Morgunblaðið - 14.07.1988, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 14.07.1988, Blaðsíða 51
gerö verö tilboösverö 2x36 349 211 kr. 2x50 389 245 kr. 4x50 680 469 kr. SVIÐGERÐAR- OG VATNSÞÉTTINGAR- EFNI SEM GERA MEIRA EN AÐ DUGA THORITE Framúrskarandi viðgerðar- efni fyrir steypugalla. Þannig sparar það bæði tíma og fyrirhöfn við móta- uppslátt ofl. Thorite er til- valið til viðgerða á rennum ofk ACRYL60 Eftir blöndun hefur efnið tvöfaldan þenslueiginleika, tvöfaldan þrýstieiginleika, þrefaldan sveigjanleika og áttfalda viðloðun miðað við venjulega steypu. 1 WATERPLUG Sementsefni sem stöðvar rennandi vatn. Þenst út við hörnun og rýrnar ekki. Þetta efni er talið alger bylt- ing. íslensk tunga í hættu Kæri Velvakandi Umfjöllun Morgunblaðsins og annarra fjölmiðla hlýtur að leiða hug okkar íslendinga að þeirri hættu er þjóðtungu og um leið menningu okkar stafar af síauknum erlendum áhrifum. Það er samdóma álit þeirra er um þetta fjalla að þar gæti mest ásóknar engilsaxneskrar tungu. Forsætisráðherra okkar far- ast svo orð síðla árs 1987: „íslensk tunga er í hættu. Höfum það hugf- ast að sérhver ógnun við íslenska tungu er um leið ógnun við full- veldi þjóðarinnar." Þjóðskáldið Matthías ljóðar svo á Vestur-íslendinga áður fyrr: „Tunga geymir í tímans straumi trú og vonir landsins sona.“ Og nafni hans, Matthías Johann- essen segir í ljóðinu „Fjöllin í brjósti þér“: „Hans orð sem fræ í barnsins bijóst vér leggjum að blómgist það og vaxi einnig þar.“ Morgunblaðið er stærsta og víðlesnasta blað landsins. Það hefur ávallt haft á að skipa mjög góðu og færu starfsliði, sem hefur kapp- kostað að vanda málfar sitt og sýnt góða ritfæmi enda hafa ritstjórar blaðsins á hveijum tíma verið mál- snjallir og orðhagir í betra lagi. Þeir hafa því ætíð gert sér far um að standa vörð um íslenska tungu, um það vitnar þátturinn „íslenskt mál“. Allir fjölmiðlar munu eiga nokkra sök á þeirri óheillaþróunn sem lýst er í upphafi þessa máls og því mið- ur er Morgunblaðið ekki undanski- ■lið og vísast til þáttarins „Hvaða bækur eigum við að lesa í sumar- leyfinu?" það er þó einkum „nafn- giftin" sem særir þjóðarstoltið með algjörlega einhliða kynningu á ensku lesefni. Það á bókstaflega að mata okkur íslenska lesendur blaðsins á lítt uppbyggilegum og fremur lágkúrulegum íslenskum spennureyfurum. Aldrei hefur um- sjónarmaður þáttarins látið svo lítið að mæla með eða kynna okkur íslenskum lesendum þessa bóka- þáttar eina einustu bók á móður- málinu og hlýtur þó að vera af Þessir hringdu .. Skeirtur ellilífeyrir Ellilífeyrisþegi hringdi: „Stjórnin gumaði af því þegar hún hækkaði ellilífeyrinn í síðasta mánuði. Nú hafa þeir lækkað hann aftur og gengur það heldur hljóðlegar fyrir sig. Ég er komin hátt á sjötugsaldur. Síðasta mán- uð hafði lífeyririnn hækkað upp í' 18.300 hjá mér vegna allsheijar hækkunar á ellilífeyri en nú draga þeir allt í einu saman seglin og lækkuðu hann á ný niður í 15.700 fyrir þennan mánuð. Hvers vegna þarf ávallt að ráð- ast á garðinn þar sem hann er lægstur?“ Taska Brún leðurtaska féll ofan af bíl á milli Álfheima í Reykjavík og Selfoss. Taskan er lítil með tveim- ur höldum og rennilás. Inni í henni eru karlmannsföt. Finnandi vin- samlegast hafi samband í síma 36173. nógu að taka. Ólafur Ragnarsson bókaútgefandi sagði fyrir nokkru í sjónvarpsviðtali þegar rætt var um íslenskar bækur: „Fólk kýs að taka með sér bók í sumarfríið og hvíla sig á fjölmiðlum." Enda þótt fjölmargir íslendingar séu vel læsir á enska tungu og geti til fulls notið þeirra erlendu bóka sem kynntar eru í þessum bókaþætti, þá eru þó fleiri sem yrðu að burðast með orðabók í farteskinu að auk. Ég hygg að flestum þætti það nokkuð