Morgunblaðið - 14.07.1988, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 14.07.1988, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. JÚLÍ 1988 Kaupmannahöf n: Islenskir fatahönnuðir útskrifast Herraföt Steinunnar Jónsdóttur. Sonur hennar lengst t.h. Kaupmannahöfn Á VORIN hefur gjarnan verið sagt frá próflokum í Köbenhavns Mode og Designskole hér í blað- inu, enda skólinn vinsæll mjög meðal íslendinga. Þau 6 ár sem hann hefur starfað, hafa 7 íslenzk- ir fatahönnuðir útskrifast. Nú ljúka 4 stúlkur námi þar og munu íslenzkir nemendur næsta vetur verða 16 af þeim 40, sem skólinn rúmar, 3 í öðrum bekk, en 13 nýnemar. Að þessu sinni luku 19 nemendur prófí eftir 2 ára nám, þar af 5 pilt- / ar. Voru meðal nemenda 3 Norð- menn, 1 Svíi og 1 Englendingur auk íslenzku stúlknanna fjögurra, sem heita Aðalheiður Alfreðsdóttir, Guð- rún Lára Guðmundsdóttir, Ingibjörg Þóra Gestsdóttir og Steinunn Jóns- dóttir. Aðalprófgreinarnar eru hönn- un, teiknun, sníðagerð og saumar. Guðrún Lára Guðmundsdóttir hlaut hæstu einkunn yfír skólann fyrir sauma, en 2 skólabræður hennar, Jan Kolstad og David Hughes, voru með hærri meðaleinkunn. Árlega fara nemendur í náms- ferðalag og var það að þessu sinni til New York, þar sem tízkuhús og m.a. Parsons-skólinn voru heimsótt. Lokaverkefnið hófst svo 5. apríl og er þá geysileg vinna hjá nemendum allt til prófloka. Skólastjórinn Marianne Duch- waider er sem áður mjög ánægð með íslenzku nemenduma. Hún bauð nú til blaðamannafundar í húsakynnum skólans á Gothersgötu 175 til að sýna vinnustað nemenda og afrakst- ur af vetrarstarfínu. Þar var sýnt úrval lokaverkefna og margt mjög nýstárlegt eins og leyndardómsfullir kvenbúningar Jans Kolstads, sem sækir hugmyndir sínar til norrænnar goðafræði, og kvenlegur karlmanna- fatnaður Ame Jensens, sem finnst tími til kominn, að karlar losni úr gráu fötunum, án þess að hætta að vera karlmannlegir, eins og hann komst að orði. Kvöldið eftir voru aðalsýningamar 3 í Falkonercentret, þar sem allir útskriftamemendur sýndu og kynntu fatnað sinn. Falconercentret á Friðriksbergi var enduropnað nýlega eftir gagn- gerar breytingar og er nú ein stærsta og nýtízkulegasta hótel- og ráðstef- numiðstöð í Danmörku. Þar er 16 hæða hótel, margir og misstórir sal- ir, veitingastaðir og leiksvið, en lífæð miðstöðvarinnar er 1200 fm anddy- rið, sem Mode og Designskolen hafði til afnota þetta kvöld. Islenzksmíðaði hringsófinn með fallega blóma- munstrinu prýðir anddyrið, en hönn- uðir hans em Ole Kortzau og Ole Gormsen og stendur fyrirtækið Epal fyrir framleiðslunni á íslandi. Munu fleiri svipaðir sófar væntanlegir það- Rúskinnsdragt Guðrúnar Láru Guðmundsdóttur. an síðar í sumar fyrir hótelið. Sýningarfólkið kom niður opinn stiga af annarri hæð og myndaði bjart umhverfið ágætan ramma um flaúörsturtuklefi með öllum fylgihlutum á frábæru verði HREINIÆTI ER OKKAR FAG J. ÞORLÁKSSON & NORÐMANN H.F. RÉTTARHÁLSI 2 SÍMI 8 38 33 Stykkishólmur: Ánægjulegur tími í eyjunum - segir Dagbjört Andrésdóttir Stykkishólmi HÚN er komin yfir nírætt, hún Dagbjört Andrésdóttir og er nú á sjúkrahúsinu i Stykkishólmi þar sem hún hefir góða hjálp og umönnun. Rifjar nú upp liðna tið. Mestan hluta daganna eyddi hún í eyjum. Með manni sínum Jens Nikulássyni bjó hún í Sviðnum, en þær eyjar bera enn minjar þess að þar bjó lengi athafnamaðurinn Ólafur Teitsson, eignaðist stjóra fjölskyldu og mikinn auð þeirra tíma. „Það var virkilega ánægjulegur KRISTJÁN SIGGEIRSSON HF LAUGAVEG113 SÍMI: 91-625870 Morgunblaöið/Ámi Helgason Dagbjört Andrésdóttir eyjakona, ásamt syni sínum Magnúsi. dýrt og nú, en ánægja, gleði og sam- skiptin við aðra eyjabúa og komu- menn gáfu lífinu mikið gildi. Og svo að maður tali ekki um smkomulagið við blessaða fuglana sem veittu mikla gleði. Nei, það var ekki dauft í Sviðnum á mínum dögum. Verslunin var í Flatey og frá landi og öðrum eyjum komu margir á leið í kaupstaðinn. Þótt Sviðnur sé ekki mjög stór, var hún fádæma notadijúg og gaf okkur það sem við þurftum, en svo brann blessaður bærinn minn og það var mikið áfall, en það heyrir sögunni til. Við stóðum uppi vegalaus, en nokkru seinna keypti maðurinn minn Svefneyjar og þar bjuggum við þar til maðurinn minn lést. Síðan tók Nikulás sonur okkar við og þar var ég í skjóli hans. Ég eignaðist þijá drengi, einn er nú látinn, en Magnús sonur minn kemur til mín svo að segja á hveijum degi, en hann er búsettur í Stykkis- hólmi, já allir drengirnir og bömin þeirra hafa borið mig á höndum sér svo ég þarf ekkert að kvarta. Vissu- lega var oft mikið að gera, það dugði lítið að sitja með hendur í skauti, en vinnan göfgar manninn, var einhvem tímann sagt og og ætli ég geti ekki tekið undir það, því það er engin skemmtun að vera iðjulaus." - Árni tími í eyjunum," sagði Dagbjört. „Auðvitað þurfti að vinna og hugsa um að komast áfram, en það voru margir í eyjum og vinnuafl ekki eins Kjörvari og Þelcjukjörvari verja viðinn vel og lengi málning'lf
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.