Morgunblaðið - 14.07.1988, Side 28

Morgunblaðið - 14.07.1988, Side 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. JÚLÍ 1988 Árvakur, Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, ÁrniJörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst IngiJónsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Kringlan 1, sími 83033. Áskriftargjald 800 kr. á mánuði innanlands. f lausasölu 70 kr. eintakið. Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aðstoðarritstjóri Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri Breyttar aðstæður Dounreay á Katanesi; Hættur og kostir við kjamorkuna Fyrirsjáanlegt er, að Flugleiðir munu draga mjög saman seglin á flug- leiðinni milli Evrópu og Ameríku í haust. Búast má við því, að flug þeirra milli Islands og Bandaríkjanna muni í framtíðinni taka mið af þörfum íslendinga fyrir samgöngur við Bandaríkin og möguleikum á að auka heimsóknir ferðamanna þaðan hingað til lands, frem- ur en að byggja þetta flug á því að flytja farþega milli Evrópu og Ameríku. Þessi breyting byggist á raunsæjut mati á því, að aðstæður hafa breytzt í grundvallaratriðum frá þeim tíma, þegar Loft- leiðaævintýrið varð til. Þannig verða fyrirtæki að aðlaga sig breyttum aðstæð- um, ef þau vilja tryggja framtíð sína. Annað stórfyrirtæki á íslenzkan mælikvarða, Sam- band ísl. samvinnufélaga, stendur frammi fyrir svipuð- um ákvörðunum og Flug- leiðir um grundvallaratriði. Sambandið og dótturfyrir- tæki þess hafa ekki lengur bolmagn til þess að halda uppi eins miklum umsvifum og þessir aðilar hafa gert á undanfömum árum og ára- tugum. Taprekstur er gífur- legur. Fjárfesting, sem byggðist á ódýrum lánum, skilar ekki þeim arði, sem aðstæður nútímans kreíjast. Þess vegna er óhjákvæmi- legt fyrir Sambandið að draga verulega saman segl- in, sélja fyrirtæki og minnka umsvif. Sambandið er hins vegar ekki komið jafn vel á veg og Flugleiðir með undir- búning að þessum ákvörðun- um. Þess vegna er enn spumingamerki í huga manna um það, hvemig til tekst. Stjómendur þess gera sér hins vegar glögga grein fyrir því, að róttækar breyt- ingar eru óhjákvæmilegar. Þjóðarbú okkar íslend- inga stendur frammi fyrir sömu vandamálum og Flug- leiðir og Sambandið. Starfs- hættir, sem áður tíðkuðust og gátu gengið upp, duga ekki lengur vegna gjör- breyttra aðstæðna. Þess vegna stendur þjóðarbúið frammi fyrir ákvörðunum um gmndvallarmál, sem em óhjákvæmilegar. Með sama hætti og Flugleiðir fækka ferðum til Ameríku vegna þess, að flugið þangað skilar engum arði, verður íslenzka þjóðarbúið að fækka frysti- húsum vegna þess, að fisk- vinnslan skilar ekki nægum arði, meðan hún verður að standa undir alltof mikilli fjárfestingu. Út í þá fjárfest- ingu var lagt á þeim tíma, þegar lánin vom ódýrari en nú. Þjóðarbúið verður líka að taka ákvarðanir um vissar gmndvallarbreytingar í rekstri fiskiskipanna vegna þess, að við núverandi að- stæður skilar rekstur þeirra ekki naegilega miklum hagn- aði. Þjóðarbúið verður líka að draga enn meira úr land- búnaðarframleiðslu vegna þess, að hún er of þungur baggi á öðmm rekstri. Þjóð- arbúið verður líka að minnka yfirbygginguna vegna þess, að við breyttar aðstæður er hún orðin of viðamikil og kostnaðarsöm. Ef Flugleiðir hefðu haldið áfram að flytja farþega yfir Atlantshafið með miklu tapi ár hvert, af tilfinninga- ástæðum og vegna fyrri sögu, sem var merkileg, hefði það endað með gjald- þroti fyrirtækisins. Ef sam- vinnuhreyfingin heldur áfram að tapa 500 milljón- um á ári vegna þess, að for- ystumenn