fyrirhafnarsamt. Meðan engin íslensk bók fær minnsta rúm eða nokkra kynningu í þessum bókaþætti, þó ekki væri nema til jafns við þær erlendu fínnst mér það jaðra við lítilsvirðingu og mismunun við íslenska lesendur svo og þá fjölmörgu íslendinga er fást við ritsmíðar í bundnu og óbundnu máli. Ef það skyldi nú velkjast fyr- ir íslenska ferðalanginum hvaða íslenska lesefni bæri að velja, ef það brygðist til beggja vona með veðrið á „Costa del Sol“, mæli ég með tveimur ágætum bókum: Skáldsögunni „Ást á rauðu ljósi" og ljóðabókinni „Mörg eru dags augu“. Það eru vinsamleg tilmæli mín til ritstjórnar Morgunblaðsins að þessi umræddi bókaþáttur í þeirri mynd sem hann er nú er verði lagð- ur niður enda með öllu óþarfur þar sem fyrir eru í blaðinu þættir, sem þjóna því hlutverki að kynna íslen- skar og erlendar bækur. I leiðara Morgunblaðsins segir á einum stað: „Við búum í litlu samfélagi en stórum menningarheimi. Við höfum fyrr og síðar megnað að skapa okk- ur sess í þessum heimi með fram- lagi í bókmenntum. Þá arfleifð verð- um við að rækta.“ Virðingarfyllst, Guðmundur J. Mikaelsson. 51 Rennibrautin í Laugardal Ágæti Velvakandi! Hér æt'a ég hripa á blað hugleið- ingar mínár sem vaknað hafa í kjöl- far nýrrar rennibrautar í Laugar- dalssundlauginni. í þessum pistli ætla ég reyndar bæði að lofa hana og kvarta yfir henni. Ég ætla að byija á því að þakka borgaryfirvöldum þá framkvæmd- arsemi að setja upp rennibrautim- ar. Við sem förum daglega í sund sjáum að þær gera mikla lukku og þá sérstaklega meðal yngra fólks- ins. En þá er komið að kvartinu! Við sem komum daglega í Laugardals- laugina erum nú, síðan rennibrautin kom upp, jafn lengi í biðröðinni og það tók okkur áður að koma okkur ofan í, synda 200 metrana og fara upp úr aftur. Það væri því mikil bragarbót, ef settur væri upp nokk- urskonar „hraðkassi" fyrir þá sem ekki ætla að nýta sér þær lystisemd- ir sem boðið er upp á. Fleira er það nú reyndar sem ég vil hafa orð á. Þau böm sem hafa keypt sig inn og keypt jafnframt ferðir í rennibrautina, en of fáar, þurfa að fara aftast í röðina til að geta bætt við sig ferðum. Þar bíða þau rennblaut og skjálfandi. Þetta er ótækt. Það á að vera sjálfsagt að þau geti ákveðið að fara fleiri ferðir en þau ráðgerðu í upphafi án þess að þurfa að „afplána“ bið- röðina aftur. Annað hvort eiga þau að fara fremst í röðina, því þau em jú búin að kaupa sig inn, eða þá fá afgreiðslu strax, t.d. í gegnum þær lúgur sem lyklunum er skilað inn um. Loks vil ég geta þess að mér finnst yfir höfuð ekki eðlilegt að það sé borgað sérstaklega fyrir af- notin af rennibrautinni. Þau ættu að vera falin í aðgangseyrinum al- veg eins og afnotin af öllum heitu pottunum. Rennibrautin getur ekki verið dýrara fyrirbæri en allir þess- ir heitu pottar, sem em öllum til afnota ótakmarkað, ef þú aðeins greiðir aðgangseyrinn. S. Ó. R.B.BYGGINGAVÖRHR HE Suðurlandsbraut 4, Slmi 33331 og Nethyl 2, Ártúnsholti, Slmi 671440 :t UUl. ,M HUOAntJTMMl’? .GWJAJflWUOflQM MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. JÚLÍ 1988 THOROGRIP Thorogrip er sementsefni, rýrnar ekki, fljótharðnandi. Þenst út við þornun og er ætlað til að festa ýmsa málmhluti t stein og stein- steypu. VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 691282 KL. 10-12 FRÁ MÁNUDEGI TIL FÖSTUDAGS LJÓSMYNDABÚÐIN I dag og næslu daga bjóðum við ótrúleg tilboð á öllum ljós- myndavörum t.d. "slidesleðum" ÚTSALA Afsláttur af öllum karlmannafötum, jökkum, terylenebuxum og ýmsum öðrum vörum. 'k Karlmannaföt kr. 3.995 — 5.500 — 8.900 og 9.900. k Jakkar kr. 4.995. k Terylenebuxur kr. 1.095— 1.595 og 1.795. Andrés, Skólavörðustíg 22, sími 18250.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.