Morgunblaðið - 14.07.1988, Page 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. JÚLÍ 1988
Einleikstónleik-
ar í Fríkirkjunni
SUSAN Landale einleikari heldur
tónleika í Fríkirkjunni í Reylqavík
í kvöld kl. 20.30. Hún hefur getið
sér góðan orðstír, plötur hennar
frá frönskum og þýskum útgáfu-
fyrirtækjum hafa verið lofaðar
og hefur hún komið fram í út-
varpi báðum megin Atlantshafs-
ins. Tvívegis hefur hún fengið
fyrstu verðlaun í orgelkeppnum.
Frá árinu 1977 hefur hún verið
aðstoðarorgelkennari við Tónlist-
arháskólann í Rueil Malmaison og
aðstoðarorganisti við Saint-Lou-
is-des-Invalides kirkjuna í París.
Susan Landale er fædd í Skotlandi
þar sem hún byijaði tónlistamám
sitt. Hún lauk svo Bachelor of Music
frá Edinborgarháskóla. Eftir fram-
haldsnám í píanó- og orgelleik í Lon-
don fór hún til Parísar og gerðist
þar nemadi André Marchal. Þar var
hún organisti við ensku kirkjuna um
árabil. Hún sérhæfði sig í síðró-
mantískri tónlist og einnig nútíma-
verkum. Túlkun hennar á verkum
frönsku tónskáldanna O. Messiaen,
Jean Langlais og tékkneska tón-
skáldsins Petr Eben, sem hún hefur
unnið með þeim sjálfum, hefur verið
talin ósvikin.
(Fréttatilkynning)
Háskólabíó:
Sýnir Krókó-
dfla-Dundee II
HÁSKÓLABÍÓ hefur tekið til sýn-
inga kvikmyndina Krókódíla-
Dundee II með Paul Hogan og
Lindu Kozlowski í aðalhlutverk-
um. Leikstjóri er John Cornell.
Glaðværi Ástralíumaðurinn sem
lagði heiminn að fótum sér snýr aft-
ur með meiri gamansemi, meiri
mannraunir og ástamál. Paul Hogan
leikur harðsoðna en ljúfa ævintýra-
manninn sem töfraði stórborgar-
blaðamanninn Sue Charlton (Linda
Kozlowski) með einstæðum þokka
sínum. Nú á hann i höggi við flokk
miskunnarlausra alþjóðlegra af-
brotamanna sem ræna Sue og leikur-
inn berst frá hjarta New York-
borgar í auðnir Ástralíu. En hann
tekur öllu sem að höndum ber með
jafnaðargeði og leiftrandi kímni.
Leiðrétting:
Fornleifa-
rannsóknir
í Viðey
MARGRÉT Hallgrímsdóttir, forn-
leifafræðingfur, hefur beðið um
að eftirfarandi leiðréttingu sé
komið á framfæri.
„í fyrirsögn fréttar um fomleifa-
uppgröft í Viðey sem birtist í Morg-
unblaðinu föstudaginn 8. júlí stóð
að fundist hefðu tannskemdir í beina-
grindum frá miðöldum. Þetta er ekki
rétt. Hins vegar kom í ljós við upp-
gröftinn að tennur þeirra sem grafn-
ir voru í Viðeyjarkirkjugarði á 18.
öld voru mikið slitnar en tannskemd-
ir komu aðeins í ljós í einni beina-
grindanna frá þessum tíma.
Ennfremur skal lögð áhersla á að
þótt margt bendi til að miðaldarústir
sem grafnar verða upp í ágúst, og
voru að hluta kannaðar í fyrrasum-
ar, séu hluti af klausturbyggð, fæst
ekki endanleg niðurstaða um það
fyrr en að rannsókn lokinni."
Kór Öldutúnsskóla og stjórnandi hans EgiU Friðleifsson.
• •
Kór Oldutúnsskóla:
Söng sig inn í hjörtu
fólks í Hong Kong
Jón Birgir Pétursson, Hong Kong.
HINAR ungu söngkonur úr Hafnarfirði komu fram á fjórum
tónleikum á alþjóðlega kóramótinu í Hong Kong. Kórar frá Banda-
ríkjunum, Englandi, Japan og Kína taka þátt í kóramótinu, auk
7 kóra frá Hong Kong. Kór Öldutúnsskóla var geysivel fagnað
af fjölmörgum áheyrendum og er það mál manna að kórinn sé
einstaklega vandaður auk þess sem hann bjóði frumlegasta lagava-
lið af þeim 12 kórum sem þátt taka í mótinu.