hennar geta ekki hugsað sér nokkrar breyt- ingar, endar það með því að Sambandsveldið riðar til falls. Ef íslenzka þjóðarbúið heldur áfram á sömu braut og undanfarin ár, kemur að því, að við fáum ekki lengur lán erlendis, atvinnufyrir- tækin ganga úr sér, lífskjör- in versna og æskan flytur af landi brott. Ef núverandi ríkisstjórn á að hafa ein- hverju hlutverki að gegna, sem máli skiptir, verður hún að taka á þessum gmndvall- armálum. eftir Guðmund Heiðar Frímannsson Fréttaritari Morgnnblaðsins í Skotlandi fór í kjarnorkustöðina í Dounreay fyrir skömmu og kynnti sér starfsemi þar. Hafa hugmyndir um endurvinnslustöð í verinu vakið mótmæli víða með- al annars hér á landi. Hér birtist síðari hluti frásagnarinnar: Af því bezt er að byrja á aðalat- riðum, skoðaði ég kjarnakljúfinn fyrst. Hann er í stórri byggingu og þurfti að fara um ranghala til að komast inn í salinn yfir kljúfnum. A salnum eru tvöfaldar stáldyr, sem ekki geta verið báðar opnar í einu. Salurinn er mjög stór og hár. Efst í loftinu eru tveir stórir kranar til að flytja eldsneytið úr og í ofninn. Stór hluti salarins er afmarkaður þykkum steyptum veggjum, sem á eru gluggar. Þar inni er eldsneytið geymt fyrst eftir að það kemur úr kljúfnum og er geislavirkast. Það var nokkur hávaði í salnum, enda menn þar að vinnu. En það heyrð- ist ekkert í kljúfnum, sem var í fullri vinnslu. Hann framleiðir 600 MW af hitaorku. Það titraði ekki einu sinni stálþilið ofan á honum, þegar ég stóð á því. Eldsneytið er flutt í endur- vinnslustöðina í stórum stálflösk- um, eins og þeir kalla það. Þar er plútónið og úranið skilið frá öðrum efnum, sem myndast við brennsl- una, með því að leysa þau upp í vökva. Og síðan er plútónið skilið frá úraninu. Plútónið er síðan notað aftur við brennslu í þessum eldis- kjarnakljúf. Áður en það gerist þarf að senda það til Sellafield á norðvesturströnd Englands, þar sem því er breytt í nýtanlegt form. Um 99,5% af plútóninu næst úr notuðu brennsluefni og vitað er um nánast allt það plútón, sem verður eftir í úrganginum, í hvaða tunnum það er og hvar í hverri tunnu. Allar slíkar upplýsingar eru skráðar í tölvu og geymdar. Úrganginum er komið fyrir í geymslum. Hágeislavirkur úrgang- ur í Dounreay er allur fljótandi. 20% af heildarúrganginum telst vera hágeislavirkur og í honum er 99,9% af allri geislavirkni hans. Þessi úr- gangur er geymdur í tönkum og hann þarf að kæla fyrstu fimm ár- in. Eftir tíu ár er hægt að breyta honum í fast form og koma honum í varanlega geymslu. Meðalgeisla- virkur úrgangur er geymdur í þurr- um geymslum á stöðvarsvæðinu. Lággeislavirkur úrgangur í föstu formi er geymdur í tunnum í skemmum. Fljótandi lággeislavirk- ur úrgangur er mældur og athugað- ur nákvæmlega, áður en honum er hleypt út í 600 metra langa leiðslu- út í Pentlandsfjörðinn. Sá úrgang- ur, sem fer út í fjörðinn, hefur ekki haft nein mælanleg skaðleg áhrif. Yfirmenn stöðvarinnar lögðu mikla áherzlu á, að þeir hefðu ævinlega verið langt innan þeirra öryggis- marka, sem opinberar aðilar settu þeim. Árið 1986 til dæmis hefði kjamaofninn verið í mikilli notkun, en úrgangurinn út í Pentlandsfjörð- inn hefi einungis verið 2% af því magni, sem yfirvöld heimila. Þeir sögðu það vera markmið sitt að fara aldrei fram úr 15% af leyfilegu magni. Eldiskjarnakljúfur Það, sem gerist í venjulegum kjamakljúfum, er, að úran 235 klofnar, þegar nifteind kemst inn í kjarnann. En til að það gerist þarf ákveðinn massa af úrani og nift- eindin má ekki fara of hratt. Ef hún fer of