Morgunblaðið - 14.07.1988, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. JÚLÍ 1988
Morgunblaðið KGA
Leikstjórinn Nils Gaup, fyrir miðju ásamt framleiðandanum John M. Jacobsen og Helga Skúla-
syni. Mynd þeirra Leiðsögumaðurinn hefur slegið aðsóknarmet í Noregi.
Myndin Leiðsögumaðurinn frumsýnd:
Fyrsta frumsýning utan Noregs
SAMÍSKA kvikmyndin Leiðsögumaðurinn verður frumsýnd í
Regnboganum í kvöld og er þetta fyrsta frumsýning myndarinn-
ar utan Noregs. Myndin var tilnefnd til Óskarsverðlaun í ár og
hefur verið seld til flestra landa i heiminum.
Með eitt aðalhlutverkana í
myndinni fer Helgi Skúlason.
Myndin fjallar um tilraunir ungs
Sama til að bjarga sér og sínum
frá ættflokki villimanna en Helgi
fer með hlutverk foringja þessara
villimanna.
Leikstjóri myndarinnar Nils
Gaup er staddur hérlendis í tilefni
af frumsýningunni ásamt fram-
leiðandanum John M. Jacobsen.
Myndin byggir á þúsund ára gam-
alli þjóðsögu og segir Nils Gaup
að ætlunin með mjmd þessari
hafi fyrst og fremst verið að segja
góða sögu. Nils er sjálfur Sami
en þetta mun vera fyrsta kvik-
myndin sem hann gerir. Hann er
lærður sem leikari og hefur áður
sett upp þijú sviðsverk og stjómað
gerð nokkurra sjónvarpsþátta.
Mynd þessi hefur slegið öll að-
sóknarmet í Noregi frá því að hún
var tekin þar til sýninga fyrir
nokkru.
Menntamálaráðherra:
Hugsanlega kos-
ið um skólastjóra
Kosningar eru afturf ör, segir Ragn-
ar Júlíusson formaður Fræðsluráðs
ÞORBJÖRN Broddason, fulltrúi Alþýðubandalagsins í Fræðsluráði
Reykjavíkur hefur lagt fram tillögu um að foreldrar, fastir starfs-
menn og nemendaráð skólanna kjósi skólastjóra í grunnskólum og
framhaldsskólum borgarinnar og þá til nokkurra ára í senn. Birgir
ísleifur Gunnarsson menntamálaráðherra, telur vel koma til greina
að taka upp kosningu en Ragnar Júlíusson formaður fræðsluráðs
segir kosningu vera afturför.
Ráðherra setti dósent
sem deildin taldi óhæfan
Birgir í. Gunnarsson ber málið saman
við skipun Hannesar H. Gissurarsonar
GYLFI Þ. Gíslason, þáverandi
menntamálaráðherra, setti
Árna Böðvarsson dósent í málv-
ísindum við Háskóla íslands 30.
október 1968. Hafði deildar-
fundur þó samþykkt þá umsögn
þriggja málfræðinga að Árni
væri ekki hæfur_ til að gegna
stöðunni. Birgir ísleifur Gunn-
arsson menntamálaráðherra tel-
ur að hér sé um algjörlega sam-
bærilegt atvik að ræða við það
er hann skipaði dr. Hannes
Hólmstein Gissurarson lektor í
stjórnmálafræði eftir að dóm-
nefnd í félagsvísindadeild komst
að þeirri niðurstöðu að Hannes
væri aðeins hæfur „að hluta“.
Dr. Gylfi er þessu ósammála
eins og fram kemur í blaðinu í
dag.
Upphaf málsins er að dr. Gylfi
ritaði rektor Háskólans bréf og til-
kynnti að ráðuneytið hefði ákveðið
að stofna dósentsembætti í al-
mennum málvísindum og hljóð-
fræði. Hlutverk dósentsins var að
kenna þessar greinar til forprófs
sem kennari í hlutastarfí hafði
annast undanfarin þrjú ár. Sama
dag var embættið auglýst með viku
umsóknarfresti. Ein umsókn barst,
frá Áma Böðvarssyni cand. mag
sem þá var fastur kennari við
Menntaskólann við Hamrahlíð.
Ráðherra sendir umsóknina til
heimspekideildar. Segir hann í
brefí að þar sem hann hyggist
ekki skipa í embættið heldur setja
í það sé ekki þörf á að skipa dóm-
nefnd um hæfí umsækjanda. Það
sýni fordæmi Háskólans.
Heimspekideild svarar erindinu
að fjórum dögnm liðnum. Ekki er
minnst á dómnefnd heldur sagt að
deildin hafí samkvæmt beiðni leit-
að til þriggja málfræðinga_ um
umsögn vegna umsóknar Áma.
Niðurstaða þeirra er að hann sé
ekki hæfur til starfsins. Deildin
samþykkir þessa umsögn með sex
samhljóða atkvæðum.