Kór Öldutúnsskóla og stjóm-
andi hans, Egill Friðleifsson, hafa
fengið frábærar móttökur, og
áheyrendur vart viljað sleppa
kómum af sviðinu. Á lokakvöldi
tónleikanna í Hong Kong var
kómum fagnað innilegar en
nokkmm öðrum þegar hann svo
að segja söng sig inn í hjörtu
fólks. í lok tónleikanna sungu all-
ir kórar mótsins undir stjóm Yip
Wai-Hongs aðalstjómanda Hong
Kong-kórsins, m.a. lag hans We,
the Children. Stemmningin var
mögnuð þegar 700 böm víða úr
heiminum sungu í samhljómi
þetta fallega lag og ljóð.
Ferðalagið til Hong Kong var
langt og strangt, tók réttan sólar-
hring frá því að lagt var af stað
frá Óldutúnsskóla í Hafnarfirði.
Stúlkumar voru fljótar að jafna
sig á tímamuninum og hafa stað-
ið sig með mikilli prýði. Þær eru
að Jiefja ferðalag sem er um 40
þúsund kílómetrar, sannkölluð
heimsreisa.
Að loknu boðinu í Hong Kong
verður haldið til Ástralíu á bama-
kóramót ISME, alþjóðasamtaka
tónlistarkennara og verður sungið
í Camberra og Sidney. Á heimleið-
inni verður komið við í Bangkok
í 3 daga til að slaka á eftir mikið
erfíði, tónleika og æfíngar.
Ályktanir bæjarstjórnar Akureyrar:
Leiðrétting
í myndatexta sem fylgdi frétt
um minnismerki á rúst Skarðs-
kirkju í blaðinu í gær er sr. Sigur-
jón Einarsson ranglega staðsettur.
Hann er annar frá hægri milli þeirra
Karls Magnússonar og Guðmundar
Sveinssonar.
Fögnum tækifæri til að ræða
þjónustu okkar við Akureyringa
- segir Einar Sigurðsson blaðafulltrúi Flugleiða
„Flugleiðir telja að þjónusta fé-
lagsins við Akureyringa hafi
batnað á undanförnum árum.
Ferðum hefur fjölgað og tíma-
áætlun hefur staðist vel. Því
fagnar félagið því að fá tækifæri
til að ræða þjónustuna,“ sagði
Einar Sigurðsson, blaðafulltrúi
Flugleiða en bæjarsljórn Akur-
eyrar samþykkti á þriðjudag til-
Fríkirkjan:
Ég átti enga aðild að
samkomulagsdrögunuin
- segir Þorsteinn Eggertsson formaður safnaðarstjórnar
„ÉG mætti á þennan fund sem ég
vil taka fram að var ekki haldinn
að minni beiðni, en ég átti enga
aðild að þessum samkomulags-
drögum. Ég mætti þarna án um-
boðs safnaðarstjómar Frikirkj-
unnar, og gerði það eingöngu af
því að mér fannst rétt að hlýða á
hvað vígsluhiskup vildi leggja til
málanna en hafði ekkert umboð
til að gera nein samkomulags-
drög,“ segir Þorsteinn Eggerts-
son, formaður safnaðarstjórnar
Fríkirkjunnar.
Að sögn Þorsteins voru samkomu-
lagsdrögin lögð fram af hálfu stuðn-
ingsmanna sr. Gunnars og spurt
hvort þau gætu verið hugsanlegur
samkomulagsgrundvöllur.
„Á fundinum kvaðst ég reiðubúinn
til að leggja þau fyrir safnaðarstjóm
til kynningar, og kynnti ég hluta
safnaðarstjómarinnar þau strax
sama kvöld. Þegar síðan birtist grein
frá stuðningsmönnum sr. Gunnars í
dagblaði á föstudagsmorgni, þá
sáum við engan grundvöll til að ræða
við þetta fólk frekar, og staða sókn-
arprests var auglýst laus til umsókn-
ar,“ sagði Þorsteinn.