hratt, kemst hún ekki inn í kjarna úransins. Það er hægt að nota venjulegt vatn og þungt vatn til að hægja á nifteindunum. Þegar eitt atóm úrans klofnar, losna nifteindir og þeytast á önnur úran- atóm, sem klofna, og þannig koll af kolli. Úran 235 breytist í úran 238 í venjulegum kjarnakljúfum og verður við það ónothæft í þá. I tilraunakljúfnum í Dounreay og öðrum kljúfum, sem nota hraðar nifteindir, verður úran 238 og plút- ón brennsluefnið. Slíkir ofnar nota því það úran, sem verður til í venju- legum ofnum. Það úran, sem unnið er úr náttúrunni, er mest með sætis- töluna 238. Innan við 1% af úrani í náttúrunni hefur sætistöluna 235. Það er því gnótt af brennsluefni fyrir kjamakljúfa eins og í Doun- reay. Reyndar eru ein helztu rökin til þess að byggja slíkan kljúf til raforkuframleiðslu (og að slíkir ofn- ar muni verða næsta kynslóð af kjamakljúfum) þau, að á Bretlands- eyjum eru um 25 þúsund tonn af úrgangi úr venjulegum kjarnaofn- um, sem ómögulegt er að nýta öðruvísi en í kljúfum á borð við þann, sem er í Dounreay. Kjarna- kljúfurinn í Dounreay er nefndur eldiskjamakljúfur vegna þess að hann elur af sér eða býr til eigið eldsneyti. Kljúfurinn í Dounreay situr í holu, sem sprengd var ofan í berg- ið. Úm hann lykja tvö stálþil og þykk steinsteypa. Eldsneytið sjálft er innan í um tveggja metra löngum stálrörum, sem er raðað saman í stærri hólka, 325 í hverjum hólk. Hólkarnir mynda síðan kjarnann. í hveijum kjarna em um 4 tonn af eldsneyti. Hann er umlukinn sodi- um, sem er alkalimálmur í dufts- formi inn í kljúfnum. Þegar kjarna- klofningurinn hitar rörin hitnar sodiumið, sem stöðugt leikur um þau. Stórar dælur halda sodiuminu stöðugt á hreyfingu og mynda lokað kerfi kringum kjarnann. Hitinn er leiddur í annað lokað kerfi af sod- ium. í þriðja kerfinu er vatn, sem knýr hverfla, sem mynda rafmagn. Tsjernobyl-siys er útilokað Þetta er afar ófullkomin lýsing á því sem fram fer í kljúfnum, en verður að nægja. En það er ástæða til að geta tvenns um þennan kjamakljúf. Það fyrsta er að í kljúfnum sjálfum er enginn þrýst- ingur. En það er þrýstingur á ytra sodiumkerfinu og enn meiri á vatn- skerfinu. Ástæðan er sú að ef eitt- hvað fer að leka, þá lekur inn en ekki út. Ef minnsti þrýstingurinn væri á vatnskerfinu yki leki því hættuna á að eitthvað losnaði úr kljúfnum. Annað, sem ástæða er til að nefna, er, að ef sodiumið í kringum kjarnann hitnar of mikið, til dæmis ef dælurnar bila og annar stjómunarbúnaður, þá hættir kljúf- urinn að framleiða rafmagn og hit- inn helzt í kringum 600 gráður í ofninum. Þetta var eitt markmiðið, þegar kljúfurinn var hannaður og hann hagar sér svona í reynd. Það hefur verið prófað að hætta að dæla sodiumi og þá hegðar ofninn sér eins og til var ætlazt. Svipaðar niðurstöður hafa fengizt í tilraunum í samskonar kjarnakljúf í Frakk- landi. Þessi einkenni ofnsins tryggja að það eiga að vera 48 klukkustund- ir til að gera varúðarráðstafanir, ef slys ber að höndum. Slys á borð við slysið í Tsjernobyl eru útilokuð í stöðinni í Dounreay. Og það er ástæða til að geta þess sérstaklega, að kjamorkuver geta ekki sprungið í loft upp, orðið einskonar kjam- orkusprengjur. Ég er ekki einn um að halda, að ein ástæða þess að kjarnorkuver hafa orðið svo áber- andi pólitískt mál, sem raun ber vitni, sé sú, að fólk tengi saman kjarnorkuver og kjarnorkusprengj- ur. Það er í sjálfu sér ekki óeðli- Séð yfir stöðina í Dounreay. Kúlan er byggingin yfir eldri kjarnakjúi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.