Daginn eftir setur ráðherra
Áma í dósentsstöðuna og lætur í
ljósi mikla undmn yfír því að hann
hafí ekki verið talinn hæfur. Seg-
ist ráðherra líta málið svo alvarlég-
um augum að taka verði ákvæði
háskólareglugerðar um störf dóm-
nefndar vegna dósentsembætta til
athugunar.
„Ég tel vel koma til greina að
kjósa skólastjóra í almennum lýð-
ræðislegum kosningum og vil gjam-
an skoða hvort þær ættu ekki að
vera víðtækari með þátttöku allra
íbúa í viðkomandi hverfí," sagði
Birgir ísleifur Gunnarsson. „Það
má segja að foreldramir hafi ekki
einir hagsmuna að gæta auk þess
sem þeir breytast þegar nýir koma
í staðinn en ég vil alls ekki útiloka
þann möguleika."
Birgir sagði að engar hugmyndir
hefðu komið fram til þessa um
breytt fyrirkomulag og yrði eflaust
að semja við kennarasamtökin ef
til þess kæmi. „En ég sá að Félag
skólastjóra og yfírkennara virtist
mjög áhugasamt um náið samband
við foreldra um val á skólastjórum
þannig að ég tel að þessi leið komi
fyllilega til greina," sagði hann.
Ragnar Júlíusson taldi kosningu
vera mikla afturför með tilliti til
þess að verið er að leggja niður
prestkosningar og því ekki tíma-
bært að taka upp kosningu um
skólastjóra. „Kosning hefur auk
þess í för með sér að einhver úr
kennarahópi skólanna yrði kosinn
skólastjóri í stað þess að hleypa
nýju blóði í gamla skóla með nýju
fólki," sagði Ragnar. Sagði hann
að tillaga Þorbjörns eins og hún
kemur fyrir, næði ekki fram að
ganga að hans dómi en hugsanlega
mætti breyta reglum um ráðningu
á þann veg að skólastjórar færðust
á milli skóla eftir tiltekinn tíma í
stórum skólaumdæmum eins
Reykjavík.
og
Vatnsdalsá:
Laxinn geng-
ur ekki upp
MIKILL lax hefur safnast saman
á neðstu svæðunum f Vatnsdalsá
en gengur ekki upp ána vegna
vatnsleysis, að sögn Gests Árna-
sonar annars leigutaka árinnar.
Skammt fyrir ofan Hnausa er áin
mjög breið, þar sem kallað er
Flóðið. Laxinn stoppar þar fyrir
neðan og veigrar sér við að ganga
upp á efri svæðin til mikillar ar-
mæðu fyrir veiðimenn, enda er
veiðin nær helmingýminni nú en
á sama tima i fyrra. í gærmorgun
veiddust þó þrir laxar á efri svæð-
unum, að sögn Gests.
Ástæðuna fyrir litlu vatni í ánni
segir Gestur vera þær, að lítið hafí
snjóað í vetur og því lítill snjór á
heiðum og svo hafí nánast ekkert
rignt í tvo mánuði.
Deilan um lektorsembætti Hannesar H. Gissurarsonar:
Rýtingur í bak mér því
sátt var um þessa skipan
- segir Jónatan Þórmundsson lagaprófessor
„f BRÉFI menntamálaráðherra
til háskólaráðs eru ótrúlegar
rangfærslur og hefur hann f fjöl-
miðlum dregið nafn mitt inn í
umræðuna með ódrengilegum
hætti. Það má segja að þetta sé
eins og rýtingur í bakið á mér.
Þegar ég tók að mér fyrir þrá-
bænir að vera fulltrúi rektors i
nefndinni taldi ég að allir væru
Dr. Gylfi Þ. Gíslason fyrrum menntamálaráðherra:
Skipaði aldrei í starf gegn úr-
skurði formlegrar dómnefndar
Ráðherra ekki bundinn af umsögn
vegna stöðuveitingarinnar árið 1968
BLAÐIÐ hafði samband við dr. Gylfa Þ. Gíslason vegna þeirra
ummæla Birgis ísleifs Gunnarssonar menntamálaráðherra að Gylfi
hafi í ráðherratíð sinni veitt dósentsstöðu við heimspekideild eftir
að dómnefnd hafði lýst viðkomandi umsækjanda óhæfan til að gegna
starfinu. Gylfi óskaði eftir því að þetta kæmi fram:
„í þau fímmtán ár sem ég gengdi
starfí menntamálaráðherra, eða
1956 til 1971 skipaði ég aldrei í
fullt starf við Háskólann nema sam-
kvæmt meðmælum hlutaðeigandi
deilda. Ég skipaði heldur aldrei í
starf gegn niðurstöðu formlegrar
dómnefndar sem í eiga samkvæmt
lögum sæti fulltr'ui háskólaráðs,
deildar og menntamálaráðuneytis
og það held ég að enginn mennta-
málaráðherra hafí gert enda fékk
Háskólinn því framgengt á sínum
tíma að veitingavald ráðherra er
bundið við þá sem slík formleg dóm-
nefnd hefur talið hæfa.
