Útivist.
FERDAFELAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU 3
SÍMAR11798 og 19533.
Helgarferðir
Ferðafélagsins
24.-26. júnf: Helgarferð til
Þórsmerkur. Sunnudag 26. júni
kl. 08.00 - dagsferð til Þórs-
merkur. Verð kr. 1.200,-.
Við vekjum athygli sumarleyfis-
gesta á að fram til 1. sept. veröa
ferðir til Þórsmerkur á miðviku-
dögum (kl. 08.00), föstudögum
(kl. 20.00) og sunnudögum (kl.
08.00).
24.-26. júnf: Eiríksjökull (1675
m.). Gist í tjöldum í Torfabæli.
1.-3. júlí: Snæfellsnes - Ljósu-
fjöll. Gist i svefnpokaplássi.
Gengið á Ljósufjöll.
8.-10. júlf: Hagavatn - Jarl-
hettur. Gist i sæluhúsi F.f. við
Einifell, og tjöldum.
8.-10. júlf: Hagavatn - Hlöðu-
vellir - Geysir fgönguferð).
Gengiö frá Hagavatni að Hlöðu-
völlum og gist þar, síðan er
gengiö að Geysi.
15.-17. júlf: Þórsmörk - Teigs
tungur. Gist í tjöldum í Stóra-
enda og gengiö þaðan i Teigst-
ungur og víðar.
Brottför i helgarferðirnar er kl.
20.00. Farmiöasala og upplýs-
ingar á skrifstofu Ferðafélags-
ins, Öldugötu 3.
Ferðafélag fslands.
Skíðadeild
Hreinsunardagur i Hamragili nk.
laugardag kl. 13.00. iR-ingarfjöl-
mennið svo hægt veröi að þrífa
svæöiö vel.
Á eftir (kl. 18.00) verður grillaö,
takið því grillin með.
Stjórnin.
AGLOW
- krístileg samtök kvenna
Fundur verður í dag, föstudag
kl. 20.00 i Gerðubergi.
Ræöumaöur verður Ásthildur
Snorradóttir, talkennari.
Allar konur velkomnar.
Minning:
Kristjana Kristins-
dóttir - Osló
Fædd 2. apríl 1922
Dáin 4. maí 1988
Fjórða maí sl., lést í Osló æsku-
vinkona mín, Sjana. Hún hét fullu
nafni Kristjana. Móðir hennar var
Halldóra Þorkelsdóttir og faðir
hennar Kristinn Bergmann Jónas-
son. Alsystkini átti hún tvö, Olmu
og Halldór, bæði látin. Hálfsystkin-
in eru þau Hallveig og Sigurþór,
böm Halldóru, og Markús, sonur
Kristins.
Foreldrar Sjönu skildu, þegar þau
systkini vom í bernsku, og ólust
þær systur upp hjá Sigríði ömmu
þeirra og Almari Norðmann.
Þegar kynni okkar Sjönu hófust
bjuggu þær systur að Suðurgötu
35, hér í borg. Á milli okkar Hring-
brautarsystkinanna tókst mikil og
sterk vinátta. Þær voru alltaf vel-
komnar á Hringbraut 126, sem og
allir okkar vinir. Sigríður var ströng
húsmóðir enda þar alltaf allt í röð
og reglu. Á okkar sjö systkina heim-
ili var aftur ærsl og fjör, sem þær
systur kunnu vel að meta. Man ég,
að eitt sinn þótti mér nóg um ærsl-
in í þeim systrum og hafði orð á
því við mömmu. „Æ, lofum þeim
að ærslast, þær verða að vera prúð-
ar heima hjá sér.“ Ég var tíður
gestur hjá þeim og var Sigríður
mér mjög góð. Ég passaði mig á
því, að vera prúð, enda þótti mér
bara gott að komast í kyrrðina
þar. Almar var ljúfmenni. Hann var
norskrar ættar og flutti Sjana með
þeim til Noregs eftir stríðslok 1946.
Höfðu þau hjónin í hyggju að setj-
ast þar að, en snéru aftur til ís-
lands og eyddu sínu ævikvöldi hér
heima. Sjana aftur á móti varð eft-
ir í Noregi. Hún giftist Erling By-
en, nú látinn, og eignuðust þau tvö
böm, Randí og Einar. Barnabörnin
eru þijú. Maður Randíar er Sven
Melby.
Sjana vann lengi vel við aðalpóst-
húsið í Ósló. „Ja, det er slitende
at arbeta som jeg gör, men det er
godt for sjelen," svaraði hún mér
einu sinni, með sínum norska klang,
þegar mér fannst hún leggja of
hart að sér við vinnuna. Hún byrj-
aði sem ræstingakona og lauk sínu
starfí þar sem yfirmaður ræstinga-
kvennana. Sjana var vel greind og
með sinni innsýn og elju lyfti hún
starfi sinna starfssystra. Hún hjálp-
aði þeim á allan máta til að fá
þeirra starf betur metið og fékk þær
til að meta sjálfar sig meir í starf-
inu. Varð hún hvers manns hug-
ljúfi með sinni framkomu. Ég sé
hana fyrir mér eitt sinn, er ég kom
við á pósthúsinu á ferð minni á
Þjóðdansamót í Osló. Mætti ég
henni á fullri ferð á ganginum rúll-
andi á undan sér vagni fullum af
allskonar skúringardóti. „Ja, Unna.
Þú þurftir að koma „akkúrat" núna.
Ég ætlaði að vera búin að skipta
um föt.“ Og svo hló hún sínum dill-
andi hlátri.
Á ferðum mínum um Norðurlönd
kom ég ávallt við hjá henni. Eitt
sinn er við sátum að spjalli sagði
hún: „Unna, það er tvennt sem ég
hef öfundað þig af. Að hafa alist
upp hjá móður þinni, og að spila á
píanó.“ Að alast upp hjá móður
minni hafði ég ekki hugsað út í
hversu sjálfsagt var. Að halda
píanóinu, sem komið var inn á heim-
ilið, þurfti ég að hafa svolítið fyrir.
Pabbi hótaði nefnilega að selja það,
ef ég ekki æfði mig. Ég spilaði því
öllum stundum og mest er pabbi
var heima.
Já, ég fékk að spila á píanó. Sjana
hafði píanófingur og spilaði með
þeim á sérstaka tegund píanós. Sú
tegund heitir lífið sjálft. Það er
stundum erfítt að laða sig að
iífsháttum framandi lands. Sjálf-
sagt hefur margt verið öðruvísi í
hennar augum, en hér heima, en
henni tókst að aðlaga sig, enda vel
gift.
Hún fékk í yöggugjöf létta lund
og var fljót að sjá kómísku hliðar
daglegs lífs. Músíkölsk var hún og
uppfyllti sinn æskudraum. Hún
fékk sér píanó.
Á ferðum sínum til íslands dvaldi
hún oft hjá okkur Einari og var
koma hennar tilhlökkunarefni. Á
ferð minni til Noregs í júlí nk. mun
ég sárt sakna Sjönu.
Votta ég aðstandendum hennar
samúð mína.
Unnur N. Eyfells
VATNSDÆLUR
Ótal gerðir
Skeifan 3h - Sími 82670