Morgunblaðið - 14.07.1988, Side 52
52
MORGUNBLAÐŒ) IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 14. JÚLÍ 1988
fném
FOLX
Frá
JóniHalldóri
Garðarssyni
i Þýskalandi
■ TONY Schumacher, fyrrum
landsliðsmarkvörður Vestur-
Þýskalands, leikur nú með tyrk-
neska liðinu Fenerbahce frá Istan-
bul. Hann er sann-
kölluð hetja þar um
þessar mundir því
uppselt var á fyrstu
æfinguna hjá liðinu,
40.000 þúsund manns, og komust
færri að end vildu. Hann segist aldr-
ei hafa upplifað annað eins og líkir
þessu við að liðið hafi veriða að
vinna heimsmeistaratitil. Schumac-
her fór út að borað á einu besta
veitingahúsi Istanbul á dögunum
og var honum tjáð af eigandanum,
að ef hann héldi hreinu gegn Galat-
asary, sem er frægast lið Tyrkja
og er einnig frá Istanbul, fengi
hann að borða þar frítt í heilt ár.
■ JÖRGEN Andersen, Nor-
maðurinn sem leikur með
Eintracht Frankfurt, hvefur verið
einn besti leikmaður liðsins í æf-
ingaleikjum sem fram hafa farið
að undanfömu. Hann skoraði meðal
annars 4 mörk er Frankfurt sigr-
aði utandeildarlið, 18:0.
■ ARI Haan, þjálfari Stuttgart,
hefur verið gagnrýndur fyrir að
hafa ekki tilskilin þjálfararéttindi
til að þjálfa lið í Bundesligunni.
Vestur-þýska knattspymusam-
bandið setti nýlega þær reglur að
þjálfarar í Bundesligunni yrðu að
hafa ákveðna þjáflaragráðu frá
íþróttaháskólanum í Köin til mega
þjálfa. Haan var við nám í skólan-
um í Köln, en hætti þegar hann
réði sig til Stuttgart í fyrra.
■ UWE Rahn, sem leikur með
Borussia Mönchengladbac, hefur
komið mjög sterkur út í æfingaleikj-
um með liðinu að undanömu. Hann
hefur ávallt veirð markahæstur.
Hann átti við meiðsli að stríða í lok
síðasta keppnistímabils, en er nú
Seinilega kominn í sitt besta form.
HOMBURG, sem lék með
veijuauglýsingu frá ensku fyrirtæki
á síðata keppnistímabili, hefur nú
fengið 100 þúsund marka skekt frá
vestur-þýska knattspymusamband-
inu. Þessi sket þykir forráðamönn-
um félagsins ekki mikil og segja
þeir að auglýsingin hafi borgað sig
og vel jþað.
■ JURGEN Kohler, landsliðs-
maður Vestur-Þýskalands, hefur
endumýjað samning sinn við Köln
til 1991. Það er þó í samningi hans
að hann megi leika á Italíu ef
ítalskt lið borgi 3,2 milljónir marka
fyrir hann.
É GRIKKINN Tisionanes, sem
leikur með Mannheim, var dæmdur
í þriggja vikna fangelsi fyrir að aka
á gamlan mann í Júgoslavíu. Forr-
áðamenn Mannheim reyna nú að
fá Tisionanes lausan úr haldi, en
það er ekki talið líklegt að það ta-
kist.
■ FRANZ Beckenbauer, lands-
liðsþjálfari Vestur-Þýskalands,
hefur nú skilið við konu sína, Diane,
eftir 12 ára sambúð. Hann hefur
nú fundið sér aðra kæmstu og er
hún skrifstofustúlka hjá vestur-
þýska knattspymusambandinu.
Beckenbauer á þrjá drengi frá
fyrra hjónabandi.
Tony Schumachor.
TENNIS / NIKE-DUNLOP
FRJALSAR IÞROTTIR
Verðlaunahafar
Nike-Dunlop tennismótið fór fram fyrir skömmu. Verðlaunahafar í unglingal-
fokki á mótinu eru á myndinni. Þau eru: F.v. Jónas Bjömsson, Anna P.
Stefánsdóttir, Úlfhildur Indriðadóttir, Fjölnir Pálsson, Amey Þórarinsdóttir,
Elísabet Sveinsdóttir og Stefán R. Pálsson.