Stuðningsmenn sr. Gunnars sem
sagt hafa sig úr safnaðarstjóminni
hafa sent stjóminni bréf þar sem
þeir draga úrsögn sína til baka, og
var um það fjallað á stjómarfundi
síðastiiðið þriðjudagskvöld og verður
tekið aftur fyrir næstkomandi
fímmtudagskvöld. Að sögn Þorsteins
er nú verið að leita lögfræðilegs álits
á því hvemig beri að svara þessu
bréfí.
Engin formleg umsókn hefur bo-
rist ennþá um starf Fríkirkjuprests,
en að sögn Þorsteins hafa nokkrir
prestar komið að máli við hann, en
hann kvaðst ekki reiðubúinn til að
ræða það frekar á þessu stigi.
Eins og fram hefur komið hefur
verið farið fram á sérstakan safnað-
arfund þar sem uppsögn sr. Gunnars
yrði rædd, og sagði Þorsteinn að
orðið yrði við þeirri beiðni. „Það hef-
ur þó ekki enn verið ákveðið hvenær
sá fundur verður, en það er verið
að vinna að undirbúningi hans,“
sagði Þorsteinn Eggertsson.
lögu þar sem skorað er á sam-
gönguráðuneytið að gera úttekt
á þjónustu Flugleiða.
Einnig felur bæjarstjórnin at-
vinnumálanefnd að Qalla um innan-
og utanlandsflug til bæjarins. I
þriðja lagi skorar bæjarstjóm Akur-
eyrar á Flugleiði að taka upp nán-
ara samstarf við Flugfélag Norður-
lands og skuli félagið athuga hvort
fyrsta flug frá Akureyri til
Reykjavíkur geti ekki hafíst fyrr.
Þessar tillögur vom samþykktar
f stað fyrri tillögu bæjarstjórnar,
þar sem lagt var til að einkaleyfi
Flugleiða á leiðinni Reykjavík- Ak-
ureyri-Reykjavík yrði afnumið. Ein-
ar sagði félagið vissulega ánægt
við að bæjarstjórnin skyldi draga
fyrri tillögu sína til baka því þar
hefði verið gert ráð fyrir mjög rót-
tækum breytingum sem ekki væm
byggðar á raunhæfum athugunum.
„Félagið hefur ekkert við tillög-
una um að fela atvinnumálanefnd
að flalla um flug innanlands og
utan. Hvað varðar þá þriðju, viljum
við benda á að Flugleiðir em einn
stofnenda Flugfélags Norðurlands
og eiga nú um 30% í félaginu. Sam-
starf félaganna er því mjög náið.
Flugleiðir endumýjuðu ekki einka-
leyfi sín á flugleiðum frá Akureyri
til ísafjarðar, Egilsstaða, Raufar-
hafnar, Þórshafnar og Kópaskers.
Flugfélag Norðurlands hefur þau
flug nú með höndum."
Einar sagði Flugleiði lengi hafa
íhugað að hefja flug til Akureyrar
fyrr á morgnana en hingað til hefði
það verið talið erfiðleikum háð á
vetuma. Lausn á því væri þó í sjón-
máli. Þó bæri að athuga að á
morgnana væri mun meira flutt af
blöðum og pósti frá Reykjavík en
frá Akureyri. Einar sagði að bæði
í Reykjavík og á Akureyri væm
farþegar sem vildu komast sem
allra fyrst á áfangastað. Til tals
hefði komið að fljúga frá báðum
stöðum á sama tíma en ólíklegt
virtist að fjöldi farþega stæði stæði
undir kostnaði.
Námskeið
í tíbeskum
búddisma
NÁMSKEIÐ í tíbeskum búd-
disma verður haldið í húsi Guð-
spekifélagsins dagana 14. til 20.
júlí n.k. Fyrirlesari er dr. Alex
Berzin heimspekingur og mun
hann einnig stjórna hugleiðslu.
Dr. Alez Berzin lauk doktors-
prófi í indverskri heimspeki frá
Harvard háskóla árið 1972 og hefur
upp frá því aðallega starfað sem
þýðandi og túlkur Dalai Lama á
Indlandi. Hann hefur þýtt mörg rit
um tíbeskan búddisma á ensku og
farið víða um heim til að halda
námskeið og fyrirlestra.
(Úr fréttatilkynningu).