Dósentsembættið í málvísindum
sem hér er um að ræða var ekki
fullt starf. Laun dósentsins skyldu
vera dósentslaun þann mánaða-
fjölda, sem kennsla og próf taka,
eða stundakennslukaup. Tilætlunin
var ekki að skipa í starfið heldur
setja í það tímabundið. En þegar
svo háttaði hafði Háskólinn ekki
talið þörf á eða ástæðu til að skipa
dómnefnd. Starfið var fólgið í því
að annast kennslu og próf í almenn-
um málvísindum og hljóðfræði til
svonefnds forprófs. Þessa kennslu
hafði einn af prófessorum Háskól-
ans annast undanfarin þijú ár sem
aukakennslu.
Einn umsækjandi var um starfið,
Ámi Böðvarsson málfræðingur.
Deildarforseti heimspekideildar bað
þijá kennara að semja umsögn um
umsókn Áma. Töldu þeir hann ekki
hæfan til að gegna starfinu og lagði
deildin til að ekki yrði stofnað til
sérstaks starfs til að annast þessa
kennslu. Enginn vafi gat leikið á
því að ráðherra var ekki bundinn
af slíkri umsögn. Nú munu eflaust
allir á því að Ámi Böðvarsson hafí
verið hæfur til að gegna slíku starfí,
enda setti ég hann til þess að gegna
því.“
sáttir við þessa skipan. Enda lýsti
Hannes Hólmsteinn því sérstak-
lega yfir í fjölmiðlum að hann
bæri fullt traust til mín,“ sagði
Jónatan Þórmundsson prófessor
og varaforseti háskólaráðs.
Hann sat í dómnefnd þeirri er
fjallaði um umsækjendur vegna
stöðu lektors í stjórnmálafræði
félagsvisindadeild.
Menntamálaráðherra hefur lýst
því yfír að óeðlilegt sé að Jónatan
hafí undirritað dómnefndarálitið
með sama hætti og „hinir faglegu
dómnefndarmenn". Telur ráðherra
að þeir Gunnar Gunnarsson og
Svanur Kristjánsson hafi einir haft
menntun og þekkingu til að leggja
mat á umsækjendur, en báðir hafi
verið vanhæfír til starfa að mati
lögmanns dr. Hannesar Hólmsteins
Gissurarsonar. Hann var sem kunn-
ugt er talinn „hæfur að hluta“ en
skipaður í stöðuna af menntamála-
ráðherra.
„Kenning lögmannsins að vinátta
eða óvinátta valdi vanhæfí stenst
varla. Meira að segja í dómsmálum
þarf mikið til að slíkt teljist van-
hæfísástæða. Auk þess meta dóm-
arar hæfí sitt sjálfír, svo tekið sé
sama dæmi og ráðherrann notar.
Þótt menn standi í ritdeilum þýðir
það ekki að þeir séu óvinir og hefur
aldrei verið talin ástæða til að ryðja
dóm. Það er einnig ómögulegt að
skipa dómnefnd í sérgreinum án
þess að menn þekkist og er alþekkt
vandamál úr dómskerfinu. Ég
studdi því það álit félagsvísinda-
deildar að ekki væri mark á þessum
athugasemdum takandi," sagði
Jónatan.
Hann benti á að fulltrúi rektors
í dómnefndum um kennarastöður
við skólann hafi alltaf skrifað undir
sameiginlegt nefndarálit. „Mér bar
skylda til að lesa ritverk umsækj-
anda og leggja á þau fræðilegt mat
eftir fremsta megni. Ég varð að
setja mig inn í málin enda lá fyrir
að fulltrúi rektors gætir samræmis.
Allt annað hefði verið óeðlilegt. Sem
lögfræðingur ætti ég að geta lagt
mat á hvemig farið er með heimild-
ir. Verk Hannesar standa raunar
mun nær sviði okkar Sigurðar
Líndals en verk hinna umsækjend-
anna.
Ég tel heimildarmeðferð Hannes-
ar meingallaða og hver sem kynnir
sér gögn málsins getur sjálfur séð
að hann fer rangt með. Ef taka
ætti tillit til vinnubragða Hannesar
einna renna vissulega á’ mann tvær
grímur. En nefndin taldi rétt að
taka fullt tillit til doktorsritgerðar-
innar. Þannig naut Hannes þess
jákvæða þótt önnur rit hans væru
gölluð og hann hefði ekki sýnt fram
á kunnáttu til að kenna grunngrein-
ar stjómmálafræðinnar,“ sagði Jón-
atan.
„Þetta einstæða og alvarlega
deilumál sýnir að háskólamenn
þurfa ætið að vinna að sjálfstæði
Háskólans. Þeim ber að gera al-
menningi og stjómmálamönnum
grein fyrir því hvenær sem tæki-
færi gefst hvers virði það er að eiga
sjálfstæðan Háskóla," sagði Jónat-
an Þórmundsson.