KA á höttunum eftir
Gunnari Gíslasyni
ÍR-liAIA sem tók þátt í unglingamótum í Svíþjóð. Efri röð frá vinstri: Hjalti Siguijónsson, Bragi Viðarsson, Einar
Marteinsson, Helgi Bjami Birgisson, Bryndís Guðnadóttir, Anton Sigurðsson og Sigrún Gunnarsdóttir. Neðri röð frá
vinstri: Amaldur Gylfason, Amheiður Hjálmarsdóttir, Hrefna Frímannsdóttir, Guðrún Valdimarsdóttir, Guðrún Ásgeirs-
dóttir, Stefanía Kjerúlf og Linda B. Ólafsdóttir.
Hið árlega Hi-Ci-Skagamót sem
er knattspymukeppni 6.
flokks liða drengja fer fram á Akra-
nesi dagana 12.—14. ágúst nk.
Þetta mót er orðið árlegur við-
burður og hefur vel til tekist um
framkvæmd þess á undanförnum
ámm. Auk knattspyrnumótsins
verður ýmislegt fleira til gamans
gert, efnt verður til mikillar grill-
veislu og einnig verður haldin kvöld-
vaka með ýmsum skemmtiatriðum.
Þá fer fram í tengslum við mótið
önnur knattspyrnukeppni innan-
húss.
Þátttökutilkynningar vegna móts-
ins skulu hafa borist fyrir 20. júlí
nk. og eru allar nánari upplýsingar
gefnar hjá Steini Helgasyni fram-
kvæmdastjóra knattspyrnufélags
ÍA.
Hi-Ci-Skagamótið
KNATTSPYRNA
KNATTSPYRNA
Anton setti Islands-
met í grindahlaupi
Unglingalið ÍR í fijálsum íþrótt-
um er nýkomið úr keppnisferð
til Svíþjóðar þar sem tekið var þátt
í þremur mótum. Alls voru 18
krakkar á aldrinum 14 til 18 ára
sem fóru utan.
Anton Sigurðsson, sem er aðeins
14 ára, setti íslandsmet unglinga í
80 metra grindahlaupi á móti sem
fram fór í Helsingborg. Hann hljóp
á 13,01 sek.
Árangur unglinganna var góður og
bættu þau sig flest 1 sínum aðal-
greinum. Krakkamir kepptu fyrst
á móti í Trelleborg sem 100 kepp-
endur tóku þátt í. Þar náði Bryndís
Guðnadóttir, sem er 18 ára, að sigra
í spjótkasti, kastaði 32,54 metra.
Síðan var keppt í Nybro þar sem
keppendur voru samtals 85. Þar
sigraði Bragi Viðarsson í 800 m
hlaupi á 2.27,99 mín. Guðrún Ás-
geirsdóttir sigraði í 100 m hlaupi á
13,95 sek. Guðrún Valdimarsdóttir
sigraði í langstökki, stökk 4,66
metra.
Loks var keppt í Eyrarsundleikun-
um í Helsingborg og voru keppend-
ur þar samtals 2800 og voru 20 til
90 þátttakendur í hverri grein. ís-
lendingunum tókst ekki að komast
í úrslit enda mótið eitt það sterk-
asta á Norðurlöndum í þessum ald-
ursflokki. Þar náð Anton að setja
unglingamet í grindahlaupi eins og
áður segir. Eins náðu Einar Mar-
teinsson góðum árangri í spjót-
kasti, kastaði 47,54 metra. Helgi
B. Birgisson stóð sig vel í 100 m
halupi (12,40), 200 m hlaupi
(24,74) og 800 m hlaupi (2.06.12).
Guðrún Asgeirsdóttir hljóp 400 m
á 61,43 sek. Guðrún Valdimars-
dóttir stökk 4,92 m í langstökki og
Hrefna Frímannsdóttir stökk 4,85
metra, en þær eru báðar 16 ára.
Krakkarnir söfnuðu sjálf fyrir ferð-
inni sem tókst $ alla staði mjög vel
að sögn fararstjórans, Stefáns Þórs
Stefánssonar.
GUNNAR Gíslason, knatt-
spyrnumaður, með Moss í Nor-
egi, er staddur hér í sumarfríi
um þessar mundir, og hafa KA
menn verið að reyna að fá hann
í sínar raðir fyrir næsta keppn-
itímabil.
