Morgunblaðið - 14.07.1988, Side 21

Morgunblaðið - 14.07.1988, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. JÚLÍ 1988 21 Morgunblaðið/Ingiberg J. Hannesson Stíflumannvirki við ósa Staðarhólsár og Hvolsár og gildrubúnaður hafbeitarstöðvarinnar. Suður-Afríkusamtökin - gegn apartheid Útihátíð á Miklatúni SUNNUDAGINN 17. júlí efna Suður-Afríkusamtökin - gegn apartheid til útihátíðar á Mikla- túni í Reykjavík undir yfir- skriftinni: Frelsum Mandela sjö- tugan. íslenskir skemmtikraft- ar koma fram, sýndar verða myndir frá Suður-Afríku og um ævi Nelson Mandela. Tilefni hátíðarinnar er að 18. júlí n.k. verður Nelson Mandela sjötugur, en hann hefur setið í fangelsi í rúm 26 ár ævi sinnar. Vegna þessa hafa samtök gegn aðskilnaðarstefnu víða um heim staðið fyrir uppákomum til að freista þess að fá Mandela lausan. Utihátíðin hefst á sunnudaginn klukkan 13 með blandaðri dag- skrá. Fram koma Bjartmar Guð- laugsson, Laddi og Sveinbjörn Beinteinsson, auk þess sem brúðu- leikhús verður á staðnum. Klukk- an 14.30 sama dag hefst „Rokk gegn apartheid" þar sem íslenskir tónlistarmenn munu kveða sér hljóðs. Meðal þeirra sem fram koma eru Sykurmolamir, _ Megas, Bubbi Morthens, Egill Ólafsson og Síðan skein sól. Allur ágóði af hátíðinni mun renna til aðstoðar börnum og ungl- ingum í Suður-Afríku sem fangel- suð og pyntuð hafa verið af suður- afrískum stjórnvöldum. (Úr fréttatilkynningu) Mikil laxagengd hjá Dalalax í Saurbæ Saurbœ, Dalasýslu. SÍÐUSTU dagar hafa verið líflegir í hafbeitarstöð Dalalax i Saurbænum. Gengnir eru rúm- lega 200 laxar á fyrstu dögum júlímánaðar, og er það óvenju mikil laxagengd svo snemma sumars, en venjulega hefur lax- inn gengið mun síðar. Þetta eru fleiri laxar en komu í allt fyrra sumar, og byijunin Iofar því góðu, en í fyrra var sleppt hér 20 þúsund sjógönguseiðum. Er sýnilegt, að hafbeitin lofar góð- um heimtum ef fram heldur sem horfir. Stangveiðin í Hvolsá og Staðar- hólsá hefur farið vel af stað og fyrstu þijá dagana veiddust um tuttugu laxar. Þannig er málum háttað hér, að laxinn, sem kemur í hafbeitarstöðina, er fluttur upp í ámar og kunna veiðimenn vel að meta þessa aðferð og eru hinir ánægðustu. Þeir vita hversu mikill fiskur er í ánum á hveijum tíma og er þá galdurinn að finna hann og fá hann til að taka. Þessi aðferð hefur mælst vel fyrir og er án efa árangursrík, bæði með tilliti til þeirra markmiða, sem hafbeitar- menn hafa sett sér og ekki síður með hagsmuni stangaveiðimanna fyrir augum. - IJH Sauðárkróki: SjáJfstæð- iskonur í gróður- setningu Saud&rkróki. KONUR úr Sjálfstæðiskvennafé- lagi Sauðárkróks tóku sig til og gróðursettu á annað hundrað tijáplöntur í Grænuklauf, ofan íþróttasvæðis bæjarins, nú fyrir skömmu. Grænaklaufin var sérstaklega hér áður fyrr notuð til útisamkomu- halds, þó á síðari árum hafi oftar verið brugðið á það ráð að halda skemmtanir á íþróttavellinum, þeg- ar mikið hefur staðið til, svo sem 17. júní eða á viðlíka hátíðisdögum. Oft hefUr þó viljað brenna við, ef veðurfar hefur ekki verið því betra, að kalsamt hefur orðið á íþróttasvæðinu svo færri hafa lagt leið sína J)angað en ella á slíkum dögum. Ymsir hafa Viljað endur- vekja þann sið að halda útiskemmt- anir í Grænuklaufinni, en þar er skjólgott fyrir norðanáttinni, og kominn þó nokkur gróður, og er þetta framtak þeirra sjálfstæðis- kvenna þáttur í þeim áformum. Gróðursettar voru 120 lerki- og 40 birkiplöntur undir umsjón Pálma Sighvatssonar, sem hefur umsjón með þeim svæðum í bænum sem tilheyra íþrótta- og útivistarmálum. BB LEEDfl Veiðihúsið Arsel er í landi Hvíta- dals í Saurbæ. Þar una veiðimenn sér vel ásamt fjölskyldum sínum. MERKI UM GÓÐAN ÚTBÚNAÐ / ■ .'•*»%* ■im FLUGUHJÓL \ • } " * '*/ Fást í nœstu sportvöruverslun. Skutlan er eins og sniðin fyrir nútímafólk. Hún er sparneytin, 5 manna og sérlega léttog lipurí um- ferðinni. Skutlan er flutt inn af Bílaborg h/f. Það tryggir 1. flokks þjónustu, sem er rómuð af öllum sem til þekkja. * LANCIA SKUTLA kostar kr. 356 þús.kr. stgr. Útborgun kr. 89.000 eftirstöðvar greiðast á 30 mánuðum, kr. 11.251 pr. mánuð að viðbættum verðbótum. Kostnaður við ryðvörn og skráningu Mátt þú sjá af 369 krónum á dag?* Ef svo er þá getur þú eignast splunkunýja LANCIA SKUTLU! Opið laugardaga frá kl. 1 - 5.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.