Gunnar sagði í samtali við
Morgunblaðið að það væri
möguleiki á að hann léki hér heima
næsta sumar, og þá hugsanlega
með KA. „Það er hins vegar ekkert
afráðið í þessu efni, og KA er ekki
eina liðið hérna sem hefur falast
eftir mér,“ sagði Gunnar.
Um væntanlega mótheija Moss í
Evrópukeppninni, Real Madrid,
sagði hann að það hefði verið
draumurinn að lenda á móti þeim.
„Þetta er sannakallaður óskaleikur,
við hefðum ekki geta dregist gegn
betra liði. Möguleikar okkar eru
hins vegar harla litlir, eins og gefur
að skilja, sagði hann að lokum.
ÍHém
Framundan
Golfmót
■ LACOSTE-mótið í golfi fer
fram í Grafarholti á laugardaginn.
Þetta er opið mót og verða leiknar
18 holur með forgjöf. Verðlaun
verða einnig veitt fyrir besta skor-
ið. Þetta mót er það síðasta fyrir
landsmót sem hefst 21. þessa mán-
aðar. Þetta mót er því kjörið tæki-
færi til undirbúnings fyrir væntan-
lega landsmótskeppendur. Skrán-
ing og pöntun á rástímum fer fram
í Golfskálanum Grafarholti.
■ OPNA Húsavíkurmótið í
golfi fer fram um helgina. Leiknar
verða 36 holur á Kaltavelli með og
án forgjafar í karla, kvenna og
unglingalfokki. Golfvöllurinn er í
ágætu ásigkomulagi og er búist við
góðri þátttöku eins og verið hefur
undanfarin sumur. Skráning þarf
að berast fyrir föstudagskvöld.
Fijálsar íþróttlr
■ , UNGLINGAMEISTARA-
MÓT íslands 15 til 18 ára í fijáls-
um íþróttum fer fram dagana 23.
og 24. júlí í Reykjavík og á Húsavík.
Keppt veður í fjórum flokkum.
Skráningu fer að ljúka.
■ HERAÐSMÓT HSS í frjáls-
um íþróttum fer fram um næstu
helgi að Sævangi og hest mótið á
laugardaginn kl. 14.00.
Knattspyma
■ Knattspyrnudeild Breiða-
bliks og verslunin Gull & Silfur h/f
munu standa fyrir knattspymumóti
fyrir 3. og 4. flokk kvenna, helgina
6. og 7. ágúst.
Þetta er í fjórða sinn sem mót þetta
,er haldið og fer umfang þess stöð-
ugt vaxandi.Árið 1985 voru þátt-
takendur um 50 en í fyrra vom
þeir 200 talsins.
Framkvæmd verður svipuð og und-
anfarin ár, þ.e. leikið verður í riðlum
á laugardag og úrslitariðlum á
sunnudag og endað með verðiauna-
afhendingu á sunnudagskvöld.
Senda má eitt lið til keppni í hvorum
flokki. Leikið verður samkvæmt
reglum KSÍ um minni-knattspyrnu
og kvennaknattspyrnu, nema hvað
leiktíma gæti verið hnikað til skipu-
lagsins vegna. Liðum utan af landi
verður útvegað svefnpokapláss, sé
þess óskað.
Þátttökutilkynningar þurfa að hafa
borist til knattspyrnudeildar UBK
fyrir 15. júlí.
Karate
■ KARATEDEILD Stjörnunn-
ar býður nú í fyrsta skipti upp á
karateskóla fyrir 6-12 ára krakka.
Karateskólinn er rekinn í samvinnu
við íþrótta- og leikjanámskeiðið í
Garðabæ og stendur yfir 18.-29.
júlí. Innritun verður næstkomandi
föstudag í Garðaskóla frá klukkan
10.00-16.00.
Kraftlyftingar
■ DR. Squat, öðru nafni Dr.
Frederick C. Hatfield, verður með
þjáflaraskóla í Æfingastöðinni
Engihjalla í Kópavogi dagana 15.
til 17. júlí. Hér er um að ræða nám-
skeið í kraft- og líkamsþjálfun.
Einnig verður kennd næringafræði,
aerobic, teygjur, íþróttanudd,
tækniþjálfun, endurnýjunartækni
og annað er viðkemur þjálfun
mannslíkamans.
Allir þátttakendur fá viðurkenning-
arskjal að hálfu Dr. Hatfields í lok
námskeiðs og útnefningua líkams-
ræktarþjálfari að hálfu KRAFT.
Skráning fer fram í Æfingastöðinni
Engihjalla.